Morgunblaðið - 13.11.1994, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 13.11.1994, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ^ KRIPALUJÓÚA ^ Jóga gegn kvíða Námskeið einkum ætlað þeim, sem eiga við kvíða og fælni að stríða. Kenndar verða á nærgætinn hátt leiðir Kripalujóga til að stíga út úr takmörkunum ótta og öryggisleysis til aukins frelsis og lífsgleði. Hefst mánudaginn 21. nóvember kl. 20.00. Leiðbeinandi: Ásmundur Gunnlaugsson, Kripalujógakennari. Jóga III Áhersla er lögð á að halda jógastöðum og kynnast hvernig tilfinningar tengjast hinum ákveðnu líkamshlutum. Hefst þriðjudaginn 22. nóvember kl. 16.30. Leiðbeinandi: Helga Mogensen, Kripalujógakennari. Meðvirkni og jóga Námskeið ætlað þeim, sem vilja brjótast út úr mynstri meðvirkni og nýta sér mjúka leið til að horfast í augu við sjálfa sig og aðstæður sínar. Helgin 26. og 27. nóvember kl. 9-17 báða dagana. Leiðbeinandi: Ragnheiður Óladóttir, Kripalujógakennari og ráðgjafi. Jóga og heilbrigði Hvernig getum við litið á alla þætti daglegs lífs sem lykil að heilbrigði? Spennandi námskeið þar sem við lærum að skapa okkur stuðning við heilbrigðari lífshætti með aðferðum Kripalujóga. Hefst þriðjudaginn 29. nóvember kl. 20.00. Leiðbeinandi: Nanna Mjöll Atladóttir, Kripalujógakennari og félagsráðgjafi. J0CASTWIK HEIMSUÓS y Skelftinnl 19,1. haeð, siml 880181 kl, 17-10 alla virka daga, J HYUNDAI HJOLAGRAFA á traktorsgröfuverði! * Þyngd 11,5tonn * Cumminsvél * ZF gír-/drifbúnaður * Aksturshr. 33 km/klst. * Miðstöð, kæling, útvarp Sparið MILLJÓNIR og veljið HYUNDAI Skútuvogl 12A, 104 Reykjavík Sími 012530 Blab allra landsmanna! -kjarni málsins! ÍDAG Með morgunkaffinu Ást er... 7-26 að benda honum á það sem þarf að gera. Það á ekki að borða þessar pillur. Helltu þeim bara niður þrisv- ar á dag og tíndu þær upp, eina og eina í einu. JJ 6Ö2 , III Eg veit að þér líður betur núna, Magnús minn, en komdu samt STRAX aftur með rúmið þitt. SKÁK Umsjón Margelr Pétursson Þessi staða kom upp í spænsku deildarkeppninni í haust í skák tveggja stiga- hárra stórmeistara. Jonat- han Speelman (2.600), Englandi, var með hvítt og átti leik en Zurab Azmajpa- rasvíli (2.625) frá Georgíu var með svart. Hann var að bjóða upp á skiptamunsfóm, lék 24. - Rg7 - h5. Sjá stöðumynd I staðinn fyrir að þiggja skiptamuninn fómaði Speel- man drottningunni: 25. Dxh5!! - gxh6, 26. Bxf4+ - Rg6, 27. Bg5 - De5, 28. Rf6+ - Kh8, 29. Bxg6 - hxg6, 30. Hdel - Dxh2, 31. He7! (Eftir þessa glæsi- legu hróksfórn til viðbótar við drottningarfórnina gæti svartur gefist upp með góðri samvisku.) 31. — Dxgl+, 32. Kc2 - Df2+ 33. Kb3 - Df3+ 34. Ka2 - Dxf6, 35. Bxf6+ - Kg8, 36. Hxb7 og Azmaiparasvíli gaf skömmu síðar þetta gjörtapaða enda- tafl. Það jafnast enginn á við nærsýnu grænmetisæt- una Jon Speelman þegar hann er í essinu sínu! VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Tapad/fundið Hjólkoppur tapaðist HJÓLKOPPUR tapaðist af Peugeot 306 einhvers staðar í Reykjavík fyrir u.þ.b. mánuði. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 672666 eða 625265. Gleraugu fundust KVENGLERAUGU í fínni umgjörð fundust neðariega á Hverfisgötu við strætóskýlið sl. þriðjudag. Eigandinn má vitja þeirra í síma 37119 á kvöidin. COSPER Það verður ekkert mál að se(ja húsið ef allir draugarn- ir eru innifaldir í verðinu. Farsi Yíkveiji skrifar... að hefur vissulega náðst fram verulegur spamaður sums staðar í ríkisbúskapnum, ekki sízt í heilbrigðiskerfinu. í fréttabréfi Matvæla- og næringarfræðingafé- lags íslands, „Matur er mannsins megin“, er viðtal við Valgerði Hildi- brandsdóttur, forstöðmann eldhúsa Ríkisspítala. Þar segir m.a.: „Fyrir rúmum tveimur ámm var sett af stað verkefni í þeim tilgangi að ná fram spamaði í innkaupum eldhúsanna. Eftir eitt ár hafði náðst um 30% sparnaður og jafnframt jukust gæði fæðisins. Grundvallar- atriðið er að tengja næringu, gæði hráefnis, bragð og útlit og rekstrar- kostnað... Innkaup eldhúsanna vom flokkuð í ABC-greiningu, vörulýsingar voru gerðar og innkaup boðin út. Mark- visst eftirlit er haft með matvælum eftir að þau koma í hús, bæði innra eftirlit og opinbert eftiriit að hluta til og hafa Rannsóknarstofnun land- búnaðarins og Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins séð um það. Til þess að ná þessum árangri hefur þurft áhuga og samstarf alls starfsfólks en þetta hefði ekki verið mögulegt án fmmkvæðis yfirmanns Tækni- sviðs Ríkisspítala." Það segir svo sína sögu um vægi jákvæðra frétta í íslenzkum fjölmiðl- um að árangur af þessu tagi liggur nánast í þagnargildi á þeim bæ. íkverji er þeirrar skoðunar að menntun, bæði almenn og sérhæfð, sé árangursríkasta vopn sérhvers einstaklings og sérhverrar þjóðar í lífsbaráttunni. Þær þjóðir, sem mesta rækt hafa lagt við menntun þegna sinna, tækniþróun og vísindi, standa bezt að vígi, hvað afkomu og efnahag varðar. Og ein- staklingar, sem búa að góðri mennt- un, er betur vopnum búnir í lífsbar- áttunni en þeir, sem menntun skort- ir. Rétturinn til náms og menntunar er, m.a. í ljósi framansagðs, einn dýrmætasti þáttur mannréttinda. En standa allir jafnt að vígi þegar að því kemur að afla framhalds- menntunar? Heldur betur ekki! Fólk sem þarf að stunda háskólanám, eða annað sérhæft nám, fjarri heima- byggð, verður fyrir mikilli röskun á persónulegum högum - og ómældum útgjöldum, umfram þá, sem geta stundað slíkt nám í heimabyggð. Jafnrétti til náms á að vera horn- steinn menntastefnunnar. Víkveiji getur því tekið undir það með Gunn- laugi Stefánssyni og fleiri þing- mönnum strjálbýlis, sem vilja að ríkisstjórnin skipi nefnd til að gera úttekt á kjörum og stöðu fólks, sem stundar nám fjarri heimabyggð. Svört atvinnustarfsemi og skatt- svik eru með dekkstu blettum á íslenzku samfélagi dagsins í dag. Nýlega svaraði fjármálaráðherra fyrirspum frá Áma R. Árnasyni alþingismanni varðandi aðgerðir til að stemma stigu við brotum af þessu tagi. Fram kom í máli fjármálaráð- herra að ákveðið hefur verið að koma upp sérstakri skrifstofu hjá Skattrannsóknarstjóra sem hafi það aðalviðfangsefni að sporna gegn svartri atvinnustarfsemi. í þeim til- gangi var starfsmönnum embættis- ins fjölgað úr 12 í 17. Víkveiji læt- ur í ljósi vonir um að þetta sé upp- hafa marktækra aðgerða gegn skattsvikum. í svari fjármálaráðherra kom fleira athyglisvert fram. Unnið er að sérstakri athugun á viðurlaga- ákvæðum bókhaldslaga, skattalaga og almennra hegningarlaga. Einnig er í skoðun að birta refsidóma, það er að kynna almenningi í fjölmiðlum niðurstöður dóma í skattsvikamál- um, til ná fram nauðsynlegum varn- aðaráhrifum. Að mati Víkveija er það stórum hyggilegra að herða róðurinn gegn skattsvikum en hækka skatta. Hækkun skatta þýðir refsingu heið- arlegra skattborgara - en herferð gegn skattsvikum tekur á hinum „réttu“ sökudólgum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.