Morgunblaðið - 19.06.1994, Side 10
10 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LÝÐVELDIÐ ÍSLAIMD
50ÁRA
ÞINGMENN samþykktu þingsályktunartillögurnar með því að rétta upp hönd allir sem einn.
Morgunblaðið/RAX
Þjóðhöfðingjar og mikill fjöldi gesta voru viðstaddir hátíðarfund Alþingis
Tvær þingsályktunartillögur
samþykktar á Lögbergi
TALSVERÐUR hópur gesta var kominn á
hátíðarsvæðið á Þingvöllum þegar lýðveldis-
afmælið hófst klukkan 8.25 á þjóðhátíðar-
daginn. Kirkjuklukkum' var hringt, fánar
voru dregnir að húni og lúðrastef þjóðhátíð-
arinnar eftir Jón Ásgeirsson hljómaði í Al-
mannagjá. Þrátt fyrir skýjaveður var tiltölu-
lega stillt og þurrt veður allt til hádegis
og stöku sinnum birti upp með sólskini.
Flestir lögðu leið sína upp í Almannagjá
til að fylgjast með morgundagskrá lýð-
veldishátíðarinnar eða stöldruðu við á síld-
arplani þar sem hressilegar síldarstúlkur
voru að gera sig klárar fyrir söltun.
Mikill hátíðarbragmr
Mikill hátíðarbragur var yfir Almannagjá
á meðan morgundagskráin stóð yfir og
töluðu þjóðhátíðargestir, ungir sem aldnir,
sín á milli í hálfum hljóðum. Þar fluttu
Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau
flautuleikarar, Monika Abendroth hörpu-
leikari og tvöfaldur kvartett á vegum söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar trúarleg og þjóð-
leg verk. Klukkan 9.30 hófst hugvekja við
krossinn í Almannagjá undir stjórn séra
Hönnu Maríu Pétursdóttur þjóðgarðsvarð-
ar. Að því loknu flutti Kvennakór Reykja-
víkur tregasöngva við Drekkingarhyl.
Morgundagskráin á Þingvöllum fór ró-
lega og í alla staði friðsamlega fram. Þegar
leið á ellefta tímann fór gestum að fjölga
mjög og fjöldi tiginna boðsgesta tók sér
sæti á sérstökum viðhafnarpalli á völlunum
fyrir neðan Lögberg þar sem þeir voru við-
staddir hátíðarfund Alþingis sem hófst
klukkan 11. Voru boðsgestir á fjórða hundr-
að talsins og þeirra á meðal á annað hundr-
að fulltrúar erlendra ríkisstjórna og þingfor-
setar þjóðþinga nágrannalandáhna;
Áður en þingfundur hófst frumflutti Kór
íslensku óperunnar Vorkvæði um ísland,
hátíðartónverk Jóns Nordals við ljóð eftir
Jón Óskar skáld. Allir alþingismenn og ráð-
herrar, 63 talsins, sátu á sérpalli með for-
seta Alþingis sér á vinstri hönd en mikill
földi þjóðhátíðargesta safnaðist saman á
pöllunum og í brekkunni að Lögbergi til
að fylgjast með fundi Alþingis. Um það
leyti sem þingfundur átti að hefjast flaug
hópur álfta oddaflug lágt yfir þingpallana
og vakti það mikinn fögnuð hátíðargesta
sem klöppuðu fyrir þessari óvæntu viðhafn-
arsýningu.
Þjóðhöfðingjum vel fagnað
Þjóðhöfðingjar Norðurlandanna komu á
hátíðarsvæðið laust fyrir klukkan ellefu
og ók bílalest með þá niður Almannagjá
þar sem þeir stigu út úr bílunum. Harald-
ur V Noregskonungur og Sonja Noregs-
drotting, Henrik Danaprins og Margrét
Þórhildur II Danadrotting, Karl XVI Gú-
staf Svíakonungur og Silvía Svíadrottning,
Martti Ahtisaari, forseti Finnlands, og frú
Eeva Ahtisaari komu svo gangandi niður
göngupallinn úr Hamraskarði og settust á
fremsta bekk á þingpalli. Þá gekk forseti
íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, á hátíð-
arþingfundinn. Voru allir þjóðhöfðingjarnir
boðnir velkomnir með lófataki þúsunda
áhorfenda.
Salome Þorkelsdóttir, forseti Alþingis,
setti þingfund Alþingis við Lögberg og flutti
setningarávarp. Að því loknu var tekin til
afgreiðslu tillaga til þingsályktunar sem
flutt var af fulltrúum allra þingflokka um
endurskoðun VII. kafla stjórnarskrárinnar.
Var tillagan borin upp til atkvæðagreiðslu
og var sáriiþýkkt með handáuppréttingu
með 63 samhljóða atkvæðum. Tillagan er
svohljóðandi:
Alþingi ályktar, í tilefni 50 ára afmælis
lýðveldis á íslandi, að stefna beri að því
að ljúka endurskoðun VII. kafla stjórnar-
skrárinnar, nr. 33 17. júní 1944, með síð-
ari breytingum, fyrir næstu reglulegu al-
þingiskosningar.
Miðað verði m.a. að því að færa ákvæði
kaflans til samræmis við þá alþjóðlegu sátt-
mála um mannréttindi sem ísland hefur
gerst aðili að. Við endurskoðunina verði
höfð hliðsjón af tillögum stjórnarskrár-
nefndar frá 5. april 1994.
Næst var tekin fyrir tillaga til þingsálykt-
unar um stofnun hátíðarsjóðs í tilefni 50
ára afmælis lýðveldisins og fór fram síðari
umræða um tillöguna á þingfundinum en
fyrri umræða hafði farið fram á sérstökum
aukafundi Alþingis 16. júní. Til máls tóku
formenn allra þingflokka. Fyrstur talaði
Geir H. Haarde, formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins, næst töluðu Páll Pétursson,
formaður þingflokks Framsóknarflokksins,
Rannveig Guðmundsdóttir, þingflokksfor-
maður Alþýðuflokksins, Ragnar Arnalds,
þingflokksformaður Alþýðubandalagsins,
og síðust talaði Valgerður Kristjánsdóttir,
þingflokksformaður Kvennalistans. Þingsá-
lyktunartillagan var síðan borin undir at-
kvæði og samþykkt samhljóða með hand-
auppréttingu með 63 atkvæðum. Þingsá-
lyktunartillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar, í tilefni 50 ára afmælis
lýðveldis á íslandi, að stofna sjóð, lýðveldis-
sjóð, og verja til hans 100 milljónum króna
árlega næstu fimm ár.
Ráðstöfunarfé sjóðsins skal ár hvert á
starfstíma hans, 1995-1999, varið með
þessum hætti: :
a. Helmingi Ijárhæðarinnar, 50 milljón-
um króna, til átaks í vistfræðirannsóknum
á lífríki sjávar.
b. Helmingi fjárhæðarinnar, 50 milljón-
um króna, til eflingar íslenskri tungu.
Alþingi kýs þriggja manna sjóðstjórn.
Hún skal staðfesta rannsóknaáætlun skv.
a-lið og reglur um stjórn verkefnisins, svo
og um þátttöku vísindamanna og stofnana
í því. Énn fremur skal sjóðstjórnin skipta
því fé sem er til ráðstöfunar skv. b-lið og
samþykkja verkefnaáætlun.
Að lokinni atkvæðagreiðslu flutti forseti
Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, ræðu
yfir þingheimi. I lok ræðu sinnar las for-
seti bréf um frestun á fundum Alþingis til
septemberloka og bað alþingismenn að
minnast fóstuijarðarinnar með því að rísa
úr sætum. Hrópuðu þingmenn ferfalt húrra
fyrir forseta og fóstuijörð.
Fjölbreytt atriði um allt hátíðarsvæðið
Að hátíðarþingfundi loknum gengu er-
lendu þjóðhöfðingjarnir ásamt forseta ís-
lands til ráðherrabústaðarins á Þingvöllum
þar sem þeir sátu hádegisverð í boði Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra og konu hans
frú Ástríðar Thorarensen.
Gífurlegur fjöldi fólks var saman kominn
á Þingvöllum þegar morgundagskrá þjóðhá-
tíðarinnar lauk um hádegi. Var stöðugur
straumur fólks inn á hátíðarsvæðið á Efri-
völlum og einnig eftir Kárastaðastíg niður
Almannagjá. Fjöldi lítilla flugvéla flaug
yfir svæðið á hádegi og hestamenn riðu
hópreið niður Almannagjá. Dreifðist fólk
um hátíðarsvæðið áður en formleg hátíðar-
dagskrá átti að hefjast klukkan 13.05 og
voru þá margvísleg sýningaratriði byijuð
vitt og breitt úm sVæðið.