Morgunblaðið - 28.06.1994, Síða 4

Morgunblaðið - 28.06.1994, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Sæfrosti á Bíldudal lokað fram til hausts Kvótinn búinn og verð á fiskmörkuðum of hátt STJÓRNENDUR Sæfrosts á Bíldudal hafa tekið ákvörðun um að hætta allri fiskvinnslu í fyrirtækinu fram til haústs. Ástæðan er sú að bátur fyrirtækisins er búinn með kvótann og sá fiskur sem er til sölu á fiskmörkuðum er á það háu verði að ekki er talinn grundvöllur fyrir vinnslu hans. „Við værum bara að keyra fyrirtækið beina leið í botninn ef við ynnum fisk á þessu verði,“ sagði Guðmundur Sævar Guðjónsson, stjórnarformaður Sæfrosts. „Það gengur ekki upp að reka frystingu þeg- ar við þurfum að kaupa hráefni á 80-85 krónur og upp í 90 krónur, eins og var á fiskmörkuðum í morgun. Við reynum það ekki. Það er betra að hafa einfaldlega lokað,“ sagði Guðmundur. Guðmundur sagði að stjórnendur Sæfrosts hafi fullan hug á að hefja vinnslu aftur í haust þegar nýtt kvótaár hefst og hráefnisverð hefur lækkað. Guðmundur sagði að í fyrrasumar hefði gengið mun betur að halda uppi rekstri, enda hefði framboð á fiski verið mikið og verð mun lægra en í dag eða um 65-70 krónur kílóið. Hann sagðist hins vegar ekki sjá hvernig menn eigi að fara að því að standa í frystingu á næsta ári miðað við þann litla kvóta sem nú hefur verið ákveðinn. Hann sagði að fisk- vinnslufyrirtæki á sunnanverðum Vestfjörðum hafi treyst mikið á krókaleyfísbáta, en nú sé búið að skerða kvóta þeirra. „Ég kvíði næsta vori. Það er ekki ólíklegt að menn verði að loka fyrirtækjunum fyrr.“ Guðmundur sagði að til greina hefði komið að vinna Rússafisk í sumar, en bæði sé verð á honum nokkuð hátt og eins séu markaðshorf- ur á Rússafiski ekkert sérstaklega góðar. Hann sagði að sölusamtökin séu ekki hrifín af því að selja tvífrystan fisk. Um 15-20 manns voru í vinnu hjá Sæfrosti þegar vinnslan í húsinu var stöðvuð fyrr í mánuðinum. Flestir ganga nú um atvinnulaus- ir, en mjog erfítt er að fá vinnu á Bíldudal núna. Engin vinna er hjá Rækjuveri, sem er annar aðalvinnuveitandinn á staðnum. Þar hafa 16 manns unnið. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Gert klárt MARGIR nýttu sér veiðidag fjöl- vatn, sem var eitt þeirra fjöl- skyldunnar, sem var á sunnu- mörgu vatna þar sem fólk gat dag. Myndin er tekin við Elliða- veitt ókeypis í tilefni dagsins. Tsjajkovskíj-keppnin Sigrún komst áfram í annan áfanga SIGRÚN Eðvaldsdóttir fiðluleikari náði góðum árangri í Tsjajkovskíj- tónlistarkeppninni sem nú stendur yfír í Moskvu. Var hún valin í hóp 42 fiðluleikara sem þátt tóku að þessu sinni og komst áfram í ann- an áfanga. Keppnin er haldin á fjögurra ára fresti- og komst Sigrún í annan áfanga hennar ásamt 20 öðrum fíðluleikurum. Hins vegar komst hún ekki í úrslit átta keppenda sem tilkynnt voru síðastliðið föstudags- kvöld. Gunnar Gunnarsson sendi- herra íslands í Moskvu segir að Sigrún hafí fengið lofsamlega umfjöllun og verið vel tekið. „Sigrúnu gekk prýðilega. Hún var sú fyrsta sem spilaði í öðrum áfanga keppninnar og fékk þau ummæli í Moskovskaja pravda að hún hefði spilað erfið verk og gert það mjög vel, enda tóku áheyr- endur henni afar vel og talað var um að hún hefði staðið sig mjög vel.“ Segir Gunnar að keppendur séu frá fjölmörguni löndum þótt rússneskir þátttak- endur séu fjölmennir. „Það eru ekki nema mjög góðir tónlistar- menn sem komast inn í keppnina og eru valdir til þátttöku með hlið- sjón af ferli sínum. Sennilega er þetta ein erfiðasta keppni sem tón- listarmenn taka þátt í,“ segir Gunnar loks. Sigrún Eðvaldsdóttir Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson FLUTINGABÍLLINN sem valt í Eyjum í gær skemmdist talsvert. Veltur og árekstrar í Eyjum Vestmannaeyjum. Morgunblaðið TVEIR fólksbílar og einn flutn- ingabíll eru skemmdir eftir óhöpp í Eyjum frá því á föstudag. Annar fólksbíllinn er illa farinn og slasað- ist ökumaður hans talsvert en annars urðu ekki alvarleg slys á fólki. Fólksbíll valt á Helgafellsvegi aðfaranótt laugardags. Þrír voru í bílnum og slasaðist ökumaður hans mikið og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. I gær urðu tvö óhöpp í umferðinni. Flutningabíll með tengivagni sem var að vinna við vegagerð í Eyjum valt þegar verið var að losa hlass af honum. Bíllinn skemmdist tals- vert en ökumaður hans slasaðist ekki. Síðdegis í gær varð all harð- ur árekstur á horni Heiðarvegar og Kirkjuvegar. Er önnur bifreiðin sem í árekstrinum mjög illa farin en engin meiðsl urðu. Grímur Járnblendiverksmiðjan Viðgerð lýkur í dag RÁÐGERT er að viðgerð á ofni Járn- blendiverksmiðjunnar á Grundart- anga, sem bilaði í síðasta mánuði, ljúki í dag. Verksmiðjan hefur verið rekin með hálfum afköstum á meðan og segir Sigurður Guðni Sigurðsson rekstrarstjóri að hálfan mánuð taki að koma ofninum fyllilega í gagnið. Viðgerðin kostar um 80 millj. en Sigurður Guðni segir líklegt að tryggingar greiði um 5.500 tonna framleiðslutap sem hlotist hefur af biluninni. Fram hefur komið að kostnaður vegna framleiðslutaps og viðgerða væri 150-200 millj. „Verið er að setja í pottinn nýja fóðringu sem þarf að þurrka og baka. Síðan erum við að búa til ný raf- skaut og lokastig framleiðslu þeirra er í ofninum sjálfum," segir Sigurður. ið fer ekki framhjá þér! Tæknival hf. er sölu- og þjónustuaðili á íslenska Skjáfaxinu. H Tæknival Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664 Fallhlífar- stökkvari slasaðist BANDARÍSKUR fallhlífar- stökkvari mjaðmagrindarbrotn- aði og fékk sprungu í höfuðkúpu þegar hann lenti á stórum trukk við flugvöllinn á Flúðum á sunnudag. Höggið var svo mikið að talsvert sá á trukknum. Félagar í Fallhlífaklúbb Reykjavíkur voru að æfa stökk og segir Þóijón Pétursson, yfír- kennari klúbbsins, að maðurinn, sem er þaulvanur fallhlífar- stökki, hafi misreiknað sig í lendingu. „Þegar hann kom úr brattri beygju í lokastefnu lenti hann í vindhviðu, þar sem vindur fór úr 5 hnútum í 18 hnúta. Hann sá að hann myndi lenda á húsi við flugvöllinn, en náði að sveigja frá og lenti á bílnum." Leitað var til Landhelgisgæsl- unnar, sem sendi þyrlu sína á staðinn sem flutti manninn á Borgarspítala. Tyrkneska forræðismálið Reynt á um- gengisrétt TYRKNESKUR undirréttur frestaði í síðustu viku forræðis- máli Sophiu Hansen. Sophia læt- ur reyna á umgengninsrétt við dætur sínar um næstu helgi. Sigurður Pétur Harðsson, stuðningsmaður Sophiu, sagði að afgreiðslu forræðismálisins hefði verið frestað þar sem ekki hefðu borist gögn frá hæstarétti í Ankara en málið yrði tekið fyrir allra næstu daga. Sophiu var dæmdur um- gengnisréttur í apríi. Hún átti að fá að hitta dætur sínar um hveija helgi. Vegna fjárskoits hefur henni ekki verið fært að sinna þessum rétti fyrr en nú. Skemmtun án leyfis í Bolholti LÖGREGLAN var kölluð að húsi á mótum Skipholts og Bolholts aðfaranótt sunnudags. Þar var mikill mannsöfnuður og leikur grunur á að haldin hafí verið þar skemmtun án leyfis. Lögreglan fékk kvörtun vegna hávaða kl. 4.43, en þá var nokkur mannsöfnuður við húsið. Þegar lögreglumenn komu á vettvang skömmu síðar og knúðu dyra var þeim ekki hleypt inn, en ljóst var að samkvæmi var innan dyra. Aftur var kvart- að undan hávaða kl. 6.13, en þá voru um 30-40 manns fyrir utan húsið og ölvun mikil. Lög- reglan fór á vettvang kl. 6.45 og tvístraði hópnum. Málið er í rannsókn. Sjö sluppu úr bílveltu JEPPI valt skammt austan við Mánárbakka á Tjömesi um kl. 14 á laugardag. Sex börn voru í bílnum, auk ökumanns, og sak- aði þau ekki. Ökumaður kenndi eymsla í baki. Bömin voru á leið í sumarbúð- ir í Ástjörn þegar óhappið varð. Rigning var og leirkenndur veg- urinn háll. Samkvæmt upplýs- ingum lögreglu á Húsavík skrik- aði kerra aftan í jeppanum til á veginum og olli því að ökumað- urinn missti stjórn á bílnum, sem valt og er ónýtur eftir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.