Morgunblaðið - 04.11.1994, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994 9
FRETTIR
íslendingarnir komnir frá Bosníu
Napurlegt ástand
LÆKNARNIR tveir og h.júkrunar-'
maðurinn, sem verið hafa á vegum
íslendinga í friðargæslusveitum
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu, eru
komnir heim eftir sex mánaða úti-
vist á bardagasvæðunum. Þetta var
fyrsta beina framlag Islendinga til
friðargæslunnar og liggur ekkert
fyrir um framhaldið. Ekki er gert
ráð fyrir íjárveitingu í fjárlagafrum-
varpinu, en málið er til meðferðar í
utanríkisráðuneytinu.
Norska friðargæslan rekur
sjúkrahúsið í Tusia og hefur sænsk-
ur læknir tekið þar við af Júlíusi
Gestsyni og væntanlegur danskur
læknir í stað Mána Fjalarssonar, en
þeir eru ekki undir fána síns lands
í norsku friðargæslusveitinni eins
og íslensku læknarnir og hjúkrunar-
fræðingurinn Stefán Alfreðsson
voru. Það fyrirkomulag braut þó ís-
inn og opnaði fyrir að hægt væri
að taka aðra Norðurlandabúa í
norsku hersveitina.
Máni Fjalarsson læknir, sem var
lengst af síns tíma í útköllum og
um tíma í Srebrenika, var í lok sept-
ember sendur í vikutíma á Biacsvæð-
ið í Vestur-Bosníu, þar sem nú er
barist harkalega og þar sem mú-
slimskir flóttamenn voru að flýja
hremmingar inn á hertekið svæði
Serba. Þarna höfðust börn og gam-
almenni, konur og karlar við í
hænsnahúsum, 40 þúsund manns
að þeirra eigin sögn en 20 þúsund
samkvæmt tölum Flóttamannahjálp-
arinnar. Þarna var kominn faraldur
af mislingum, sem Máni kvaðst aldr-
ei hafa séð fyrr og margir mjög
veikir. Auk þess hijáði fólkið niður-
gangur, lús og kláðamaur, og gula
að stinga sér niður. Napurlegt að
svona ástand skuli vera staðreynd,
sagði Máni, en bætti við að hjá frið-
argæslunni í Tusla hefði verið tiltölu-
lega rólegt að undanförnu.
Júlíus Gestsson læknir kom viku
fyrr og hélt til sinna starfa norður
á Akureyri. Hann tók undir þetta í
símtali. Hann var allan tímann í
sjúkrahúsi friðargæslunnar í Tusla,
þar sem bosnískum læknum var
daglega boðin hjálp og aðstaða í
skurðstofunni fyrir almenna borg-
ara, auk læknisþjónustunnar fyrir
friðargæslumenn.
Stefán Alfreðsson hjúkrunarfræð-
ingur var líka á leið norður, þar sem
hann mun starfa á sjúkrahúsinu á
Akureyri á gjörgæsludeild, eins og
hann gerði lengst af í sjúkrahúsinu
í Bosníu. Þar starfa tíu læknar með
mismunandi áherslur á verkefni og
25 hjúkrunarfræðingar. Norðmenn
eiga erfitt með að manna spítalann
af læknum, en ísinn var brotinn með
íslensku læknunum á vegum norska
hersins, sem gerir þeim nú fært að
manna stöðurnar með norrænum
læknum. En spítali þeirra í Tusla
þarf að vera viðbúinn að taka við
fólki úr allri friðargæslunni í Bosníu
ef stórslys verða í átökum. Ekki
varð það, en að undanförnu eru árás-
ir á friðargæsluliða Sameinuðu þjóð-
anna í Sarajevo að aukast. Undir
því yfirskini að halda sér í þjálfun
fyrir það hefur svo verið hægt að
aðstoða bosnísku læknana með upp-
skurði á almenningi og alltaf ein-
hveijir á gjörgæslu. Friðargæslufólk
kom mest úr bílslysum þótt fyrir
kæmi að menn kæmu með skotsár,
m.a. tveir sóttir nýlega á þyrlunum
sama daginn frá Srebrenica og Ki-
seljak.
Fyrir utan störfín á sjúkrahúsinu
kvaðst Stefán hafa farið til liðs í
flóttamannabúðunum í Bancovic
skammt frá Tusla, þar sem norsk
hjálparstofnun rekur búðir fyrir kon-
ur og börn sem orðið hafa fyrir
hremmingum í stríðinu. Sagði hann
að norskur hjartalæknir frá friðar-
gæslunni hefði farið þangað einu
sinni í viku sem heimilislæknir og
mundi nú fram að áramótum koma
þar fimm daga í viku. En í forföllum
hans hlupu þeir Máni og Júlíus í
skarðið. Hann sagði að fyrir konurn-
Morgunblaðið/Elín Pálmadóttir
STEFÁN Alfreðsson hjúkrunarfræðingur og Júlíus Gestsson lækn-
ir á þyrluvellinum við sjúkrahúsið í Tusla.
ar, sem margar hafa
orðið fyrir nauðgunum,
hefði verið búið að
koma upp aðstoð á veg-
um hjálparstofnunar
inni í bæ. Þar fyrir utan
hijáði þetta fólk húð-
sjúkdómar og þessi
hefðbundni „hnútur í
maganum" sem allt
flóttafólk kvartar um.
Stefán sagði að án þess
að koma þangað hefði
hann í rauninni ekki
kynnst þessu raunveru-
lega stríði allt um
kring. Hann kvaðst
ekki sjá eftir að hafa
farið í þetta. Að vísu
hefði hann ekki lært
neitt nýtt faglega, en kynnst öðru
umhverfi, her og landi sem á í
hremmingum. Undir það voru Is-
lendingarnir búnir í Noregi og kvaðst
hann telja slíka þjálfun nauðsynlega
-þótt eitthvað mætti stytta hana. En
Máni Fjalarsson
læknir
mjög dýrt er fyrir Norð-
menn að þjálfa oft
menn, sem eru ekki í
þessu nema sex mánuði
í senn.
Stefán sagði að sér
liði vel að vera kominn
heim, þótt hér sé kald-
ara og hann kunni afar
vel við sig í hlýjunni.
Það stendur þó ekki
mikið lengur í Tusla. í
september var hitastig-
ið komið niður í 10 stig
með raka og þoku og
því kuldalegt og þörf
fyrir lopapeysur. Vetur
eru harðir á þessum
slóðum. Stefán sagði að
ástandið á Tuslasvæð-
inu hefði þó batnað meðan hann var
þar, fleira fólk sæist úti á götunum
og hefði meiri mat og rafmagn. En
nú er annar harður vetur að ganga
í garð í umsátri Serba.
Full búð af spennandi
vörum frá daniel D.
TBSSvtsí
sími 622230
OpiS virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14
Úxval af dömuúlpum
frá Ítalíu
Cortína sport
Skólavörðustíg 20
símí 21556
FILA
Langur laugardagur
Blússur með 20% afslætti
Tískuverslunin
Quðrwi;
Rauðarárstíg 1, sími 615077
Haustfundur Gusts
verður haldinn í dag 4. nóv. nk. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Félagsstarfið í vetur. 2. Framkvæmdir og fjármál. 3. Landsþing L.H. í okt. sl. 4. Önnur mál. w
Félagar mætið vel og stundvíslega og takið þátt í að móta félags- starfið. Opnað verður fyrir „léttar“ veitingar undir lok fundarins. Stjórnin.
Fallegur bómullarnáttfatnaður
og bómullarinnifatnaður frá Finnwear
Satínnáttföt með bómull að innan. Mikið úrval.
Sendum ípóstkröfu
Yerið velkomiti
Laugavegi 32, sími 16477.
Jólafötin komin í miklu úrvali
Buxur kr. 1.895 Vesti kr. 1.595 Skyrta kr. 995 Slaufa kr. 379 1 Kjóll kr. 2.495 Blússa kr. 1.995 Prinsessukjólar j í miklu úrvali.
Bamakot
Inl
K y n n i n g
s.’J' X - t >
a
Miss Arpels
frá
Van Cleéf & Arpels
í dag í Regnhlífabúðinni, Laugavegi 11.
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
68 milljonir
Vikuna 27. október til 2. nóvember voru
samtals 68.057.456 kr. greiddar út
í happdrættisvélum um ailt land.
Petta voru bæöi veglegir Silfurpottar og
fjöldinn allur af öörum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staöur: Upphæð kr.:
27. okt. Mamma Rósa, Kópavogi ... 105.479
27. okt. Ölver ... 60.695
28. okt. Hofsbót, Akureyri ... 57.266
28. okt. Hafnarkráin ... 148.569
28. okt. Mamma Rósa, Kópavogi.... ... 108.895
29. okt. Ölver ... 159.531
30. okt. Háspenna, Hafnarstræti ... 106.241
2. nóv. Háspenna, Hafnarstræti ... 391.230
Staöa Gullpottsins 3. nóvember, kl. 12:30 var 8.852.989 krónur.
i HCfip
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka sfðan jafnt og þétt þar til þeir detta.