Morgunblaðið - 19.06.1994, Side 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
136. TBL. 82. ARG.
SUNNUDAGUR 19. JUNI1994
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tugir þúsunda fögnuðu 50 ára lýðveldisafmæli á Þingvöllum
Morgunblaðið/Þorkell
MIKIL stemmning var meðal þjóðhátíðargesta á Þingvöllum sem fjölmenntu þiisundum saman í brekkurnar til að fylgjast með þingfundi og hátíðardagskrá.
„Efst í huga sá mikli þjóðar-
styrkur sem þama ríkti“
TUGIR þúsunda fögnuðu 50 ára afmæli Lýð-
veldisins íslands með þátttöku í hátíðarhöld-
um á Þingvöllum 17. júní. „Allt sem fram
fór á gamla þingstaðnum á Þingvöllum var
til mikillar sæmdar. Það var gaman að vera
íslendingur í gær,“ sagði Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti Islands, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Dagurinn varð ógleymanlegur
í alla staði og er þegar orðinn stórkostlegur
minningardagur. Mér er efst í huga sá mikli
þjóðarstyrkur sem þarna ríkti, fólk sótti í
gær innri styrk til að horfa fram á veginn
með minningamar að leiðarljósi. Ég er sann-
færð um að í framtíðinni verði hvetjum manni
í minni sú sterka tilfinning sem var í hjarta
hans, hvar sem hann kann að hafa verið
staddur í landinu á þessum afmælisdegi þjóð-
arinnar. Við skynjuðum að margir voru í
geðshræringu,“ sagði forseti íslands.
Steinn Lárusson, framkvæmdastjóri þjóð-
hátíðarnefndar, áætlar að allt að 75 þúsund
manns hafí komið á hátíðarsvæðið en Jón-
mundur Kjartansson, yfirlögregluþjónn í Ar-
nessýslu, telur að þar hafi verið um 60 þús-
und manns. Þúsundir manna komust ekki til
Þingvalla vegna tafa í umferð og eyddu þjóð-
hátíðardeginum í bílum sínum. Þess eru fjöl-
mörg dæmi að fólk hafi verið sex klukku-
stundir á leið þangað frá Reykjavík og ekki
komið á staðinn fyrr en hátíðarhöld voru að
mestu um garð gengin. Varpaði þetta skugga
á hátíðina. Fjölmenni tók einnig þátt í hátíð-
arhöldum vegna dagsins á vegum sveitarfé-
laga um land allt.
Börnin heilluð
Þegar Morgunblaðið ræddi við forseta ís-
lands í gær kvaðst hún hafa hitt fjölmarga
á förnum vegi í gær og hefðu allir lokið upp
einum munni um að andrúmsloftið á Þingvöll-
um hefði verið sérstakt. Þar á meðal hefðu
margir haft á orði að börnin hefðu verið
heilluð. „Þessi dagur var mikið og gott vega-
nesti fyrir æskuna,“ sagði Vigdís Finnboga-
dóttir.
„Þjóðhöfðingjarnir höfðu allir sem einn orð
á því hve sérstakt þeim þætti að fá að vera
með okkur í gær,“ sagði Vigdís Finnbogadótt-
ir. „Við veittum því athygli hve hlýlega þeir
töluðu til okkar. Þeir voru mjög hrifnir og
fannst mikið til koma hve vel okkur hefði
tekist að gera þessa hátíð úr garði.“
„í öllum meginatriðum tókst þessi hátíð
afskaplega vel,“ sagði Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra. „Það var mikil stemmning í kring-
um hátíðina, ekki síst á Þingvöllum en reynd-
ar um allt land. Ég held að það hafi tekist
að skapa mikla samkennd með þjóðinni í
kringum þennan atburð og hlýjar tilfinningar
í garð þessa áfanga og þess sem áunnist
hefur í 50 ár.“
Þj óðarstemmning
Forsætisráðherra kvaðst hafa gengið um
á Þingvöllum. „Þrátt fyrir að það hafi verið
skúrir á stundum skein gleði úr hvetju and-
liti. Fólkið var mjög sátt við sjálft sig og
landið sitt og sögu sína,“ sagði Davíð Odds-
son.
Forsætisráðherra kvaðst ekki hafa fengið
fullnægjandi skýringar á þeim vandamálum
sem komu upp í sambandi við umferð að
Þingvöllum á þjóðhátíðardaginn. Sjálfsagt
mætti segja að eitthvað hefði farið úrskeiðis
við skipulagningu en forsætisráðherra kvaðst
telja að meginástæðan væri sú að vegakerfið
hefði ekki haft undan þegar fólk hefði flykkst
af stað þegar það sá að veður yrði skárra
en spáð hafði verið. „Auðvitað er það afskap-
lega leiðinlegt og ömurlegt að fjöldi manns
vildi sækja á Þingvelli en komst ekki. í þeim
efnum held ég þó ekki að við einhvern sér-
stakan sé að sakast,“ sagði forsætisráðherra.
Davíð Oddsson sagði að erlendu gestirnir
hefðu verið himinlifandi og dálítið undrandi
eftir hátíðarhöldin. „Þeim fannst umhverfið
auðvitað magnþrungið og allir höfðu orð á
þessari miklu þjóðarstemmningu, sem kom
þeim aiveg í opna skjöldu.“
■ Þjóðhátíð/2,4,10-25,28-31,37,51, leiðai i/26