Morgunblaðið - 22.11.1994, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eigandi Atlanta að loknum samningum við Félag íslenskra atvinnuflugmanna
Endurmat á stöðu fyrir-
tækisins nauðsynlegt
Skoða möguleika á að sameina félög
flugmanna, segir formaður FÍA
SAMNINGAR tókust milli flugfé-
lagsins Atianta og F’élags íslenskra
atvinnuflugmanna aðfaranótt
sunnudags og hefur verkfalli fé-
lagsins verið aflýst. Arngrímur Jó-
hannsson, eigandi Atlanta, segir
að það sé léttir að samningur sé í
höfn, en hann þurfi að endurmeta
viðskiptalega stöðu fyrirtækisins í
ljósi hans. Tryggvi Baldursson, for-
maður FÍA, segir að niðurstaðan
sé ásættanleg fyrir félaga í FÍA
og hann muni leggja áherslu á það
á næstunni að sameina félög flug-
manna.
Tryggvi sagði að það sem hefði
leyst deiluna að lokum væri að
menn hefðu mætt á fundinn um
helgina með jákvæðara hugarfari
og meiri samningsvilja en áður.
Aðalkrafa þeirra um að félagsmenn
í FÍA hefðu jafnan rétt til vinnunn-
ar á við aðra flugmenn Atlanta að
teknu tilliti til verkefnastöðu fé-
lagsins og starfsaldurs flugmanna
hefði náðst fram. Stéttarfélagið
hafi notað þær vinnureglur í sam-
bandi við ráðningar og uppsagnir.
Það gilti hjá öllum viðsemjendum
félagsins, en það sem hefði skekkt
þá mynd um tíma hefði verið sú trú
sumra að . forgangsréttarákvæðið
hefði áhrif á þá vinnureglu. Það
myndi ekki gerast.
Þokkalega sáttir
Hann sagði að þeir væru þokka-
lega sáttir með niðurstöðu samning-
anna, en það væri auðvitað þannig
í samningunum að sjaldnast væri
það niðurstaðan að annar aðilinn
fengi öllu sínu framgengt. Aðspurð-
ur um hvaða lærdóm mætti draga
af þessari deilu og því að stofnað
hefði verið nýtt stéttarfélag sagði
hann að hann þyrfti þess kannski
síður en margir aðrir. „Við höfum
upplifað þetta í FÍA. Félagið klofn-
aði einu sinni og það kom strax í
ljós að hagsmunum flugmanna er
miklu betur borgið í einu stéttarfé-
lagi heldur en fleirum. Ég mun
leggja á það áherslu á næstunni að
vera í sambandi við forsvarsmenn
Fijálsa flugmannafélagsins og
skoða mjjguleika á því að sameinast
aftur í einu félagi."
Hreyfanleikinn að baki
Arngrímur Jóhannsson sagði að
sá samningur sem gengið hefði ver-
ið frá um helgina væri nokkum
veginn samhljóða því sem legið hefði
fyrir fýrsta daginn. Það hefði verið
farið fram á miklu meira í upphafí,
en allt frá fyrsta degi hefði legið á
borðinu að flugmennimir kæmu inn
á sinn stað. Forgangsréttarákvæðið
stæði eins og það væri og mennim-
ir kæmu inn í sín sæti með leyfl
Fijálsa flugmannafélagsins.
Amgrímur sagði að það fijálsa
umhverfi sem félagið hefði búið við
og sá hreyfanleiki sem það hefði
haft og fengið mikið lof fyrir væri
að baki. Sá möguleiki að geta bmgð-
ist við beiðni um flugvél og áhöfn
með jafnvel dags fyrirvara í tak-
markaðan tíma eins og Atlanta hefði
getað gert væri horfínn, en sá mark-
aður hefði verið félaginu mjög mikil-
vægur á undanfömum ámm. Kerfíð
sem væri við lýði hér á landi virkaði
ekki í atvinnurekstri eins óg Atlanta
hefði stundað. Allt yrði miklu stirð-
ara en félagið þyrfti sveigjanleika.
„Ég verð að laga mig að breyttu
umhverfi héðan í frá. Það liggur í
augum uppi að ég verð að endur-
skoða alla starfsemina eftir þetta,“
sagði Arngrímur. Varðandi það
hvort enn væm uppi fyrirætlanir
um að flytja starfsemina út fyrir
landsteinana, sagðist hann skoða
alla möguleika. Ef hægt væri að
koma sér betur fyrir annars staðar
væri það ekki heilagt að vera hér-
lendis þó hér væri gott að vera.
Þetta yrði að meta alfarið á grund-
velli viðskiptahagsmuna.
Kvennadeild
Landspítalans
Fleirbur-
um fjölgar
ÚTLIT er fyrir að fæðingar á
kvennadeild Landspitalans verði um
2.900 á árinu eða ríflega 200 færri
en árið 1993 þejgar fæðingar voru
samtals 3.129. A árinu hefur fleir-
bumm fjölgað miðað við liðið ár og
hafa þegar fæðst femir þríburar og
von er á fleirum fyrir árslok að sögn
Guðrúnar Bjargar Sigurbjömsdóttur
yfirljósmóður.
„Miðað við sama tíma í fyrra hafa
fæðst fleiri tvíburar á þessu ári og
er það áframhaldandi aukning miðað
við fyrri ár,“ sagði Guðrún. „Fjölgun
fleirbura tengist góðum árangri í
glasafrjóvgun."
í tímaritinu Heilbrigðismál, kem-
ur fram að á árinu 1993 vom fæð-
ingar 4.578 á öllu landinu eða jafn
margar og árið 1992. Hins vegar
fæddust 4.649 börn. Tvíburar voru
63 og fjórir þríburar. Fæðingardeild-
in er með stærri fæðingarstöðum á
Norðurlöndum. Um 68% fæðinga á
landinu voru á deildinni miðað við
54% fyrir tíu árum.
Morgunblaðið/Baldvin Jónsson
ÍSLENSKU. landsliðsmennirnir að störfum í eldhúsinu I Lúxemborg í gær.
Tæplega fertugur mað-
ur lést í umferðarslysi
ÞRJÁTÍU og níu ára
gamall maður, Sveinn
R. Brynjólfsson lést í
umferðarslysi skammt
norðan AÍcureyrar á
laugardag.
Siysið varð með
þeim hætti að tveir
bílar rákust saman á
þjóðveginum á móts
við bæinn Sólborgar-
hói í Glæsibæjar-
hreppi, rétt við félágs-
heimilið Hlíðarbæ.
Öðrum bílnum var
ekið í átt frá Akureyri
í norður, hann snerist
á veginum en mikil
hálka var og krapi
-4
Sveinn R.
Brynjólfsson.
Ökumaður hins bílsins
slasaðist lítillega.
Sveinn var fæddur
árið 1955 í Ólafsfirði.
Hann var til heimilis
að Fögrusíðu 15a á
Akureyri. Hann lætur
eftir sig eiginkonu og
þijú börn.
Hann starfaði ötul-
lega innan Knatt-
spymufélags Akur-
eyrar og var í mörg
ár í stjórn knatt-
spyrnudeildar KA, þar
af formaður 1991-’92
og sat í stjórn er hann
lést. Hann var fulltrúi
þegar slysið átti sér stað. Sveinn
ók bílnum sem kom úr gagn-
stæðri átt á leið í bæinn. Talið er
að hann hafi látist samstundis.
KA í Knattspyrnuráði
Akureyrar og hafði umsjón með
margvíslegri starfsemi innan fé-
lagsins. Hann starfaði á skipulags-
deild Akureyrarbæjar.
Gullverðlaun fyrir
heitu réttina
ÍSLENSKT landslið í matreiðslu
vann til gullverðlauna í gær í al-
þjóðlegri matreiðslukeppni sem
haldin er i Lúxemborg. Keppnin
heitir yCulinary World Cup“ og
segir Ulfar Finnbjörnsson, fyrir-
liði, að þetta sé í fyrsta skipti sem
íslendingar hafi tekið þátt í þess-
ari keppni. Alls taka þátt Iið frá
20 löndum og fengu einungis tvær
þjóðir gull í gær að sögn Úlfars.
Verðlaunin voru fyrir heitan
mat en á matseðli landsliðsins, sem
í eru fimm matreiðslumeistarar,
var humar, hörpuskel, bleikja og
rauðspretta á fennelrísottó með
laxahrognum og Sambucca-sósu í
forrétt, léttsteikt lífrænt ræktað
lambafillét með fínt skornu græn-
meti, innbökuðum kartöflum og
blóðbergssósu í aðalrétt og blá-
beijafrauð fjallkonunnar með
rabarbarasósu í eftirrétt. Sagði
Úlfar í samtali við Morgunblaðið
í gær að hráefnið hefðu þeir haft
með sér að heiman, bæði kjöt- og
fiskmetið, auk smjörs, osts, ijóma
og mysu svo eitthvað sé nefnt, og
hefði það vakið athygli að „sveita-
mennirnir frá íslandi" kynnu að
matreiða svo góða rétti úr svo
góðu hráefni.
Kaldir réttir á morgun
Seinni hluti keppninnar fer
fram á morgun og verður keppt
til úrslita í matreiðslu kaldra
rétta. AIIs þurfa þeir að bera fram
60-70 rétti að sögn Úlfars. Hann
segir loks að gefin séu verðlaun
samkvæmt stigafjölda fyrir kalda
rétti líkt og þá heitu og síðan fái
það lið, sem flest stig hlýtur sam-
anlagt fyrir báða réttina, aðal-
verðlaun keppninnar.
Forsætis-
ráðherra
heimsæk-
ir Kína
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra fer í vikunni í opinbera
heimsókn til Kína í boði Li
Peng forsætisráðherra Kína.
Heimsóknin stendur frá 27.
nóvember til 3. desember og
mun Davíð Oddsson eiga við-
ræður við forseta Kína, for-
sætisráðherra og varaforsæt-
isráðherra sem er jafnfram
utanríkisráðherra landsins.
Með Davíð verða í förinni
eiginkona hans, Ástríður
Thorarensen, Ólafur Davíðs-
son ráðuneytisstjóri í forsætis-
ráðuneyti, Ingvi S. Ingvarsson
sendiherra, Eyjólfur Sveinsson
aðstoðarmaður forsætisráð-
herra, Albert Jónsson deildar-
stjóri í forsætisráðuneyti og
Páll Siguijónsson formaður
Útflutningsráðs.
Seltzer frá
Islandi
SELTZER-fyrirtækið hefur
ákveðið að hætta rekstri gos-
drykkjaverksmiðju sinnar á
íslandi árið 1995 og flytja
hana þá til Bretlands, að því
að segir í frétt frá fyrirtæk-
inu.
Það segist ekki hafa getað
rekið framleiðsluna með hagn-
aði, frekar en tveir fyrrverandi
eigendur verksmiðjunnar, en
Seltzer hefur verið framleitt á
íslandi síðan 1989. Fram-
leiðsla á íslandi sé ákveðnum
erfiðleikum bundin og ekki sé
ljóst hvemig hægt sé að yfir-
stíga þá í heimi þar sem sam-
keppni sé mjög hörð.
Áfram verður hægt að
framleiða gosdrykki í verk-
smiðju Seltzers og munu nýir
eigendur hennar hafa hug á
að halda þeirri framleiðslu
áfram, að sögn fyrirtækisins.
Sambands-
sljórn ASÍ
fundar
FUNDUR sambandsstjórnar
Alþýðusambands íslands hófst
í gær, mánudag, en honum
lýkur upp úr hádegi í dag. Á
dagskrá fundarins er m.a.
kynning og umræður um
kjara- og atvinnumál, lífeyris-
mál, viðhorfin til verkalýðs-
hreyfmgarinnar og vinnu-
verndarmál.
Rétt til setu á sambands-
stjórnarfundinum eiga um 70
fulltrúar; miðstjórn ASÍ og
varamenn, fulltrúar í sam-
bandsstjórn kosnir á þingi
sambandsins og fulltrúar til-
nefndir af aðildarsamböndum
og félögum ASÍ.
Til hafnar
með sjúkling
ÞÝSKA eftirlitsskipið Frið-
þjófur kom til hafnar í Reykja-
vík í gærkvöldi með 54 ára
gamlan mann sem fengið hafði
heilablóðfall.
Maðurinn var með meðvit-
und þegar komið var til lands.
Hann var fluttur á Landspítal-
ann.