Morgunblaðið - 19.06.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.06.1994, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LÝÐVELDIÐ ÍSLAIMP 50 ÁRA Apabrúin vinsælust Skátar settu svip sinn á þjóð- hátíðina sem fyrr og voru leik- tæki þeirra fyrir börn vel sótt. Linda Frederiksen, úr skátafé- laginu Skjöldungi í Sólheimum, aðstoðaði börn við að ganga yfir apabrúna svonefndu. Skátarnir voru með þrjár þrautabrautir og sagði Linda að apabrúin og að labba yfir tunnur sem hreyfast hefði verið vinsælast. Hún sagði að starfið hefði gegnið vel, þó einhver röð hefði myndast á timabili í tækin. Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Golli Matthías Á. Mathiesen formadur þjóðhátíðarnefndar Sýnum virðingu og drengskap Sjá, enn skal hátíð haldin, enn skal minnast, og horft til baka yfir foma vegi. Enn dregur landsins fólk sinn fána að húni og fapar nýjum sigri á góðum degi. Þessar upphafsljóðlínur í þjóðhá- tíðarkvæði Guðmundar Böðvarsson- ar skálds á Kirkjubóli sem flutt var á þjóðhátíð Borgfirðinga 1974 eiga ekki síður við í dag en þá. Við höldum hátíð og fögnum því að í dag eru fimmtíu ár liðin frá stofnun lýðveldis á íslandi. Löng og ströng leið var að baki þegar við íslendingar söfnuðumst saman hér á Þingvöllum 17. júní 1944 og loka- takmarki sjálfstæðisbaráttunnar var náð. Ég trúi því og vona að ókomn- ar kynslóðir muni á meðan íslensk tunga er töluð draga réttan lærdóm af því sem þjóðarsagan kennir í þeim efnum. Sjálfstæðisbarátta þjóðar sem vili sækja fram er ekki aðeins barátta um stjórnarhætti heldur einnig um allt það sem snertir okkur sjálf sem einstaklinga. Ekki er síður mikil- vægt fyrir okkur sem byggjum land- ið að setja samskiptareglur sem tryggja að hver einstaklingur fái notið frelsis og þar með hæfileika sinna. Til þess að tryggja efnahagslegt sjálfstæði verðum við að umgangast öll náttúruauðæfi, sem okkur hefur verið trúað fyrir, með þeim hætti að nýting þeirra valdi ekki skaða fyrir óboma tíð. Ekkert dugði okkur þó betur í sjálfstæðisbaráttunni en sá menn- ingararfur sem þjóðin á og hefur ávaxtað frá upphafi byggðar á ís- landi. Jón Sigurðsson forseti og aðr- ir þeir sem stóðu í fremstu víglínu sjálfstæðisbaráttunnar notuðu aldrei önnur vopn en þjóðernisleg og sögu- leg rök. Forsenda þeirrar baráttu var varðveisla íslenskrar tungu frá öndverðu. íslensk tunga verður ævinlega fjöregg sjálfstæðis þjóðar- innar. í lýðræðislandi hljóta ávallt að vera skiptar skoðanir um leiðir, jafn- vel um grundvallaratriði. Til þess að tryggja frið og sjálfstæði ber okkur að leita þeirra leiða sem sam- eina okkur fremur en sundra, minn- ug þess hvað sundurlyndið varð þjóð- inni dýrkeypt. Þegar við komum saman í dag til þjóðhátíðar á Þingvöllum er það til að fagna og minnast þess sem gerðist fyrir hálfri öld með þakk- læti til genginna kynslóða fyrir þrotlausa og ómetan- lega baráttu þeirra. En við eram hér ekki aðeins til að fagna og minnast held- ur einnig til að minna okk- ur sjálf á hversu dýrmæt- an arf við höfum hlotið, arf sem okkur ber að skila til komandi kynslóða með þeim hætti að aldrei -verði hægt að bera fram ásak- anir í okkar garð. Það gerum við með því að varðveita friðinn og sýna hvert öðru virðingu og drengskap. í lokaerindi þjóðhátíðar- kvæðis Guðmundar Böð- varssonar, sem reyndar voru síðustu ijóðlínurnar sem hann orti, dregur hann fram þennan sann- leik á eftirminnilegan hátt, og leyfi ég mér að ljúka máli mínu með orðum skáldsins: Heyr íslands lag í árdagsblæ á vori, heyr íslands lag í hljóðleik stjömunótta, og þú munt skilja að framtíð þín er falin í friðsæld þessa lands, án striðs og ótta. Lát ei hinn grimma galdur um þig villa, ráð götu þinni sjálf í lengd og bráð. Gleym aldrei sannleik þeim, að frelsi og friði öll fegurð mannlegs lífs er tengd og háð. Fyrir hönd þjóðhátíðarnefndar býð ég yður öll velkomin á Þingvöli. Sérstaklega er ánægjuleg þátt- taka yngri kynslóðarinnar, sem setur sterkan svip á þessa þjóðhátíð. Gleðilega þjóðhátíð 1994. Morgunblaðið/Golli Að snæðingi BÍLL slökkviliðsins í Reylg'avík nr. 1 var til sýnis á Þingvöllum. Hann er af gerðinni Ford og er frá árinu 1947, en slökkviliðið fékk hann nýjan hingað til lands. Það eru ekki nema um átta ár síðan honum var lagt og er hann nú í vörslu Þjóðminjasafnsins. Þeir Sig- urður G. Benediktsson, EgiII Jónsson og Sigfús Svavarsson sátu að snæðingi um hádegisbilið í gær við afturenda bilsins, en bifreiðin vakti verulega athygli á hátíðasvæðinu að sögn þremenninganna. Sigurður er fyrrverandi slökkviliðsmaður, kominn hátt á níræðisald- ur en félagar hans eru enn starfandi slökkviliðsmenn. Morgunblaðið/Þorkell Bragðið á leik MARGIR brugðu á leik og mynduðu vini og vandamenn í búningum fornmanna og var eins og sumir væru skapaðir í hlutverkin. NYTIÐ YKKUR ^^NÁLÆGÐINA VIÐ LAUGARDALINN. 18. og 19. júní er hátíð í fjölskyldugarðinum í Laugardal. Komdu við á McDonald’s og gerðu þér og þínum glaðan dag. LYST 8555 Leyfishafi McDonald's íslensktfýrirtœki íslenskar lanahúnaÖarafurtiir Verði ykkur að góðu hjá McDonald’s. VEITINGASTOFA FJÖLSKYLDUNNAR SUÐURLANDSBRAUT 56 Morgunblaðið/Golli Hestamenn í Almannagjá UM 100 hundrað hestamenn, jafnt ungir sem aldnir, komu riðandi niður Almannagjá upp úr kl. 13. Þetta voru hestamenn úr 13 hesta- mannafélögum, flestum af suðvesturlandi. Einn elsti hestamaðurinn í hópnum var Ólafur Eysteinsson, úr hestamannafélaginu Mána á Suðurnesjum, en hann var einnig á lýðveldishátíðinni árið 1944.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.