Morgunblaðið - 19.06.1994, Page 29
il
MORGUNBLAÐIÐ
LÝÐVELDIÐ ÍSLAND
50 ÁRA
Ragnar Amalds formaður þingflokks Alþýðubandalagsins
Brýnt að varðveita þann
þjóðarauð sem tilvera
Islendinga veltur á
HÆSTVIRTI forseti! Góðir ís-
lendingar!
Á hálfrar aldar afmæli lýðveldis-
ins er mjög við hæfí að minnast
þess, hve brýnt er að varðveita
þann þjóðarauð sem tilvera íslend-
inga veltur á.
Löngum vissu menn fátt um lífíð
í hafinu. En þótt þekking á sjávar-
líffræði hafí mjög aukist á seinni
árum, verður að játa í hreinskilni,
að enn rennum við blint í sjóinn,
þegar svara þarf ýmsum grundvall-
arspurningum um lífríki hafsins.
Framlag það til grunnrannsókna
á vistkerfi sjávar sem hér er gerð
tillaga um og einkum er ætlað að
auka skilning á lægstu þrepum
fæðukeðjunnar í sjónum er vissu-
lega sem dropi í hafíð miðað við
það mikla verkefni sem við blasir
en mun þó engu að síður koma að
góðu gagni.
Auðlindir íslands eru marghátt-
aðar. Þær leynast ekki aðeins í jörðu
eða í djúpinu sem lykur um land
okkar. Dýrmætasta auðlindin er sá
lífsins kraftur sem felst í sjálfstæði
þjóðarinnar — og íslenskri tungu.
Það er óumdeild staðreynd, að á
lýðveldistímanum hefur íslenskt
efnahagslíf þróast af meiri hraða
og krafti en efnahagur stærstu ríkja
Evrópu.
Fyrir hundrað árum var hér
frumstæðara atvinnulíf og meiri
örbirgð en víðast annars staðar í
okkar heimsálfu.
Ekki er ósennilegt, að einhverjum
hafí þá fundist það óraunsæ bjart-
sýni, jafnel undarleg einangrunar-
stefna, þegar smáþjóð sem aðeins
taldi eitt hundrað þúsund manns
sótti fram til' fullveldis og algers
sjálfstæðis.
En með undraverðum hraða tókst
íslendingum að lyfta sér úr mestu
fátækt og niðurlægingu og skipa
sér í hóp þeirra þjóða sem í dag
búa við hvað best lífskjör.
Á því er enginn vafi, að þetta
hefði ekki getað gerst ef þjóðin
hefði ekki hlotið sjálfstæði heldur
verið, svo dæmi sé tekið, afskekkt
greifadæmi undir breskri krúnu,
bandarískt fylki eða amt í Dan-
mörku.
íslenskt efnahagslíf hefur ein-
mitt þróast hratt á þessari öld og
þá einkum á lýðveldistímanum
vegna þess að við tryggðum okkur
rétt til sjálfstæðra ákvarðana í eig-
in þágu og gátum því aftur og aft-
ur brugðist við nýjum aðstæðum
óháð öðrum, þegar mest lá við. Við
hefðum t.d. aldrei haft þá forystu
í landhelgismálum sem raun bar
vitni, hefði landið verið hluti af
stærri heild.
Rétt eins og hver einstaklingur
þarf að varast að ofmetnast og telja
sig öllum öðrum merkilegri og rétt
eins og menn þurfa einnig að forð-
ast vanmetakennd gagnvart öðru
fólki, eins er það nauðsyn lítilli þjóð
í stórum heimi að varðveita sjálfs-
traust sitt og heilbrigðan metnað.
Stórkostleg velgengni til eflingar
þjóðarinnar á öldinni sem nú er
senn á enda er m.a. því að þakka,
að íslendingar öðluðust sjálfstraust
sitt á ný og hættu að láta stjóm-
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994 29
málamenn á meginlandi Evrópu í
mörg þúsund kílómetra fjarlægð
ráða yfír sér og hugsa fyrir sig.
Sú fjárveiting til eflingar ís-
lenskri tungu sem hér er til um-
ræðu er fyrst og fremst táknrænt
framlag. Við þurfum sem fyrst að
afnema veltuskatta af íslenskri
menningar- og listastarfsemi ög
tryggja íslenskri tungu vísan sess
í vitund nýrra kynslóða á öld alþjóð-
legra Ijölmiðla.
Það var gæfa íslendinga við upp-
haf ritlistar í Norður-Evrópu, að
þegar lærðir menn rituðu nær ein-
göngu á latínu, settu forfeður okkar
saman stafróf byggt á íslenskri
hljóðfræði sem síðan ruddi braut
þeirri miklu bókmenntahefð sem
hér varð og ekki átti sér hliðstæðu
á þeim tíma.
Árangurinn varð sá, að bók-
menntimar urðu almenningseign
en ekki forréttindi fárra útvaldra
menningarvita eins og annars stað-
ar varð. Þær tengdu saman fortíð
og nútíð og íslensk tunga varð því
sjálfkrafa það sameiningartákn sem
átti meiri þátt í því en flest annað
að íslendingar öðluðust sjálfstæði á
ný.
Góðir íslendingar!
Læmm áfram af sögunni!
Látum afmælishátíð lýðveldisins
efla í huga okkar allra, yngri sem
eldri, það heit er unnið var á þessum
stað fyrir hálfri öld, að standa trúan
vörð um tungu okkar og sjálfstæði.
Páil Pétursson formaður þingflokks Framsóknarfiokksins
Tungangerir
Islendinga að þjóð
FRÚ forseti — góðir íslendingar.
Hvað er það sem gerir íslend-
inga að þjóð?
Það er öðru fremur tungan. Hún
tengir okkur saman og gerir okkur
að sérstökum hópi í samfélagi ver-
aldarinnar. Hún gefur okkur tæki-
færi til að halda uppi bókmenntum
og menningarlífi sem er frábrugðið
menningu annarra þjóða. Hún
varðveitir menningararf fyrri alda
og gefur okkur eigin sögu sem
kemur okkur við og tengir okkur
við fortíðina og landið sem við
byggjum.
Órlögin höguðu því svo að hing-
að til íslands komu forfeður okkar
um úfin höf og settu hér byggð.
ísland hefur verið heimkynni okkar
í meira en ellefu hundruð ár og
við eigum þetta land. Fyrir fímm-
tíu árum komu menn saman hér á
Þingvöllum og stofnuðu lýðveldi.
Þeir völdu það form stjómskipunar
að yfírlögðu ráði þar sem að þeir
töldu að það hentaði íslendingum
best. Þá töldu menn að hagsmun-
um okkar væri best borgið með
því að við værum fullvalda og réð-
um málum okkar sjálfír.
Það var stórkostleg tilraun er
menn stofnuðu til á Þingvöllum
1944, tilraun svo fámennrar þjóðar
að starfrækja sjálfstætt og full-
valda þjóðfélag þar sem fólkið
byggi við menningarlega og efna-
hagslega velferð og félagslegt ör-
yggí-
Þegar við lítum til baka yfir 50
ára lýðveldisskeið getum við stað-
hæft að sú tilraun hefur tekist
vel. ísland hefur getað búið börn-
um sínum efnahagslega velferð.
Gróðurmoldin og' hafíð umhverfís
landið, lífbeltin tvö, hafa megnað
að búa okkur góð lífsskilyrði. Þjóð-
in sjálf, fólkið í landinu, hefur
reynst þess umkomin að búa í
menningarlegu samfélagi. Okkur
hefur varðað hvert um annað. Þótt
við öll getum bent á margt sem
betur hefði mátt fara er ég viss
um að flestöll viðurkennum við að
okkur þætti ekki eftirsóknarverð-
ara að búa annars staðar. Við erum
íslendingar og tilheyrum þessari
þjóð og þessu landi.
ísland er gott land og gjöfult
og mun í framtíðinni áfram geta
búið börnum sínum farsæld og góð
lífsskilyrði ef við gætum þess að
umgangast það og nýta auðlindir
þess af fyrirhyggju og virðingu.
Okkur er höfuðnauðsyn að þekkja
land okkar og möguleika þess og
skilyrði. Efnahagsleg velferð þjóð-
arinnar mun í framtíðinni öðru
fremur byggjast á þeim afrakstri
sem við höfum af hafinu. Við vitum
ennþá alltof lítið um það hvaða
lögmál gilda í lífríki hafsins. Það
er því vel við hæfi að minnast 50
ára afmælis lýðveldis á íslandi með
því að veija nokkrum íjármunum
sérstaklega til þess að efla íslenska
tungu og í öðru lagi til þess að
gera sérstakt átak í vistfræðirann-
sóknum á lífríki hafsins.
Fimmtíu ára lýðveldisskeið hef-
ur fært okkur heim sanninn um
að við íslendingar getum lifað hér
góðu lífí í framtíðinni. Það er ekki
vandalaust í viðsjálum heimi. Til
þess þurfum við að hafa trú á
okkur sjálfum og landi okkar. Ég
vara við þeirri uppgjöf, þeirri van-
trú á okkur sjálf og land okkar,
sem felst í því að telja þann kost
vænlegastan fyrir okkur að tengj-
ast útlendum ríkjabandalögum og
lúta þeirra forsjá. Við eigum að
leita dæma í sögu okkar og af
reynslu annarra þjóða sem svipað
hefur verið ástatt um. Þá sjáum
við glöggt hve geysimikilvægt full-
veldi er þjóðum, hversu dýrmætt
það er að geta ráðið sér sjálf og
þurfa ekki til annarra að sækja.
Við eigum að ástunda vinskap við
aðrar þjóðir og efla við þær sam-
skipti en ákvörðunarvaldinu meg-
um við aldrei afsala okkur. Við
þurfum sjálf að geta átt lokaorðið
um lífshagsmuni okkar þegar við
viljum.
Ég á mér þá ósk á þessum tíma-
mótum að okkur auðnist að halda
áfram í heiðri þær hugsjónir sem
lýstu mönnum hér á Þingvöllum
fyrir 50 árum: ísland verði áfram
sjálfstætt og fullvalda lýðveldi. ís-
lendingar hafi áfram trú á sjálfum
sér og landi sínu, treysti áfram
sjálfum sér og sjái þá möguleika
og þann auð sem ísland býður upp
á og þá gæfu að vera íslendingur.
Við erum svo lánsöm að eiga
þetta góða og fagra land og mun-
um það einnig að þetta land á
okkur.
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
¥
Goldstar símkeríi, þar sem ekkert er gefið eftir.
Traust fyrirtœki sem tekur réttar
ákvarðanir, og er í góðu sambandi
við viðskiptavini sína. Það velur
traust, fullkomið og tœknilegt
símkerfi frá Goldstar.
Nýja línan frá
GoldStcir
Örugg þjónusta.
Rúmlega 800 fyrirtœki og stofnanir,
hafa kosið símkerfi frá Istel.
Komdu við í Síðumúlanum, eða
sláðu á þráðinn.
Og tryggðu góðan árangur.
S htei
SÍÐUMÚLA 37 SÍMI 687570