Morgunblaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 60
Mmííd
-setur brag á sérhvern dag!
MORG UNBIADIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SlMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Kristinn
Tíu blýantar og
tvær reglustikur
UNDANFARIÐ hefur verið unn-
ið að þvi á Manntalsskrifstofu
Reykjavíkur að undirbúa borgar-
sljórnarkosningarnar sem fram
fara á morgun. Starfið felst með-
al annars í því að panta og taka
saman tíu blýanta, tvær reglu-
stikur, yddarar og strokleður til
að setja í hverja þeirra 98 kjör-
deilda sem í Reykjavík eru. Tvær
_í^-konur vinna við þetta og að sögn
Érlu Magnúsdóttur, sem sést á
myndinni, er þetta sett í tösku,
ásamt tveimur deildarskrám,
Saltverksmiðjan
Tilboði
hafnað
TILRAUNIR til að fá hollenska fyr-
irtækið AKZO til að halda tímabund-
ið áfram að kaupa heilsusalt frá
saltverksmiðjunni á Reykjanesi hafa
__engan árangur borið. Á þriðjudag
var haldinn fundur í Danmörku, sem
bústjóri móðurfélagsins Saga Food
Ingredients stóð fyrir í samráði við
Hitaveitu Suðumesja, til að reyna
að _ná sölusamningi við AKZO..
Á fundinum voru fulltrúar AKZO
spurðir hvort fyrirtækið væri tilbúið
til að halda áfram að kaupa salt frá
verksmiðjunni á lægra verði þar til
settur hefði verið upp nýr búnaður
sem fullnægði kröfum AKZO um
kornastærð og eðlisþyngd heilsu-
saltsins. Á miðvikudag barst svo
svarbréf frá AKZO þar þar sem
þessum óskum var alfarið hafnað.
Bústjóri SFI í Danmörku hafði
fengið gjaldþrotaskiptunum frestað
um einn mánuð meðan samningsum-
ieilanir stóðu yfir en eftir að afsvar
AKZO lá fyrir ákvað bústjóri í gær
að ekki væri ástæða til frekari frest-
unar og ekki yrði komist hjá að óska
eftir að SFI yrði tekið til gjaldþrota-
skipta sem fyrst.
eintaki af kosningalögunum og
öðru því sem þarf í kjördeildirn-
ar, eftir lokun skrifstofunnar á
morgun. Töskurnar fara svo nið-
ur í Ráðhús Reykjavíkur, þar sem
þær innsiglaðar og svo afhentar
á laugardagsmorgun. Erla, sem
hefur unnið á Manntalsskrifstof-
unni í 17 ár, segir að í ár hafi
helsta breytingin í þessu starfi
verið sú að blýantarnir hafi kom-
ið yddaðir til þeirra. Áður hafi
alltaf þurft að ydda þá, en það
hafi verið mikil vinna.
Atvinnulausir og
aldraðir fá bætur
*
Forysta ASI fundar með forsætisráðherra í dag
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir að þótt ekki hafi verið sam-
ið um það sérstaklega við aðila vinnumarkaðarins þá hafí ríkisstjórnin
ákveðið að eingreiðslur sem launanefnd ASÍ og vinnuveitenda samdi um
í seinustu viku verði greidd lífeyrisbótaþegum og ofan á atvinnuleysisbæt-
ur til atvinnulausra með sambærilegum hætti og til launþega. Af tæknileg-
um ástæðum sé þó ekki hægt að greiða þetta fyrr en 1. júlí.
„Ríkisvaldið mun jafnframt beita
sér fyrir því í stjórn Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins að lífeyrisþeg-
ar hans muni fá samsvarandi bætur
úr þeim sjóði, enda greiðist iðgjald
af eingreiðslunni. Ég vonast til þess
að það sama gildi um lífeyrissjóði
á almenna vinnumarkaðinum,"
sagði Friðrik.
Hindranir á framkvæmdinni
„í opinbera kerfinu hafa ein-
greiðslurnar til ellilífeyrisþega verið
greiddar í gegnum lífeyrissjóð opin-
berra starfsmanna, sem er nánast
bara aðferð, því ríkið leggur eigi
að síður peninga til sjóðsins og
notar greiðslukerfi lífeyrissjóðsins,
sem við getum hins vegar ekki not-
að hjá okkar sjóðum,“ sagði Bene-
dikt Davíðsson, forseti ASÍ.
Forystumenn ASÍ telja sig ekki
hafa fengið fyllilega staðfest hjá
ríkinu að atvinnulausir muni fá
launabætumar. Benedikt kvaðst þó
ekki telja að efnislegur ágreiningur
væri um málið en hins vegar kynnu
að vera lögformlegar hindranir fyr-
ir framkvæmdinni vegna þess að
lögin sem sett voru um þessar
greiðslur á sínum tíma væru út-
runnin. Átti hann samtal við félags-
málaráðherra vegna þessa máls í
gær en í dag hefur verið boðaður
fundur með forsætisráðherra kl. 15.
Að sögn Benedikts verður einnig
rætt á fundinum með forsætisráð-
herra um þann ágreining sem verið
hefur undanfama mánuði milli ASÍ
og fjármálaráðuneytis um hvort
eingreiðslurnar sem samið var um
í kjarasamningum aðila vinnumark-
aðarins í fyrra hefðu verið skertar
til elli- og örorkulífeyrisþega.
Morgunblaðið/Þorkell
Þjóðhátíðarfánanum flaggað
FÁNA þjóðhátíðarársins var flaggað í fyrsta skipti í gær við bæinn á Þingvöllum. Steinn Lárus-
son, framkvæmdastjóri Þjóðhátíðarnefndar, og Hanna María Pétursdóttir, þjóðgarðsvörður á Þing-
völlum, þjálpuðust að við að draga fánann að húni. Merki lýðveldisafmælisins er á fánanum en
það hannaði Jón Ágúst Pálsson.
*
Ahugiá
frekari
umsvif-
umíBláa
lóninu
STEFÁN Friðfinnsson, forstjóri
íslenskra aðalverktaka, segir að
fyrirtækið hafi áhuga á mark-
vissri uppbyggingu á vegum
Heilsufélagsins Bláa lónsins.
Aðalverktakar eru 20% eigendur
hlutafjár Heilsufélagsins Bláa
lónsins. Stefán sagði í samtali
við Morgunblaðið að ekkert lægi
fyrir um það hvernig eða hvort
þátttaka Aðalverktaka í þeirri
uppbyggingu sem þar er fyrir-
huguð yrði aukin.
Hann kvað fulltrúa Aðalverk-
taka í stjórn Heilsufélagsins
Bláa lónsins hafa lýst þeirri
skoðun Aðalverktaka, að félagið
hefði mikla trú á frekari upp-
byggingu við Bláa lónið, en mál
væru ekki komin á það stig að
neinar formlega viðræður væru
• hafnar um það hvernig áð henni
skuli staðið, né hversu umfangs-
mikil hún verði.
íslenskir aðalverktakar eiga
Heilsufélagið Bláa lónið í sam-
eign við Hitaveitu Suðurnesja,
Grindavíkurbæ, Eignarhaldsfé-
lag Suðurnesja og Heilsufélagið.
Hlutafé félagsins er samtals 30
milljónir króna og samkvæmt
upplýsingum blaðsins liggur
fyrir heimild til hlutafjáraukn-
ingar upp í 100 milljónir. Sú
heimild verður nýtt, samkvæmt
heimildum, verði niðurstaðan sú
að ráðast í umfangsmikla upp-
byggingu heilsu-, bað- og ferða-
þjónustu við Bláa lónið.
Læknismeðferð greidd
Áætlanir um rekstur Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga
_ Hagnaður þrátt fyrir áföll
VIÐGERÐ á ofninum sem bilaði í járnblendiverk-
smiðjunni á Grundartanga fyrr í þessum mánuði,
þegar glóandi kísiljárn brenndi sér leið gegnum
þykka einangrun, gengur samkvæmt áætlun.
Að sögn Jóns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra
verksmiðjunnar, er ekkert sem bendir til annars
en að ofninn verði tilbúinn til rekstrar um mitt
•^Hta ár. Jón sagði að áætla mætti að glataður
rfagnaður fyrirtækisins vegna bilunarinnar og
viðgerðarkostnaðurinn í .heild muni samanlagt
verða á bilinu 150-200 milljónir króna. Ekki ligg-
ur fyrir hvað fæst bætt gegnum tryggingar.
Jón sagði að nú væri búið að verka fóðringu
út úr ofninum og hann væri tilbúinn til endurfóðr-
unar.
Rekin með hálfum afköstum
Á meðan ofninn er í viðgerð er verksmiðjan
einungis rekin með hálfum afköstum og minnkar
framleiðslan um 6-7.000 tonn af þeim sökum.
Þá sagði Jón að ýmsir fleiri biðu tjón vegna þessa,
m.a. skipafélög sem önnuðust flutninga á hráefni
til verksmiðjunnar og útflytjendur sem notuðu
skipin til að flytja út vörur. Auk þess tapaði höfn-
in um hálfri annarri milljón vegna minni flutninga.
Aðspurður um horfur fyrir árið í heild svaraði
framkvæmdastjórinn: „Við verðum með nokkuð
góðan hagnað eftir sem áður. Það er engin spurn-
ing, þó hann verði ekki eins mikill eins og hann
hefði annars verið.“
Tryggingastofnun ríkisins og
Heilsufélagið Bláa lónið hafa
gert með sér samning um að
stofnunin greiði kostnað við
meðferð allt að 100 psóríasis-
sjúklinga á þessu ári. Miðað er
við að hver þeirra þurfi að baða
sig í lóninu að meðaltali 18 sinn-
um meðan á meðferð stendur.
Samningurinn þýðir að sjúk-
lingar geta fengið meðferð við
sjúkdómi sínum sér að kostnað-
arlausu. Kostnaður við ferðir
verður greiddur samkvæmt
þeim reglum sem gilda um
greiðslu ferðakostnaðar hjá
Tryggingastofnun ríkisins. Með-
ferð verður undir umsjón sér-
fræðinga i húðsjúkdómum.