Morgunblaðið - 10.06.1994, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ lð94
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
GRÆNLAND
Þrjú skip eru
komin á síldar-
miöin NA af
Langanesi____
Jan Majen
ISLAND
FÆREYJAR
«> /
Flokksþing Alþýðuflokks hófst í gærkvöldi
• •
Ossur gefur kost á sér
sem varaformaður
Morgunblaðið/Þorkell
Heilbrigðisráðherra um útgjalda-
aukningu í ráðuneyti hans
Halli eykst ekki
um 1-2 milljarða
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra,
segir að það sé af og frá að útgjöld heilbrigðisráðuneytisins verði 1-2
milljörðum króna hærri en gert er ráð fyrir í fjárlögum. Að frátöldum
þeim sérstöku útgjaldaákvörðunum sem ríkisstjórnin hafí tekið sameigin-
lega eftir samþykkt fjárlaga sé um að ræða vanda upp á einhverjar hundr-
uðir milljóna og hann hafí góðar vonir um að viðunandi niðurstaða náist
varðandi hann með útgjaldaniðurskurði.
sem þeir hefðu haft á stóru sjúkra-
Ný útgjaldatilefni
Guðmundur Ámi sagði að ýmsar
forsendur hefðu breyst frá af-
greiðslu fjárlaga. í fyrsta lagi vægi
þungt sú ákvörðun forsætisráð-
herra og ríkisstjórnar eftir viðræður
við verkalýðshreyfingu að falla frá
áformum um breytingar á ein-
greiðslufyrirkomulagi til lífeyris-
þega og öryrkja, en þær yrðu
greiddar út með óbreyttum hætti
þetta árið. Auk þess hefði verið
tekin ákvörðun um að sex þúsund
króna eingreiðslan sem launþegar
fengju kæmi einnig lífeyrisþegum
til góða. Samanlagt myndi þetta
auka útgjöldin um 320 milljónir
króna umfram ákvarðanir fjárlaga.
Þá væri einnig ljóst að í nýgerð-
um kjarasamningum við hjúkrunar-
fræðinga væru staðfest þau kjör
húsunum, en hingað til hefði verið
miðað við að sjúkrahúsin bæru
þennan kostnað með gerð ráðning-
arsamninga og ýmissa starfskjara-
breytinga. Nú kæmi þetta inn í
grunn fjárlagagerðar þar sem um
formlega kjarasamninga væri að
ræða og myndi leiða til útgjalda-
auka frá fyrri forsendum.
Guðmundur sagði að áform um
mikla lækkun sjúkratrygginga
myndu skila sér að verulegu leyti.
Hins vegar hefði dregist að ná nýjum
samningum við sérfræðinga. Þeir
væru lausir en Tryggingastofnun
gerði kröfu um verulega lækkun á
þeim töxtum sem hefðu verið í gildi.
Þá hefði verið gripið til umtalsverðra
aðgerða varðandi lyfjakostnað og
hann vænti þess að þau sparnaðar-
áform skiluðu sér síðar á árinu.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur ákvörðun á þinginu
ÖSSUR Skarphéðinsson, umhverf-
isráðherra, hefur gefið kost á sér
til varaformanns og styður Jón
Baldvin Hannibalsson til áframhald-
andi formennsku í Alþýðuflokknum.
Guðmundur Árni Stefánsson, heil-
brigðisráðherra, sagði í viðtali í
gærkvöldi að hann ætlaði að taka
ákvörðun um hvort hann byði sig
fram til varaformanns þegar til
þings kæmi og hann fyndi hver
væri vilji fulltrúa. Aðspurður sagðist
hann myndi styðja Jóhönnu Sigurð-
ardóttur í formannskjöri.
Endurkosning heppilegust
Sighvatur Björgvinsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið telja heppileg-
ast og best fyrir flokkinn að endur-
kjósa formann og varaformann. „Nú
er þörf á að velja sterka forystu-
sveit, bæði út og inn á við. Hún sé
skipuð fólki sem treystir hvort öðru
og eigi gott með að vinna saman,“
sagði Sighvatur. Hann svaraði því
til að ef Rannveig Guðmundsdóttir
héldi fast við ákvörðun sína um að
bjóða sig ekki fram kæmi til kasta
kjömefndar. „Hennar hlutverk er
að leita að því sem mest samstaða
getur orðið um. Ég á ekki von á
að hún leiti til mín, heldur til starf-
andi varaformanns og hann, þegar
hann finni fyrir þrýstingnum, svari
því játandi.“
Rannveig sagðist í gærkvöldi ekki
hafa endurskoðað þá afstöðu sína
að gefa ekki kost á sér áfram í
varaformannssæti. Hún sagðist,
eins og fyrr, ekki gefa upp hvern
hún styðji til formanns í flokknum.
Flokksþingið hófst með menning-
arhátíð i íþróttahúsi Suðurnesjabæj-
ar í gærkvöldi. Formlega þingsetn-
ing er kl. 10 í dag.
Morgunblaðið/Þorkell [
JÓN BALDVIN Hannibalsson ávarpar menningarhátíð í upp- »
hafi flokksþings Alþýðuflokksins sem hófst í gærkvöldi.
Svína- og nauta-
kjöt hækkar í verði \
FOLALDAKJÖT hefur lækkað um
allt að 35% og segir Júlíus Jónsson
í Nóatúni að markmiðið sé að auka
sölu kjötsins, en folaldakjöt sé erf-
itt í sölu á þessum árstíma. Hann
segir að nú hafí framleiðendur
svínakjöts hækkað verð um 10% og
einnig fari nautakjöt hækkandi á
næstunni og nemi sú hækkun allt
að 100 krónum á kílóið.
Júlíus segir að hörð samkeppni
ríki á milli mismunandi framleið-
enda. Þegar ljóst var að verð svína-
og nautakjöts myndi hækka hefðu
framleiðendur folaldakjöts séð sér
leik á borði með að reyna að selja
einhvetja tugi tonna af því. Um
nýtt folaldakjöt væri að ræða, ekki
reykt, saltað eða bjúgu. Hefur verð
á folaldagúllasi t.d. lækkað í 598
krónur úr 1098 krónum í Nóatúni.
Verslunareigundur ósáttir
við frystingu
Júlíus segir að nautakjötsfram-
leiðendur frysti nýtt kjöt til að halda
verðinu uppi og verslunareigendur
séu ósáttir við það. Offramleiðslan
væri hreinlega fryst og þar með
vandamálið sem henni fylgdi.
Á bát til
Hafnar frá
Helsinki
Hornafirði. Morgnnblaðið.
TVEIR ofurhugar frá Finn-
landi komu heilir í höfn á hrað-
bát sínum á Höfn um miðjan
dag í gær. „Ferðin hefur geng-
ið mjög vel, en veðrið var held-
ur slæmL nema þegar við nál-
guðumst ísland. Þá lægði vind-
inn og öldurnar minnkuðu,"
sagði leiðangursstjórinn Pekka
Piri við komuna.
Pekka og Matti Pulli, skip-
stjóri, hófu för sína í Helsinki
fyrir 23 dögum, á Finnfaster,
um 8 metra löngum, opnum
hraðbáti úr áli. Eina vistarver-
an á bátnum er stýrishús úr
segli. Kapparnir hafa komið
við á tíu stöðum í ferðinni, til
dæmis Gautaborg, Kaup-
mannahöfn og Færeyjum.
Samhugur fólks í norðri
Ferðin er farin til að kanna
styrk bátsins, en þessi tegund
af bátum er að mestu notuð
af hernum og við olíuborpalla.
Þeir félagar hafa með sér skjal
sem þeir fengu í Helsinki þann
22. mars sl. á ráðstefnu nyrstu
landa norðursins. Hafa ýmsir
ritað nafn sitt á það á við-
komustöðum þeirra og á það
að sýna samhug fólksins í
norðri. Nú liggur leið tvímenn-
inganna til Reykjavíkur, þar
sem forseti Islands ritar nafn
sitt á skjalið.
Táskór hurfu
með farangri
FARANGUR tveggja ballett-
dansara fráSan Fransisco týnd-
ist á leið til íslands í gær.
Dansararnir Elizabeth Loscavio
og Anthony Randazzo eru stödd
hér á landi til að sýna tvo dansa
úr ballettum Helga Tómassonar.
í farangrinum voru táskór í eigu
Elizabeth og þurfti hún því að
finna passlega skó hjá Listdans-
skóla Islands. Salvör Nordal,
framkvæmdasljóri islenska
dansflokksins, segir að þar sé
mikið til af skóm, en þetta sé
þó bagalegt því táskór dansara
séu eins og hljóðfæri tónlistar-
manna.
Mokveiði var á síldarmiðunum norðaustur af landinu í gær
Börkur NK náði
700 tonnum í
þremur köstum
ÞRJÚ skip hófu síldveiðar norðaustur af landinu í gær og
komust strax í mokveiði á svæðinu þar sem rannsóknaskipið
Bjarni Sæmundsson fann stórar torfur af Íslandssíld fyrir
skömmu innan íslensku lögsögunnar. Börkur NK frá Neskaup-
stað hóf veiðar í gærmorgun og var kominn með 700 tonn
síðdegis, sem skipið fékk í þremur köstum.
Amþór EA kom á miðin um
miðjan dagiiin í gær og hafði í
gærkvöldi fengið um 300 tonn í
tveimur köstum. Ingvar Guð-
mundsson, skipstjóri, sagði að nóg
virtist vera af síld, að vísu væru
þeir ekki búnir að fara yfír stórt
svæði. Síldin væri góð og ekki
væri alveg á hreinu hvort eitthvað
af henni færi í söltun.
Nótin sprakk í risakasti
Þórshamar GK hafði fengið 200
tonn þegar skipverjar urðu fyrir
því óhappi að nótin rifnaði í risa-
kasti, sem þeir höfðu komist í.
„Við erum hæst ánægðir með
þetta. Þetta er öllu meira en menn
áttu von á. Síldin er stór og fal-
leg,“ sagði Sturla Þórðarson, skip-
stjóri á Berki í samtaii við Morgun-
blaðið.
Skipin eru við síldveiðar úr
norsk-íslenska síldarstofninum al-
veg út við miðlínuna á milli ís-
lands og Jan Mayen norðaustur
af Langanesi. Að sögn Jóhanns
K. Sigurðssonar, framkvæmda-
stjóra hjá Síldarvinnslunni í Nes-
kaupstað, sem gerir út Börk, virð-
ist síldin svipuð þeirri sem fannst
í rannsóknarleiðangri Hafrann-
sóknastofnunar en fituinnihald
hennar var 15%.
„Þetta lítur vel út. Þetta voru
ekki stærri köst í gamla daga,“
sagði Jóhann, og sagði að þá hefði
þótt gott að fá 50-100 tonn eða í
2.000 tunnur til söltunar, en þessi
síld sem nú veiðist sé hins vegar
ekki söltunarhæf, þar sem of mik-
il áta sé í henni á þessum tíma.
Fleiri skip stefna á miðin
Fleiri skip stefna nú á miðin
norðaustur af landinu eða eru í
startholunum. Einnig eru Ámi
Friðriksson, skip Hafrannsókna-
stofnunar og norskt rannsóknaskip
á þessum slóðum við rannsóknir.