Morgunblaðið - 28.06.1994, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
Sigfús, Þórbergur og Vilhjálmur
Á FYRRA ári kom út XI. bindi
af Þjóðsögum og sögnum Sigfúsar
Sigfússonar. í þessu lokabindi
verksins birtist ritgerð eftir undir-
ritaðan um ævi og störf Sigfúsar.
Þar fjallaði ég um þær viðtökur
sem safn Sigfúsar hlaut er útgáfa
þess hófst og birti glefsur úr rit-
dómum og umsögnum. Þar birti
ég einnig örfá orð Þórbergs Þórð-
arsonar um Sigfús og verk hans
úr Bréfi til Láru. í niðurlagi komst
ég þannig að orði m.a. um ritdóma
og umsagnir.
„ ... Þeir eru allir jákvæðir og
hlýlegir í garð Sigfúsar, nema orð
Þórbergs, sem víkur að honum
ómaklega. Það lýsir Sigfúsi hins
vegar ágætlega, að hann tekur orð
Þórbergs ekki alvarlega, en lítur
á þau sem marklaust slúður."
Viihjálmur Hjálmarsson fyrr-
verandi menntamálaráðherra rit-
aði athugasemd við þessi orð mín
í Morgunblaðið 21. janúar sl. sem
bar yfirskriftina: Þórbergur vék
ekki illa að Sigfúsi. í þessari at-
hugasemd tók Vilhjálmur upp of-
anskráða málsgrein og bætti við
hugleiðingum frá eigin bijósti.
Samhengis vegna verð ég að taka
hér upp nokkurn kafla úr máli
Vilhjálms sem heldur áfram:
„Þetta gæti valdið misskilningi.
Sigfúsi hefur á sínum tíma mislík-
að orðafar Þórbergs Þórðarsonar
í tilvitnuðum kafla í Bréfi til Láru.
En mergurinn málsins er sá að
Þórbergur er ekki að skrifa um
safn Sigfúsar heldur um þau kjör
sem skáldum og fræðimönnum
hafi verið og séu búin hér á landi.
’Saga flestra þeirra öreiga, sem
hafa fórnað sér fyrir andlegt líf
hér á landi, er hryllileg píslar-
saga,’ segir Þórbergur með mörgu
fleiru. Og nefnir tólf (sic!) nöfn
máli sínu til sönnunar: Jón Guð-
mundsson lærði, Daði Níelsson
hinn fróði, Bólu-
Hjálmar, Sigurður
Breiðljörð, Gísli Kon-
ráðsson, Eiríkur frá
Brúnum, Brynjólfur
frá Minna-Núpi, Ólaf-
ur Davíðsson, Sig-
hvatur Borgfirðingur,
Magnús Bjarnason á
Hnappavöllum, Sigfús
Sigfússon frá Eyvind-
ará, Matthías Joch-
umsson og Kristján
skáld Jónsson.
Þessi flokkun Þór-
bergs er vissulega
ekki til vansa fyrir
Sigfús Sigfússon.
Rifja ég þetta upp -
eins og fyrr getur - til þess að
koma í veg fyrir hugsanlegan mis-
skilning. Því ég álít að Þórbergur
Þórðarson hafi síst verið til þess
líklegur að varpa rýrð á söfnunar-
starf á borð við það sem Sigfús
Sigfússon innti af höndum.“
Ég tel nauðsynlegt þótt seint
sé að gera nokkrar athugasemdir
við þessi orð Vilhjálms Hjálmars-
sonar. Er þá fyrst til að taka að
Þórbergur er ekki að skrifa ritdóm
um Þjóðsögur og sagnir Sigfúsar
eins og skýrt kemur fram í minni
ritgerð. Hann er að ræða um per-
sónu Sigfúsar og starf hans. Og
Þórbergur vék misjafnlega að ein-
staklingum í áðurnefndum þrettán
manna hópi sem hafði orðið fyrir
illri meðferð „bændamenningar-
innar“ að hans mati. Sigfús Sig-
fússon var annar tveggja manna
úr hópnum sem hann veittist að
með persónulega niðrandi og nei-
kvæðum ummælum á þessa ieið:
„Sigfús Sigfússon frá Eyvind-
ará hefir safnað þjóðsögnum og
mannlýsingum í marga áratugi.
Samt er hann blásnauður. Mér er
ekki kunnugt um, að honum hafi
hlotnast til þessa tíma
önnur sæmd en sú
sælukennd guð-
hræddrar sálar að
vera talinn hérvilling-
ur meðal manna. í
dýrtíðaruppbót hefir
hann fengið að þræla
hjá bændunum fyrir
lélegt kaup. Útgáfan
á þjóðsögum hans er
aðallega kostuð af
verslunarstjóra.“ (Bls.
150.)
Sigfús tók þessi orð
Þórbergs illa upp og
skráði þau í æviþátt-
um sínum með svo-
felldum inngangi:
„Um Sigfús Sigfússon ... fer
hann (Þórbergur) hinum tilgerðar-
legu fordildarorðum, er eptir
fylgja, enda þekkir hann Sigfús
lítið og eigi farandi eptir öllu
slúðri.“ (íslenskar þjóðsögur og
sagnir XI 1993, 173.)
Viðbrögð Sigfúsar við umsögn
Þórbergs voru mjög eðlileg. Hefði
áreiðanlega hveijum manni sárnað
að fá þá einu umsögn um sig á
prenti, að hafa enga aðra sæmd
hlotið en vera talinn hérvillingur
meðal manna. Hérvillingur merkir
samkvæmt Orðabók Menningar-
sjóðs hjáræna eða hjárænulegur
maður, en í íslenskri samheita-
orðabók er það skýrt sem heim-
ótt. Dómur Þórbergs um Sigfús
er því mjög niðrandi, en einnig
bæði ómaklegur og ósannur. Sig-
fús hafði er hér var komið sögu
safnað þjóðsögum og sögnum um
hálfrar aldar skeið. Hann hafði
að sjálfsögðu ekki uppskorið laun
á veraldarvísu í samræmi við erf-
iði sitt á þessum tíma, en hins
vegar hlotið margvíslega viður-
kenningu manna sem kunnu að
meta starf hans. Þessum orðum
Orð Þórbergs eru í svip-
uðum dúr segir Jón
Hnefill Aðalsteinsson,
og annað aðkast, sem
Sigfús mátti þola.
til stuðnings leyfi ég mér að taka
hér upp kafla úr riti mínu um ævi
og störf Sigfúsar, en þar segir um
viðhorfin til Sigfúsar og safns
hans tæpum hálfum öðrum áratug
fyrr en Þórbergur skrifaði Bréf til
Láru:
„Um þessar mundir (um 1910)
voru þjóðsögur og sagnir Sigfúsar
nokkuð þekktar og meðal þeirra
sem höfðu farið viðurkenningar-
orðum um þær á prenti voru Jónas
Jónasson frá Hrafnagili, Matthías
Jochumsson skáld og Þorsteinn
M. Jónson. Skáldin Þorsteinn Erl-
ingsson, Þorsteinn Gíslason, Guð-
mundur Magnússon (Jón Trausti)
og Jón Ólafsson voru einnig allir
velviljaðir safni Sigfúsar og sama
gilti um bókaverði Landsbóka-
safns. Af öðrum mönnum sem
sýndu safninu áhuga er Sigfús
kom með það til Reykjavíkur,
nefnir hann sérstaklega Björn
Bjarnason frá Viðfirði, Ágúst H.
Bjarnason prófessor og Guðmund
Finnbogason prófessor. Sigfús og
safn hans átti því hvarvetna vinum
og velvild að mæta hjá fremstu
mönnum mennta, menningar og
skáldskapar á þessum tíma.“ (ís-
lenskar þjóðsögur og sagnir XI
1993, 160.)
Fleiri velunnara eignaðist Sig-
fús einnig í hópi áhrifamanna á
næstu árum og nægir að nefna
hér til viðbótar Benedikt S. Þórar-
insson kaupmann og Björn Þor-
Jón Hnefill
Aðalsteinsson
láksson alþingismann á Dverga-
steini, sem báðir lögðu fram mikið
starf við að reyna að koma safninu
á pjent.
Útgáfan á Þjóðsögum og sögn-
um Sigfúsar Sigfússonar sóttist
mjög seint, þrátt fyrir áhuga og
atbeina margra góðra manna. Það
sem einkum torveldaði útgáfuna
var stærð safnsins, en sjálfur var
Sigfús ófáanlegur til að láta gefa
út takmarkaðan hluta þess. Veru-
legur skriður komst ekki á útgáfu-
málin fyrr en Sigfús hafði ferðast
um Austfirðingaijórðung og safn-
að 1.400 áskrifendum að væntan-
legri útgáfu. Bændamenningin á
Austurlandi reyndist Sigfúsi því
betri en engin og með hennar til-
styrk átti hann sjálfur dijúgan
þátt í því að útgáfa safnsins hljóp
af stokkunum.
Enda þótt margir af fremstu
menningarfrömuðum þjóðarinar
kynnu að meta starf Sigfúsar að
verðleikum varð hann einnig fyrir
aðkasti skilningslítilla manna.
Slíkt tók Sigfús ætíð mjög nærri
sér og gat verið snöggur upp á
lagið að svara fyrir sig og þá oft
í bundnu máli.
Orð Þórbergs eru í svipuðum
dúr og annað aðkast sem Sigfús
mátti þola. Þórbergur virðist ekki
hafa þekkt neinar staðreyndir að
marki um Sigfús, sem þó má þykja
undarlegt þar sem viðurkenning
margra ágætismanna á söfnunar-
afreki hans hafði ekki farið leynt.
En í stað þess að kynna sér stað-
reyndir lepur Þórbergur upp slúður
skilningslítilla óvildarmanna og
kemur því á framfæri í bók. Er
vandséð hvaða tilgangi slíkt gat
þjónað öðrum en þeim að fleyta
fram niðrandi slúðri um mann sem
Þórbergi kom ekkert við og hafði
ekkert til saka unnið.
Niðurstaða mín er því sú, að
Þórbergur hafi vikið bæði illa og
ómaklega að Sigfúsi.
Höfundur er prófessor í þjóðfrœði
við Háskóla Islands.
Enn um sjúkrahótel
Reynslan
er ólygnust
SJÚKLINGAHÓT-
EL af háum gæða-
staðli, sem rekin eru
í beinum tengslum við
bráðadeildir og vista
sjúklinga eftir að þeir
eru orðnir sæmilega
rólfærir, hafa lengi
verið reknir við flest
stærri sjúkrahús í
Bandaríkjunum. í
Skandinavíu hafa þau
verið rekin í 6 ár og
hafa nú verið tekin í
notkun í Englandi.
Sjúklingahópar
Flestir koma frá krabbameins-
deildum, en einnig frá nýrna-,
blóðmeina-, gigtar-, augn-,
hjarta- og æðasjúkdóma-, húð-,
meltinga-, geð- og fleiri deildum.
Kostnaður er um 30%
af vistunarkostnaði
við bráðadeildir.
Helstu
byrj unarerf iðleikar
í ýmsum greinum í
læknatímaritum og
jafnframt skýrslu* 1 2 er
sérstaklega tekið
fram að helsta mót-
staðan gegn rekstri
hótelanna komi frá
læknum og stjórnend-
um bráðasjúkrahús-
anna, sem m.a. óttast
minnkun deilda og
vandamál er upp
kunna að koma. Einn-
ig hafa komið fram
mótbárur líkt og birtust í grein
Morgunblaðsins 16. júní sl. Þessar
mótbárur koma helst frá þeim
sem litla eða enga reynslu hafa
af rekstri hótelanna. Þessar mót-
bárur, sem leysast í flestum til-
fellum á framkvæmdastigi, sýna
Helsta mótstaða gegn
rekstri sjúkrahótela,
bendir Ólafur Ólafsson
á, kemur frá læknum
og stjómendum bráða-
sjúkrahúsanna.
að nauðsynlegt er að kynna þetta
mál betur. Það verður gert.
Sparnaður
Benda má þó á að sparnaður
við rekstur sjúklingahóteía verður
aðallega af eftirfarandi orsökum:
1. Umsvif bráðasjúkrahúsa
verður minni að því leyti að rúmum
fækkar.
2. Á sjúklingahótelum vinna
ekki læknar heldur hjúkrunar-
fræðingar, sjúkraliðar og ófaglært
Ólafur
Ólafsson
fólk, en laun þeirra eru lægri en
læknanna.
3. Sjúklingar fara snemma á ról
og verða því sjálfbjarga fyrr. End-
urhæfmgin tekur því styttri tíma
og þeir komast fyrr til starfa, en
í því er fólginn verulegur sparnað-
ur eins og reyndar kemur fram í
fyrrnefndri Morgunblaðsgrein.
Framtíðarhorfur
í nýlegri skýrslu frá ferð
tveggja íslenskra aðila um Skand-
inavíu1 kom í ljós að 20 slík hótel
eru rekin í Svíþjóð og þar er fyrir-
hugað að stækka þessi hótel,
sömuleiðis í Danmörku. í Bret-
landi er áætlað að taka í notkun
30 slík hótel og um 70-80 á næstu
árum. Á háskólasjúkrahúsi í Lundi
hefur verið lögð niður heil sængur-
kvennadeild og við Malmö
Almánna sjúkrahúsið hefur verið
ákveðið að fækka rúmum úr 1.200
í 900 rúm. Bandarískir og evrópsk-
ir hagfræðingar, sem hafa veru-
lega reynslu af þessum hótel-
rekstri, telja að verulegur sparnað-
ur hafi fylgt þessum breytingum.
Reynslan er ólygnust.
1) Skýrsla um skoðunar- og kynningarferð
sem farin var til Danmcrkur og Svíþjóðar,
dngnna 25.-29. apríl 1994. Framsýnt fólk lif.
Höfundur er landlæknir.
Kork‘0*Plast
KORK-gólfflísar
meö vlnyl-plast áferö
Kork*o*Plast:
í 20 geröum
Kork O Floor
er ekkert annaö en
hiö viöurkennda
Kork O Plast, límt á
þéttpressaöar
viöartrefjaplötur,
kantar meö nót og gróp.
UNDIRLAGSKORK I ÞfíEMUR ÞYKKTUM.
VEGGTÖFL UKORKPL ÖTUR IÞREMUR ÞYKKTUM.
KORK-PARKETT, VENJULEGT, ITVEIMUR ÞYKKTUM.
icE Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
J|L Vantar allar geróir atvinnubifreióa á skrá og á stadinn - Mikil sala
BMW 5201 ðrg '88, blér, ek. 111 þ. km,
élfelgur, centrallæs, 5 g, Verð 1460 þús.
Mazda 626 2,0 GLXi hlaðbakur, ðrg. '92,
vínrauður, ek. 18 þ. km, sjálfsk, topplúga.
Verð 1680 þús.
Mazda B-2600 ’91, ek. 53 þ, p-hús. V. 1450 þ.
MMC Pajero stuttur B '87 ek. 121 þ. V. 890 þ.
MMC Pajero langur B, '89, v-6, ek. 103. V1690 þ.
Toyota Tercel 4x4 '86, ek. 135 þ. V. 490 þ.
Nissan Vanette árg. '87. V. 235 þ.
Volvo F-1027 m/kassa, '82. V. 2,1 millj.
Volvo FL 611 m/kassa, '87. V. 2.7 millj.
Kælivagn 40 fet, innfluttur '88. V. 1100 þ.
Simon Topper lyfta '88. V. 900 þús.
Chevrolet Van árg. '92, hvftur, ek. 43 þ.
km, 6,21. diesel, sjálfsk. Verð 2050. þús.
m/vsk.
Renault Clio RN árg. '91, rauðbrúnn, ek.
38 þ. km, centrallæs, rafm. rúður, 5 g.
Verð 690 þús.