Morgunblaðið - 13.11.1994, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+ Finnski læknir-
inn Harri Nev-
anlinna, prófessor,
lést í Helsinki 4.
september síðast-
liðinn 72 ára að
aldri. Hann var
meðal þekktustu
sérfræðinga heims-
ins á sviði blóð-
bankarekstrar.
Arið 1947 var hann
valinn ritari nefnd-
ar á vegum finnska
Rauða krossins,
sem falið hafði ver-
ið það hlutverk að
koma á fót bióðgjafaþjónustu
fyrir Finnland og ári síðar var
honum falið að veita forstöðu
þeirri stofnun, sem sinna átti
hlutverkinu.
HANN varð dósent í blóðflokka-
fræði 1957 og var þeirri stöðu hans
breytt 1967 í læknisfræðilega
erfðafræði og ári síðar var honum
veitt prófessorsnafn-
bót. Doktorsrit hans
Qallaði um nýburagulu
og vöm þá sem nýbur-
ar gátu haft af því ef
móðir þeirra hafði
myndað mótefni í
ABO-blóðflokkakerfi.
Með vísindavinnu sinni
aflaði Harri Nevanl-
inna þekkingar í
ónæmisfræði, sem síð-
armeir leiddi til ónæm-
isaðgerða gegn ný-
buragulu, og átti rót
að rekja til blóðflokka
ósamræmis foreldra í
Rhesusblóðflokkum. Harri var með-
al helstu brautryðjenda í Rhesus-
vörnum gegn nýburagulu í Finn-
landi. Með blóðflokkarannsóknum
sínum jók hann mikið við þekkingu
um blóðflokkatíðni hjá Finnum og
naut mikillar viðurkenningar, sem
einn fremsti mannerfðafræðingur
Finnlands.
Prófessor Harri Nevanlinna og
helstu samstarfsmenn hans lögðu
mikið af mörkum á vegum Alþjóða
Rauða krossins með því að aðstoða
og styrkja uppbyggingu og rekstur
blóðgjafaþjónustu 5 vanþróuðum
ríkjum. Mikið starf var t.d. unnið
til uppbyggingar blóðbankaþjón-
ustu í Sómalíu á undanfömum árum
á vegum Blóbanka fínnska Rauða
krossins í Helsinki. Sú stofnun hef-
ur um all langt skeið lagt til stjóm-
endur fyrir starf og skipulag hins
Alþjóðlega Rauða kross í Genf til
etlingar blóðgjafastarfi víða um
heim og þá helst þar, sem þörfín
var mest.
Prófessor Nevanlinna var meðal
virkustu og áhrifamestu sérfræð-
inga í nefnd Evrópuráðsins um blóð-
bankarekstur og rannsóknir, sem
honum tengdust. Hann tók þátt í
slíkum fundi Evrópuráðsins, sem
haldinn var hér á landi í júní 1975.
í alþjóðlegu samstarfí Harris Ne-
vanlinna og samstarfsmanna er mér
hvað minnisstæðast, þegar þeir
stóðu fyrir alþjóðlegu þingi blóð-
meinafræðinga og blóðbankamanna
í Helsinki í ágúst 1975. Þeir vom
sem næst búnir að skipuleggja það
þing með þúsundum þátttakenda,
þar á meðal að helga þeim hótelvist
og virðulegustu fyrirlestrasali Hels-
inki í Finnlandiahöllinni, þegar rík-
isstjóm Finnland tók að sér að halda
Helsinkiráðstefnu stórveldanna,
sem þá voru við lýði. Harri og hans
mönnum var fyrirvaralítið skipað
að gefa eftir ráðstefnusali og hót-
el, hætta við allt saman eða fara
annað. Þeim tókst það, sem talið
var mikið skipulagsafrek, að koma
þinghaldinu fyrir í Verkfræðinga-
skólanum í Tapiola í Helsinki og
fínna þátttakendum pláss á ólíkleg-
ustu stöðum í borginni með stuttum
fyrirvara.
IVjeðan þetta þinghald blóðvís-
indamanna stóð, bar um tíma mest
á stórum fánum prýddum viðhafn-
arbifreiðum sem þutu um Manner-
heimveginn og fleiri stræti með
forystumenn stórveldanna eins og
Ford Bandríkjaforseta og Brésnev
forseta Sovétríkjanna en einnig
íjöldann allan af forsætisráðherrum
smærri ríkja, þar á meðal var Geir
HARRINEVANLINNA
Ástkær eiginkona mi'n, dóttir, móðir
okkar, tengdamóðir, systir, mágkona
og amma,
INGIBJÖRG JÓNA MARELSDÓTTIR,
Heiðargerði 112,
Reykjavik,
er lést á heimili sínu þriðjudaginn
8. nóvember, verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju miðvikudaginn 16. nóv-
ember kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er góðfúslega bent á Félag
MND sjúklinga. Upplýsingar í síma 622004 eða fax 682633.
Friðþjófur Björnsson,
Sigríður Gunnarsdóttir,
Sigríöur Friðþjófsdóttir, Viðar Óskarsson,
Kristjana E. Friðþjófsdóttir, Ingólfur Árnason,
Gunnar Marel Friðþjófsson,
Björn Friðþjófsson, Aldfs Elíasdóttir,
Sverrir Friðþjófsson, Elisabet Ingvarsdóttir,
Guðni Marelsson, Jóna Ingvarsdóttir
og barnabörn.
t
Elskuleg systir okkar,
SIGMUNDA HANNESDÓTTIR
Lindargötu 64,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 15. nóvember kl. 13.30.
Systkini hinnar látnu.
t
Hugheilar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa,
JÓNS GUÐJÓNSSONAR,
Engjavegi 14,
Selfossi.
Guðrún Pétursdóttir,
synir, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við frá-
fall móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
ELLE MARIE EINARSSON
(MOLLÝ),
Laugavegi 25,
Reykjavík.
Sóley Kristinsdóttir,
Sonja Kristinsdóttir, Karl Vilhelmsson,
Rudolf Kristinsson, Svala Eiðsdóttir,
Guðberg Kristinsson, Kolbrún Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
OPIÐ HÚS
MIÐVANGUR81, HFJ.
6 herbergja raöhús ásamt bílskúr. Húsiö erfrábrugðið öðrum raðhúsum
í hverfinu er varðar innra skipulag. Eign sem vert er að skoða nánar.
Til sölu og sýnis í dag ki. 14-18.
VALHÚS, fasteignasala,
sími 651122.
HAGAMELUR 44 - OPIÐ HÚS
VAGW JONSSON
FASTEIGNASAIA
Skúlagötu 30
Atli Vagnsson hdl.
SÍMI61 44 33 • FAX 61 44 50
Bjartahlíð 20 - Mosf ellsbæ
Til sölu mjög vel teiknað einbýli á einni hæð með innb. bílskúr.
í húsinu er gert ráð fyrir 3-4 svefnh. o.fl. Lóð verður grófslétt-
uð. Húsið verður afhent á fyrsta byggingarstigi, þ.e. klárað
að utan, fokh. (einangraðir útveggir). Húsið er klætt utan með
Stonaflex og Aluzink á þaki. Húsið er því svo til viðhaldsfrítt.
Maghoní í hurðum. Húsið er tilb. til afh. strax. Áhv. eru hús-
bréf kr. 6,3 millj. og 1,1 millj. til 3ja ára. Verð á fyrsta stigi kr.
8,2 millj. Verð á öðru stigi þá tilb. til innr. kr. 10 millj. Þetta
hús er þannig hannað að það passar bæði fyrir þann sem er
að minnka við sig og eins hinn sem þarf að hafa allt að 4
svefnh. Byggingarmeistarinn verður á staðnum milli kl. 13 og
15 í dag. Byggingaraðili: Álmur hf.
Til sölu og afhendingar fljótlega 5-6 herbergja miðhæð á
Hagamel 44, ásamt bílskúr. íbúðin skiptist m.a. í anddyri, hol,
2 stórar stofur með nýju parketi, 3 svefnherbergi á sér gangi,
en gætu verið 4. Eldhús með nýlegum innréttingum, sérþvotta-
hús. Sérinngangur. Úrvals eign á besta stað. Mögulegt að
taka minni íbúð uppí. Verð 13,3 millj. íbúðin verður til sýnis
sunnudag frá kl. 14 til 17.
heitinn Hallgrímsson forsætisráð-
herra íslands.
Frá upphafí kynna minna af
Harri fann ég fyrir miklum hlýhug
hans í garð íslendinga og hann
reyndist hérlendri blóðbankastarf-
semi alla tíð mikill stuðningsmaður.
Eftirminnilegasta dæmi um hvað
hann og hans stofnun varð lækn-
ingastarfí hérlendis til mikils góðs
eru kaup Blóðbankans á fínnska
storkuþættinum frá árinu 1973 til
1988, sem notaður var fyrir
blæðara okkar á þessu árabili. Eng-
inn þeirra smitaðist af eyðni og
þökkum við það hreinleika fínnska
storkuþáttarins. Þetta má með
sanni teljast hið mest láni í læknis-
starfí, en er jafnframt hið mest lof
um heilbrigði fínnskra blóðgjafa og
góðar smitvamir hjá Harri Nevanl-
inna og starfsmönnum hans. Við
nutum margoft góðra ráða og
tækniaðstoðar þeirra við smitvarnir
og margar fleiri rannsóknir, sem
tengjast blóðbankastarfseminni.
Harri og samstarfsmenn hans í
Blóðbanka fínnska Rauða krossins
í Helsinki voru í miklum metum
meðal blóðgjafanna og engum
þeirra kom til hugar að krefjast
endurgjalds fyrir blóðgjöf. Harri var
alltaf einarður talsmaður þess, að
blóðgjafar gæfu blóð án umbunar.
Að gefa blóð til lækninga er í besta
samræmi við einkunnarorð stofn-
anda Rauða krossins, Henrys Dun-
ants: Við erum allir bræður. í góðra
vina hópi var oft á það minnst að
Harri bæri í sér marga frábæra
eðlikosti ættar sinnar. Hún var
þekkt í Finnlandi fyrir fólk með
hæfni á sviði tónlistar og stærð-
fræði. Hann spilaði á fiðlu og hafði
mikið yndi af söng.
Harri hafði mikla kímnigáfu og
margar gamansögur sem hann
hafði á takteinum voru hugvekjandi
og entust lengi í minni. Sem ungl-
ingur hafði ég lesið bók Þorsteins
Gíslasonar um fyrra heimsstríðið
og séð þar mynd af hinum fræga
Mannerheim marskálki, síðar for-
seta Finnlands, þar sem hann sat
tignarlega á stríðshesti sínum. Þessi
mynd var ekki horfin úr huga mér
hálfri öld síðar, þegar Harri Nevanl-
inna sagði mér sögu af paþþa ein-
um, sem fór með son sinn 5 ára til
að sýna honum líkneskið af Mann-
erheim sitjandi á hinum mikilfeng-
lega hesti, sem stendur við Manner-
heimveg. Pabbinn segir við snáð-
ann: „Þetta er Mannerheim." Snáð-
inn spyr: „Hver situr á honum?“
Ég tel að hamingjan hafí verið
mér sérstaklega hliðholl, þegar
starf mitt við Blóðbankann leiddi
til hinnar ánægjulegu samvinnu og
traustu vináttu við Harri og sam-
starfsmenn hans við Blóðbanka
finnska Rauða krossins í Helsinki.
Við Erla séndum Söru Nevanl-
inna og íjölskyldu innilegar samúð-
arkveðjur.
Ólafur Jensson.
//FASTEIGNA
MIÐSTÖÐIN
SKIPHOLTI SOB - 106 REYKJAVÍK
SlMI 622030 - SlMBRÉF 622290
OPIÐ HÚS
FANNAFOLD 8 7619
Til sölu fallegt 108 fm einb. u einni
hæö ásamt 42 fm bílsk. Miög gott
timburhús með 3 svefnh. Áhv. 5,0
mlllj. Verö 11,8 mlll|. Gísll tekur á
mótl gestum frá kl. 14-17 f dag.
MELGERÐI 7621
Vorum að fá í sölu mjög fallegt 162
fm einb. á þessum vinsæla staö.
Mikiö endurn. hús í góöu éstandi.
Nýl. vönduö eldhinnr. 4-5 svefnh.,
góðar stofur. Mögul. á sérib. í kj.
Verð 14,5 mlllj.
FREYJUGATA 1656
Vorum aö fá í sölu góöa 60 fm 2ja
herb. íb. á jarðh. í steyptu þrlb.
Þvottah. í íb. Suöurgaröur. Verö 5,2
millj.
KJALARNES 10301
Tll sölu jörö stutt frá Reykjavík. Land-
stærö um 35 ha. Ibúöarh. og útih.
þarfnast lagfæringar.