Morgunblaðið - 19.06.1994, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMIIMGAR
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ1994 33
en Mjöll, Jóhönnu Bellu og Eddu
Rós, þrek og þor. Ég bið hann þerri
harmatárin. Veittu þeim ásamt öðr-
um ástvinum styrk til að mæta því
með óskelfdu hjarta, sem framund-
an er.
Já, gimsteinn var hann, gjöf ffá Drottins mund,
svo góður, ljúfur, hjartað trútt, sem gull.
Hann miðlað gat og gefíð hveija stund,
af göfgi og mannást sálin hans var full.
(Margrét Jónsdóttir)
Þig kveður að sinni
Svava Þ. Hjaltalín,
fjölskylduvinur.
Það er mikil gleði í lífinu en ekki
allir sem koma auga á hana. Tilver-
an er eitthvað sem allir þurfa að
sætta sig við um tíma og sá tími
er það stuttur að öll þurfum við að
nýta hann sem bezt. í ólgusjó lífs-
ins eru margir brimskaflar sem
þarf að kljúfa og öldurnar fleyta
okkur á mismunandi vegu í ýmsar
áttir.
Ronni, vinur minn, miðlaði mér
og öðrum af lífsgleði sinni. Léttar
sögur hans og næmi fyrir skopi
hversdagsins færðu okkur heim
sanninn um að raunveruleikinn er
það sem ég og þú sköpum hverju
sinni og ákveðinn fögnuður í lífinu
er að létta okkur þennan sama
raunveruleika. Hann lærði prentiðn
og naut þess að meðhöndla prenlist-
argyðjuna af mátulegri varfærni,
jafnframt því sem hann þróaði eig-
in samanburðarorðfæri í formi nú-
tímalegri þýðinga á erlendum orð-
um og hugtökum.
Ronni var sannur Valsari og
hafði þá einlægu ósk að ég og fleiri
Hafnfirðingar fengjum einhvern-
tíma lausn úr fjötrum. Gáskafull
glettni hans í leik og starfi vakti
með okkur það fijálsa, saklausa
barn, sem blundar innra með hverj-
um og einum og hið mátulega glaða
tilverustig sem flestir hafa ein-
hverja þörf fýrir.
Hugur Ronna leiftraði af þörf
lyrir að tjá og miðla gleði, hjálpa
okkur hinum til að gleyma um stund
grámyglu í daglegu lífí vanans. Bak
við glettnina var djúpt hugsandi,
trúaður og ástríkur fjölskyldufaðir
með endalaus áhugamál og óþrjót-
andi löngun til að veita öðrum eitt-
hvað. Á stuttum tíma náði vinur
minn að áorka miklu. Hann skapaði
eilífa demanta í börnum sínum,
bókum, skrifum, félagsmálum og
öðru því, er hann tók sér fyrir hend-
ur. Hugur hans stóð til þess að
miðla þekkingu, vekja spurningar
og elska lífið.
Lífsblóm fölna en minningar
varðveitast. Ronni gaf mér aukinn
skilning og trú á að hver og einn
sem lifir í nútíð gerir það fýrir fram-
tíðina. Hann var sannur og góður
drengur.
Guð varðveiti og styrki fjölskyldu
Ronna á tregastund.
Þorsteinn V.
Ég vil með nokkrum fátæklegum
orðum minnast Ronalds Kristjáns-
sonar.
Þegar mér barst sú fregn að
Ronald væri dáinn langt fyrir aldur
fram varð ég máttlaus af sorg enda
bjóst enginn við því að rúmlega
fertugur maðurinn yrði kallaður til
annarra verka svo skyndilega sem
raun bar vitni. Ronald var tvígiftur
og seinni kona hans Stella hefur
alltaf verið mér kær eins og stóra
systir.
Ronald var prentari að mennt en
starfaði nú sem vagnstjóri hjá
Strætisvögum Kópavogs. Hann
starfaði mikið að félagsmálum, m.a.
sem frímúrari og var gallharður
Valsari. Það fór ekki framhjá nein-
um sem til þekkti að hann var hrók-
ur alls fagnaðar og alltaf ríkti gleði
og kímni hvar sem hann var.
Megi góður Guð styrkja og fylgja
öllum ættingjum Ronalds í þessari
miklu sorg og þá ekki síst Stellu
og dætrum hans. Megi framtíð
þeirra verða björt þrátt fyrir erfiðan
tíma framundan og full af góðum
endurminningum.
Guð blessi góðan dreng.
Elísabet Ley.
FRIÐGERÐUR
G UNNARSDÓTTIR
+ Friðgerður
Gunnarsdóttir
fæddist 4. ágúst
1909 í Völvuholti í
Mjóafirði í Suður-
Múlasýslu. Hún lést
í Hafnarbúðum í
Reykjavík 11. 6.
1994. Foreldrar
hennar voru hjónin
Gunnar Sigfússon,
f. 4. 8.1865 í Gilsár-
teigshjáleigu í
Eiðaþinghá, og
kona hans Anna
Jórunn Jónsdóttir,
f. 21. 9. 1874 í
Fjarðarkoti í Mjóafirði. Systk-
ini Friðgerðar voru: Gísli, f.
1895, Guðlaug, f. 1898, Sigríð-
ur, f. 1899, dó ung, Björg, f.
1900, Jón Kristján, f. 1903,
Sigurborg, f. 1906, stúlka 1908,
dó óskírð, Einar, f. 1911, og
Gunnar, f. 1918. Völvuholt var
nýbýli úr landi Fjarðarkots.
Þarna bjó fjölskyldan frá 1906
til 1920. Árið 1920 flytur fjöl-
skyldan upp á Fljótsdalshérað.
Til að byrja með settist fjöl-
skyldan að á Þrándarstöðum í
Eiðaþinghá í sambýli við aðra.
Þá var heimilisfaðirinn Gunnar
heilsuveill svo eldri börnin fóru
hvert i sína áttina til að sjá um
sig sjálf. Yngst þeirra sem fóru
var Friðgerður. Henni var kom-
ið fyrir hjá vandalausum uppi
á Völlum. Þar dvaldi hún fram
yfir fermingu, en réðst svo
vinnukona að Ekkjufelli í Fell-
um. Þar í foreldrahúsum var
ungur maður, Brynjólfur, son-
ur hjónanna. Hann og Frið-
gerður eignast saman soninn
Vigni, f. 22. 4. 1926. Að ráði
eldri og reyndari manna varð
það úr að föðurforeldrarnir ólu
drenginn upp, en Friðgerður
var látin fara. Vignir lést fyrir
aldur fram 26.1.1983. Skömmu
eftir að Friðgerður eignaðist
Vigni réðst hún sem ráðskona
til Kristins Magnússonar bónda
á Hrollaugsstöðum í Hjalta-
staðaþinghá, en hann var þá
ekkjumaður með þrjú ung börn.
Fáum árum síðar ganga þau
Kristinn og Friðgerður í hjóna-
band. Þau bjuggu á Hrollaugs-
stöðum uns Kristinn lést 8. jan-
úar 1958. Tveim árum síðar
fluttist hún til Reykjavíkur og
átti þar heima æ síðan. Frið-
gerður og Kristinn eignuðust
tvo syni: Einar, f. 20. 11. 1935,
kennari, og Gunnar f. 9. 11.
1940, málmiðnaðarmaður.
Gunnar lést af slysförum 26.
ágúst 1973, og lét þá eftir sig
eiginkonu og tvö ung börn.
Aðeins eitt af börnum Kristins
af fyrra hjónabandi náði full-
orðinsaldri. Það er dóttirin
Gróa Jónína, f. 7.
apríl 1918. Fljótlega
eftir að Friðgerður
kemur í Hrollaugs-
staði flytjast foreldr-
ar hennar til þeirra
Kristins og áttu þar
heimili lengst af til
æviloka. Systursonur
Friðgerðar, Axel
Hartmann Eymunds-
son, f. 8. 3.1929, kom
sex • ára gamall til
sumardvalar að Hrol-
laugsstöðum. Hann
dvaldist þar að mestu
næsta einn og hálfan
áratug. Barnabörn Friðgerðar
eru átta. Börn Vignis eru:
Brynjólfur, Sólveig, Þóra,
Gunnar og Elvar. Sonur Einars
er Magnús og börn Gunnars eru
Steingrímur og Hallgerður.
Langömmubörnin eru 18. Útför
Friðgerðar fer fram frá Há-
teigskirkju á morgun, mánudag.
HÚN Fríða er dáin. Hún dó kl. 7
að kvöldi laugardaginn 11. júní, í
Hafnarbúðum eftir löng og erfið
veikindi og miklar þrautir, vegna
þess að gigtin herjaði svo grimmt
á líkama hennar að hún var nær
aldrei þrautalaus þau fjögur ár, sem
ég þekkti hana og áreiðanlega mörg
ár áður en okkar kynni hófust.
Ég kom til hennar á vegum öldr-
unarþjónustu Reykjavíkurborgar 1.
september 1990. Það var gott að
vinna hjá Fríðu. Hún var mikil og
góð húsmóðir, greind og skemmti-
leg, enda mikill gestagangur hjá
henni meðan hún hafði sæmilega
fótavist. Síðastliðin tvö og hálft ár
mátti þó heita að hún væri við rúm-
ið. Það er reynsla mín, sem starfs-
manns í öldrunarþjónustunni, að
þegar heilsan er farin, hverfa vin-
irnir á braut og jafnvel nánir ætt-
ingjar láta ekki sjá sig nema af og
til. Hún hafði þó sérstöðu hvað
þetta varðar, því Einar sonur henn-
ar heimsótti hana reglulega og
gerði það sem í hans valdi stóð svo
henni liði sem best.
Fríða var listhneigð og prýddi
heimili sitt með fallegri handavinnu
og blómum. Blómin hennar Fríðu
döfnuðu svo af bar.
Hún Fríða var þakklát öllum
ættingjum sínum og vinum fyrir
samfylgdina. Kynni okkar Fríðu
leiddu til traustrar vináttu okkar í
millum, sem við ræktuðum eftir því
sem heilsa beggja leyfði. Fríða mín,
innilegar þakkir fyrir allar okkar
samverustundir, þær eru perlur í
minningasjóði mínum og núna
Þegar engar þrautir lengur
þjaka og meiða hverja stund
veit ég að þín sála svífur
sigurglöð á Drottins fund.
Margrét og Málfríður.
t
Útför bróður okkar og frænda,
PÁLS HELGASONAR,
Hrafnagilsstræti 38,
Akureyri,
sem lést 12. júní sl., verður gerð frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn
21. júní kl. 13.30.
Ármann Helgason, Sigriður Helgadóttir,
Jóhann Helgason, Sigrún Helgadóttir,
Hólmfriður Andersdóttir.
t
Eiginmaður minn, sonur og bróðir okkar,
GUÐRÖÐUR JÖRGEN EIRÍKSSON,
Hvassaleiti 34,
Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Seyðisfjarðarkirkju mánudaginn 20. júní
kl. 14.00.
Ingibjörg Kristófersdóttir,
Eiríkur J. Kjerúlf
og systkini hins látna.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL SVEINSSON
frá Stóru—Tungu, Bárðardai,
Bröttuhlíð 17, Hveragerði,
lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 15. júní sl.
Sigríður Jónsdóttir,
Birgir Pálsson, Sigurbjörg Ólafsdóttir,
Geirþrúður Pálsdóttir,
Sveinn Pálsson, Sigrún Arndal,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGMUNDUR GUÐMUNDSSON
frá Melum,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 21. júní kl.
13.30.
Sveinn Sigmundsson, Jóhanna Ingólfsdóttir,
Rúnar Sigmundsson, Helga Sigfúsdóttir,
Guðmundur Sigmundsson, Guðfinna Benjamínsdóttir,
Elísabet Sigmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RÓSA KR. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Rauðalæk 35,
Reykjavík,
sem lést 9. júní á Hrafnistu, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 20. júní kl. 13.30.
Hlff Valdimarsdóttir, Guðmundur Valdimarsson,
Valdimar Valdimarsson, Guðbjörg Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
AÐALBJÖRG SIGTRYGGSDÓTTIR,
Stigahlíð 2,
sem lést 10. júní sl., verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. júní
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakk-
aðir, en þeim sem vildu minnast henn-
ar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Ragnar F. Jónsson,
Gunnlaugur Ragnarsson,
Arnbjörg V. Ragnarsdóttir,
Ragnhildur Ragnarsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson,
Jón Þorsteinsson.
+
Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, bróðir, tengdasonur og
mágur,
RONALD MICHAEL KRISTJÁNSSON
prentari,
Reynimel 47,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni á morgun, mánudaginn 20.
júní, kl. 13.30.
Auðbjörg Stella Eldar,
Bella Sigurjónsson,
Ellen Mjöll Ronaldsdóttir,
Jóhanna Bella Ronaldsdóttir,
Edda Rós Ronaldsdóttir,
Sigurjón Helgi Kristjánsson,
Jóhanna Ottósdóttir Bacher,
Ottó Karl Eldar.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
stjúpa, tengdamóðir og amma,
ARNGUNNUR JÓNSDÓTTIR,
Njarðvíkurbraut 11,
Innri Njarðvík,
lést í Landspítalanum 10. júni.
Jarðsungið verður frá Innri-Njarðvíkur-
kirkju þriðjudaginn 21. júní kl. 15.00.
Páll Ólafsson,
María Erla Pálsdóttir, Guðný Pálsdóttir,
Margrét Þórðardóttir, Benidikt Hjalti, Grétar Már,
Friðrik Þór Halldórsson, Svala Pálsdóttir,
Þóra Margrét Friðriksdóttir, Randver Ragnarsson,
Steingrímur Þórðarson, Rannveig Kristfn,
Ragnar Heiðarsson, Jón Einar, Karen Ösp.