Morgunblaðið - 19.06.1994, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA/HEIMSMEISTARAKEPPNIN I BANDARIKiUNUM
Klinsmann hetja Þjóðveija
Reuter
Helmsmeistarar Þýskalands urðu fyrstir meistara síðan 1974 til að sigra í opnunarleik HM. Á myndinni hefur
Matthias Sammer betur í baráttu við Bólivíumanninn Melgar, en fyrir aftan er Jurgen Klinsmann við öllu búinn.
Suður-Kórea
kom á óvart
SUÐUR-Kórea tryggði sér rétttil að leika ílokakeppni HM á
kostnað Japans með jöfnunarmarki á síðustu stundu í leik þjóð-
anna í keppni um sætið. Samkvæmt veðbönkum eru möguleikar
Kóreumanna á heimsmeistaratitlinum 200 á móti einum, en
þeir létu spár ekki trufla sig og gerðu 2:2 jafntefli við Spánverja
í Dallas aðfararnótt laugardags í 2. leik C-riðils eftir að hafa
verið tveimur mörkum undir. Jöfnunarmarkið kom á síðustu
mínútu, en hitt fimm mínútum fyrr.
Reuter
Jöfnunarmarki fagnað
SEO Jung Won var ekki í byrjunarliði Suður-Kóreu, en kom inn á undir lokin
og jafnaði á síðustu mínútu. Kóreumenn fögnuðu gífurlega og ekki síst Seo
eins og sjá má.
HEIMSMEISTARAR Þjóð-
verja byrjuðu vel ítitilvörninni
og unnu Bólivíumenn 1:0 í
opnunarleik HM í Chicago á
þjóðhátíðardegi íslendinga.
Jiirgen Klinsmann gerði eina
mark leiksins um miðjan
seinni hálfleik. Heimsmeist-
arar hafa átt fyrsta leik í
keppninni sfðan 1974 og aldr-
ei sigrað fyrr en nú.
Heimsmeistaramir voru
ákveðnari í þessum harða leik,
en Bólivíumenn treystu á skyndi-
sóknir með Vladimir Soria, sem
var á hægri vængnum gegn ís-
landi á Laugardalsvelli 19. maí,
og miðjumanninn Sanchez í aðal-
hlutverkum.
Berti Vogts, þjálfari Þýskalands,
sagði að mikilvægt hefði verið að
fá þrjú stig, en hann var ekki alls
kostar ánægður með frammistöðu
liðsins. „Það er mikilvægt að sigra,
því það er gífurleg pressa á heims-
.Aneisturunum í opnunarleiknum.
Við lékum vel fyrstu 20 mínútum-
ar, en nýttum ekki færin, vorum
of hugmyndasnauðir á miðjunni.“
Bólivíumenn reyndu að veiða
mótherjana í rangstöðugildru, en
Vogts sagði að liðið hefði undir-
búið sig undir það og markið hefði
verið æft. „Þetta var mikilvægt
mark, því við vissum að eftir því
sem þeir næðu lengur að veijast
yrði þetta erfiðara, en þetta er
fyrsti „alvöru" leikur okkar í tvö
ár.“
Xabier Azkargorta, þjálfari
Bólivíu, sagði lið sitt hafa leikið
vel og það hefði átt meira skilið.
„Við áttum í erfiðleikum með að
fínna taktinn, en síðan small þetta
saman. Það em margir leikir eftir
og við eigum eftir að eflast. Það
er mikilvægt að liðið hélt settu
marki og ég er ánægður með leik-
inn, en óánægður með tapið og
brottreksturinn. Tapið er sárt
vegna þess að við gáfum allt í leik-
inn og þeir stjómuðu ekki ferð-
inni, en við eigum enn möguleika
á að komast áfram."
URSLIT I C-RIÐLI
Þýskaland - Bólivía 1:0
Chicago, 17. júní:
Jiirgen Klinsmann (60.). 62.000.
Dómari: Arturo Brizio Carter (Mexíkó).
Gult spjald: Þjóðverjarnir Jiirgen Kohler
(7.), Andreas Möller (54.) og Bólivíumenn-
imir Erwin Sanchez (37.), Julio Cesar
Baldivieso (40.) og Carlos Borja (67.).
Rautt spjald: Marco Etcheverry (82.),
Bólivíu.
Þýskaland: 1-Bodo lligner, 10-Lothar
Matthaus, 14-Thomas Berthold, 4-Jiirgen
Kohler, 3-Andreas Brehme, 16-Matthias
Sammer, 20-Stefan Effenberg, 8-Thomas
Hássler (Thomas Strunz, 83.), 7-Andy Möll-
er, 9-Karlheinz Riedle (Mario Basler, 60.),
18-Jiirgen Klinsmann.
Bólivia: 1-Carlos Trucco, 3-Marco Sandy,
,4-Miguel Rimba, 5-Gustavo Quinteros, 6-
^Carlos Borja, 8-Milton Melgar, 15-Vladimir
Soria, 18-Willian Ramalio (Marco Etche-
verry, 79.), 16-Luis Cristaldo, 21-Erwin
Sanchez, 22-Julio Baldivieso (Jaime Mor-
eno, 66.).
Spánn - S-Kórea 2:2
Dallas:
Julio Salinas (51.), Juan Goikoetxea (56.)
- Hong Myong-bo (84.), Soe Jung-won (90.).
56.247.
Dómari: Peter Mikkelsen (Danmörku).
Gult spjald: Spánveijamir Luis Enrique
(24.) og Jose Caminero (72.). Suður-Kóreu-
mennimir Kim Joo-sung (37.) og Choi Yo-
ung-il (61.)
Rautt spjald: Spánveijinn Miguel Angel
Nadal (26.).
Spánn: 13-Jose Canizares; 2-Albert Ferrer,
12-Sergi, 20-Miguel Angel Nadai, 5-Abel-
ardo Femandez, 18-Rafael Alkorta; 7-Juan
Goikoetxea, 6-Femando Hierro, 8-Julen
Guerrero (15-Jose Caminero, 46.); 19-Julio
Salinas (16-Felipe, 62.), 21- Luis Enrique.
Suður-Kórea: Choi In-young; 4-Kim Pan-
keun, 5-Park Jung- Ijatí, 6-Lee Young-jin,
7-Shin Hong-gi, 8-Noh Jung-yoon (16-Ha
Seok-ju, 73.), 9-Kim Joo-sung (11-Seo
Jung-won, 59.), 10-Ko Jeong-woon, 12-
Choi Young-ii, 18-Hwang Sun-hong, 20-
Hong Myong-bo.
Miguel Angel, fyrirliði Spán-
verja, fékk að sjá rauða
spjaldið á 25. mínútu fyrir brot og
voru Kóreumenn mjög ógnandi eft-
ir það út hálfleikinn, létu boltann
ganga hratt á milli manna og voru
óragir við langskotin. Spánveijar
voru mun ákveðnari eftir hlé og
útlitið var bjart eftir að Jose Sa-
linas og Juan Goikoetxea höfðu
skorað með fimm mínútna millibili
skömmu eftir hlé. En Kóreumenn
neituðu að gefast upp, miðvörður-
inn Hong minnkaði muninn beint
úr aukaspyrnu — boltinn fór í varn-
armann og breytti við það um
stefnu, sem annars góður Jose
Canizares, markvörður, réð ekki við
— og varamaðurinn Seo jafnaði með
góðu skoti eftir sendingu frá Hong.
Skömmu áður fékk miðjumaðurinn
gott marktækifæri, var einn á móti
einum, en Rafael Alkorta náði að
komast í veg fyrir hann.
Þetta var annað jafntefli Suður-
Kóreu í átta leikjum lokakeppni
HM, en lið landsins hefur tapað sex
leikjum. Stigið gegn Spánveijum
var óvænt, en kærkomið og því var
vel fagnað á heimaslóðum. Kim Ho,
þjálfari Suður-Kóreu, sagðist hafa
gert sér vonir, þegar hann skipti
Seo inn á. „Ég lét Seo inná vegna
þess að hann er mjög fljótur og ég
sá að Spánveijarnir voru orðnir
mjög þreyttir. Jafnvel þegar sex
mínútur voru til leiksloka vissi ég
að við gætum náð þessu, því Spán-
veijarnir voru búnir í lokin."
Javier Clemente, þjálfari Spánar,
tók í sama streng. „Það var erfitt
fyrir okkur að missa Nadal af velli,
en staðan var þægileg, þegar við
vorum tveimur mörkum yfir. Hins
vegar var erfitt að halda áfram í
þessum hita og leikmennirnir urðu
æ þreyttari." Clemente sagði að
leikmenn sínir hefðu tekið jafntefl-
inu illa. „Þeir voru með öll stigin í
höndum sér og eru því auðvitað
langt niðri eftir að hafa misst for-
skotið niður. Þeir eru sárir, en við
erum atvinnumenn og við töpuðum
ekki. Við lögðum mikið á okkur,
en okkur tókst ekki ætlunarverkið
og við gáfum eftir undir lokin.“
Hann áréttaði að brottvísunin
hefði breytt gangi mála. Hún hefði
raskað ró manna í fyrri hálfleik og
komið í veg fyrir að menn gætu
verið afslappaðri eftir hlé. „Það er
■ BILL Clinton forseti Banda-
ríkjanna hélt ræðu við opnunarat-
höfn HM og sagði að áhuginn á
knattspyrnu hefði enginn landa-
mæri og færði þjóðir heims nær
hvor annarri.
■ KJM Young-sam, forseti Suð-
ur-Kóreu varð fyrstur til að óska
knattspyrnulandsliðinu til hamingju
með árangurinn gegn Spánverjum.
Hann er mikill knattspyrnuáhuga-
maður og sagði í skeyti sem hann
sendi liðinu að þrátt fyrir mótlæti
hefði liðið ekki gefist upp, og hvatti
síðan sína menn til að halda barátt,-
unniáfram.
■ ÁHUGI fjölmiðla og almenn-
ings í Bandaríkjunum á opnunar-
leik HM var heldur dræmur. Mestu
fjölmiðlapúðri var eytt í hvarf
bandarísku íþróttahetjunnar og
leikarans O.J. Simpson, sem sak-
aður hefur verið um morð á fyrrum
eiginkonu sinni og vini hennar.
■ OPNUNARATHÖFN keppn-
innar var glæsileg en gekk þó ekki
fullkomlega upp. Söngkonan Diana
Ross söng lag við athöfnina og átti
að skjóta bolta í mark rétt áður en
hún kom á sviðið. Hún brenndi hins
vegar af, af stuttu færi. Kynnirinn
Oprah Winfrey datt illa þegar hún
yfírgaf sviðið og var borinn af leik-
velli.
■ ÞJÓÐ VERJAR og Brasilíu-
menn eru taldir sigurstranglegastir
í HM. Þess má geta að þessar sigur-
sælu þjóðir hafa aldrei glímt í
heimsmeistarakeppni.
■ LEIKMENN frá 24 þjóðum
taka þátt í HM, en þeir leika í 32
löndum. Alls eru 528 leikmenn
mættir í slaginn — þar af 182 leik-
menn sem leika með félögum utan
heimalands síns, eða 34,5% leik-
manna.
■ BARCELONA á flesta leik-
menn i HM, eða þrettán. 45 leik-
menn leika með ítölskum liðum og
þá leika 45 leikmenn með liðum á
Spáni, 38 leika í Þýskalandi, 38 í
Englandi og 31 í Belgiu.
mjög erfítt að leika með 10 menn
og í lokin vorum við búnir. Við
gátum ekki gætt Kóreumannanna
því við þoldum ekki þungar sóknir
þeirra.“
Fernando Hierro, miðjumaður
Spánar, meiddist stundarfjórðungi
fyrir leikslok og var af velli í fimm
mínútur, en kom þá aftur inn á.
„Þegar Fernando meiddist var allur
kraftur úr liðinu," sagði Clementie.