Morgunblaðið - 19.06.1994, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Gestum
stefnt á
Þingvöll
Selfossi. Morgunblaðid.
HÁTÍÐAHöLD á Selfossi 17.
júní voru verulega minni en
venja er. Þjóðhátíðarnefndin á
staðnum fór að tilmælum þjóð-
hátíðarnefndar íslands um að
minnka umfang hátíðarhald-
anna. Hátíðargestum var því
stefnt á Þingvöll.
íbúum á Selfossi og nágrenni
verður bætt þetta upp um
næstu helgi en þá verður boðið
upp á útsýnisflug, tívolí og
tjaldmarkaður verða í miðbæn-
um með ýmsum uppákomum
og kvöldvöku í Hótel Selfossi.
17. júní var þó ekki með öllu
viðburðasnauður á Selfossi.
Yngstu kynslóðinni var boðið á
hestbak um morguninn og síðar
um daginn var barnadansleikur
í miðbænum og unglingarnir
dönsuðu þar fram yfir mið-
nætti. Þeir eldri fóru á sinn
þjóðhátíðardansleik í Hótel Sel-
fossi. Hátíðlegt yfirbragð var á
bænum sem var fánum skreytt-
ur en fjöldi bæjarbúa lagði leið
sína á Þingvöll til að fylgjast
með hátíðarhöldunum þar.
LÝÐVELDIÐ ÍSLAIMD
50ÁRA
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
eYGClNuAVORUR
éHI
Lýðveldisaf-
mæli fagnað á
Egilsstöðum
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGSKRÁ á Egils-
stöðum hófst kl. 13.00 með skrúð-
göngu frá Egilsstaðakirkju á hátíðar-
svæði við sundlaugina. Þar tók við
fjölskylduskemmtun og sáu börn og
unglingar að mestu um kynningu
dagskrár og um skemmtiatriði. í stað
fjallkonunnar lásu þijár ungar stúlk-
ur upp ljóð. Þær heita: Oddný Ólöf
Sævarsdóttir, Jóhanna Ásgrímsdótt-
ir og Margrét Stefánsdóttir. Leik-
skólaböm sungu og léku, Lúðrasveit
og slagverksveit Tónskólans spiluðu
og kór skipaður ungum stúlkum
söng, en kórinn kom þarna fram í
fyrsta skipti. Leikhópur sýndi Haf-
ursþulu og kirkjukór Egilsstaða-
kirkju söng. Brúðuleikhús Egilsstaða
flutti tvo leikþætti, Hestamannafé-
lagpð Freyfaxi sýndi reið og gamlan
heyskap og leyfði börnum að fara á
hestbak. Kvenfélagið Bláklukka sá
um þjóðlegt kaffíhlaðborð í Hótel
Valaskjálf.
Hátíðarsamkoma hófst í Vala-
skjálf kl. 17:00. Þar flutti Jón Péturs-
son dýralæknir hátíðarræðu, kór
Egilsstaðakirkju söng og félagar úr
Leikfélagi Fljótsdalshéraðs fluttu at-
riði úr Skugga-Sveini, þjóðdansahóp-
urinn Fiðrildin dansaði, Vísnavinir
og fleiri fluttu gömlu góðu lögin,
tónlistarkennarar fluttu lög á fiðlu
og píanó og lesin voru upp ljóð.
Um kvöldið var útidansleikur við
Egilsstaðaskóla þar sem hljómsveitin
Ýmsir flytjendur lék fyrir dansi. í
félagsmiðstöðinni Nýjung voru sýnd-
ar tvær stuttmyndir, en önnur þeirra,
„Óðfluga", vann til 1. verðlauna í
stuttmyndasamkeppni félagsmið-
stöðva.
í tilefni af þjóðhátíð opnaði Elías
Halldórsson myndlistarmaður sýn-
ingu í sal Svæðisskrifstofu Við Tjam-
arbraut. Sýningin verður opin alla
helgina frá kl. 14.00-22.00.
Safnastofnun Austurlands var
með sýningu á gömlum lækninga-
tækjum og ýmsum minjum er tengj-
ast sjálfstæðisbaráttu og lýðveldis-
stofnun. Sýningin var aðeins opin
17. júní.
Egilsstaðabúar og nágrannar
höfðu nóg að gera þennan 17. júní,
á 50 ára afmæli lýðveldisins, enda
var vel mætt í alla dagskrárliði og
var veður hið besta.
Gleði og
gott veður
ísafirði. Morgunblaðið.
HÁTÍÐLEIKI og gleði undirstrikuðu
§ölmenn hátíðahöld á Ísafírði 17.
júní. Mikill fjöldi var samankominn
á túninu við safnahúsið (gamla
sjúkrahúsið) þar sem aðaldagskrá
hátíðahaldanna fór fram.
Um kvöldið var svo slegið upp
dansi við gömlu húsin í Neðsta-kaup-
stað og dansað fram eftir nóttu í
hægu og björtu veðri.
Séra Magnús Erlingsson messaði
í ísafjarðarkapellu að morgni þjóð-
hátíðardagsins, en hann mun vænt-
anlega halda upp á upphaf seinni
helmings aldarafmælis lýðveldisins
með því að flytja í nýja kirkju áður
en þessu ári lýkur.
Magni Guðmundsson netagerð-
armeistari flutti hátíðarræðuna um
miðjan daginn og lagði áherslu á að
íslendingar hættu endalausum mæl-
ingum við höfðatöluregluna og sneru
sér að því að vera sterkir í sjálfum
sér. Hann sagði að við byggjum í
góðu landi mikilla tækifæra, ef við
aðeins vildum taka á og nýta þá
möguleika sem við höfum með nú-
tíma þankagangi og sem fullgildir
aðilar að samfélagi þjóðanna.
Hundrað manna blandaður kór
söng ættjarðarljóð við undirleik lúð-
rasveitar. Stjómandi var Beáta Joó.
Ýmislegt fleira var á dagskrá á tún-
inu við safnahúsið, en kynnir var
Marinó Hákonarson formaður þjóð-
hátíðamefndar.
Síðdegis var opnuð málverkasýn-
ing fjögurra ísfirskra málara í sal
frímúrara. Þar voru sýnd málverk
eftir Kristján Magnússon, Jón Hró-
bjartar, Vilberg Vilbergsson og Guð-
þjörgu Lind Jónsdóttur.
Komið var upp stóru tjaldi í
Neðsta-kaupstað, þar sem Litli leik-
klúbburinn og hljómsveit Birgis
Gunnlaugssonar skemmtu ásamt
fleirum. í Turnhúsinu léku félagar
úr Harmoníkufélagi Vestfjarða fyrir
dansi, og veitingar voru Tjöruhúsinu.
Á laugardag og sunnudag verða
svo haldin ýmiskonar íþróttamót á
vegum félagasamtaka auk þess sem
tónleikar og dansleikur verða fyrir
ungu kynslóðina á laugardagskvöld.
Fjöldi kvenna var á íslenskum
búningi, en karlmenn hér vestra hafa
augljóslega ekki enn komist í kynni
við ýann búning sem nú hefur verið
ha(inaðyr -þeim Ájlj þanda, s m nui
Morgunblaðið/Grímur Gfelason
ÚLFAR Steindórsson, forseti bæjarstjórnar, Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri, og Georg Kr. Lárus-
son, sýslumaður, við hátíðarhöldin á Stakkagerðistúni í Eyjum.
Hefðbundin athöfn
auk léttmetis og
leikja í Eyjum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
EYJAMENN fögnuðu þjóðhátíðar-
deginum 17. júni í sól og blíðskapar-
veðri. Hátíðarhöld dagsins fóru
fram á Stakkagerðistúni en síðdeg-
Í8 stóð Kvenfélagið Líkn fyrir karni-
vali við veitingastaðinn Skútann.
Hátíðarhöld dagsins hófust með
hlaupi ungmenna frá Hásteini að
Stakkagerðistúni. Messa var síðan
í Landakirkju klukkan ellefu en
eftir hádegi var skrúðganga frá
íþróttamiðstöðinni að Stakkagerð-
istúni þar sem hátíðardagskráin fór
fram. Lúðrasveit Vestmannaeyja
lék og kór Landakirkju söng. Úlfar
Steindórsson, forseti bæjarstjómar
Vestmannaeyja, flutti ávarp og
Kristín Eggertsdóttir flutti ávarp
i ftallkpúUBijaiv iiimiimi nifUj
Að því loknu var slegið á léttari
strengi og ýmiskonar léttmeti og
leikir á dagskrá, bæði fyrir full-
orðna og börn. Síðdegis stóðu konur
úr Kvenfélaginu Líkn fyrir árlegu
karnivali þar sem þær selja kaffi
og meðlæti ásamt grilluðum pyls-
um. Að þessu sinni var kamival
Líknarkvenna á veitingastaðnum
Skútanum, bæði utandyra og innan.
Dagskrá 17. júní í Eyjum lauk síðan
með útidansleik á Stakkagerðistúni
og harmonikkuballi í Básum.
Dagskrá 17. júni var í umsjá
Leikfélags Vestmannaeyja, menn-
ingarmáíanefndar bæjarins og
Tómstundaráðs og var þátttaka
þokkaleg í mjög góðu veðri sem var
í i Eyjum & fösbudaginm i * u. i .*u
Fjallkona
Reyðfirð-
inga í nýj-
um búningi
Reyðarfirði. Morgunblaðið.
í TILEFNI afmælis lýðveldisins
eignuðust Reyðfirðingar nýjan
skautbúning sem Margrét Reyn-
isdóttir var íklædd við flutning
ávarps Fjallkonunnar. Búning-
urinn var gjöf til Reyðfirðinga
frá félagasamtökum á Reyðar-
fírði.
Hátíðarhöldin voru tilkomu-
mikil í ágætisveðri og var margt
um manninn. Að lokinni messu
var skrúðganga inn að Anda-
polli, þar sem samkoman var að
þessu sinni haldin. Eftir ávarp
Kór leikskólans söng nokkur lög
í tilefni dagsins. Fjarðavísnavinir
sungu, lúðrasveit lék, keppt var
í hefðbundnum greinum, svo
sem naglaboðhlaupi og reiptogi
og kappróður var á slöngum
vfir Andapollinn. ________
Akranes
Tvöföld
hátíð
Akranesi. Morunblaðið.
HÁTÍÐARHÖLD þjóðahátíðar-
dagsins á Akranesi fóru vel fram
og voru i hefðbundnu formi. Akur-
nesingar minnast einnig þess að
130 ár eru liðin frá því Akranes
varð formlegur verslunarstaður.
Þannig tengdu bæjarbúar saman
þessa tvo merkisviðburði.
Hátíðarhöldin hófust á fimmtu-
dag með kvöldskemmtun þar sem
minnst var verslunarafmælisins.
Gunnlaugur Haraldsson þjóðhátta-
fræðingur flutti þar hátíðarræðu.
Húsfriðunarnefnd afhenti viður-
kenningar vegna eldri húsa og flutt
var skemmtidagskrá.
Að kvöldi þjóðhátíðardagsins var
hátíðardagskrá þar sem Hallbera
Jóhannesdóttir kennari og bæjar-
stjórafrú flutti ræðu og flutt var
skemmtidagskrá. Á sama tíma var
skemmtidagskrá ætluð yngra fólk-
inu sem lauk með dansleik.
----♦ ♦ ♦---
Suðurnesjabær
Þjóðhátíðar-
dagurtekinn
snemma
Keflavík. Morgunblaðið.
Ibúar Suðumesjabæjar vöknuðu
snemma til að hefja 17. júní-hátíðar-
höldin sem hófust með liðlega
klukkustundar dagskrá kl. 08.00.
Gengið var í skrúðgöngu frá íþrótta-
húsinu að skrúðgarðinum þar sem
morgundagskráin hófst með fána-
hyllingu sem Vilberg K. Þorgeirsson
og fjölskylda framkvæmdu með að-
stoð skáta, en Vilberg er fæddur 17.
júní 1944.
Að fánahyllingunni lokinni flutti
Karlakór Keflavíkur þjóðsönginn og
síðan var þjóöhátíðin sett af Drífu
Sigfúsdóttur fyrrverandi forseta bæj-
arstjómar. Þá kom fjallkonan fram,
en hún var Birgitta María Vilbergs-
dóttir. Ræðumaður dagsins var Mar-
ía Rut Reynisdóttir nýstúdent.
Hátíðarhöldunum var síðan fram
haldið síðdegis með fjölskylduhátíð í
.skrúðgarðinum og um kvöldið var
ídansað. .T-r, i v )i ;