Morgunblaðið - 04.11.1994, Síða 56
TVÖFALDUR1. vinningur
MewuM
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Vinnslustöðin á
verðbréfaþing
AÐALFUNDUR Vinnslustöðvar-
innar hf. í Vestmannaeyjum verður
haldinn í Vestmannaeyjum síðdeg-
is á morgun. Þar verður m.a. greint
frá því að fyrirhugað er að hluta-
bréf fyrirtækisins verði skráð á
verðbréfaþingi fyrir mánaðamót.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hafa stjórnendur fyrir-
tækisins unnið að því að undan-
förnu að fá hlutafjárloforð upp í
þá 400 milljóna króna hlutafjár-
aukningu, sem heimiluð var á aðal-
fundi félagsins fyrir ári, þótt ekki
liggi enn fyrir hvort hlutaféð verði
endanlega aukið um 400 milljónir
eða eitthvað lægri fjárhæð.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins liggur ekki fyrir hversu
há upphæð verður í hlutafjárútboð-
inu þegar fyrirtækið verður skráð
á markaði, þar sem endanleg upp-
hæð mun ráðast af því hversu
margir nýta sér forkaupsrétt að
hlutafjáraukningunni og að hve
miklu leyti. Raunar fer fram lokað
hlutafjárútboð á bréfum Vinnslu-
stöðvarinnar fram undir miðjan
mánuð, þar sem nýtt hlutafé er
selt á nafnverði.
Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því að fyrsta skráða gengi á
hlutabréfum í Vinnslustöðinni
verði um nafnverð, 1-1,05.
■ Dó Sambandið aldrei?/28
Seðlabanki íslands
Húsbréf seld á ný
SEÐLABANKINN seldi í gær hús-
bréf á Verðbréfaþingi íslands fyrir
um 38 millj. kr. og voru söluvext-
irnir 5,82% og 5,78%, skv. upplýs-
ingum Yngva Arnar Kristinssonar,
framkvæmdastjóra peningamála-
sviðs bankans.
Þetta er i fyrsta skipti í sex
mánuði sem Seðlabankinn selur
húsbréf á verðbréfamarkaði en
bankinn hefur þótt halda nokkuð
að sér höndum á markaðnum að
undanförnu.
Yngvi Örn telur hugsanlegt að
ávöxtunarkrafa húsbréfa muni fara
heldur lækkandi á næstu dögum
en hún hefur hækkað ört að undan-
förnu.
Náði hún hámarki í gærmorgun
þegar ávöxtunarkrafa kauptilboða
á verðbréfaþingi var 5,95% fyrir
nýjustu flokka húsbréfa og lítið
eitt hærri vegna eldri flokka hús-
bréfa. Yngvi Orn sagði að um miðj-
an dag í gær hefði ávöxtunarkrafan
hins vegar tekið að síga niður á
við og síðdegis hefði Seðlabankan-
um tekist að selja dálítið af hús-
bréfum. Einu verðbréfafyrirtækj-
anna hefði verið gert gagntilboð
sem það gekk að með ofangreind-
um vöxtum.
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Golli
Sigur í vígsluleik
UNGMENNAFELAGIÐ Breiða-
blik í Kópavogi fagnaði merkum
áfanga í gærkvöldi, þegar því var
afhent nýtt og glæsilegt íþrótta-
hús í Kópavogsdal og islenska
landsliðið í handknattleik kórón-
aði vígslukvöldið með því að
sigra Dani á alþjóðlega Reykja-
víkurmótinu, 23:22. A stóru
myndinni er sigrinum fagnað;
Guðmundur Hrafnkelsson faðm-
ar Bergsvein Bergsveinsson, sem
stóð í markinu í lokin, og varði
skot eins Danans af línu er að-
eins ein sekúnda var eftir. Bjarki
Sigurðsson er fyrir miðri mynd.
Áður en húsið var formlega
afhent og vígt var listaverkið
Upphaf eftir Grím Marinó Stein-
dórsson afhjúpað af Gesti Guð-
mundssyni. Steinn hvílir í fjög-
urra metra hæð á súlum. Fyrir
45 árum settust Gestur og Guð-
mundur Guðmundsson á steininn
í lóð Gests og þar fæddist hug-
myndin að stofnun ungmennafé-
lags í Kópavogi, sem síðan var
stofnað 12. febrúar 1950.
55.000 hafa framfærslu-
tekjur að mestu frá ríkinu
40.000 manns fá tekjur úr félagslega kerfinu, 55% fleiri en árið 1984
ALLS fá 55.000 manns hér á landi, eða um 20% þjóðarinnar, mest-
an hluta framfærslutekna sinna frá ríkinu. Þeir, sem fá tekjur sínar
að öllu leyti frá félagslega kerfinu í formi ýmiss konar bóta og lána,
eru nærri 31.000 talsins og starfsmenn ríkisins eru um 24.000.
Óskar Vigfússon
um hentifánaskip
Horfið til
fortíðar
MIKLAR umræður urðu um
ráðningarkjör íslenskra sjó-
manna á hentifánaskipum á
þingi Sjómannasambands ís-
lands í gær. Lagðir voru fram
samningar sjómanna á Sigli og
Hágangi I og II. Óskar Vigfús-
son, fráfarandi formaður Sjó-
mannasambandsins, sagði að
með þeim væri verið að hverfa
áratugi aftur í tímann.
Við brottvísun úr starfi fær
sjómaður, samkvæmt samning-
unum, greidd laun aðeins fram
að brottvísunardegi og skal
hann greiða ferðakostnað sinn
og þess sem kemur í hans stað.
■ Hentifánaskip/17
Þetta kemur fram í grein eftir
Þór Sigfússon, hagfræðing og ráð-
gjafa fjármálaráðherra, í vikurit-
inu Vísbendingu, sem út kemur í
dag. Þar segir ennfremur að við
þennan hóp bætist um níu þúsund
manns, sem fái hluta af fram-
færslutekjum sínum frá ríkinu.
Ótaldir séu hins vegar þeir starfs-
menn einkafyrirtækja, þar sem
ríkið sé aðalkaupandi þjónustunn-
ar, en það myndi enn hækka
töluna.
25% landsmanna greiða tekju-
og eignarskatt
Fram kemur í grein Þórs að á
seinasta ári hafi um 25.000 manns
fengið framfærslutekjur frá ríkinu
í formi framlaga frá almanna-
tryggingakerfinu, t.d. elli- og
örorkulífeyris, fæðingarorlofs og
atvinnuleysisbóta. Níu þúsund elli-
og örorkulífeyrisþegar hafi fengið
hluta framfærslu sinnar frá al-
mannatryggingum og tæplega
6.000 námsmenn haft framfæri
sitt af lánum frá Lánasjóði ís-
lenzkra námsmanna. Samtals séu
því um 40.000 manns (15% þjóðar-
innar) með meirihluta framfærslu
sinnar frá ríkinu að ríkisstarfs-
mönnum frátöldum, og hafi þessi
hópur stækkað um 55% frá árinu
1984, er hann var um 26.000
manns (11% þjóðarinnar).
„Þess má geta að á árinu 1993
greiddu um 25% landsmánna
tekju- og eignarskatt þegar tekið
hefur verið tillit til barna- og
vaxtg.bóta,“ segir Þór í grein sinni.
„Árið 1984 var hlutfallið um 30%.
Þeir sem hafa lífsviðurværi sitt frá
ríkinu verða því að líkindum orðn-
ir fleiri en skattgreiðendur innan
fárra ára ef fram heldur sem horf-
ir.“
Helmingsfjölgun ör-
orkulífeyrisþega
Þór vekur athygli á að örorkulíf-
eyrisþegum hafi fjölgað um hart-
nær helming á tíu árum. Engin
ein skýring sé á þessu, en nefna
megi að sífellt meira tillit sé tekið
til svokallaðrar félagslegrar ör-
orku. Þá sé líklegt að slæmt at-
vinnuástand hafi ýtt undir þróun-
ina, en slíkt bitni oft á fólki með
Fólk með framfærslu frá
ríkinu árin 1993 og 1984
Hómr FUldl
Bllllífeyrisþegar með
öskerta teklutryggingu
Örorkulífeyrisþegar m. , o.o^
úskerta tek/utryggingu M -i »nn
Aðilar sem fengu greitt lúrrt&Nl 4.500
læðingarorlof PSa 2.765
Atvinnulausir á gjMMls.Boo
atvinnuleyslsbótum BÉ1.48O
Námsmenn á fP 5.850
námslánum trá LlN §§ ■§5.428
Elllliteyrisþegar með r.7.440
skerta tekjutrygglngu WMÉHi r
Örorkulífeyrisþegar m. i |2.06Q
skerta tekjutryggingu §855
skerta starfsorku. Reglur um ör-
orkumat séu oft óljósar og túlkun
á þeim hafi orðið rýmri.
Sem hugsanlegar leiðir til úr-
bóta nefnir Þór að færa örorku-
kerfið yfir til sveitarfélaga, en þau
séu Iíklegri cn ríkisvaldið til að
reyna að hjálpa fólki til sjálfshjálp-
ar. Einnig sé brýnt að draga úr
ríkisumsvifum.
Engu mun-
aði að snjó-
flóð hrifi
bílinn
„ÉG ER tiltölulega róleg yfir þessu
en geri mér ljósa grein fyrir að ekki
mátti miklu muna að illa færi,“ sagði
Vilhelmína Héðinsdóttir eftir að hún
lenti í snjóflóði á alræmdum kafla
skammt norðan Sauðaness utan
Dalvíkur um kvöldmatarleytið í gær.
Hún var ein á ferð á leið frá Ólafs-
firði til Akureyrar.
Skilyrði voru slæm, dimmt og
nokkur hríð, þannig að hún sagðist
hafa ekið hægt og rýnt út í veðrið,-
„Þá tók ég eftir að það ultu kögglar
niður úr hlíðinni og vissi þá að ekki
var allt með felldu. Ég negldi bílinn
niður, sem betur fer, því hefði hann
verið bíllengd framar hefði ekki
þurft að spyija að leikslokum,“ sagði
Vilhelmína. Fyrir neðan veginn er
brött hlíð niður í sjó.
Siy'ór upp á vélarhlíf
Flóðið geystist framhjá og gat hún
lítið að gert og sagðist hafa verið
hrædd um að meira kæmi niður úr
ljallinu. Bíllinn sat kolfastur, snjór-
inn náði upp á vélarhlífina og lítið
dugði þótt hún reyndi að krafsa
hann frá. Tveir gámabílar komu
nokkru síðar á vettvang og dró ann-
ar þeirra bílinn úr flóðinu.
Flóðið var um 2 metra þykkt og
10-15 metra breitt og var vegurinn
milli Dalvíkur og Ólafsvíkur lokaður
í u.þ.b. klukkustund.