Morgunblaðið - 19.06.1994, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994 11
LÝÐVELDIÐ ÍSLAND
50 ÁRA
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands á hátíðarfundi
Gleði og
þakklæti er
efsti
GÓÐIR íslendingar, yðar hátignir,
virðulegu erlendu gestir.
A fimmtíu ára afmæli lýðveldisins á
hinum fornhelgasta stað þjóðarinnar hlýtur
okkur ofar öllu að vera gleði í huga ásamt
með þakklætinu til allra þeirra kynslóða
sem hafa gert okkur kleift að standa hér.
Hvert sem litið er á íslandi blasir við að
þjóð okkar hefur á síðustu fímmtíu árum,
frá stofnun lýðveldisins eða á síðustu sjö-
tíu og fimm árum, frá fullveldi sínu, stigið
risaskref á sjömílnaskóm til bættrar og
bjartrar tilveru í landi sem bæði er gjöfult
og agandi. Og við vitum að það eru frels-
ið og sjálfstæðið sem hafa gefið okkur
þrótt og þor til að stíga þessi skref, blásið
okkur í brjóst krafti, birt okkur glæsilegar
framtíðarsýnir.
Þetta hljótum við að þakka á Þingvöllum
huga
í dag, þar sem hver íslendingur getur tek-
ið undir með Jakobi Jóhannessyni Smára
og sagt:
Nú heyri’ eg minnar þjóðar þúsund ár
sem þyt í laufi á sumarkvöldi hljóðu.
Við vitum að allar kynslóðir hafa ævin-
lega verið reiðubúnar að leggja líf sitt að
veði til þess að búa til betri heim fýrir
kynslóð morgundagsins. Og við vitum líka
að það er okkar innsti og heitasti draumur
að börnin okkar geti horft með bjartsýni
til þeirra tíma er þau taka við af okkur
til þess að gefa börnum sínum enn betri
heim en okkur óraði fyrir.
Þessi afmælishátíð gefur okkur öllum
endurnýjaðan sjálfsstyrk til þess að víkja
frá okkur tímabundinni bölsýni og fylla
hugann þeirri trú á framtíðina sem feður
okkar og mæður áttu þegar þau stóðu hér
fyrir fimmtíu árum.
Menntun okkar og kunnátta til hugar
og handa hefur með arfi kynslóðanna í
landinu kennt okkur hvernig við getum
lifað með landinu okkar, gert það að síend-
urnýjaðri uppsprettu og fagurri umgjörð
auðugs mannlífs. Þess vegna höfum við
enga ástæðu til annars en bjartsýni full-
hugans sem veit að framtíðin er glæst ef
hugur hans sjálfs bilar ekki.
Islendingar hafa fyrir löngu hlotið viður-
kenningu sem fullgild þjóð í samfélagi
þjóðanna. En á þessum degi fullhuganna
hljótum við samt að hugsa til þess að um
aldir átti íslensk þjóð sér umfram allt eina
réttlætingu, ein rök til þess að krefjast
áheyrnar á þingum heimsins: Hún átti sér
sjálfstætt tungumál og á þessu tungumáli
hafði hún varðveitt minningar sínar, sögur
sínar, ljóð sín, frábrugðin minningum, sög-
um og ljóðum annarra þjóða. Það var sá
arfur sem gaf henni réttlætingu.
Á öllum öldum voru uppi konur og karl-
ar sem sáu til þess að minningarnar varð-
veittust og þeim væri fleytt frá kynslóð
til kynslóðar, sáu til þess að ekkert gleymd-
ist sem var þess eðlis að það gæti gert líf
fólksins betra og fegurra. Það er þetta
fólk sem kemur til okkar í minningunni í
dag og segir við okkur: Gleymum ekki að
ein skylda er öllum öðrum skyldum æðri;
að varðveita minninguna um fólkið og
landið. Segjum því börnum okkar söguna
af því hvernig var að búa í landinu, segjum
þeim söguna af lífsbaráttu okkar og sigr-
um, gleði okkar og sorgum, svo þau megi
áfram segja sínum börnum.
Öllum góðum gestum okkar, þjóðhöfð-
ingjum og öðrum fulltrúum erlendra ríkja,
þökkum við virðingu sem þeir og þjóðir
þeirra hafa auðsýnt okkur á þessum tíma-
mótum. Og við kveðjum þá með sömu orð-
um og Gunnar kvaddi Njál á Bergþórs-
hvoli: Góðar eru gjafir þínar en meira þyk-
ir mér vert vinfengi þitt og sona þinna.
Guð blessi ísland og íslenska þjóð. Gleði-
lega lýðveldishátíð.
Margrét Þórhildur II Danadrottning
Karl XVI Gústaf Svíakonungur
Tengsl ríkjanna
byggjast á rétti til
sjálfsákvörðunar
ÞAÐ er mikilfengleg og ánægjuleg upp-
lifun fyrir Danaprins og mig að taka þátt
í hátíðarhöldum vegna fimmtíu ára afmæl-
is íslenska lýðveldisins. Og það er mér
mikil ánægja að færa íslendingum kveðjur
Dana af þessu tilefni.
Hin nýja stjórnarskrá íslands var sam-
þykkt á fundi Alþingis hér á Þingvöllum,
hinum forna þingstað íslensku þjóðarinn-
ar. Þar með var einnig endi bundinn á hið
langvarandi samband Islands og Danmerk-
ur.
Gert hafði verið ráð fyrir þessari ákvörð-
un í samkomulagi Dana og íslendinga frá
árinu 1918 og lokaskrefið'var stigið eftir
að íslenska þjóðin hafði nær einróma sam-
þykkt það í atkvæðagreiðslu. Þó að í Dan-
mörku hafi þrátt fyrir það verið að finna
óánægju með niðurstöðuna verður að líta
á það í samhengi við stöðuna í alþjóðamál-
um: Síðari heimsstyrjöld var komin á loka-
stig en Danmörk var enn hernumið land,
einangrað frá hinum fijálsa heimi.
í dag getum við rætt á opinskáan hátt
um alla þætti fyrri samskipta þjóða okkar
og allir Danir gleðjast yfir því að atburðir
þessa tíma urðu ekki til að skaða hin nánu
og innilegu samskipti Dana og íslendinga.
Það er vegna þess að tengsl ríkjanna
tveggja byggjast ekki einungis á formlegu
sambandi þeirra um aldabil heldur á þeirri
samstöðu sem einkennir samskipti Norður-
landanna allra, sameiginlegri lýðræðishefð
; okkar og djúpstæðri virðingu fyrir einstak-
lingnum og rétti þjóða til sjálfsákvörðunar.
Foreldrar mínir gleymdu aldrei þeim
hlýju móttökum sem þeir. fengu hjá ís-
lensku þjóðinni í fyrstu opinberu heimsókn
þeirra árið 1956 og Danaprins og ég höfum
orðið sömu hlýju aðnjótandi í hinum tveim-
ur lieimsóknum qkkar $1 Ííjands. í; jjósi
þessara minnisstæðu upplifana og þess
einstæða eiginleika íslands að geta tengt
fortíðina við nútíðina færi ég hér með Is-
lendingum árnaðaróskir Dana á þessum
mikla hátíðisdegi og færi mínar bestu ósk-
ir um áframhaldandi hamingju og velferð
íslands og íslensku þjóðarinnar."
ísland er ríkt af
sögai, menningu
ognáttúru
KÆRU íslendingar, Svíadrottning og
ég færum ykkur hlýjar og innilegar ham-
ingjuóskir frá Svíþjóð og sænsku þjóðinni
á þessum sögulega degi.
Við dáumst mikið að því hvernig ísland
hefur þróast í nútíma velferðarríki á þeim
fimmtíu árum, sem ríkið hefur verið sjálf-*
stætt lýðveldi.
íslendingar og Svíar hittast reglulega
innan Norðurlandasamstarfsins sem og í
Evrópusamstarfi og á alþjóðavettvangi.
Yið hittumst einnig sem einstaklingar.
Árlega ferðast þúsundir íslendinga og
Svía milli landanna, sem ferðamenn, náms-
menn, kaupsýslumenn og stjórnmálamenn.
Þetta net persónulegra samskipta milli ein-
staklinga myndar traustan grundvöll hins
nána samstarfs ríkjanna.
Því líkt og segir í Hávamálum: Maður
er manns gaman.
Hér á Þingvöllum hafa lög verið sett
og réttlætinu fullnægt í rúmlega þúsund
ár. Hér varð það til sem nú er elsta þjóð-
þing veraldar. Manni finnst því rökrétt að
hylla nú einnig eitt af elstu lýðræðisríkjum
veraldar. Grundvallarsjónarmiðin um frelsi
og réttindi einstaklingsins sem eru grund-
völlur hins íslenska samfélags hafa fornar
og traustar rætur í sögu landsins.
ísland er ríkt land. Ekki bara ríkt af
sögu heldur einnig menningu og náttúru.
Svíar og ég persónulega fylgjast af at-
hygli með umhyggju ykkar fyrir náttúr-
unni. Eg veit að þér, frú forseti, hafið lagt
mikið af mörkum varðandi tijárækt og þá
sérstaklega í Vinaskógi, hér í grennd við
Þingvelli.
Það er venja, að minnsta kosti heima
hjá okkur í Svíþjóð, að færa fimmtugum
gjafir. Okkur er mikil ánægja að aflienda
ykkur fyrir höpd Svjþjóðar peningagjöf til
styrktar gróðursetningu í Vinaskógi.
Ríkisstjórn Svíþjóðar og þing hafa einn-
ig í tilefni þessa dags ákveðið að veija fé
til að stofna sjóð er á að styrkja samstarf
Svía og íslendinga enn frekar og þá sér-
staklega á menningarsviðinu.
Með þessum orðum og þessum gjöfum
færi ég fyrir hönd sænsku þjóðarinnar
innilegar hamingjuóskir á þessum hátíðar-
degi og innilega von um áframhaldandi
velgengni Islands og íslensku þjóðarinnar
í framtíðinni. |Gangi ykkur veþ ,