Morgunblaðið - 19.06.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994 47
J
0
IÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Reuter
Patrlck Ewlng skorar fyrir New York Knicks í fimmta leiknum gegn Hous-
ton aðfararnótt laugardags. Hakeem Olajuwon er til varnar.
New York þarf
einn sigur enn
NEW York sigraði ífimmtu viðureigninni gegn Houston aðfarar-
nótt laugardagsins og leiðir nú 3:2 í úrslitum NBA-deildarinnar.
Munurinn á liðunum þegar upp var staðið var sjö stig, 91:84.
Sfðustu leikir liðanna verða í Houston og þarf New York að sigra
í öðrum af leikjunum tveimur til að tryggja sér fyrsta NBA-titilinn
síðan 1973. Næsti leikur liðanna verður í kvöld, sunnudagskvöld,
í Houston.
Mesti munurinn á liðunum í
leiknum var 13 stig, 56:43
> þriðja leikhluta. Houston tók sig
þá á og gerðu leikmenn liðsins átján
stig á móti fimm New York manna
það sem eftir lifði leikhlutans og
var staðan því jöfn, 61:61, þegar
liðin mættu til leiks í síðasta hlutan-
um. Þegar þrjár mínútur voru eftir
hafði Houston forystu, 78:80, en
John Starks kom sínum mönnum
yfir með þriggja stiga körfu. Við
það hrundi leikur Houston liðsins
°g New York menn gerðu 11 stig
á móti einu stigi Houston, á því
tímabili og þar til tæplega hálf
mínúta var eftir. Sigur New York
var í höfn, en leikurinn endaði
91:84.
John Starks bakvörður New York
gerði 11 af 19 stigum sínum í fjórða
og síðasta leikhlutanum og var
mjög mikilvægur fyrir liðið. Ewing
var'stigahæstur New York manna
með 25 stig, en Hakeem Olajuwon
gerði 27 fyrir Houston. Ewing tók
auk þess tólf fráköst og jafnaði
besta árangur í úrslitakeppninni
þegar hann varði átta skot. Anth-
ony Mason gerði 17 stig og Derek
Harper 14 fyrir New York.
KNATTSPYRNA
Reykjavík
landið
Asunnudag verður leikur á
milli úrvalsliðs Reykjavíkur
og landsins á Laugardalsvelli í til-
efni 75 ára afmælis KRR og hefst
viðureignin kl. 16. Eftirtaldir leik-
menn hafa verið valdir í leikinn:
LANDIÐ: Priðrik Priðriksson ÍBV,
Stefán Arnarson FH, Arnar Grétarsson
UBK, Baldur Bjarnason, Ingólfur Ing-
ólfsson og Ragnar Gíslason Stjömunni,
Olafur Kristjánsson, Jón Erling Ragn-
arsson og Andri Marteinsson FH, Gunn-
ar Oddsson, Kjartan Einarsson og Óli
Þór Magnússon ÍBK, Júlíus Tryggva-
son, Guðmundur Benediktsson og Lárus
Orri Sigurðsson Þór.
Reykjavík: Birkir Kristinsson Fram,
Kristján Finnbogason, Hilmar Bjöms-
son, Einar Þór Danlelsson, Tómas Ingi
Tðmasson og Heimir Guðjönsson KR,
Eiður Smári Guðjohnsen, Steinar
Adolfsson, Kristján Halldórsson, Bjarki
Stefánsson og Guðni Bergsson Val,
Steinar Guðgeirsson, Helgi Sigurðsson,
Pétur Marteinsson og Kristinn Hafliða-
son Fram.
GOLF
Montgomerie
hefurforystu
Skotinn Colin Montgomerie
hefur forystu, 136 högg,
eftir tvo daga á Opna bandaríska
meistaramótinu í golfi, sem fram
fer á Oakmont golfvellinum í
Pennsylvaníu. Hann lék á sex
höggum undir pari annan dag-
inn, 65 höggum, og náði með því
að skjótast fram úr Hale Irwin
og sjálfum Jack Nicklaus, sem
eru ásamt nokkrum öðrum búnir
að leika á 138 og 139 höggum.
Staðan eftir dagana tvo er þessi, leik-
maður er bandarískur nema annað sé
tekið fram:
136 Colin Montgomerie (Bretl.) 71 65
138 Hale Irwin 69 69, John Cook 73
65, David Edwards 73 65
139 Jeff Maggert 71 68, Jack Nicklaus
69 70
140 Frank Nobilo (Nýja-Sjál.) 69 71,
Steve Pate 74 66, Curtis Strange
70 70, Ernie Els (S-Afriku) 69 71
141 Kirk Triplett 70 71, Tom Watson
68 73, Emlyn Aubrey 72 69, Jeff
Sluman 72 69
með frönskum og sósu
=995.-
TAKIÐMEÐ iijii TAKIÐMEÐ
- tilboð! VéA? - tilboð!
Bartir I
sauðir?
.Jekki lambakjöt tyrir mig, takk!
Við færum þér NetWare
uppfærslur á silfurfati.
Tæknival, sem er viðurkenndur dreifingaraðili
Novell á Islandi, hefur um árabil sinnt NetWare
notendum af kostgæfni og hjá fyrirtækinu starfa
fjórir af þeim fimm islensku tæknimönnum sem
hlotið hafa CNE-gráöuna (Certified NetWare
Engineer) frá Novell. CNE-gráðan tryggir öllum
viðskiptavinum Tæknivals aðgang að hámarks
þekkingu og forgangsþjónustu við úrlausn hvers
kyns mála.
Við erum stöðugt að mæta nýjum og breyttum
þörfum notenda NetWare sem gera kröfur um
meiri hraða og betri nýtingu á tækjabúnaði
sínum. Með því að nýta sér möguleika á
uppfærslum, velur þú að njóta þess besta sem
netkerfið býður upp á.
Uppfærslan er bæði fljótleg og einföld, og eykur
afköst i öllu fyrirtækinu. Til dæmis gætir þú
fjölgað notendum á núverandi netkerfi og/eða
uppfært í nýjustu útgáfu af NetWare 3 (v. 3.12).
Þú gætir jafnvel viljað uppfærsluna NetWare 4
til aö auka hraðann, bæta frammistöðuna og
um leið sveigjanleika netkerfisins. Þitt er valið.
Og.rúsínan í pylsuendanum. Ef þú tekur
uppfærslu fyrir 31. júlí 1994 færðu 40% afslátt
af listaverði - í boði Novell og Tæknivals hf.
Við leggjum metnað í að uppfylla
óskir þínar um Novell netkerfi.
Hafðu samband við fulltrúa
Tæknivals í netkerfum
og við munum I
til móts'
■ú
BS Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664