Morgunblaðið - 19.06.1994, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ1994 25
Þjóðhátíð í Fellahreppi
Nýr íþrótta-
völlur
víg-ður
Egilsstöðum - Lýðveldisafmæl-
inu var fagnað í Fellabæ/Fella-
hreppi með mikilli dagskrá sem
hófst að morgni 17. júní með
keppni barna í reiðhjólaþrautum.
Eftir hádegi var farin skrúðganga
um þorpið, að Fellaskóla, þar sem
hátíðarhöld hófust með ávarpi
fjallkonu, hátíðarræðu, leikþáttum
og öðrum skemmtiatriðum, svo
sem keppni í hjólböruakstri, reip-
togi og fleira. Að lokinni dagskrá
voru kaffiveitingar í boði Fella-
hrepps.
Nýr íþróttavöllur var vígður kl.
17:00 og tekin formlega'í notkun
með knattspyrnuleik ungra
drengja. Mikill mannfjöldi tók þátt
í hátíðarhöldunum, enda veður til
útiveru ákjósanlegt. Um 'kl. 21:00
hófst dansleikur í Fellaskóla og
var grillveisla og varðeldur síðar
um kvöldið og var reiknað með
að fólk dansaði eitthvað fram eftir
nóttu.
30.000
komu sam-
an í mið-
borginni
MIKIL ölvun var í miðborg
Reykjavíkur að kvöldi þjóðhátíðar-
dagsins og langt fram eftir nóttu
og voru fangageymslur lögregi-
unnar í Reykjavík fullnýttar. Mjög
vel viðraði til hátíðarhalda í borg-
inni að því undanskildu að smá-
skúr gerði undir miðnættið. Lög-
reglan telur að um 30 þúsund
manns hafi verið miðborginni bæði
um hádaginn og á dansleikjunum
um nóttina. Enn var þar hátt í
fimm þúsund manns þegar klukk-
an var sex að morgni laugardags-
ins.
Hátíðin fór þó slysalaust fram
í Reykjavík, að sögn Geirs Jóns
Þórissonar aðalvarðstjóra. Hann
sagði að fækkað hefði í miðborg-
inni upp úr kl. 17 þegar helstu
skemmtiatriðunum lauk en svo fór
það að streyma aftur í bæinn um
kl. 23 um kvöldið. Lögreglan áætl-
ar að um 30 þúsund manns hafi
verið í miðborginni kl. 3 aðfara-
nótt laugardagsins. Klukkan 4 að
nóttu fór að fækka og á milli kl.
5 og 6 voru um 5-6 þúsund manns
enn á staðnum.
Fleiri í Hafnarfirði en
búist var við
Geir Jón sagði að mikil ölvun
hefði verið á staðnum en allt hefði
gengið stórslysalaust. Hann sagði
að leið margra hefði legið í Laug-
ardalinn þar sem margvísleg
skemmtiatriði voru í boði um dag-
inn. Alls voru um 100 lögreglu-
menn að störfum í bænum yfir
þjóðhátíðardaginn.
Mun fleiri tóku þátt í hátíðar-
höldunum í Hafnarfirði en lögregl-
an þar gerði upphaflega ráð fyrir,
en þó voru þar heldur færri en
undanfarin ár. Skrúðganga var frá
Hellisgerði kl. 15 og skemmtiatriði
á Víðistaðatúni og dansleikur fram
á nótt. Talsvert bar á ölvun og
fangageymslur voru fullnýttar
eins og í Reykjavík.
LÝÐVELDIÐ ÍSLAND
50 ÁRA
Af því að lýð-
veldið á afmæli
Hátíðarhöld á Akureyri
Eftir hádegi safnaðist svo
fjöldi fólks saman við Kaupang
og hélt fylktu liði í Lystigarð-
inn þar sem fjölbreytt
skemmtidagskrá fór fram.
Sérstaka athygli ungu kynslóð-
arinnar vakti töframaður og
eldgleypir frá Bretlandi og
margir notuðu tækifærið og
fengu sér ýmiss konar sætindi
í sölutjöldum í garðinum. Síðar
um daginn var efnt til ungl-
ingaskemmtunar og dansleikja
í miðbænum.
Skólahátíð
Stúdentar, nýstúdentar og
eldri stúdentar, voru áberandi
í bæjarlífi Akureyrar 17. júní
eins og undanfarin ár. Hundr-
að þrjátíu og sex nýstúdentar
voru brautskráðir frá Mennta-
skólanum fyrir hádegi og sóttu
hátt í 800 manns hátíðarfagnað
þeirra um kvöldið. Fyrsta
skóflustungan að nýbyggingu
MA var tekin upp úr hádegi.
Lögregla á Akureyri vissi
ekki annað en hátíðarhöldin
hefðu gengið vel fyrir sig þeg-
ar haft var samband við hana
síðdegis í gær. Talið var að
þátttaka í hátíðarhöldum um
daginn hefði verið ívið meiri
en venja væri og sérstaklega
tekið fram að óvenjumargir
hefðu tekið þátt í skrúðgöngu
eftir hádegi.
Hátíðarhöldum í tilefni 50
ára afmælis lýðveldisins lýkur
með tónleikum Blásarasveitar
æskunnar í íþróttahöllinni kl.
20.30 í kvöld. Frumflutt verður
hljómsveitarverk eftir Davíð
Brynjar Franzson, 16 ára Ak-
ureyring. Aðgangur að tón-
leikunum er ókeypis.
Morgunblaðið/Kristinn
LÖGREGLAN áætlar að um 30.000 manns hafi tekið þátt í hátíðarhöldunum í miðborg Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
SUNNA (t.h.), Bjarney Hrafnberg, vinkona mömmu Sunnu, og
Sigurgeir, bróðir hennar, voru öll í hátíðarskapi í Lystigarðinum.
„ÉG VEIT af hverju við höld-
um upp á 17. júní. Af því að
lýðveldið á afmæli," sagði
Sunna Þórisdóttir, sjö ára, þeg-
ar blaðamaður ræddi við hana
í Lystigarðinum á Akureyri á
föstudag. Eins og margir Ak-
ureyringar og gestir þeirra
reis hún árla úr rekkju til að
taka þátt í fyrstu hátíðarhöld-
um dagsins á Hamarkotsklöpp-
um. „Eg er líka svo heppin að
eiga heima rétt hjá,“ sagði hún
en minntist ekki á dagskrána
að öðru leyti en því að prestur
hefði talað. Af öðrum dag-
skráratriðum má nefna ávarp
Sigurðar J. Sigurðarsonar,
formanns lýðveldishátíðar-
nefndar, ávarp fjallkonunnar
Andreu Ásgrímsdóttur, ný-
stúdents frá MA, og ættjarð-
arsöngva.
/V ^
uy
o
53
O
/994
ef't)nít>rött*
Einsetinn íþróttaskóli
íþróttaskólinn Sumarbúðir í borg er sniðinn fyrir stúlkur og
drengi á aldrinum 6-12 ára. Meginmarkmið skólans er að skapa
börnunum góða alhliða grunnþjálfun, öruggt og félagslega gott
umhverfi. Skráning á næstu námskeið er í fullum gangi á
skrifstofu Vals að Hlíðarenda.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í sima 12187 og 623730.
Námskeiðin verða sem hér segir:
20. júní - 1. júlí, 10 dagar..kr. 9.800.
4. júlí - 15. júlí, 10 dagar.kr. 9.800.
18. júlí - 29. júlí, 10 dagar.kr. 9.800.
✓ Sama verð fjórða árið í röð
*/ Fjölbreytt íþróttanámskeið fyrir stráka og stelpur
✓ Samfelld dagskrá frá kl. 9-16
✓ Gæsla frá kl. 8-9 og 16-17 er innifalin í verði
✓ HEITUR MATUR INNIFALINNIVERÐI
✓ Góðir leiðbeinendur
✓ 10% systkinaafsláttur
✓ 10% afsláttur ef farið er á fleiri en eitt námskeið
✓ Visa - Eurocard
✓ Allir fá sumarbúðabol, húfu og viðurkenningarskjal
✓ NÝJUNG, REGLULEGAR STUNDIR í FRIÐRIKSKAPELLU