Morgunblaðið - 04.11.1994, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 04.11.1994, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ r _______________________________ERLENT__________________ Hundruð manna farast í brennandi olíu o g flóðum í Egyptalandi I íbúamir höfðu oft varað við eldhættu Dronka. Reuter. 450 lík höfðu fundist í gær eftir elda og flóð í suðurhluta Egypta- lands og talið er að dánartalan eigi eftir að hækka. Yfirvöld sæta gagnrýni fyrir að hafa ekki gert nægilegar ráðstafanir vegna eld- hættunnar, þótt þau hafi margoft verið vöruð við henni. Egypskir embættismenn segja að sex tíma úrhelli og fárviðri hafi valdið því að járnbrautarteinar við bæinn Dronka hafi sigið niður, með þcim afleiðingum að tveim tank- vögnum hvolfdi og olía streymdi út úr þeim. Eldur hafi kviknað í olíunni, hugsanlega vegna eldingar. Brennandi olían blandaðist flóð- vatni sem kaffærði hús í bænum. Eldur var enn í öðrum tankvagn- anna í gær og 390 lík höfðu fund- ist í bænum. Reykmökk lagði yfir Nílardal, um 320 km suður af Ka- író. 200 hús eyðilögðust og allt að 100 hektara svæði líktist einna helst vígvelli í fyrri heimsstyijöld- inni. Talið er að fleiri lík eigi eftir að finnast og líklegt er að það taki nokkrar vikur að finna öll fórn- arlömbin vegna mikils aurs á svæð- inu, sem að sögn sjónarvotta er allt að mannhæðardjúpur. Að minnsta kosti 60 manns biðu bana af völdum flóða í nokkrum nágrannabæjum. Eldhættan hunsuð íbúar Dronka sögðust margoft hafa kvartað yfir olíubirgðastöð, sem er aðeins 100 metrum frá bænum, en yfirvöld hefðu ekki gert neinar ráðstafanir til að bregð- ast við eldhættunni. Slökkvilið hefði ekki komið á staðinn fyrr en eftir ijórar klukku- stundir, en þá hefði það verið alltof seint, allir bæjarbúar látnir eða flúnir. ELDAR OG FLOÐ í EGYPTALANDI Hundruð manna létu F7|Í||: lífið í eldum og flóöum L afbika- í kjölfar óveðurs i 5 suðurhluta Egypta- lands í fyrradag j-N •!] .— Afburða- lærisveins Dengs leið- toga leitað Peking. Reuter. KÍNVERJAR hafa efnttil spurn- ingakeppni þar sem reynir á þekkingu manna á fræðum Dengs Xiaopings, hins aldna leiðtoga Kína. Sigurvegarinn fær 2.000 yuan, jafnvirði 16.000 króna, og honum verður hampað sem afburðalæri- sveini í fræðum leiðtogans. Efnahagsblað- ið birti í gær 45 spurningar um fræði Dengs, degi eftir að önnur útgáfa af úrvals- greinum leiðtogans kom út. Les- endurnir voru beðnir um að senda svörin, ásamt nafni, heiti vinnu- veitanda og starfstitli, fyrir 31. desember. Nefnd hátt settra emb- ættismanna fer yfir svörin og svari fleiri en einn spurningunum fullkomlega rétt verður meistar- inn í fræðum Dengs Xiaopings dreginn út. Þátttakendurnir þurfa að svara hugmyndafræðilegum spurning- um eins og: kínverski kommúnistaflokkurinn var lítill í fyrstu en honum tókst að sigrast á erfiðleikunum vegna a) hernað- armáttar byltingarmanna eða b) trúar á marxisma og kommún- isma. Þeir sem standa fyrir keppninni segja að henni sé ætlað að hvetja fólk til að kynna sér betur fræði Dengs og öðlast skilning á þeim. Áhugi almennings á slíku námi hefur minnkað, en Kínverjar voru skyldaðir til að nema fræði fyrir- rennara Dengs, Maós formanns. Reuter SLÖKKVILIÐSMENN toga slöngu að eldi á olíubrák á flóðvatni í bænum Dronka í Egyptalandi í gær. Að minnsta kosti 390 manns biðu bana og 200 hús eyðilögðust í eldinum. Japanar hanna tor- séða orrustuþotu London. The Daily Telegraph. Gielgud ekki oftar ásvið London. The Daily Telegraph. BRESKI leikarinn sir John Gielgud hefur ákveðið að leika ekki oftar á sviði en hyggst í sumum tilvikum þiggja smá- hlutverk í kvikmyndum. Giel- gud er níræður að aldri. Leikarinn segist ekki vera fær um að hætta alveg störf- um en „ég verð alltaf svo óskaplega taugaóstyrkur á sviðinu núna“. Skipt var um heiti á Globe- leikhúsinu í West End á mið- vikudag við hátíðlega athöfn og verður það framvegis Gielgud-Ieikhúsið. JAPANSKIR vísindamenn og tæknifræðingar eru að hanna tor- séða orrustuþotu sem gert er ráð fyrir að verði tekin í notkun snemma á næstu öld. Háttsettur, breskur flugliðsforingi, sem kynnti sér hugmyndir að vélinni nýlega er hann var í heimsókn í Japan, segir að hún sé „nokkrum kynslóðum á undan öllu sem verið er að gera á Vesturlöndum". Torséðar flugvélar er vart hægt að greina á ratsjá vegna lögunar þeirra og efnanna sem notuð eru í skrokkinn. Þotan væntanlega er kölluð FI-X og verður hraðfleygari og betur vopnum búin en Eurofig- hter 2000, orrustuþota sem nokkur Evrópuríki eru að smíða í samstarfi og verður reiðubúin 1998. Sagt er að með þotusmíðinni vilji Japanar verða síður háðir Banda- ríkjamönnum um hátæknivopn en þeir smíða nú m.a. F-16 orrustuþot- ur með leyfi bandarísku verksmiðj- anna. Að sögn heimildarmanna í vopnaiðnaði kanna fulltrúar Súk- hoi-flugvélaverksmiðjanna rúss- nesku nú samstarf við Japani um smíði orrustuvéla. Nýja þotan verður að sögn kunn- áttumanna mjög auðveld viðureign- ar fyrir flugmanninn og á skjám í klefa hans verður beitt svonefndum sýndarveruleika til að hann fái sem besta mynd af aðstæðum. Norskur olíuút- flutningur eykst SAMKVÆMT úttekt Petrole- um Intellingence Weekly um framtíðarhorfur í olíufram- leiðslu í heiminum gætu Norð- menn þegar á næsta ári farið fram úr Irönum og orðið næst- mestu olíuútflytjendur heims. Norðmenn flytja nú út um 2,5 milljónir fata á dag. Olíufram- leiðsla þeirra eykst um 10% á ári og gæti að mati blaðsins náð hámarki árið 1996 með 3,22 milljónum fata á dag. Þjóðarat- kvæði um keisara? HREYFING rússneskra keis- arasinna tilkynnti í gær að hún hefði safnað tilskildum fjölda undirskrifta til að knýja fram þjóðaratkvæði um að rússn- eska keisaraættin kæmist aft- ur til valda árið 1988. Lög kveða á um að undirskrift milljón manna nægi til að knýja fram þjóðaratkvæði og hreyfingin kveðst hafa náð því marki. „Við teljum að stofnun keisaraveldis sé raunhæf leið til að koma á stöðugleika í þjóðfélaginu . . . keisari myndi stuðla að sáttum milli þjóðar og ríkisvalds og vera hafinn yfir pólitískan meting og öfg- ar,“ sagði Vjatsjeslav Gretsjnev, leiðtogi hreyfingar- innar. Frostið kem- ur sér vel VETRARKULDINN í norður- hluta Rússlands gæti komið sér vel í Komi-héraði, þar sem olía hefur lekið í mýrlendi og ógnar lífríkinu. Yevgeníj Mínajev, yfirmaður umhverfis- máladeildar rússneska orku- málaráðuneytisins, sagði í gær að blautur jarðvegurinn tefði hreinsunarstarfið sem stendur en frostið myndi hins vegar auðvelda hreinsunina. Kafbátur í rússneskri landhelgi YFIRMAÐUR Norðurflotans í Rússlandi, Oleg Jerofejev, lét í gær í ljós óánægju með að bandarískur kafbátur skyldi hafa siglt inn fyrir landhelgi Rússlands. Hann sagði að kaf- bátsins hefði orðið vart aðeins fimm mílum frá mynni Hvíta- hafs og hann hefði ekki siglt í burtu fyrr en eftir nokkrar viðvaranir. AFSI.ÁTTUR SEM NEMUR VIRÐISAIJKANUM [Yfirjhafnir í miirgum gerðum. Dragtir, hvítar skyrtur og margt, margt fleira. Kúllukragapeysur, 20 litir. Treflar, ýmsar gerðir, 40 litir. Illýjar peysur, 70 gerðir OPIÐ 10-18, FOSTUDAG KL. 10-18.30, LAUGARDAG KL. 10-18, SUNNUDAG KL. 13-17. Tryggjum atrinnu - Verslum heima Laugavegi 97, sími 629875

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.