Morgunblaðið - 10.06.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 7
FRÉTTIR
Lögmaður stofn-
enda Tímans hf.
Staðið var
við skuld-
bindingar
LÖGMAÐUR Framsóknar-
flokksins og stofnenda Tímans
hf., síðar Mótvægis hf., telur að
staðið hafi verið að fullu við
skuldbindingar þessara aðila
gagnvart Tímanum hf.
Lögmaðurinn, Gunnar Jóns-
son, hdl., sendi frá sér fréttatil-
kynningu í gær, þar sem fram
kemur að skiptastjóra þrotabús
Mótvægis hf. hafi verið greint
frá þessari niðurstöðu með rök-
studdu svarbréfi. Gunnar sagði
í samtali við Morgunblaðið að
rökstuðningurinn væri ætlaður
skiptastjóra og vildi ekki tíunda
í hveiju hann fælist.
Skiptastjórinn sagði í apríl að
full ástæða væri til að rannsaka
gaumgæfilega ýmsar aðgerðir
forsvarsmanna Mótvægis hf.,
einkanlega hvað varðaði greiðslu
Framsóknarflokksins á 4,7 millj-
óna hlutafé, serrt greitt hafi ver-
ið með verðlitlum tækjum og
viðskiptavild, þrátt fyrir ákvæði
stofnsamnings um að hluthöfum
væri óheimilt að greiða hlutafé
með öðrum verðmætum en
reiðufé.
Stofnendurnir haldið því fram
að þeir hafi staðið skil á greiðsl-
um til félagsins, í formi leigu á
búnaði og aðstöðu.
Morgunblaðið/Kristinn
Mjólkur-
fernur fá
nýtt útlit
MJÓLKURFERNUR á svæði
Mjólkursamsölunnar munu fá
andlitslyftingu í sumar. Að
frumkvæði Samsölunnar hófst
samvinna milli hennar og Þjóð-
minjasafns Islands um skreyt-
ingar á 6 milljónum ferna og í
.vikunni var nýja útlitið kynnt.
Gunnar Karlsson teiknari varð
hlutskarpastur í samkeppni um
gerð 24 mynda sem prýða eiga
femurnar en myndirnar tengjast
allar starfi Þjóðminjasafnsins á
einn eða annan hátt. Þær sýna
muni á safninu, minjastaði úti á
landi og merk hús sem sum hver
hýsa byggðasöfn eða sýningar.
Hverri mynd fylgir stuttur skýr-
ingartexti og hvatningarorð til
íslendinga um að ferðast um
landið á afmælisári lýðveldisins.
Slagorðið, Island, sækjum það
heim, og merki Þjóðminjasafns-
ins er ennfremur letrað á hveija
femu.
Tveir fengu
19 milljónir
TVEIR deildu með sér stórum
vinningspotti í Víkingalottóinu
í fyrrakvöld. Enginn Islending-
ur hafði heppnina með sér að
þessu sinni en einn Dani og
einn Finni fengu aftur á móti
hvor um sig tæpar 19 milljónir
króna. Bónusvinningur gekk
út og hlaut heppinn íslenskur
lottóspilari tæpa eina og hálfa
milljón króna.
^SIORGIÐÍH^
Sækjum
þaö heim!
opnar
Eitt skemmtilegasta markaðssvæði norðan Alpafjalla er rétt
handan við heiðina. Nú fara allir i helgarbíltúr til Hveragerðis
Fallegt og fjörugt
Failegir göngustígar, heillandi
trjágróður, barnahorn,
spennandi sýningarsvæði -
og auðvitað líflegu
sölubásarnir. Gjörbreytt
Tivolíhús í nýjum og miklu,
miklu skemmtilegri búningi.
0 Blásarakvartet
Harmonikkuleikarar halda uppi sveiflunni
Freyju-karamellum rignir á gesti
Svifdrekasýning
Tjaldvagnasýning frá Gísla Jónssyni
Eldhestar leyfa yngsta fólkinu að skreppa á bak ^
Trúðar og illþýði ur Reykjafjalli verða á sveimi
KOMDU OC TAKTU ÞÁTT í GLEDINNI
- ÞAD ERU ALLIR KÁTIR í HVERACERDI. •
, allar helgar I s«««ar
laugardag frá kl. lO til 22
sunnudag frá kl. 10 til 20
i - einmitt í leiðinni
| Fjölbreyttir sölubásar
íslenskt grænmeti
Ódýrt kjöt og fiskur á grillið
íslenskur heimilisiðnaður
Þjóðlegur matur
Fatnaður
Sælgæti
... allt sem hugurinn girnist
og miklu meira en það
Marlcaðstorgið í Hverager
0