Morgunblaðið - 28.06.1994, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ1994 33
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
ÓHREINLÆTIÐ á höndum og móum skrifast alfarið á reikning
þjóðhátíðarnefndar, segir Lára Halla.
„Nefndin sagði
ekki ég“
Frá Láru Höllu Maack:
BRÉF í tilefni af bréfi þjóðhátíðar-
nefndar til íslendinga í Morgun-
blaðinu 23. júní, þar sem segir
orðrétt:
„Því miður bitnuðu umferðar-
vandamálin einnig á hreinlætisað-
stöðu fólks á svæðinu.“
Það var gaman á þjóðhátíð á
Þingvöllum. Nema náttúrlega fyrir
þá, sem ekki komust þangað eða
þurftu að losa og létta á sér úti í
móa.
Undirrituð fór í rútu á hátíðina
í peysufötunum hennar langömmu
með fyrstu ferð, klukkan 7.30.
Varð að heyra í kirkjuklukkunum
hálfníu.
Gjóla var og rakt loft. Eftir
klukknaleikinn var hlé fram að
messu, sem kom sér vel. Peysu-
fatahúfan var nefnilega komin nið-
ur á vinstri öxl, enda vandi að
næla slíkar húfur almennilega nið-
ur í höfuðleðrið fyrir óvanar konur.
Peysufatakonan leitaði sér því
að spegli til að fremja nýja næl-
ingu. Fór inn á klósettin og barð-
ist góða stund við húfuna. Varð
hún vitni að því að nokkrar starfs-
konur og gestir æddu út og inn,
rifu hár sitt og skotthúfur yfir því
að klósettin virkuðu ekki, ekkert
vatn væri á staðnum, tautandi og
vonandi að hin væru í lagi. Húfu-
baslarinn sjálfur gerði enga könn-
un á ástandinu, enda á fullu í
skotthúfuhasarnum fram að
messu.
Ekkert vatn var á þessu um-
rædda salerni klukkan 8.45 að
morgni 17. júní. Þá var engin
umferð, hvorki til Þingvalla, né á
Þingvöllum. Salernisbílarnir voru
í fullum gangi, en samt var allt í
skralli á umræddu klósetti.
„Umferðarvandamálin bitnuðu
á hreinlætisaðstöðunni.“ Nefndin
getur ekki þvegið þannig hendur
sínar. Það var ekki hægt að þvo
hendur sínar á Þingvöllum, þar
var nefnilega ekkert vatn. Óhrein-
lætið á höndum og móum skrifast
alfarið á reikning þjóðhátíðar-
nefndar.
Ýmislegt annað, — sjálfsögð,
fyrirsj áanleg skipulagningaratriði
fóru úrskeiðis á Þingvöllum, öll á
ábyrgð nefndarinnar, en þau verða
ekki tíunduð hér. En Þingvellir
brugðust ekki.
LÁRA HALLA MAACK,
læknir.
Burt með nýbúana?
Frá Edward H. Huijbens:
HINN 24. júní birtist hér á síðum
Morgunblaðsins grein eftir Magn-
ús Þorsteinsson bónda í Vatnsnesi
þar sem hann heldur á lofti yfir-
burðum hins norræna kynstofns
og úthúðar íbúum þriðja heimsins
fyrir „fátækt, menntunarskort,
fáfræði, kyrrstöðu, offjölgun og
ógnarstjórn".
Mér sýnist ekki veita af að taka
þennan ágæta mann í sögu-
kennslu.
Samkvæmt því sem ég hef lært
og lesið vorum það við, Evrópu-
menn, sem komum til þriðja
heimsins á þeim tíma sem þekktur
er sem nýlendutímabilið, og lögð-
um hann undir okkur í krafti
vopna og ógnarstjórnar. Það vor-
Gagnasafn
Morgnnblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
um við, hið „hávaxna, ljóshærða
og bláeygða, hreinræktaða nor-
ræna kyn“, sem brutum niður alla
menningu og þjóðarskipulag þriðja
heims þjóða og það vorum við sem
héldum þeim í stöðnun fram á
þessa öld þegar ekki svaraði leng-
ur kostnaði að kúga þær.
Ég tel afar umhugsunarvert
hvort við eigum ekki að taka
ábyrgð á gerðum okar og leyfa
þessu fólki að njóta ávaxta vinnu
forfeðra sinna, þ.e. hins vestræna
þjóðfélags.
Ég vona að fordómar og rasismi
af þessu tagi deyi út með þinni
kynslóð, Magnús Þorsteinsson.
EDWARD H. HUIJBENS,
Hamarsstíg 34, Akiireyri.
Framleiðum óprentaða tau-burð-
arpoka. Lágmarkspöntun 30 stk.
Bolir, húfur og svuntur.
sími 91-887911
Myllan og Stöð 2
eiga heiður skilinn
NÝLEGA urðum við þeirrar ánægju
aðnjótandi að fá að sjá körfubolta
á heimsmælikvarða. I kjölfar þess
viljum við, undirrituð, koma á fram-
færi þakklæti til aðstandenda Myll-
unnar og Stöðvar 2 fyrir að hafa
gert okkur mögulegt að sjá úrslita-
keppnina í NBA-körfuboltanum
bandaríska beint. Fyrir utan að
stuðla að veg og virðingu íþróttar-
innar hér heima veitir þetta okkur
„gömlu“ mönnunum ómælda
ánægju.
Við ritum þessar fáu línur til
þeirra sem að þessu stóðu því við
vitum að það er ekki sjálfsagt mál
að fá að sjá þessar útsendingar
beint.
Takk fyrir kærlega!
Suðurnesjabæ,
MAGNÚS B. JÓHANNESSON,
MAGNÚS SIGURÐSSON,
SVEINBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
GUÐSVEINN Ó. GESTSSON,
RÚNAR1. HANNAH,
ÖSP BIRGISDÓTTIR.
BRÉFRITARI skorar á þá sem reka tjaldstæði að taka gjald-
skrá sína til endurskoðunar.
Island - Hefurðu efni
á að sækja þaðheim?
Frá Sigurði Björgvinssyni:
UM SÍÐUSTU helgi fór fjölskyldan
í útilegu. Við erum sex í fjölskyld-
unni, foreldrarnir, þrír unglingar og
eitt sjö ára barn. Við tókum áskorun-
inni um að sækja ísland heim. ís-
landi allt! Stefnan var tekin á Laug-
arvatn. Laugarvatn er fallegur og
vinsæll staður og tjaldstæðið gott.
Hins vegar vakti það verð, sem upp
var sett fyrir eina nótt á tjaldstæð-
inu fyrir fjölskylduna, efasemdir um
það hvort við hefðum yfirleitt efni á
að sækja ísland heim. Kannski finnst
mönnum ekki dýrt að borga 370
krónur á mann fyrir nóttina, en fyr-
ir okkur er 1.850 krónur þó nokkur
peningur (við þurftum ekki að borga
fyrir yngsta barnið).
Hvað þýðir þetta ef við ætluðum
að eyða sumarfríinu á tjaldstæðum
vítt og breitt um landið? Eigum við
að segja í 30 nætur? Það myndi
kosta okkur 55.500 krónur (fimmtíu
og fimmm þúsund og fimmhundr-
uð). Já, 55.500 krónur fyrir gistingu
á tjaldstæði. Ég hef ekki kynnt mér
hvort þetta sé það verð sem sett er
upp á öðrum tjaldstæðum, en ef
þetta er verðið yfir línuna þá bið ég
Guð að hjálpa mér, eða öllu heldur
i Huy
28.6. 1994 Nr 389
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4500 0021 1919
4507 4500 0022 0316
4543 3700 0008 7588
4543 3718 0006 3233
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4550 50** 4560 60**
4552 57** 4941 32**
Afgreiðslufólk vmsamlegasf takið ofangreind
kort úr umferð og sendið VISA islandi
sundurklippt.
VERÐtAUN kr. 5000,-
tyrir ad klótesta kort og visa á vágest.
Álfabakka 16 - 109 Reykjavik
Sími 91-671700
^ .......'-4*
þeim sem hvetja aðra til að sækja
Island heim. Fyrir þessa upphæð er
hægt að leigja heilt einbýlishús á
höfuðborgarsvæðinu í heilan mánuð
með ljósi og hita, og lái mér hver
sem vill þegar ég segi að svona geti
þetta ekki gengið. Ósamræmið er
slíkt að engu tali tekur. Eðlilegt
verð væri kannski 400-500 krónur
fyrir tjaldið yfir nóttina. Þijátíu
nætur væru því á bilinu 12.000-
15.000 kr.
Ef verð á annarri þjónustu til
ferðamanna er eitthvað í líkingu við
þetta verður aldrei hægt að reka
ferðamannaiðnað á Islandi. Ég skora
á þá sem reka tjaldstæði, og setja
upp verð á þessum nótum, að taka
gjaldskrána til aivarlegrar endur-
skoðunar, ella er Ijóst að margir Is-
lendingar munu kjósa að sækja önn-
ur lönd og dýrari heim, þó þeir hefðu
kannski að öðru leyti fullan hug á
að ferðast um eigið land.
SIGURÐUR BJÖRGVINSSON,
kennari og áhugamaður
um ferðalög innanlands,
Dalsbyggð 7, Garðabæ.
IVARORTALISTI
Dags.28.6.1994. NR. 161
5414 8300 0310 5102
5414 8300 3163 0113
5414 8300 3164 7117
5414 8301 0494 0100
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
5413 0312 3386 5018
Ofangreind kort ern vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORT HF.
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
simi 685499
Vinnlngstölur
laugardaginn
VINNINGAR . FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 -« 0 1.730.825
2.4 Íf2 150.318
3- 4a(5 58 8.941
4. 3aI5 2.136 566
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 3.759.015 kr.
uppiýsingar:símsvari91-681511 lukkul!na991002
Nr. Leikur:
Röðin:
1. Eskilstuna - Spánga 1 - -
2. Falkcnberg - GAIS 1 - -
3. Gríms&s - Örgrytc - - 2
4. Karlslund - Forward - - 2
5. Karistad - Ljungskile - - 2
6. Kungsbacka - Elfsborg - - 2
7. IFK Malmö - Lund - X -
8. Myresjö - Kalmar FF 1 - -
9. OPE - GIF Sundsv - - 2
10. Sandviken - Spársvagen - - 2
11. Trollhatta - Gunnilse - - 2
12. Vfisby - Djurg&rden - X -
13. Alvsjö AIK - Vasalund 1 --
Heildarvmningsupphæðin:
60 mHljón krónur |
13 réttir:
12 réttir:
11 réttir:
10 réttir:
2.013.730 1
37.010 1
2.500 1
550 J
j kr.
j kr.
kr.
* A Ý
EURU JTIPS
HMl, 18-25. júní 1994
Nr. Leikur: Röðin:
1. USA - Sviss - X -
2. Italía - írland - - 2
3. Belgía - Marokkó i - -
4. Noregur - Mexikó i - -
5. Kamerún - Svíþjóð - X -
6. Brasilía - Rússland 1 - -
7. Holland - Saudi Arabía 1 - -
8. Argentína - Grikkland 1 - -
9. Þýskaland - Spánn - X -
10. Rúmenía - Sviss - - 2
11. USA - Kolumbía 1 - -
12. Ítalía - Noregur 1 - -
13. Brasilía - Kamerún 1 - -
14. Svíþjóð - Rússland 1 - -
Hcildarvinningsupplucðin:
30 milljón krónur
14 réttír: 350.910 kr.
13 réttir: 22.500 kr.
12 réttir: 1.660 kr.
11 réttir: ° kr.