Morgunblaðið - 10.06.1994, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ1994 37
Frímerki helguð listum og
minningu Gísla Sveinssonar
FRÍMERKI
í tilcfni lýdvcldis-
a f m æ I is
LÝÐVELDISÁRIN
í LISTUM
Myndefni: Tónlist, listiðn, kvik-
myndalist, listdans og leiklist -
Hönnuður: Steinþór Sigurðsson
TIL MINNINGAR UM
GÍSLA SVEINSSON
SÝSLUMANN
Myndefni: Gísli Sveinsson og Lýð-
veldishátíðarmerkið - Hönnuður:
Þröstur Magnússon
Lýðveldisárin í listum
Svo sem öllum er kunnugt, verð-
ur þess minnzt með margvíslegum
hætti á þessu ári og þá alveg sér-
staklega 17. júní nk., að lýðveldi
hefur staðið á íslandi í fímmtíu
ár. Póst- og símamálastofnunin
lætur sinn hlut ekki heldur eftir
liggja í þeim hátíðahöldum, sem
fram fara.
Hinn 25. maí sl. komu út fimm
frímerki, hvert að verðgildi 30 kr.
Frímerki þessi eru helguð listum
og menningu hér á landi á þessu
fimmtíu ára tímabili. Sýna þau
tónlist, listiðn, kvikmyndalist, list-
dans og leiklist. Eins og segir í
tilkynningu póststjórnarinnar er
fulltrúi myndlistarinnar, Steinþór
Sigurðsson listmálari, jafnframt
hönnuður frímerkjanna. Hann er
fæddur árið 1933 og stundaði list-
Gísli Sveinsson, forseti sam-
einaðs Alþingis 1944.
nám við Handíða- og myndiista-
skóla íslands og síðan í Stokkhólmi
og Barcelona á árunum 1949 -
1956. Þá var Steinþór um hríð
kennari við Handíða- og mynd-
listaskólann, en frá árinu 1960
hefur hann verið leikmyndateikn-
ari hjá Leikfélagi Reykjavíkur og
ýmsum öðrum leikhúsum. Verk
hans eru í flestum helztu listasöfn-
um landsins, þar á meðal í Lista-
safni íslands.
I tilkynningu póststjórnarinnar
er gerð nokkur grein fyrir þessum
listgreinum. Bent er á, að með
vígslu Þjóðleikhússins og stofnun
Sinfóníuhljómsveitar íslands árið
1950 hafi verið stigið stórt skref
til framdráttar listum og menningu
íslenzku þjóðarinnar. Síðan hefur
Þjóðleikhúsið verið vettvangur
helztu leiklistarafreka íslendinga.
Þá hefur það veitt brautargengi
öðrum listgreinum, svo sem list-
dansinum. Islenzki dansflokkurinn
var stofnaður innan vébanda þess
árið 1973. Þá var óperuflutningur
frá upphafí á stefnuskrá Þjóðleik-
hússins, og voru helztu óperur tón-
listarsögunnar fluttar þar, þar til
íslenzka óperan tók til starfa árið
1980. íslenzk listiðn var mjög í
skugga gróskumikillar myndlistar
í landinu framundir síðari heims-
styijöld. Viðhorf landsmanna tii
listiðnar breyttist svo smám saman
með stofnun Handíða- og mynd-
listaskólans árið 1939. Yngst þess-
ara listgreina hér á landi er kvik-
myndalistin.
Að mínum dómi hefur Steinþóri
Sigurðssyni tekizt hér að teikna
eða hanna mjög skemmtileg frí-
merki, sem menn hljóta að veita
sérstaka athygli. Þau koma vel til
skila þeim listgreinum, sem þau
eiga að lýsa. Þá met ég mikils, að
bæði heiti landsins og verðgildi
merkjanna koma skýrt fram og eru
í láréttri stöðu á frímerkjunum.
Fyrir bragðið er þá enginn í vafa
um það, hvernig merkin eiga að
snúa á umslaginu! Hið eina, sem
má e.t.v. velta fyrir sér, er stærð
frímerkjanna. Trúlega hefur lista-
maðurinn talið sig þurfa á þessu
rými að haida til þess að geta dreg-
ið hveija listgrein nógu vel fram.
Þessi frímerki eru offsetprentuð
í franskri prentsmiðju, Cartor S.A.,
LAigle, og er hún ný í sambandi
við prentun íslenzkra frímerkja.
Um prentunina skal ekki fjölyrt,
en því miður er miðjun frímerkj-
anna langt í frá nógu vönduð.
Vonandi gerir póststjórnin þegar í
stað athugasemd við hana, ef hún
sækir aftur til þessarar prent-
smiðju.
Nýtt frímerki 14. þ.m.
Þremur dögum fyrir lýðveldisaf-
mælið eða nk. þriðjudag, 14. júní,
kemur út frímerki
með mynd af Gísla
Sveinssyni sýslu-
manni, sem var for-
seti sameinaðs Al-
þingis árið 1944. Féll
það því í hlut hans
að Jýsa yfir lýðveidi
á íslandi á hinum
fornhelga stað, Lög-
bergi á Þingvöllum.
Þá komst Gísli m.a.
svo að orði: „Hinu
langþráða marki í
baráttu þessarar
þjóðar fyrir stjórn-
málafrelsi er náð.
Þjóðin er loks komin
heim með allt sitt,
fullvalda og óháð.
Stjórnmálaskilnaður
við erlent ríki er fuil-
komnaður. Islenzkt
lýðveldi er sett á
stofn. Endurheimt
hið forna frelsi." Síð-
an endaði hann ræðu
sína á þessum orð-
um: „í dag heit-
strengir hin íslenzka
þjóð að varðveita
frelsi og heiður ætt-
jarðarinnar með ár-
vekni og dyggð, og á
þessum stað votta
fulltrúar hennar hinu
unga lýðveldi full-
komna hollustu. Til
þess hjálpi oss Guð
Drottinn."
Gísli Sveinsson
fæddist 7. des. 1880
á Sandfelli í Öræf-
um, sonur sr. Sveins
Eiríkssonar frá Hlíð í Skaftártungu
og Guðríðar Pálsdóttur, prófasts í
Hörgsdal á Síðu, Pálssonar. Gísli
lauk stúdentsprófí 1903 og lög-
fræðiprófí í Khöfn 1910. Hann var
yfirdómslögmaður í Rvík 1910 -
1918 og sinnti auk þess margvís-
legum öðrum lögfræðistörfum á
þeim árum. Sýslu-
maður Skaftfellinga
varð hann árið 1918
og gegndi því emb-
ætti til. 1947 með
aðsetri í Vík í Mýr-
dal. Það ár varð
hann sendiherra ís-
lauds í Noregi, en
fékk lausn frá því
starfi 1951. Gísli var
lengi þingmaður
Vestur-Skaftfell-
inga og naut al-
mennra yinsælda
sýslubúa. Á Hafn-
arárum hans bar
mjög á honum í
frelsisbaráttu ís-
lendinga, enda var
hann alla tíð ein-
dreginn og harðvít-
ugur skilnaðarsinni.
Eiginkona Gísla
Sveinssonar var
Guðrún Einarsdótt-
ir. Hann lézt tæp-
lega áttræður árið
1959.
Póst- og síma-
málastofnunin
minnist með þessu
frímerki Gísla
Sveinssonar og þess,
að hann sem forseti
sameinaðs Alþingis
lýsti yfir á Þingvöll-
um gildistöku
stjórnarskrár ís-
ienzka lýðveldisins.
Þröstur Magnús-
son hannaði frí-
merkið, en það sýnir
auk myndar af Gísla
Sveinssyni Lýðveldishátíðarmerk-
ið, sem Stefán Jónsson teiknaði
við stofnun lýðveldisins. Hönnun
frímerkisins hefur tekizt mjög vel,
en það er offset-litógrafískt prent-
að hjá The House of Questa Ltd. í
Englandi.
Jón Aðalsteinn Jónsson
Lýðveldisárin
í listum.
RAÐAUGIYSINGAR
HÚSEIGENDUR -
HÚSFÉLÖG
ÞARF AÐ GERA VIÐ í SUMAR?
VANTAR FAGLEGAN VERKTAKA?
í Viðgerðadeild Samtaka iðnaðarins
eru aðeins viðurkennd og sérhæfð
fyrirtæki með mikla reynslu.
Leitið upplýsinga í síma 16010 og
fáið sendan lista yfir trausta
viðgerðaverktaka.
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
TILKYNNINGAR
Bæjardekk opnar smurstöð
laugardaginn 11. júní.
Ávallt heitt á könnunni.
Verið velkomin.
Bæjardekk,
Langatanga 1a, 270 Mosfellsbæ,
sími 668188.
Fjallahjólakeppni
Bikarmeistaramót Eimskips verður haldið í
Öskjuhlíð sunnudaginn 12. júní kl. 13.00.
Mæting kl. 12.00við Perluna. Brautarskoðun
laugardagskvöldið 11. júní kl. 20.00.
Nánari upplýsingar í síma 678955.
Hjólreiðafélag Reykjavíkur.
Lausafjáruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, Gjaldheimtunnar í Reykjavík,
ýmissa lögmanna og stofnana, fer fram nauöungarsala á ýmsu
lausafé, bifreiöum o.fl. laugardaginn 11. júnf nk. kl. 13.30 í uppboös-
sal í Tollhúsinu við Tryggvagötu (hafnarmegin).
Eftir kröfu tollstjórans ótollaðar vörur m.a. skófatnaður, allskonar
fatnaður, Calsium Cloride, rafmagnsvörur, snyrtivörur, skothylki ca
2.300 stk., bómullarvörur, búsáhöld, örbylgjuofn, stólar og borð,
umbúðir fyrir fisk 1100 kg, skrúfur og boltar, allskonar húsgögn,
allskonar varahlutir, geisladiskar, vefnaðarvara, eldhúsinnréttingar,
plastprófílar, 1 gm. dekk ca 11.000 kg, borðbúnaður, allskonar hús-
gögn, teppi, koparplötur, fiskvinnsluvél, bifr. Plymouth Volare árg.
1978, Citroen BX19 árg. 1984, og margt fleira.
Eftir kröfu ýmissa lögmanna, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, banka,
sparisjóða og fl.
Bifr., KC-880 Ford árg. 1986 6 víxlar hver að fjárhæð kr. 220.000,-
með gjalddögum 12.10.'94, 12.11.'94, 12.12.'94, 12.01.'95,
12.02.'95, 12.03.'95, allir útg. 11.06.'93 af Ester Antonsdóttur til
greiðslu af Þorbirni Pálssyni og ábektir af Karli Pálssyni, sjónvarps-
tæki, hljómflutningstæki, allskonar húsmunir og tæki, málverk, alls-
konar skrifstofutæki, fatnaður og margt fleira.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiösla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn i Reykjavík.
auglýsingar
yJ skíðadeild
1. Aðalfundur skíðadeildarinnar'
verður haldinn í Hamragili
sunnud. 12. júní kl. 11.
2. Hreinsunardagur í Hamragili
sunnudaginn 12. júní kl. 13.
3. Sumarferðin verður 9.-11.
júlí. Farið verður á Snæfells-
nes. Nánar auglýst síðar.
4. Æfingakrakkar, fylgist með
símsvaranum, s. 77750,
vegna æfinga í sumar.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Dagsferðir laugardaginn
11. júní:
1. Kl. 09.00 Söguferð á Njálu-
slóðir. Fararstjóri: Árni Björns-
son. Leiðin liggur um sögusvið
Njálu í Rangárvallasýslu. Rifjað
verður upp efni sögunnar eins
og tilefni gefst til. Fróðleg ferð
- upplifið Njálu i réttu umhverfi
- einstakt tækifæri.
Verð kr. 2.200. Brottför frá BSÍ
og Mörkinni 6.
2. Kl. 13.00 Vigsla bautasteins
og hringsjár á Þverfells-
horni/gönguferð. Gengið frá
Mógilsá - allir velkomnir. Verð
kr. 800 (tilboð). Brottför frá BSI,
austanmegin og Ferðafélags-
húsinu, Mörkinni 6. Þátttakend-
ur geta einnig komið á eigin far-
artækjum að Mógilsá. Allir fá
merki Esjugönguársins sem nú
hefst fyrir alvöru.
Sunnudagur 12. júní.
Lýðveldisgangan 7. áfangi:
Kl. 10.30 Jórukleif - Heiðarbær.
Kl. 13.00 Á slóðum Jóru, fjöl-
skylduferð.
Nú hafa 955 tekið þátt í lýöveld-
isgöngunni. Eittþúsundasti þátt-
takandinn verður væntanlega
með á sunnudaginn. Síðasti
áfanginn er sunnudaginn 26.
júní.
Ferðist um ísland í sumar.
Sumarleyfisferðir í júní:
Jónsmessuganga 19.-28. júnf
frá Hesteyri um Hlöðuvík í
Hornvík. Gist í húsum. Horn-
strandir hafa sérstöðu - engin
vélvædd umferö - göngufólk
hefur landið fyrir sig.
21. -26. júni Ingjaldssandur á
Vestfjörðum 21.-26. júní.
Ný ferð.
18.-21. júní Breiðafjarðareyjar
- Látrabjarg.
22. -26. júní Með jarðri Vatna-
jökuls, skíöagönguferð.
22. -26. júnf Esjufjöll. Biðlisti.
23. -26. júnf Jónsmessuferð:
Skagafjörður - Málmey -
Tindastóll.
Upplýs. og farm. á skrifstofunni.
Gerist félagar og eignist nýju
árbókina „Ystu strandir noröan
Djúps“.
Fullbókað er í Skagfjörðsskála,
Þórsmörk, nú um helgina
10.-12. júnf.
Botnssúlur, helgarferð, 11.-12.
júní.
Opið hús: Kynning á ferðabún-
aði og ferðum á mánudags-
kvöldið 13. júní kl. 18-22.
Ferðafélag íslands.