Morgunblaðið - 19.06.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.06.1994, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LÝÐVELDIÐ ÍSLAIMD 50ÁRA I Fjölsýningin Þjóðleikur Skeifur smíðað- ar, ættjarðar- ljóð o g hópflug Líf og fjör hjá síldar- stúlkum MIKILL atgangur var í kringum síldarstúlkurnar ú'órar frá Siglu- firði sem verkuðu og söltuðu síld í tunnur af miklum móð. Við og við brugðu þær undir sig léttari fætinum og dönsuðu við piltana á planinu og sungu síldarlög. Ef þeim fannst piltamir vera eitthvað latir létu þær þá heyra það og samkeppnin á milli þeirra var mikil. „Það vantar síld hér í hornið,“ kallaði ein. „Þið þurfið að færa til í kössunum, hún er alltaf með bestu sfldina,“ bætti hún við og benti á stöllu sína. Enginn tími til að slóra Sildarspekúlantinn hafði svo vakandi auga með vinnslunni á meðan hann púaði gildan vindil. Sjaldan gafst tími til að bregða sér frá og svala þorstanum, og því var vatnið drukkið beint af slöngunni. Það þurfti að bera síld í körin og brýna hnífa og enginn tími var til að slóra. Alls voru verkuð um þrjú kör af síld á Þingvöllum, eða í um tíu tunnur. Níu Siglfirðingar sýndu réttu handtökin, en þeir náðu allir í skottið á síldarævintýrinu á sín- um tíma. Morgunblaðið/Þorkell Námsferð kennara Grænlensku kennararnir Maren A. Clasen og Emilie Rosbach, sem eru frá Nuuk og Aasiaat, komu til íslands i námsferð síðastliðinn mánu- dag. „Það er yndislegt að fá að upplifa þjóðhátíðardag ís- lendinga og þetta hefur verið ógleymanleg upplifun fyrir okkur hér í dag. Við höldum þjóðhátíðardag í Grænlandi á þriðjudaginn kemur og þá munum við svo sannarlega hugsa til ykkar,“ sagði Maren. „Landstjórinn okkar er hérna, sem okkur finnst ánægjulegt, og það er gaman að fá að sjá hann. Þetta hefur hreinlega verið yndislegl hér í dag,“ sagði Emilie. FJÖLSÝNINGIN Þjóðleikur fór fram víða á Þingvöllum og var mikið að gerast. Dagskráratriðin voru flest ótímasett svo fólk þurfti að hafa augun opin til þess að taka eftir hinum ýmsum uppákomum, söng- og tónlistar- atriðum sem settu svip sinn á þjóðhátíðina. Sem dæmi um uppákomur voru Kjarvalar að mála landslagsmynd- ir hingað og þangað, siglfirskar síldarstúlkur söltuðu síld og náðu upp stemmningunni sem ríkti í síldinni árið 1961. Sigurður Sæmundsson, eld- smiður smíðaði skeifur upp á gamla mátann og gaf þær gestum og gangandi. Skammt þar frá var húsdýratjaldið, sem naut tals- verðra vinsælda yngri kynslóðar- innar. Þar var að finna meðal ann- ars, grísi og gyltur, kýr með kálfa, kindur, hesta og gæsir. Ungar leikkonur fóru með ætt- jarðarljóð víðs vegar um hátíðar- svæðið og á hádegi flaug hópur einshreyfilsflugvéla yfir svæðið. Nokkrir fombílar voru til sýnis, nýbónaðir og glansandi. Ýmsar uppákomur voru í kringum þá, meðal annars tók sönghópurinn Emil og Anna Sigga lagið upp á einum pallbílnum. Kórar sungu ættjarðar- og tregasöngva, lúðrasveitir léku og boðið var upp á göngutúra um svæðið. Einnig setti þjóðleg fjöl- skyldureið í sauðalitunum svip sinn á hátíðarsvæðið. Kjarvalar með krumpaða hattkúfa máluðu landslags- og álfamyndir víða á Þingvöll- um og sáust bera trönur og olíuliti um svæðið. Þeir voru einnig íklæddir snjáðum ryk- frakka og fötum í anda lýð- veldishátíðarinnar 1944. Þessi Kjarval heitir réttu nafni Har- aldur Haraldsson og segir að hann hafi einungis haft eina mynd með sér til að mála yfir daginn. Upp úr hádegi var myndin nær fulikláruð, en Kjarvalarnir áttu að vera að mála fram eftir degi. Morgunblaðið/Rax Síldin söltuð af kappi og eng- inn tími er til að slóra. Margt fólk staldraði við og fylgdist með atganginum. Stund milli stríða og gömlu sjó- mannalögin tekin. Margir tóku undir með söngfólkinu að norðan og greinilegt er að lögin riofj- uðpu upp gamlar minningar hjká mörgum. Frá Egils- stöðum á Þingvöll Hjónin Úlfar Jónsson og Krist- björg Halldórsdóttir, sem bú- sett eru á Egilsstöðum, létu sig ekki vanta á Þingvöll. Þau kváðust þó ekki hafa gert sér ferð sérstaklega til að vera við hátíðarhöldin; undanfarna viku hefðu þau verið í sum- arbústað í grenndinni og því hefði ekki annað komið til greina en að mæta á Þingvöll og taka þátt í hátíðarhöldun- um, sem þeim þótti hafa farið hið besta fram. Morgunblaðið/Golli ÞESSAR ungu konur íklæddar gömlum íslenskum búningum, tóku lagið fyrir gesti þjóðhátíðarinnar. Tónlist var gert hátt undir höfði á Þingvöllum og ómaði lúðraþytur og kórsögnur víða um svæðið. ÞJÓÐlEG hópreið í sauðalitunum var um svæðið og fóru þar hreppstjóri, oddviti, prestur, maddama, bændur og hjú. A Ieið- inni áðu þau tvisvar, bundu bagga og sóttu skreið áður en för- inni var haldið áfram upp Almannagjá. LADA SAMARA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.