Morgunblaðið - 19.06.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994 19
LÝÐVELDIÐ ÍSLAND
50ÁRA
Morgunblaðið/Golli
HANNA María Pétursdóttir, þjóðgarðsvörður, fermdi tvær
systur í Þingvallakirkju á þjóðhátíðardaginn. Systurnar heita
íris og Anný Kjærnested.
Hanna María Pétursdóttir
„Yndislegur
dagur“
„ÞETTA var yndislegur dagur,“
sagði Hanna María Pétursdóttir,
þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Mikið
hefur mætt á henni undanfarna daga
og ekki síður á sjálfan þjóðhátíðar-
daginn. Hún byrjaði daginn á því
að messa í Þingvallakirkju. Síðan
skírði hún lítið barn í Almannagjá
og flutti ávarp í gjánni. Hún sat
þingfund eftir hádegi og fermdi tvær
systur síðdegis. Dagurinn var ekki
búinn hjá henni þegar Morgunblaðið
ræddi við hana undir kvöld því að
hún var búin að gefa öllu starfsfólki
þjóðgarðsins frí og ætlaði sjálf að
taka næturvaktina.
Um 130 manns hafa unnið á veg-
um þjóðgarðsvarðar að undirbúningi
þjóðhátíðar. Þar af eru 110 ungling-
ar frá Garðabæ og Kópavogi sem
hafa lagfært göngustíga og tröppur
og málað og snyrt í þjóðgarðinum.
Hanna María sagði að þessi hópur
hefði staðið sig hreint frábærlega.
Hún sagði að nú tæki við frágangur
eftir hátíðina og unglingarnir myndu
hjálpa sér við þá vinnu.
„Það hefur verið góður andi á
svæðinu. Mér hefur sýnst að það
hafí ríkt einlæg gleði meðal gest-
anna,“ sagði Hanna María. „Ég bjóst
við fleira fólki og mikilli rigningu
og hafði þess vegna miklar áhyggjur
af gróðri, en ég er mjög ánægð með
hvernig til tókst. Mér sýnist fólk
hafa gengið vel um þjóðgarðinn."
Morgunblaðið/RAX
Afmælisdagur á þjóðhátíð
DAGNÝ Björk Pétursdóttir frá Kópavogi hélt upp á 35 ára afmæli
sitt ásamt fjölskyldu sinni á þjóðhátíð á Þingvöllum. „Þetta er nijög
skemmtilegt enda sögulegur og hátíðlegur atburður og margt mjög
athyglisvert sem hér er verið að sýna,“ sagði Dagný og sagði að kannski
yrði eftirminnilegast hvað illa hefði gengið að komast á staðinn en
ferðalagið úr Kópavogi hófst skömmu fyrir hádegi og tók rúmlega
þrjá tíma.
Hvernig er að eiga afmæli 17. júní? „Ég þekki náttúrlega ekkert
annað,“ sagði Dagný Björk, „en ég var orðin nokkuð gömul þegar
mér var sagt að hátíðarhöldin væru ekki í tilefni af afmælinu mínu,“
sagði Dagný Björk Pétursdóttir.
: •! v í -1* íri •• I V . 1 v / . /' J\ Yt J»
Hefði ekki viljað
missa af þessu
HAUKUR Þór Haraldsson, Bylgja Birgisdóttir og son-
ur þeirra, Bjarki Þór, sögðust hafa lagt af stað frá
Reykjavík um klukkan 11 að morgni og verið þrjá
klukkutíma á leiðinni. Þau sögðu að skipulagsleysi í
sambandi við umferðarmálin hefði sett leiðinlegan
svip á daginn. „En það er gaman að verið komin hing-
að og vera með í þessari stemmningu," sagði Bylgja.
„Maður hefði ekki viljað missa af þessu og ég held
að maður eigi eftir að hafa meira gaman af þessu
þegar frá líður.“
„Ég hugsa að það sama hafi átt við um fólkið sem
var hérna fyrir 50 árum. Það fyrnist yfir ferðatímann
og rigninguna en maður man eftir öðru,“ sagði Hauk-
ur Þór Haraldsson.
Morgunblaðið/Golli
Wissiii' iþéi ii|éi SÍéttww4ta^itei§stawæi l§l«a
-wéíll®® wppli éi S#H>CI> Itvw
GINGE SC 40
Nett og meðfærileg slóttuvél
fyrir litla og meðalstóra garða
Með grassafnara,
40 sm slóttubreidd ,
og hjólalyftum. A
Verð kr. 29.900,- f
Stór og kraftmikil slóttuvél
með 5 hp B&S Quantum mótor.
Vélin er með drifi,
auðstillanlegum hjólalyftum
og stórum grassafnara.
Slóttubreidd 21 ” eða 51 sm.
Verð kr. 73.886,-
MTD 072
Odýr lúxusvél með 3,75 hp
B&S Sprint mótor, slóttubreidd
20" eða 50 sm, stór og breið
hjól, útbúin auðstillanlegum
hjólalyftum. Meðfærileg í gm
flutningi og geymslu. §
Verð kr. 28.635,- J
FLYMO L 47
Létt loftpúðavél
hentug fyrir brekkur,
stórar lóðir og
erfiðar aðstæður.
Með 4 hp
tvigengismótor.
Verð kr. 48.345,-
GINGE S 46 SNOTRA
Þrælsterk slóttuvél með 3,75 hp B&S mótor,
46 sm slóttubreidd og hjólalyftum. _
Verð kr. 29.900,- Æ
FLYMO RE 300
Rafmagnsvél sem er létt og meðfærileg
með hjólastillibúnaði og grassafnara.
Verð kr. 24.416,-
GINGE HD 38
Handslóttuvél sem er góð jafnt fyrir hraustarj
konur og litla garða sem og hrausla karla
og stóra garða.
Verð kr. 9.792,-
G.A. PETURSSON HF
Faxafen 14 • Sfmi 685580
Góð varuhlula- og viðgcrðaþjónusta. Hressir söluinemi!
.CE)DK