Morgunblaðið - 19.06.1994, Blaðsíða 49
morgunblaðið
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994 49
LISTIR
PETER Máté og Guðný Guðmundsdóttir.
Fella- og Hólakirkja
Listviðburður
endurtekinn
Tónvakinn
Fimmtán
keppa um
að komast
í úrslit
í SUMAR ef;úr Ríkisútvarpið í
þriðja sinn til keppni um Tón-
vakann, Tónlistarverðlaun Rík-
isútvarpsins. Keppnin er í fyrsta
sinn undankeppni fyrir norræna
Tvíæringinn, Ung Nordisk So-
listen Biennial.
Sigurvegarinn hlýtur keppn-
isfé að upphæð 250 þúsund og
kemur fram á hátíðartónleikum
Ríkisútvarpsins og Sinfóníu-
hljómsvitar íslands næsta haust
sem útvarpað verður á Norður-
löndum. Fyrsti hluti Tónvaka-
keppninnar er að baki. Fimmtán
tónlistarmenn, hljóðfæraleikar-
ar og söngvarar taka þátt í
öðrum hluta_ keppninnar, sem
fram fer í Útvarpshúsinu, 20.
og 21. júní.
Jazz fyrir
börn
JAZZ-TRÍÓ Ólafs Stephensen
leikur barnalög í jazz-útsetn-
ingum í Gallerí Borg sunnudag-
inn 19. júní klukkan 15.00.
Tríóið skipa þeir Ólafur Steph-
ensen á píanó, Tómas R. Einars-
son á bassa og Guðmundur R.
Einarsson á trommur. Sýning
Tryggva Ólafssonar stendur
yfir en henni lýkur á þriðjudag-
inn 21. júní.
GUÐNÝ Guðmundsdóttir konsert-
meistari Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands og ungverski píanóleikarinn
Peter Máté flytja fiðlusónötur eftir
Edward Grieg í Fella- og Hóla-
kirkju nk. mánudag 20. júní kl. 20.
í apríl sl. fluttu listamennirnir
sónötumar í Norræna húsinu og
var það í fyrsta sinn sem þær voru
leiknar allar saman á íslandi. Um
þá tónleika skrifaði Jón Ásgeirsson,
tónskáld og gagnrýnandi, í Morgun-
blaðið: „Trúlega hefur Guðný náð
þama lengst í listrænni og tilfinn-
ingaþmnginni túlkun, sem fékk og
sérstakan hljóm í afburða góðu
samspili Máté og má því segja að
tónleikamir í heild væru stór listvið-
burður."
Edvard Grieg samdi einungis
þrjár fiðlusónötur. Þá fýrstu, sem
er opus 8 í F-dúr, samdi hann að-
eins 22 ára gamall og er hún full
af æskuijöri og mjög lífleg. Aðra
sónötuna, sem er opus 13 í G-dúr,
samdi Grieg aðeins tveimur árum
síðar og einkennist hún af norskri
þjóðlagatónlist. Þriðju sónötuna,
opus 45 í c-moll, samdi Grieg svo
ekki fyrr en 20 árum síðar þá full-
þroskaður listamaður. Hún er mjög
dramatísk og alvarleg og hefur orð-
ið afar vinsæl og er sú af fiðlusónöt-
um Griegs sem oftast er flutt á
tónleikum.
Guðný Guðmundsdóttir, konsert-
meistari, er nú í starfsleyfi frá Sin-
fóníuhljómsveit íslands og einbeitir
sér að æfingum og tónleikum. Hún
og ungverski píanósnillingurinn
Peter Máté, sem er kennari við tón-
listarskólana í Reykjavík, munu í
kjölfar þessara tónleika í Fella- og
Hólakirkju taka sónötumar upp í
kirkjunni til útgáfu á geisladisk.
Hljómburður er mjög góður í kirkj-
unni og þar er nýr Steinway-flygill
sem Petér Máté leikur á.
Námskeið í
mynd-
þerapíu
SIGRÍÐUR Bjömsdóttir heldur
verklegt kvöldnámskeið á Brekku-
stíg 8 í myndþerapíu, nk. mánu-
dagskvöld þann 20. júní.
Námskeiðið er fyrst og fremst
ætlað kennurum, fóstrum, þroska-
þjálfum, hjúkrunarfræðingum,
sjúkraliðum og öðru fagfólki á
kennslu,- uppeldis-, félags- og heil-
brigðismálasviðum og jafnframt
öðru starfsfólki á viðkomandi stofn-
unum.
Sigriður Bjömsdótir er löggiltur
félagi í Hinu breska fagfélagi
myndþerapista (BAAT). Hér á landi
hefur menntamálaráðuneytið metið
námskeið Sigríðar til stiga.
Bergxtr Thor-
berg sýnir í
Portinu
BERGUR Thorberg hefur opnað
sýningu í Portinu í Hafnarfirði.
Á sýningunni em 15 málverk, öll
máluð með akríi á striga. Þetta er
önnur einkasýning Bergs, en henni
lýkur 3. júlí.
Allir eru velkomnir.
Ford Econoline 250, árg. 1989, ekinn 60 þús. km,
innréttaður og vel útbúinn bíll, 6 cyl. m. framdrifi,
38“ dekk, dráttarkúla o.fl. o.fl. (o)
B I LASALAN SKEIFAN
SKEIFUNNI II 108 REYKJAVÍK SÍM|:689 555
Við opnum nýja glæsilega verslun að Suðurlandsbraát 50 v/Fákafen
Með fataefni, gjafavörur og leðurtöskur.
Okkar árlega sumarútsala
W&Sn
hefst kl. 10 í fyrramálið í báðum versl.
SUÐURLANDSBRAUT
afsL
FÁKAFEN
Trönuhrauni 6 • 220 Hafnarfirði • Sími 91-651660
Suðurlandsbraut 50 • 108 Reykjavík • Sími 91-884545