Morgunblaðið - 19.06.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ1994 21
LYÐVELDIÐISLAND
50 ARA
EINAR Halldórsson var búinn að vera rúma þrjá tima á leið-
inni frá bílastæðinum við Skógarhóla til vegamótanna við þjón-
ustumiðstöðina á Þingvöllum þegar Morgunblaðið hitti hann að
máli í bíl sínum. Leiðin frá Skógarhólum er um 3 kilómetrar.
ENGELHART Björnsson og Helga Haraldsdóttir höfðu einnig
verið um þijá tíma á leiðinni frá Skógarhólum niður að þjón-
ustumiðstöð. Þau voru samt ekki búin að týna góða skapinu og
sögðu að menn yrðu bara að gera gott úr þessu. „Þetta var
ekki slæmur dagur,“ sagði Helga, en hún var ekki ánægð með
hlut skipuleggjenda hátíðarinnar.
Kom tímanlega 1 hátíðarslitin
RÚDÓLF Jóhannsson, kranabílsljóri, hafði ekki
mikið að gera. Það var ekki vegna þess að ekki
væri þörf á því að færa bíla heldur vegna þess
að hann hafði enga möguleika til að athafna
sig með bílinn vegna umferðar og þrengsla.
Morgunblaðið/Þorkell
EINAR Siguijónsson var 6 tíma á leiðinni til
Þingvalla. Hann kom austur um það leyti sem
verið var að slíta þjóðhátínni. Einar sagði að
skipulag umferðar hefði verið klúður, en flestir
hefðu þó tekið óþægindunum af jafnaðargeði.
„ÞETTA er algjört klúður,“ sagði
Einar Siguijónsson, rútubílstjóri,
um skipulag umferðarmála á þjóð-
hátíð. Einar fór frá BSÍ um klukk-
an tólf, en var ekki kominn til Þing-
vaiia fyrr en klukkan rúmlega sex,
en þá var verið að slíta þjóðhátíð-
inni. Hann sagðist hafa ætlað sér
að fara 3-4 ferðir á Þingvöll, en
komst við illan leik aðeins eina
ferð.
Einar sagði að menn hefðu átt
að geta séð það fyrir að það væri
ekki hægt að flytja þann mann-
fjölda, sem þjóðhátíðarnefnd gerði
ráð fyrir að kæmi til Þingvalla,
þ.e. 60 þúsund manns, með þessu
skipulagi. Eina færa leiðin til að
koma þessu í kring hefði verið að
loka annarri leiðinni til Þingvalla
fyrir einkabílaumferð og láta hana
rútum eftir.
Þær rútur sem fóru snemma um
daginn áttu í miklum erfiðleikum
með að komast til baka vegna bfla-
umferðar. Sumar rútur áttu t.d. í
erfiðleikum með að snúa við á veg-
inum og aðrar komust ekki leiðar
sinnar vegna bíla sem lagt hafði
verið í vegkanntinum. Þær rútur
sem fóru af stað um hádegisbil,
eins og rútan sem Einar ók, eyddu
öllum deginum á leiðinni austur.
Einar sagði að flest allir hefðu
tekið þessum töfum með jafnaðar-
geði, en fólk hefði eðlilega verið
svekkt. Hann sagði að allir hefðu
farið út úr rútunni loksins þegar
hún komst á leiðarenda, en margir
hefðu farið heim með sömu rút-
unni eftir að hafa stoppað í fáar
mínútur á Þingvöllum.
KRISTBJÖRG Guðmundsdóttir og Guðmundur Magnússon kom-
in á ÞingvöII með dæturnar Þóru, 16 ára, Sæunni, 13 ára og
Huldu Björg, 5 ára. Fjölskyldan er ekki með hýrri há, enda
búið að slíta þjóðhátíðinni.
Misstu af hátíðinni
eftir 6 tíma bílferð
„AUÐVITAÐ erum við svolítið reið,
en aðallega erum við sár og svekkt
yfir því að missa af þjóðhátíðinni,
þrátt fyrir sex tíma ferðalag," sögðu
hjónin Kristbjörg Guðmundsdóttir og
Guðmundur Magnússon, sem komu
á Þingvöll laust eftir klukkan hálf
sjö að kvöldi 17. júní, í þann mund
sem þjóðhátíðinni var slitið. „Við
gátum auðvitað hlustað á útvarp á
leiðinni, en ferðin var nú ekki farin
til þess og þar sem við áttum ekki
von á þessum ósköpum, þá er ekkert
sjónvarp í bílnum okkar!“ sögðu þau.
Og bættu við. „Sjónvarpið ætti að
endursýna sem mest af þjóðhátíðinni
fyrir okkur sem upplifðum hana bara
á þjóðveginum.“
Þau Kristbjörg og Guðmundur sögð-
ust hafa farið að heiman í Reykjavik
um hálftólfleytið og allt gengið skap-
lega upp á Höfðabakkann. Þar urðu
á vegi þeirra tveir lögregluþjónar á
mótorhjólum, sem ráðlögðu þeim að
fara Nesjavallaleiðina austur, því hún
hefði verið opnuð fyrir umferð, þótt
annað stæði á skiltum. „Ferðin aust-
ur á Nesjavelli gekk greiðlega, en
þegar þangað kom voru lögreglu-
menn fyrir og bönnuðu okkur að
fara niður á Þingvelli og vísuðu okk-
ur niður að Ljósafossvirkjun og þar
yfir á Gjábakkaleiðina. Og þar
eydddum við svo því sem eftir var
af deginum."
Ekki sögðu þau hjón, að fjörugt
mannlíf hefði verið í vegkantinum.
Fólk sat mest inni í bílunum og beið
og beið þess að komast áfram. Og
algengt var, að tveir eða þrír væru
í bíl. En hugleiddu þau aldrei að
snúa við. „Við sáum fólk snúa við,
en einhvern veginn héldum við alltaf
í vonina. Og svo þegar við komum
loksins hingað, þá hittum við mann,
sem var búinn að vera í þijá klukku-
tíma að komast út af bílastæðinu við
þjónustumiðstöðina."
„Þetta er með öllu óskiljanlegt.
Við vorum búin að heyra dögum
saman að menn byggjust við 60 þús-
und manns og áttum ekki von á öðru
en að komast á þjóðhátíð. En þetta
er eitthvað sem enginn skilur en ein-
hver ber ábyrgð á.“
- Hvernig á svo að veija því sem
eftir lifir af 17. júní?
„Nú er bara að brenna aftur í bæinn
og fá sér snúning niðri í bæ. Það er
lágmark að ná í einhveija smá þjóð-
hátíð" sögðu þau hjón og héldu öku-
ferðinni áfram.
Vorum að taka heim ný stórglæsileg fyrsta flokks
sófasett alklædd leðri.
Sófasett 3+1+1 aðeins stgr. kr. 155.000
Sérstakt kynningarverð með ÞknmiilTH afslætti.
Litir: Svart, brúnt, grænt, rautt,
vínrautt, bleikt og Ijósbrúnt.
Ath. Takmarkað magn.
Greiðslukjör við allra hæfi.
(E) Wj Munalán
ValMsgögn
ÁRMÚLA 8, SÍMAR 812275, 685375
EINSTAKT TÆKIFÆRI!