Morgunblaðið - 28.06.1994, Side 29

Morgunblaðið - 28.06.1994, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ1994 29 þannig smám saman þaulkunnugit' staðháttum í sveitum landsins og eignuðust þar víða kunningja og jafnvel góða vini og vinkonur. Um rannsóknarmanninn Hall- dór Vigfússon munu samstarfs- menn hans vafalaust rita. En svo vill til, að mér er 5 minni ágæt afmælisgrein, sem Páll A. Pálsson yfirdýralæknir ritaði um Halldór sjötugan. Birtist greinin í Islend- ingaþáttum Tímans. Greinin mun nú flestum gleymd og get ég ekki stillt mig um að taka hér upp dóm og vitnisburð Páls um rannsóknar- störf Halldórs, í, raun ævistarfið. „Á þeim árum, þegar mest voru umsvifin við rannsóknarstofuna á sviði búfjársjúkdóma, réðst Halldór Vigfússon þangað til starfa, fyrst og fremst sem samstarfsmaður Guðmundar Gíslasonar læknis. Var það mikið happ fyrir framgang þessara mála og varð upphaf á áratuga samstarfi Halldórs og Guðmundar að margháttuðum rannsóknum á eðli og útbreiðslu ýmissa sjúkdóma í búfé hér á landi. Þó að aðalverkefni þeirra félaga væru rannsóknir á mæðiveiki og garnaveiki, sinntu þeir ýmsum öðr- um rannsóknum, eins og rit þeirra bera gleggstan vott. Meðan hinar illræmdu sauðijár- pestir herjuðu hvað harðast á fjár- stofna bænda, byggðust varnar- og útrýmingaraðgerðir fyrst og fremst á rannsóknum þeirra Guð- mundar og Halldórs. Þeir unnu brautryðjendastarf á þessu sviði oft við erfiðar aðstæður og mikið reið á, að úrskurður þeirra væri réttur hveiju sinni. Kom sér þá vel mikil reynsla þeirra af þess- um sjúkdómum og að hvorugan brast íhygli og samvizkusemi. Oft átti Halldór þar stóran hlut að málum, það vissum við bezt, sem kunnugastir vorum. Þegar Guðmundur Gíslason var fjarverandi vegna ferðalaga eða annarra anna, hvíldu störf á Rann- sóknarstofu sauðíjárveikivarna á herðum Halldórs, og þó enn meir hin síðari árin, eftir að Guðmundur féll frá fyrir aldur fram. Öll störf rækir Halldór af stakri skyldurækni, reglusemi og vand- virkni, þó á hann aldrei svo ann- ríkt, að eigi sé hann boðinn og búinn til að leggja fram liðsinni sitt, þegar þess er þörf. Þess höfum við samstarfsfólk hans oft notið.“ Að sögn Páls dýralæknis hefur Halldór ritað „æðimargt um búíjársjúkdóma bæði hér á landi og í erlend rit“. Einnig nefnir Páll, að meina- og sýklafræðin eigi Halldóri að þakka „ýmis snjöll nýyrði, sem nú eru á hvers manns vörum og falla svo vel að tung- unni, að fæsta grunar að um ný- yrði sé að ræða“. Kemur þetta raunar ekki á óvart. Halldór var vel að sér í íslenskri tungu, mál- glöggur og málvandur, orðhagur vel og kjarnyrtur. Hann var maður marglesinn og minnugur, vafalítið voru þó íslenzkar fræðigreinar honum kærastar, þær mat hann mest og lagði mesta stund á, að hætti fræðimannsins föður síns. Halldór var prýðilega ritfær, ritaði og birti góða þætti um þjóðleg og söguleg efni. Það er og víst, að Halldór átti ólítinn þátt í útgerð skopsöguritsins íslenzkrar fyndni sem Gunnar'Sigurðsson á Selalæk frændi hans gaf út. Gunnar vottar þetta sjálfur: „Ennfremur þakka ég frænda mínum Halldóri Vigfús- syni, sem hefur stutt mig á einn og annan hátt að útgáfu þessa rits, og lesið fyrir mig prófarkir." (ís- lenzk fyndni V, 3-4 1937.) Við vorum býsna margir, sem stóðum í þakkarskuld við Halldór Vigfússon fyrir góðan prófarka- lestur. Hann var vandvirkur og nákvæmur í því starfi sem öðrum, lét sig mjög varða málfar og efni- stök og bætti úr, þar sem þörfin var. Halldór Vigfússon var óvenju- lega vel gerður og vel gefinn mað- ur. Þéttur á velli og bar sig vel. Hægur í dagfari. Látlaus maður og prúðmenni í framgöngu, óhlut- deilinn, en fljótur til liðs. Hann var maður óeigingjarn, hollur vinum sínum og traustur í raun. Dulur um sinn innra mann. Um hann sjötugan varð þessi vísa til: Fumlaus æ og fátalaður, fastlyndur og jafnhugaður, vinhollur og viti tamur, vísufær og gamansamur. Sú venja festist með okkur nokkrum skólabræðrum að hittast á sunnudögum á Hótel Borg og skrafa þar saman. Sunnudagaskól- ann nefndum við þessa samfundi. Með árunum fækkaði hópnum og nú þegar Halldór er allur, erum við aðeins þrír eftir. Með missi Halldórs lýkur með vissu sunnudagaskóla- göngu okkar. Á góðri stund naut Halldór sín vel. Hann var glöggur á menn og málefni og hafði opin augu fyrir öllu kímilegu. Hann var nákunnug- ur í allflestum' sveitum landsins, fyrr frá símavinnuárum sínum og síðar frá tíðum rannsóknarferðum, enda kunni hann þaðan frá mörgu að segja og sagði vel frá þegar vel lá á honum. Með Halldóri átti ég marga glaða stund og þótti jafnan „dauflegt gerast samsætið" ef Hall- dór var ijarri. Halldór var heilsuhraustur fram á efstu ár. Heilsuleysi systur hans var honum þung raun. Hann var henni ávallt hlýr, skilningsríkur og hjálpsamur í erfiðum veikindum hennar. „Ég á bezta bróður í heimi“ voru hennar orð. Með Halldóri vini mínum er mér horfinn sá maður, sem mér hefur verið hjartfólgnastur. „Láti guð honum nú raun lofi betri.“ Lárus H. Blöndal. Fleiri greinar um Halldór Vigfússon bíða birtingar og verða birtar í blaðinu næstu daga. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, sonur og afi, ÓLAFUR EYJÓLFSSOIM forstöðumaður hjá Pósti og síma, lést á hjartadeild Landspítalans laugar- daginn 25. júní. Gyða Hansdóttir, Hans W. Ólafsson, Eyjóifur Ólafsson, Kristine Óiafsson, Magdalena M. Ólafsdóttir, Kristján Ásgeirsson, Guðrún Gyða Ólafsdóttir, Kjartan Sigurðsson, Guðrún Ólafsdóttir og barnabörn. t Ástkaer eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA ERIMA EIIMARSDÓTTIR frá Dalsmynni, Reykjabraut 12, Þorlákshöfn, verður jarðsungin frá Þorlákskirkju miðvikudaginn 29. júní kl. 14.00. Sigurður Ólafsson, synir, tengdadóttir og barnabörn. + ANTON SIGURÐSSON frá Seyðisfirði, Hátúni 10b, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 29. júní kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Einar Sigurðsson. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, sonar, tengdasonar, bróður og mágs, MAGNÚSARÓSKARS GARÐARSSONAR, Skólagerði 20, Kópavogi. Guðrún Jónasdóttir, Jónas Óskar Magnússon, Ingvar Orn Magnússon, Alda Júlía Magnúsdóttir, Oddrún Magnúsdóttir. Guðrún Magnúsdóttir. Jónas Oskar Magnússon, Alda Guðmundsdóttir, systkini, tengdafólk og aðrir aðstandendur. + Þökkum samúð og hlýhug vegna frá- falls eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, AÐALSTEINS GUÐMUNDSSONAR, Hrafnistu, áður Hofsvallagötu 15. Sérstakar þakkir til starfsfólks og hjúkrunarfólks á deild A-4 á Hrafnistu, Reykjavík. Vilborg Jónsdóttir, Pálína Aðalsteinsdóttir, Valberg Gíslason, Halldóra Aðalsteinsdóttir, Magnús Þorbjörnsson, Agnes Aðalsteinsdóttir, Brynjólfur Sandholt, Guðmundur Aðalsteinsson, Steinunn Aðalsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. RAÐAUGÍ YSINGAR HÚSEIGENDUR - HÚSFÉLÖG ÞARF AÐ GERA VIÐ í SUMAR? VANTAR FAGLEGAN VERKTAKA? í Viðgerðadeild Samtaka iðnaðarins eru aðeins viðurkennd og sérhæfð fyrirtæki með mikla reynslu. Langtímaleiga Hjón með tvö börn óska eftir góðu húsnæði til leigu, helst á svæði 104 eða 108. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Upplýsingar í síma 688098. Einbýlishús óskast Óska eftir að taka á leigu gott einbýlishús. Par- eða raðhús kemur líka til greina. Leggið inn nafn og símanúmer á auglýsinga- deild Mbl. merkt: „Mark - 13218“. Öllum verður svarað. Málverk Óskum eftir myndum gömlu meistaranna. Leitum sérstaklega að verkum eftir Nínu Tryggvadóttur, Jón Stefánsson, Kjarval og Kristínu Jónsdóttur. éraél&Lc BORG LISTMUNIR-SYNINGAR-UPPBOÐ við Austurvöll, sími 24211. Leitið upplýsinga í síma 16010 og fáið sendan lista yfir trausta viðgerðaverktaka. SAMTÖK IÐNAÐARINS Til sölu verslun með innflutning og sölu á varahlutum, auka- hlutum og fatnaði fyrir mótorsport. Góðir möguleikar fyrir duglegan mann, sem hefur áhuga á þessari grein. Upplýsingar með nafni og síma sendist í pósthólf 4290, 104 Reykjavík. Veitingastaðurtil leigu Hótel í Reykjavík vill leigja veitingaaðstöðu sína með öllum búnaði traustum aðila með reynslu af veitingarekstri. Áhugasamir sendi upplýsingar um starfsferil sinn til auglýsingadeildar Mbl. fyrir mánudag 4. júlí, merktar: „Veitingar - 13217“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.