Morgunblaðið - 19.06.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.06.1994, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LÝÐVELDIÐ ÍSLAIMD 50ÁRA Sjö íslenskir stórmeistarar í hraðskák á Nýjatorgi Tólf ára strákur í hópi sig- urvegara Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið. ÍSLENSKU stórmeistararnir sjö vöktu óskipta athygli á Nýjatorgi vegfarenda síðdegis 17. júní, þar sem þeir tefldu hraðskákir. Það voru þeir Friðrik Ólafsson, Guðmundur Sigur- jónsson, Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson, Jón L. Ámason og Hannes Hlífar Stef- ánsson. Guðmundur Arnlaugsson, alþjóðlegur dómari, var í fararbroddi skákmannanna og leiddi mótið. Alls tefldu meistaramir 278 skák- ir, eða næstum fjörutíu skákir á mann á þeim þremur tímum, sem skákmót- ið stóð. Sautján skákmenn unnu ís- lensku meistarana og 33 náðu jafn- tefli. Yngsti sigurvegarinn, Stig Jörg- ensen, var tólf ára og sigraði Mar- geir Pétursson. Systir hans, Karina, tefldi einnig, en hún er aðeins sjö ára, Það var íslendingafélagið sem skipulagði mótið, í samvinnu við danska Skáksambandið. Eiguleg skrá var gefln út í sambandi við mótið og forsíðuna prýddi mynd eftir Tryggva Ólafsson myndlistarmann. Meðal efn- is var kveðja frá Vigdísi Finnboga- dóttur forseta íslands Friðrik Ólafsson sagðist hafa haft ánægju af taflmennskunni, þó langt væri síðan hann hefði teflt fjöltefli. Þetta hefði riflað upp margar góðar endurminningar, en hann hefur oft teflt hér. Meðal danskra skákmanna eru viðureignir Friðriks og Bents Larsens enn í minnum hafðar, því þær vöktu alltaf athygli. Friðrik tapaði engri skák, en gerði nokkur jafntefli. Jóhann Hjartason sagði að skemmtilegt hefði verið að taka þátt FRIÐRIK Ólafsson tapaði engri skák í fjölteflinu á Nýjatorgi í Kaupmannahöfn enda þótt langt væri um liðið siðan hann tók þátt i slikri keppni. í mótinu, þó það hefði verið strembið. Einkum sagðist hann þreyttur í fótun- um, því þeir voru margir hringimir sem meistaramir fóm þama á hellu- lögðu torginu. Jóhann sagði að and- stæðingamir hefðu verið misjafnir, en yfírleitt góðir, enda flestir úr skák- klúbbum. Jóhann tapaði fyrir tveimur færeyskum skákmönnum, sem hann sagði að hefðu verið býsna seigir. Enginn hörgull var á keppendumn, því fyrir hvem sem féll bættist strax nýr í skarðið. Framan af vom menn reyndar hvattir til að játa sig sigr- aða, en reyna ekki að sitja, til að rýma fyrir nýjum. Þeir sigmðu vom reyndar ótrauðir að reyna aftur og þá gjaman við sama meistarann. Sumir sátu við allan tímann, sem mótið stóð. MAGNÚS Tómasson, lengst til hægri, og fjölskylda hans á ÞingvöUum. Við hlið Magnúsar eru Jó- hann Geirharðsson, Olafía Sigríður Magnúsdóttir, Þorbjörg Eiðsdóttir og Geirharður Snær Jóhannsson. Magnús Tómasson var á Þingvöllum nú og 1944 Allsherj ar bílakös MAGNÚS Tómasson kom frá Reykjavík til að vera við hátíðina ásamt eiginkonu sinni, dóttur, tengdasyni og dóttursyni. Hann var einnig á Þingvöllum við lýð- veldisstofnunina 1944. „Þetta er ósköp svipaður fólksfjöldi og maður bjóst við, og eins er bílafjöldinn gífurleg- ur,“ sagði Magnús, þegar Morg- unblaðið ræddi við hann skammt frá hátíðarsvæðinu í gær. Hann var þá nýkominn til Þingvalla eftir langa ferð úr Reykjavík, hafði lagt af stað um kl. 11 úr Reykjavík en verið um þrjá klukkutíma á leiðinni og komist á áfangastað í þann mund er hátíðardagskránni var að ljúka. Manni blöskrar „Við lentum í einni allsherjar bílalest alveg frá Grensásvegi,“ sagði Magnús og kvaðst hafa verið um það bil klukkustund upp Ártúnsbrekkuna. „Flösku- hálsinn var frá Grensásvegi og uppúr Artúnsbrekku og ég skil ekki í því að umferðar|jósin skyldu vera notuð eins og þarna væri veryuleg umferð. Það er ótrúlegt að hafa ekki lögreglu- þjóna til að stjórna umferðinni og skjóta bílum inn í röðina af hliðargötunum. Þetta er hneyksli, manni blöskrar." „Egvar hér á Þingvöllum 1944. Ég var þá þjónn á Esjunni og við vorum lánaðir til vinnu hingað. Það var mikið að gera hjá okkur og þegar það var búið fórum við að skemmta okkur og gleðjast með öðrum, þannig að maður hafði lítið af hátíðarhöld- unum þá að segja," sagði Magn- ús en taldi þó útilokað að bera saman hátíðina þá og nú. „Þá, þegar þjóðin var að öðlast sjálf- stæði, gladdist hvert einasta mannsbarn í hjarta sínu og það hefur margt breyst síðan þá en samt er umgjörðin að mörgu leyti svipuð," sagði Magnús Tómasson. Hann sagði að sér sýndist að hátiðin nú færi fram með mesta sóma og kvaðst telja að liklegast mundi heimsókn hinna erlendu þjóðhöfðingja verða talin minnisstæðust frá þessum degi þegar frá liði. Hátíð í skugga Svalbarðadeilu Ósló. Morgunblaóið. NORSKIR fjölmiðlar gerðu flestir hátíðahöldunum vegna íslenska lýðveldisafmælisins góð skil og fjölluðu ítarlega um lýðveldishátíð- ina á Þingvöllum. Það vakti hins vegar athygli að stærsta dagblað Noregs, Verdens Gang, birti ekki staf um lýðveldisafmælið. Blaðið Aftenposten tekur fram í ítarlegri frétt sinni um Þing- vallahátíðina að íslendingar hafí tekið vel á móti Haraldi Noregs- konungi en að það hafí verið Vig- dís Finnbogadóttir, forseti íslands, sem var miðpunktur dagsins. Blaðið tekur sérstaklega fram að hvorki Vigdís né Davíð Oddsson forsætisráðherra hafí minnst á Svalbarðadeiluna við Norðmenn í ræðum sínum. Hins vegar hafi for- sætisráðherrann þakkað Norður- löndunum sérstaklega fyrir góða vináttu og samvinnu og hafí hann þar ekki undanskilið Norðmenn. Á sömu blaðsíðu birtir blaðið frétt um að engir íslenskir togarar til viðbótar séu á leið á vemdar- svæðið við Svalbarða og að tog- ararar þar hafí hætt veiðum. Dagbladet leggur tvær síður undir lýðveldishátíðina og gerir ummæli Haralds Noregskonungs um Svalbarðadeiluna að aðalfyrir- sögn fréttar sinnar frá Þingvöllum. Segir blaðið deiluna hafa skyggt nokkuð á komu konungshjónanna þrátt fyrir hlýjar móttökur. Þá seg- ir Dagbladet lýðveldishátíðina hafa verið hátíð í lagi enda séu íslend- ingar ekki bara þekktir fyrir gos- hveri, eldfjöll og uppáþrengjandi togara heldur einnig fyrir að vera óvenjulega úthaldsgóðir gleði- menn. A opnunni er einnig viðtal við einn þingmanna Jafnaðar- mannaflokksins sem sakar íslensk stjómvöld um tvískinnung í Sval- barðamálinu. Blaðið Arbeiderbladet segir föstudaginn hafa verið dag veislu- halda en nú sé hætta á að deilan blossi upp á ný af fullum krafti. „Veislan fyrir storminn?" er fyrir- sögn blaðsins. Það tekur hins veg- ar fram að hvorki Noregskonungur né aðrir Norðmenn á Islandi hafí orðið fyrir neinu aðkasti vegna málsins. Finnar styðja ekki málstað Norðmanna Helsinki. Morgunblaðið. FINNSKIR fjölmiðlar hafa undan- farna daga tengt saman lýðveld- isafmæli Islendinga og átök Norð- manna og íslendinga í Norður-Atl- antshafí. í fréttaflutningi fínnska einkasjónvarpsins MTV frá há- tíðarhöldunum á Þingvöllum var vegna þessa viðtal við Martti Ahtisaari Finnlandsforseta um af- stöðu Finna til deilunnar. Sagðist Ahtisaari harma það að íslensk stjómvöld vilji gefa í skyn að Finnar hafí einir allra þjóða tek- ið afstöðu með Norðmönnum. Þetta væri að sögn Finnlandsforseta al- gjör misskilningur og yfírtúlkun. Ahtisaari sagðist heldur líta á málið þannig að Finnar höfðu á þeim tíma, fyrir um tuttugu ámm, aðeins viljað tjá ánægju með að nokkur þjóð skuli taka að sér vernd lífríkisins á þessum svæðum. Hins vegar væri ekki hægt að túlka afstöðuna þannig að Finnar væm í dag með Norðmönnum á móti íslendingum. Umfjöllunin um ísland hefur verið óvenju mikil í fínnskum fjöl- miðlum í sumar, og var sagt ræki- lega frá hátíðarhöldunum í öllum þrem aðalfréttatímum sjónvarps- rásanna á föstudag. Hið virta tíma- rit Suomen Kuvalehti birti m.a. á þjóðhátíðardeginum grein eftir Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra. Finnum hefur þótt það einkar áhugavert að íslendingar skuli nú íhuga aðild að Evrópubandalaginu og ef trúandi er frásögn fínnska ríkissjónvarpsins í þessu efni hafa íslendingar tekið þá stefnu að reyna að gerast aðilar um leið og hin Norðurlöndin. Nú séu íslend- ingar aðeins að bíða eftir niður- stöðum þjóðaratkvæðagreiðslna í nágrannalöndunum. Finnsku ríkisíjölmiðlarnir hafa gert út marga fréttamenn vegna hátíðarinnar og fínnskir blaða- menn hafa streymt til landsins svo tugum skiptir. Stuttum kafla af fundi Alþingis á Þingvöllum var' útvarpað beint á rás 3 fínnska rík- isútvarpsins. Þessi rás er sannköll- uð „rás allra landsmanna" því hún hefur fleiri hlustendur en allar hin- ar rásirnar samtals. Lýðveldisfagnaður íslendinga í London Norski sendiherr- ann boðaði forföll Lundúnum. Morgunblaðid. LÝÐVELDISFAGNAÐUR íslend- inga í London var haldinn á Reg- ent’s London hótelinu að kvöldi 17. júní. Viðstaddir voru meðal ann- arra sendiherrar allra hinna ríkja Norðurlandanna að norska sendi- herranum undanskildum. Hann boðaði forföll á seinustu stundu. Fyrr um daginn komu Islend- ingar saman um borð í togaranum Leifí Eiríkssyni, sem liggur við St. Catherine’s Dock og hefur verið menningarmiðstöð íslend- inga undanfarna daga. meðal ann- ars sendir „Úvarp Reykjavík" út fréttir, viðtöl og íslenska tónlist frá skipinu. Aðalhátíðahöldin í tilefni lýð- veldisafínælisins voru í Regent’s Park um seinustu helgi. Að kvöldi sautjándans skemmtu hins vegar margir landskunnir Iistamenn landanum á einu glæsilegasta hót- eli borgarinnar. Magnús Magnús- son sjónvarpsmaður stjórnaði veisluhöldum, Helgi Ágústsson sendiherra flutti ávarp og Guð- mundur Andri Thorsson rithöfund- ur var aðalræðumaður kvöldsins. Fjöldi íslenskra menningarvið- burða í tilefni hálfrar aldar afmæl- is íslenska lýðveldisins hefur vakið talsverða athygli í London, enda margir fremstu listamenn íslands á ferð. Sjálfur þjóðhátíðardagurinn fór hins vegar að mestu framhjá Englendingum og ekki var staf- krók að fínna í Lundúnablöðunum um þessi tímamót í sögu íslenska lýðvéldisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.