Morgunblaðið - 19.06.1994, Side 28
28 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994
LÝÐVELDIÐ ÍSLAIMD
rvr-'
*
Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands á fundi Alþingis
Lýðræðið er samofið
sögu þjóðarinnar
FORSETI Alþingis, háttvirtir al-
þingismenn, góðir Islendingar.
Við minnumst þess í dag að hálf
'Sd er liðin síðan því var lýst yfir
hér á Lögbergi að stjórnarskrá Lýð-
veldisins íslands væri gengin í gildi,
hinn 17. júní 1944. Hér kaus Al-
þingi þann dag fyrsta forseta ís-
lands, Svein Björnsson. Hér á völl-
unum voru þennan hátíðar- og þjóð-
frelsisdag saman komnir 25 þúsund
Islendingar til þess að fagna
straumhvörfum í sögu þjóðarinnar.
Loks höfðu landsmenn tekið öll sín
mál í eigin hendur, öðlast fullt.og
óskorað sjálfstæði eftir að hafa lot-
ið erlendri stjórn í liðlega sex aldir.
Stofnun lýðveldis á íslandi átti
sér að sjálfsögðu langan og merki-
legan aðdraganda. Á öndverðri 19.
öld námu framsýnir íslenskir menn
TTelsisþeyinn sem fór um Evrópu í
kjölfar frönsku stjómarbyltingar-
innar 1789 og hófu á loft hugsjóna-
fánann fyrir þjóð sína. Stjórnmála-
menn í höfuðborg danska konungs-
ríkisins hlýddu kalli tímans og
sýndu íslendingum meiri skilning
en títt er í samskiptum tveggja
þjóða. í frelsisbaráttu sinni var
þjóðin aldrei beitt þeirri óbilgirni
sem valdið hefur illvígum átökum
um víða veröld allt fram á þennan
dag.
-j.-Þjóðhollir hugsjónamenn nutu
forystu og leiðsagnar Jóns Sigurðs-
sonar, ruddu brautina og vörðuðu
veginn til frelsis, farsældar og
bjartari framtíðar. En þjóðfrelsis-
baráttan var á stundum þung í vöf-
um, gekk ekki jafn greitt og frum-
heijarnir höfðu vænst. Eftir sár
vonbrigði á þjóðfundinum 1851 reis
Jón Sigurðsson upp og brýndi menn
með þessum orðum: „Við getum
seiglast, ef við nennum því og tekið
okkur fram í mörgu, því við erum
enda ekki undir frelsið búnir fyrr
en við höfum gengið nokkuð í gegn-
um.“
Liðlega tveimur áratugum síðar,
1874, fagnaði þjóðin stjórnar-
skránni, en vissulega urðu íslend-
ingar að „ganga nokkuð í gegnum"
og þreyta sín próf áður en næstu
stóráfangar voru í höfn, heima-
stjórn árið 1904 og síðan samning-
urinn milli Dana og íslendinga um
að ísland skyldi vera fijálst og full-
valda ríki í konungssambandi við
Danmörku 1. desember 1918. Þann
dag kom frelsið til íslands. Með
þeim sáttmála var endanlega mörk-
uð föst stefna og kveðið á um end-
urskoðun sem báðum samningsaðil-
um var þá þegar fullljóst að myndi
leiða til fulls sjálfræðis íslendinga
á öllum sviðum. Næsti aldarfjórð-
ungur skyldi vera umþóttunar- og
undirbúningstími fram að þeim
þáttaskilum er íslendingar öxluðu
sjálfír alla ábyrgð.
Aldamótakynslóðin sem í landinu
bjó taldi rúmlega 90 þúsund sálir,
fátækt fólk sem reri til fiskjar á
illa búnum fleytum og arði landið
með amboðum víkingaaldar. Árið
1911 eignaðist þjóðin eigin háskóla
og á undirbúningsárunum frá 1918
til 1944 er stórfróðlegt að fylgjast
með hvemig eldhugar í hópi há-
skólakennara og stjómmálamanna
leggjast á eitt við að skapa þjóðinni
þá sjálfsímynd sem hana hafði að
mati Jóns Sigurðssonar skort árið
1851. Þeir tóku höndum saman við
aðra baráttuhópa úr öllum stéttum
og starf þeirra var undir eitt mark-
mið sett: Að hér yrði á nýjan leik
alsjálfstæð þjóð í eigin landi. Þegar
tími var til þess kominn tók þjóðin
af öll tvímæli: 98,6 af hundraði
greiddu atkvæði, eða fleiri en
nokkru sinni fyrr eða síðar í kosn-
ingum á íslandi og 99,5 af hund-
raði þeirra sem greiddu atkvæði
voru fylgjandi stofnun lýðveldis á
íslandi.
Hér bar þann skugga á að styij-
öld geisaði í Evrópu. Danmörk var
hersetin og vitanlega hlutu íslend-
ingar að velta því fyrir sér hvort
sú staðreynd ætti að breyta ein-
hveiju um þessa ákvörðun sem
hafði verið í undirbúningi í fjórðung
aldar. Margir íslendingar höfðu
verið við nám og störf í Danmörku
og áttu Dönum gott eitt upp að
inna. Það var því ekki óeðlilegt að
ýmsum yrði hugsað til þess á stofn-
degi lýðveldisins að nú væri vík
milli þeirra og danskra vina. íslend-
ingar urðu því djúpt snortnir á Þing-
völlum hinn 17. júní 1944 þegar
hingað barst skeyti með heillaósk-
um frá Kristjáni Danakonungi tí-
unda og var lesið upp við mikinn
fögnuð hér á Lögbergi.
Gagnvart Dönum eins og öðrum
vinaþjóðum óg grönnum iðkum við
þá jafnvægislist að láta okkur annt
um sérkenni okkar og þjóðararf
samtímis því að skoða með opnum
hug það sem þeir hafa fram að
færa. Reynslu úr síbreytilegum
heimi berum við svo hingað norður
í svalann og blöndum í deiglu
menntunar, menningar og lista
saman við það besta sem heima-
fengið er.
Á hálfrar aldar afmæli lýðveldis-
ins verður okkur einnig hugsað til
þeirrar kynslóðar sem hér kom sam-
an fyrir fímmtíu árum. Við hljótum
að spyija: Hvaða var það sem menn
vildu þá, hvað töldu þeir sig hafa
unnið með fullu sjálfræði? í hátíða-
ljóðum sínum svaraði skáldkonan
Unnur Benediktsdóttir Bjarklind,
Hulda, þessu fyrir hönd allra íslend-
inga þegar hún sagði:
Ó, ísland, fagra ættarbyggð,
um eilífð sé þín gæfa tryggð,
öll grimmd frá þinni ströndu styggð
og stöðugt allt þitt ráð.
Hver dagur líti dáð á ný.
Hver draumur rætist verkum í,
svo verði íslands ástkær byggð
ei öðrum þjóðum háð.
Svo aldrei framar íslands byggð
sé öðrum þjóðum háð.
Frelsið skipti þá sem nú megin-
máli. Frelsið og sjálfstæðið, það sem
fólst í að vera engum háður. Það
hafði verið draumur íslenska bónd-
-----------------------------------------------------------
Geir H. Haarde formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins
Efnahagslegar og
meiiningaiiegar for-
sendur tengdar saman
HÆSTVIRTUR forseti, góðir ís-
lendingar.
Á næsta ári verða 150 ár liðin
frá því Alþingi Islendinga var endur-
reist. Með þeim atburði var mikil-
vægum áfanga náð í baráttunni
fyrir fullu sjálfstæði íslensku þjóðar-
innar sem lauk formlega á Lögbergi
fyrir hálfri öld þegar stjórnarskrá
lýðveldisins tók gildi.
í vitund þjóðarinnar eru vellirnir
SJfcm kenndir eru við þingið og Al-
þingi sjálft tengd óijúfanlegum
sögulegum böndum. Það erum við
að ítreka og staðfesta með því að
halda þennan þingfund hér á 50 ára
afínæli lýðveldisins.
Og hingað mændu eitt sinn allra þrár,
ótti og von á þessum steinum glóðu;
' og þetta berg var eins og ólgusjár, -
þar allir landsins straumar saman flóðu.
Þannig, lýsti. skáldið. Jakob Jó-
hannesson Smári þessum helga stað
í Ijóði sínu um Þingvelli.
Þingflokkar á Alþingi hafa orðið
ásáttir um að minnast 50 ára lýð-
veldisafmælis með því að samþykkja
á þessum fundi tvær þingsályktun-
artillögur.
Með afgreiðslu fyrri tillögunnar
ályktar Alþingi að stefna beri að
endurskoðun VII. kafla stjórnar-
skrárinnar, sem m.a. geymir mann-
réttindaákvæði hennar, fyrir næstu
reglulegar alþingiskosningar. Það
fer vel á því við þetta tækifæri að
huga með þessum hætti að ramma
stjórnarfars i landinu með það fyrir
augum að treysta og efla rétt ein-
staklinga gagnvart opinberu valdi.
Síðari tillagan, sem nú er til
umræðu, er tvíþætt. Þar er mælt
fyrir um verulegar fjárveitingar til
sérstaks fimm ára. átaks í vistfræði-
legum rannsóknum á lífríki hafsins
og til eflingar íslenskri tungu. Ann-
ars vegar er um að ræða átak í
rannsóknum er beint varða undir-
stöðuatvinnuveg landsmanna og þar
með efnahagslega afkomu þegar
fram í sækir. Hins vegar er ákveðið
að styrkja þann menningarlega
grunn sem öðru fremur gerir íslend-
inga að einni þjóð og tengir fortíð
við nútíð og framtíð, sjálft móður-
málið.
Með því að efla málrækt og mál-
mennt getum við með jákvæðum
hætti brugðist við áhrifum sívax-
andi alþjóðlegrar ljölmiðlunar og
utanaðkomandi menningarstrauma
á þjóðtunguna. Fátt er mikilvægara
fyrir æsku landsins og framtíð ís-
lenskunnar en einmitt það.
Þegar Alþingi kom saman á Lög-
bergi fyrir 20 árum til að minnast
1100 ára afmælis íslandsbyggðar
MORGUNBLAÐIÐ
50ÁRA
ans, íslenska sjómannsins, íslensku
húsfreyjunnar um aldir.
Á þessum þjóðfrelsisdegi heiðr-
um við minningu þeirra ótöldu ís-
lendinga sem í orði og verki lögðu
grunn að því þjóðríki sem við tókum
í arf. Það er okkar að gæta fengins
frelsis og við megum ekki gleyma
liðinni tíð og tapa áttum. Staðfastur
vilji til að ráða lífi okkar og gerðum
skiptir meginmáli. Við viljum vera
sjálfstætt fólk.
Lýðveldið íslenska grundvallast á
lýðræði sem samofið er sögu þjóðar-
innar. Hugsjónir þess eru mann-
helgi og mannréttindi, frelsi til orðs
og athafna, virðing fyrir skoðunum,
sannfæringu og samvisku þeirra
sem eru samferða okkur á líðandi
stund.
Kynslóðir koma, kynslóðir fara.
Okkur ber að hlúa að því æskufólki
sem nú er að komast á manndóms-
ár, — hinni nýju aldamótakynslóð.
Hún mun leiða íslenska þjóð inn í
ókomna tíð og fær það vandasama
verkefni að gæta fjöreggs okkar,
sjálfstæðisins.
Minningar þjóðarinnar verða ekki
metnar til fjár en hafa dugað íslend-
ingum í aldanná rás til að efla með
sér sjálfstraust og þann innri styrk
sem þurfti til að þrauka á tímum
erfiðleika og andstreymis. Menning
og arfur liðinna alda er og verður
það veganesti sem hverri nýrri kyn-
slóð er ætlað að færa börnum sín-
um. Þannig tekur nútíð höndum
saman við fortíð til að skapa fram-
tíð.
Megi Guð vors lands blessa þjóð-
ina og landið um ókomna tíð.
var samþykkt að ráðast í sérstakt
átak til að greiða skuld þjóðarinnar
við landið sjálft með stóraukinni
landgræðslu og skógrækt. Þessa
átaks sér nú víða stað í meiri rækt-
un og gróðursæld. En þess sér e.t.v.
ekki síst stað í breyttu hugarfari
landsmanna gagnvart umhverfínu
og almennari vitneskju um hve land
okkar er viðkvæmt og vandratað
meðalhófíð milli skynsamlegrar nýt-
ingar þess og varðveislu.
Að þessu sinni sameinast þing-
heimur um afmælisgjöf til þjóðar-
innar til að gera átak á öðrum svið-
um sem ekki eru síður mikilvæg.
Segja má að Alþingi sé með ákvörð-
un sinni í dag að tengja með tákn-
rænum hætti saman efnahagslegar
og menningarlegar forsendur sem
framtíð sjálfstæðrar þjóðar á Islandi
byggist á. Sjálfsákvörðunarréttur
smáþjóða fæst ekki af sjálfu sér nú
á dögum fremur en áður. Okkur er
skylt að gæta vel að undirstöðum
hans. Sú er hugsunin með þeirri til-
lögu sem hér verður afgreidd í dag.
Þegar íslendingar stofnuðu lýð-
veldi fyrir 50 árum háðu nágranna-
þjóðir okkar harða hildi til að
tryggja framtíð frjálsra lýðræðis-
legra samfélaga, réttarríkja sem
byggjast á virðingu fyrir mannrétt-
indum. Sá hildarleikur kostaði gífur-
legar fórnir, einnig hér á landi. Frá
þeim tíma hefur verið ljóst hve at-
burðir og þróun annars staðar í
heiminum getur haft mikil áhrif
hérlendis. Þannig hefur það vissu-
lega verið allan lýðveldistímann.
Undanfarin ár hefur atburðarás
innanlands og utan hins vegar orðið
til þess að gamall ágreiningur um
grundvallarviðhorf hefur verið gerð-
ur upp og deilumál honum tengd
sett til hliðar. Það er sannarlega
ánægjuefni. Lítil þjóð þarf á öllu
öðru frekar að halda í gerbreyttu
samfélagi þjóða en að eyða orku
sinni í innbyrðis átök.
Iðulega er um það deilt, þrátt
fyrir miklar efnahagslegar framfar-
ir undanfarna áratugi, hvort íslend-
ingum hafi alltaf auðnast að ávaxta
sitt pund með farsælasta hætti.
Hitt hygg ég að sé óumdeilanlegt
að nú, á þessu afmælisári, eru allar
forsendur til þess að þjóðin geti
horft meira sameinuð fram á veg
en oft áður. Tækifærin sem við blasa
til framfarasóknar er víða að fínna.
Gæfa þjóðarinnar felst í því að
standa saman um að hagnýta þau.
Sú tillaga sem hér er til afgreiðslu
er framlag til slíkrar sóknar.