Morgunblaðið - 08.09.1994, Side 11

Morgunblaðið - 08.09.1994, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1994 11 LANDIÐ Klébergs- skóli nú ein- setinn KLÉBERGSSKÓLI á Kjalarnesi var settur 3. september. Skóladagur yngri nemenda verður lengdur og skólinn samfelldur og einsetinn þar sem allir nemendur eru jafn lengi í skólanum, frá kl. 8.30-14.30. Klébergsskóli hefur nú 114 nem- endur í 1. til 10. bekk grunnskóla. Hann hefur verið einsetinn um nokkurra ára skeið en yngri nem- endum skólans hefur verið ekið heim um hádegi. Við þessa breyt- ingu verður aukin kennsla yngri nemenda og fá þeir nú kennslu í dansi og blokkflautuleik auk verk- greina, íþrótta og bóklegra greina. Þá hefur einnig verið stofnaður Tónlistarskólinn á Klébergi sem rekinn er í mjög nánu samstarfi við grunnskólann. Reiknað er með að í tónlistarskólanum verði um 55 nemendur í vetur. Kjalarneshreppur hefur um margra ára skeið haft samstarf við Tónlistarskóla Mos- fellsbæjar. íbúum hefur nú fjölgað nokkuð í Kjalarneshreppi og þótti því svara kostnaði að Kjalarnes- hreppur stæði sjálfur að rekstri tón- listarskóla. Á næstum vikum verður tekin í notkun ný og glæsileg íþróttamið- stöð á Klébergi. ------♦ ♦ ♦----- Lagfæringar á kirkjugarð- inum á Stað Trékyllisvík - Undanfarnar vikur hafa staðið yfir framkvæmdir við kirkjugarðinn á Stað í Staðarhreppi í Vestur-Húnavatnssýslu. Að sögn Bjarna Ásgeirssonar, skrúðgarðyrkjumeistara, hefur garð- urinn verið stækkaður um 500 fm og er hann nú 2.000 fm að stærð. Hann var jafnaður út, leiði og leg- steinar lagfærðir, lagðir göngustígar og garðurinn girtur. Næsta vor stendur svo til að setja í hann lýs- ingu og gróður. Framkvæmdir hófust í júlí og lýk- ur í september. Breytingarnar voru hannaðar af Guðmundi Rafni Sig- urðssyni, landslagsarkitekt _og um- sjónarmanni kirkjugarða á íslandi. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir SIGURÐUR Blöndal fyrrv. skógræktarsljóri gekk um gróðrar- stöðina með afmælisgestunum og fræddi þá um starfsemina og árangur ræktunarstarfsins. FORSETA íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, voru afhentar fimm trjáplöntur til eignar. Indriði Indriðason forstöðumaður er með henni á myndinni. Gróðrarstöðin á Tumastöðum 50 ára Stærsti atvinnu- rekandi í Fljóts- hlíðarhreppi Hellu - Haldið var upp á 50 ára afmæli gróðrarstöðvar Skógræktar ríkisins á Tumastöðum í Fljótshlíð sl. sunnudag, en hún var einmitt stofnsett lýðveldisárið 1944. Skóg- ræktin keypti jörðina til þess að stofna þar gróðrarstöð, er leysa skyldi af hólmi litla gróðrarstöð í Múlakoti. Skógræktarstjóri á þeim tíma var Hákon Bjarnason, sem af mikilli framsýni og atorku ýtti þessu stórvirki úr vör, en með fulltingi Landgræðslusjóðs var hægt að heíja framkvæmdir á Tumastöðum. Mýrin ræst fram í ársskýrslu Skógræktarinnar 1944 segir Hákon: „Jörðin Tuma- staðir var keypt til þess að komið yrði á fót stórri gróðrarstöð fyrir tijáplöntur. Lega Iandsins undir slíka stöð er svo góð, að erfitt mun að finna annan jafngóðán stað til upp- eldis tijáplantna. Þar er mjög skjól- sælt, landið er slétt og hallar því lít- ið eitt til suðurs og vesturs." Svæðið sem Hákon lýsti svo var mýri. Það þurfti að ræsa hana fram, vinna rækilega og bera í hana áburð og sand. Árið 1944 og 1945 voru grafnir 2,3 km af opnum skurðum, 2,9 km af hnausalokræsum eins og þá tíðkaðist og 3,4 km af kílræsum. Sumarið 1948 var svæðið plægt og síðan herfað hálfsmánaðarlega og áburður borinn í reitinn. Á árunum 1948-1952 var ekið um 700 bílhlöss- um af sandi í reitinn til þess að létta jarðveginn. Byggingarframkvæmdir hófust. 1946 og stóðu yfir næstu ár- in, auk vegagerðar og vatnsveitu. Upphaf ræktunar Árið 1947 var í fyrsta sinn sáð I gróðurhús í stöðinni 15 kg af sitka- grenifræi, ennfremur álmi og gull- regni. Árið 1949 er sáð í gróðurhús- ið þremur kvæmum af sitkagreni, alls 16,6 kg. Þá er einnig sáð undir gler ýmsum tijátegundum og einnig í beð án glers. Þetta ár er fyrsta dreifplötun tveggja ára fræplantna, 95 þúsund plöntur. Fyrstu græðling- unum er stungið þetta ár, 12 þúsund stk. Árið 1950 eru svo dreifsettar 592.500 plöntur, þar af 500.000 sitkagreni. Áföll og varnir gegn þeim Erfiðleikar komu í ljós, sem leiddu til verulegra áfalla í ræktuninni. Holklaki olli vanhöldum, skjólleysi var bagalegt í ofsafengnum SA-veð- rum á vetrum og vor- og haustfrost gátu valdið toppskemmdum. Oll sáning var færð í vermireiti, lögð reiðingstorf milli plönturaða í dreifbeðum og skjólgrindur reistar meðfram þeim. Á þessum tíma var Garðar Jónsson skógarvörður á Tumastöðum og var honum og Hákoni Bjarnasyni ljós nauðsyn þess að koma upp þéttriðnu skjólbeltaneti um græðireitinn og innan hans. 1948-1954 voru gróður- sett þau skjólbelti sem talin voru nauðsynleg og voru þau aðallega úr birki. Ræktun skjólbelta hélt áfram með hléum allt til 1979 og er lengd þeirra nú samtals um 4,5 km, eitt þéttriðnasta og hávaxnasta skjólbelti á íslandi. Hefur þetta gerbreytt ræktunaraðstöðu á Tumastöðum til hins betra og örugglega átt góðan þátt í að þurrka mýrina. Plöntuframleiðslan Reynsla fyrstu 15-20 áranna kenndi starfsfólkinu á Tumastöðum smám saman hvernig bregðast skyldi við hinum ýmsu vandamálum í rækt- uninni. Með breyttum ræktunarað- ferðum, bættum húsa- og tækjakosti hefur stöðin vaxið og dafnað. Af- hending plantna úr stöðinni hófst 1950, en frá þeim tíma til 1993 hef- ur stöðin samtals afhent rúmlega tíu milljón plöntur sem gróðursettar hafa verið á Suður- og Vesturlandi, mest skógarplöntur og garð- og skjólbeltaplöntur, en einnig dreifp- löntur til annarra stöðva. 9,5 ársverk í stöðinni í dag er gróðrarstöðin stærsti at- vinnurekandi í Fljótshlíðarhreppi, en föst störf eru þar fimm auk fjórtán vor- og sumarstarfsmanna. Heild- arfiatarmál nýttra uppeldisreita er sjö hektarar og heildarflatarmál gróðurhúsa eru tæpir tvö þúsund fermetrar. Alls eru framleiddar 28 tegundir skógarplantna, um 100 teg- undir garð- og skjólbeltaplantna, en 206 tegundir tijáa og runna vaxa á svæðinu. Skógarvörður og forstöðu- maður gróðrarstöðvarinnar er Indriði Indriðason. Afmælisins minnst Á sunnudaginn var afmælið haldið hátíðlegt með því að starfsemi stöðv- arinnar var kynnt gestum með stuttu ávarpi Sigurðar Blöndals fyrrverandi skógræktarstjóra. Til sýnis voru gömul og ný ræktunaráhöld, tæki og búnaður sem notaður hefur verið á Tumastöðum frá upphafi ræktun- arstarfsins. Að því loknu voru for- seta íslands, frú Vigdísi Finnboga- dóttur, afhentar fimm tijáplöntur til eignar, en hún var heiðursgestur samkomunnar. Var henni sérstak- lega þakkað hið mikla starf sem hún hefur lagt tijárækt á íslandi til. Gest- ir gengu um stöðina í fylgd forstöðu- manns og Sigurðar Blöndals, en hann útskýrði og sagði frá því sem fyrir augu bar á sviði vinnsluaðferða, tækja, skjólbeltaræktunar, kvæmat- ilrauna o.fl. Skoðunarferðinni lauk í svokölluðum Lýðveldislundi sem gróðursettur var 1944 með 700 sitkagreniplöntum ættuðum frá Al- aska, en hæstu tré í honum eru yfir ellefu metra há. Samkomunni lauk með því að gestum var boðið til kaffi- samsætis í Félagsheimilinu Hvolnum á Hvolsvelli, en við það tækifæri voru gróðrarstöðinni færðar kveðjur og gjafir, m.a. kr. 500.000.- frá Skeljungi sem notast skal til að byggja upp tegundasafn og að opna skóginn frekar almenningi, en nk. laugardag verður einmitt opið hús hjá Skógræktinni á Tumastöðum. Morgunblaðið/Davíð Pétursson MYNDIN er tekin í kirkjunni, f.v. sr. Agnes M. Sigurðardóttir, Gyða Bergþórsdóttir, organisti, sr. Jón Einarsson, sr. Valgeir Ástvaldsson, Guðmundur Stefánsson, fyrrverandi bóndi á Fitj- um, og Stefán Stefánsson, fyrrverandi bóndi á Fitjum. 250 manns í hátíðar- messu á Fitjum Skorradal - Um 250 manns tóku þátt í hátíðarmessu á Fitjum í Skorradal í tilefni þess að endur- bygging kirkjunnar er lokið. Prófasturinn, sr. Jón Einarsson í Saurbæ, sóknarpresturinn, sr. Agnes Sigurðardóttir, og sr. Val- geir Ástvaldsson voru við guðsþjón- ustuna en organisti var frú Gyða Bergþórsdóttir, Efri-Hreppi. Félag- ar úr Karlakór Reykjavíkur sungu bæði við messuna og eftir að veit- ingar höfðu verið þegnar, en verk- færaskemman á Fitjum var notuð fyrir kirkjugesti. Við messusönginn aðstoðuðu einnig nokkrar konur úr Kirkjukór Selfoss. Þór Magnússon, þjóðminjavörð- ur, flutti erindi um kirkjustaðinn Fitjar og færði síðan kirkjunni að gjöf ljósmynd af hinum nafntogaða Fitjakaleik, sem er frá um 1200 og varðveittur er í Þjóðminjasafninu. Að síðustu stjórnaði Hannes Baldursson fjöldasöng í hinni hátíð- arbúnu verkfæraskemmu. Kvenfé- lagið 19. júní aðstoðaði heimafólk við veitingar. Þrep Frágangur: Alno-eldhúsinnréttingar. Eldavél með glerhelluborði og blástursofni. Fataskápar frá Eldhúsi og baði hf. Kahrs eikar-parket á gólfum. Flísar á baði frá Flísabúðinni. Sérhver íbúð er sérhönnuð. Engar tvær eins. í hverri íbúð er sérþvottahús með vaski. Öll sameign fullfrágengin á sérlega vandaðan hátt. Byggingaraðili: Atli Éiríksson sf. ofar Vorum að fá í einka- sölu stigahúsið FLETTURIMA 6 Nú er húsið nr. 6 komið í sölu. í húsinu eru stórglæsilegar 3ja og 4ra herbergja fullbúnar nýjar íbúðir. Verð: 3ja herb. fullbúin íbúð án stæðis í bíla- húsi kr. 7.500.000 og 7.900.000. 4ra herb. fullbúin íbúð með stæði í bíla- húsi kr. 9.400.000 og 9.550.000. Afhending: Við gerð kaupsamnings. Þjónusta: í næsta nágrenni verður stór verslunarmiðstöð, skóli, dagheimili og “ leikskóli. FJÁRFESTING FASTEIGNASALAP 62 42 50 BORGARTÚNI 31 Lögfr.: Pétur Þ. SigurOsson. Sölum.: Hilmar Óskarsson. Steinþór Olatsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.