Morgunblaðið - 22.11.1994, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRAMBOÐSMAL
Gengur
til liðs við
Jóhönnu
SVEINN Allan Morthens, fyrr-
verandi formaður kjördæmis-
ráðs Alþýðubandalagsins á
Norðurlandi vestra, sagði sig
formlega úr Alþýðubandalaginu
í gær, en ástæðuna segir hann
vera þá að hann telji forystu
Alþýðubandalagsins ekki vera
tilbúna til að takast á við þau
vatnaskil sem hann telji nú vera
í íslenskum stjórnmálum. Sagð-
ist hann hafa haft samband við
Jóhönnu Sigurðardóttur og lýst
yfír stuðningi við hana.
„Þegar maður hefur þá til-
finningu að forysta þess stjórn-
málaafls sem maður er með sé
ekki í takt við það sem er að
gerast þá verður maður að taka
ákvörðun og ég hef tekið mína
ákvörðun," sagði Sveinn Allan,
sem sagðist gjarnan hafa viljað
sjá breiðfylkingu Kvennalista,
Alþýðubandalags og Jóhönnu.
„A miðstjómarfundi Alþýðu-
bandalagsins fyrir hálfum mán-
uði stóðu allir sem tóku til
máls upp sem einn maður og
lýstu yfir áhuga fyrir slíkri
breiðfylkingu. Daginn eftir
heldur svo þingflokkurinn
blaðamannafund og þar lýsir
Steingrímur J. Sigfússon vara-
formaður flokksins því yfir að
það verði bara hreint G-lista
framboð um allt land. Þarna
verða skil sem maður verður
einfaldlega að gera upp við
sjálfan sig,“ sagði hann.
Mikil þátttaka í prófkjöri Alþýðuflokksins á Vesturlandi
Þingmaðurinn sigraði
varaþingmanninn
GÍSLI S. Einarsson, alþingismaður
af Akranesi, bar sigurorð af Sveini
Þór Elínbergssyni, varaþingmanni
úr Ólafsvík, í prófkjöri Alþýðu-
flokksins á Vesturlandi um helgina.
Gísli hlaut 961 atkvæði og Sveinn
Þór hlaut 546 atkvæði. Prófkjörið
var opið öðrum en flokksbundnum
félögum annarra flokka og greiddu
samtals 15.09 atkvæði. Tveirseðlar
voru auðir.
„Kannski má ráða af úrslitunum
að stóru staðirnar hafí fylkt sér
um sína menn. En kjörsókn á minni
stöðunum var líka langt framar
vonum. Ég held að kjörsóknin hafi
almennt verið meiri en menn gerðu
ráð fyrir. Menn væntu svona 1.000-
1.100 manns í prófkjör en gerðu
sér aldrei grein fyrir þessu,“ sagði
Gísli og tók fram að ekki væri til
einhlít skýring á góðri kjörsókn.
„Uggþaust skiptir einhverju að
heimamenn úr héraði eru í fram-
boði í fyrsta sinn. Síðan er framboð-
ið sett upp sem einvígi. Einvígið
var milli tveggja metnaðargjarna
vina sem höfðuðu til sinna stuðn-
ingsmanna. Ég minni líka á að kjör-
fylgi Alþýðuflokksins hefur farið
yfir 850 manns á Akranesi," sagði
Gisli.
„Bændur óku langar leiðir“
Hann sagði stuðninginn mjög
gott veganesti fyrir sig. „Árangur
Gísli S.
Einarsson
Sveinn Þór
Elínbergsson
keppinautar míns er engu að síður
mjög góður líka. Menn verða auð-
vitað að horfa til sveitarfélaganna
hvernig þau koma inn í þetta.
Mesta atkvæðamagnið er á Akra-
nesi, u.þ.b. tvöfalt miðað við Snæ-
fellsbæ, og menn geta ráðið af því
að ég hef fengið mikinn og einlæg-
an stuðning frá því svæði," sagði
Gísli. Hann sagðist hafa farið í
harða vinnu fyrir prófkjörið. „Ég
þakka þessu fólki. Á sama hátt
vakti gleði að bændur óku langar
leiðir til að taka þátt í prófkjöri,"
sagði Gísli og tók fram að eflaust
hefði afsögn Guðmundur Árna
Stefánssonar haft jákvæð áhrif á
•kjörsókn. Kosið hefðu 15,4% at-
kvæðisbærra á Vest-
urlandi.
Svæðisbundin
niðurstaða
Sveinn Þór kvaðst
ánægður með úrslit
prófkjörsins. „En ég
verð að viðurkenna að
vakningin á Akranesi
kom á óvart,“ sagði
Sveinn Þór og viður-
kenndi að þau atkvæði
hefðu fyrst og fremst
verið I annað sætið.
„Fyrir það er ég auð-
vitað þakklátur. Um
léið bendi ég á að kosn-
ing okkar beggja er svæðisbundin
niðurstaða. Eftir því sem ég kemst
næst hefur Gísli sigur sinn ein-
vörðungu frá Akranesi og Dali og
að hluta úr Grundarfirð. Minn
árangur er svæðisbundin líka.
Bundinn við Snæfellsbæ, þar sem
ég fæ 400 atkvæði, Borgarnes og
Stykkishólm. Ásamt því að ég tek
hinn helminginn í Grundarfirði,"
sagði Sveinn Þór. Hann sagðist
með tilliti til þess hversu niður-
staðan hefði verið svæðisbundin
ætla að íhuga hvort hann tæki
annað sætið. Hann lýsti yfir
ánægju með mikla þátttöku í próf-
kjörinu.
Formaður kjördæmisráðs í Alþýðubandalaginu gengur til liðs við Jóhönnu
Látum ekkí stíóma okkur
Ragnheiður Jónasdóttir formaður kjördæm-
isráðs Alþýðubandalagsins á Suðurlandi yfír-
gaf fund ráðsins og lýsti yfír stuðningi við
Jóhönnu Sigurðardóttur. Anna G. Olafs-
dóttir talaði við Ragnheiði, Margréti Frí-
----------------------------------------
mannsdóttur og Olaf Ragnar Grímsson.
„ÉG GERI mér vonir um að óskir
mínar um meiri jöfnuð í landinu
eigi frekar hljómgrunn meðal
stuðningsmanna Jóhönnu en í Al-
þýðubandalaginu. Við getum
kannski í sameiningu, þegar hún
fær með sér gott fólk, gert góða
hluti," sagði Ragnheiður Jónasdótt-
ir þegar rætt var við hana. Ragn-
heiður er dóttir Jónasar Árnasonar,
fyrrum þingmanns Alþýðubanda-
lagsins.
Hún sagði ummæli Ólafs Ragn-
ars vegna brotthvarfs flokksfélaga
algjöran dónaskap. „Auðvitað lát-
um við ekki stjórna okkur. Ég tók
ákvörðun fyrir löngu og Jóhanna
hefur ekki þurft að nota nein brögð
til að fá mig yfir. Meira að segja
hef ég eiginlega ekkert við hana
talað. Við höfum aðeins, félagar
hér á Suðurlandi, verið að ræða
þessi mál,“ sagði Ragnheiður og
hún undirstrikaði að enn þann dag
í dag færi fólk út í stjórnmál af
hugsjón en ekki aðeins von um að
verma þingsæti.
Ragnheiður sagðist vera þeirrar
skoðunar að Alþýðubandalagið
væri mjög staðnaður flokkur. „Og
raunar fleiri flokkar. Langt er síðan
ástæða var til að hrista aðeins upp
í flokkakerfinu. En ef fólk þorir
aldrei er ekki von á að neitt ger-
ist. Auðvitað var þetta stórt stökk.
Hins vegar gerði ég það að vel
athuguðu máli og ræddi við hina
og þessa, meðal annars Margréti
Frímannsdóttur,“ sagði Ragnheið-
ur.
Hún viðurkenndi að hafa hrósað
Ólafí Ragnari á kjördæmisráðs-
þingi, eins og hann skýrði frá í
útvarpsviðtali í gær. „Ég vona að
Ólafur Ragnar sé ekki svo langt
frá mér í pólitík að ég geti ekki
verið hrifín af einhveiju sem hann
segir. Auðvitað hef ég hangið í
flokknum þessi ár því mín hjartans
mál hafa verið þar innan dyra. Ég
vona líka svo sannarlega að ég eigi
eftir að verða hrifin af einhveiju
sem Ólafur Ragnar segir í framtíð-
inni líka.“
„Alltaf missir"
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maður Alþýðubandalagsins á
Suðurlandi, sagði að hver einstakl-
ingur þyrfti að gera upp við sig
og sína samvisku hveijum hann
fylgdi í pólitík. „Ragnheiður hefur
unnið með okkur í nokkur ár og
nú síðast við að móta þennan lista
sem við teljum mjög sterkan. Nú
hefur hún hins vegar tekið þá
ákvörðun að ganga til liðs við Jó-
hönnu Sigurðardóttur og lýst því
yfir í íjölmiðlum. Það á hún við sig
og sína samvisku,“ sagði Margrét.
Hún sagði að auðvitað væri allt-
af missir að samstarfsmanni og
flokksfélaga. „En ég hef ekki trú
á að þetta hafi nein áhrif á okkar
Margrét
Frímannsdóttir
Ragnheiður
Jónasdóttir
Ólafur Ragnar
Grímsson
framboð í kjördæminu. Mér finnst
kannski lýsa'því best að þó formað-
ur kjördæmisráðs hafi sagt af sér
í upphafi fundar á laugardag héldu
fundarstörf áfram og um listann
ríkir algjör einhugur," sagði hún.
„Hryggilegt“
Ólafur Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalagsins sagði
að í sjálfu sér væri réttur hvers og
eins að ákveða hvað hann vildi
gera. „En það sem mér finnst hins
vegar hryggilegt er að við höfum
æði mörg talið að gera ætti alvar-
lega tilraun til að ná saman breið-
fylkingu félagshyggjufólks og jafn-
aðarsinna. Ég hef átt mikinn fjölda
einkaviðræðna við Jóhönnu Sigurð-
ardóttur á undanförnum mánuðum
um það mál. Hún bað um það 3.
október að ég biði í tvær vikur þar
til hún væri búin að stofna einhver
samtök til að mæta til slíkra við-
ræðna. Nú finnst mér hins vegar
vera að koma í ljós að það eina sem
er að gerast er að gamli tíminn er
endurvakinn. Enn eitt framboð á
vinstri vængnum er að koma fram
og menn eru að keppast um að
raða einhvetju fólki þar í sæti. Þar
með sýnist manni að enn ein til-
raunin til að ná vinstrisinnum og
félagshyggjufólki saman I breiðan
og öflugan flokk sé að fara hjá,“
sagði Ólafur. Hann sagði aðspurður
að svo virtist sem Jóhanna hefði
notað umþóttunartímann til að
lokka fólk til liðs við sig.
Framboðslisti ákveðinn
Kjördæmisráð hefur samþykkt
tillögu uppstillingarnefndar um
uppröðun frambjóðenda á fram-
boðslista Alþýðubandalags í Suður-
landskjördæmi. Listinn er svohljóð-
andi: Margrét Frímannsdóttir al-
þingismaður 1. sæti, Ragnar Ósk-
arsson kennari 2. sæti, Guðmundur
Lárusson bóndi og formaður
Landssambands kúabænda 3. sæti,
Ingibjörg Sigmundsdóttir garð-
yrkjubóndi 4.- sæti, Robert Mars-
hall nemi 5. sæti, Helga Jónsdóttir
bóndi og kennari 6. sæti, Sigurður
Randver Sigurðsson kennari og
formaður Kennarasambands Suð-
urlands 7. sæti, Elín Björg Jóns-
dóttir skrifstofumaður og formaður
FOSS 8. sæti, Margrét Sverrisdótt-
ir bóndi 9. sæti, Jónas Sigurðsson
nemi 10. sæti, Hilmar Gunnarsson
verkamaður 11. sæti og Bjarni
Halldórsson bóndi 12. sæti.
Framsóknarflokkur-
inn á Vesturlandi
Ingibjörg
með 96%
atkvæða í
efsta sæti
INGIBJÖRG Pálmadóttir, alþingis-
maður, hlaut tæplega 96% atkvæða
í fyrsta sæti framboðslista Fram-
sóknarflokks á Vesturlandi á auka-
kjördæmisþingi Framsóknarfélag-
anna á Vesturlandi í Borgarnesi á
laugardag. Ingibjörg segist afar
þakklát fyrir stuðninginn. Hún finni
fyrir mikilli ábyrgðartilfinningu
vegna þess trausts sem henni hafí
verið sýnt og ætli að leggja sig alla
fram um að standa undir því trausti.
Ingibjörg sagðist ekki vilja svara
því sjálf hvort eitthvað sérstakt og
hvað þá hefði valdið því að hún fékk
jafnafgerandi kosningu og raun bar
vitni. „Ég fann hins vegar greinilega
að mikil samstaða ríkti um listann.
Þrátt fyrir að frambjóðendur væru
12 og aðeins fimm væru kosnir var
andinn sá að menn voru sáttir við
úrslitin þegar þau voru ljós,“ sagði
Ingibjörg. „Ég er ánægð yfir að
ekki hafi orðið eftirmál. Allir undu
sínu og voru ákveðnir í að standa
saman og vinna saman í baráttunni."
Hún sagði mesta athygli vekja
hvað listinn væri ungur. „Fyrir utan
mig eru flestir um þrítugt. Fulltrú-
arnir dreifast jafnt um kjördæmið
og eru karlar og konur í bland,“
sagði Ingibjörg.
Framboðslisti
Eins og áður segir hlaut Ingibjörg
96% atkvæða eða samtals 174 at-
kvæði í fyrsta sæti listans en kosið
var um hvert sæti fyrir sig. Magnús
Stefánsson sveitarstjóri á Grundar-
firði kom næstur með 134 atkvæði
(72,8%), Þorvaldur T. Jónsson bóndi
í Hjarðarholti, Borgarbyggð, hlaut
131 atkvæði (72,4%), Sigrún Ólafs-
dóttir bóndi og oddviti I Hallkelsstað-
arhlíð, Kolbeinsstaðarhreppi, 103
atkvæði (56,6%) og Ragnar Þor-
geirsson sölustjóri I Borgarnesi sama
atkvæðamagn.
-------♦ ♦..♦-------
Sjálfstæðisflokkurinn
á Suðurlandi
Fram-
boðslisti
ákveðinn
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis-
flokksins í Suðurlandskjördæmi
samþykkti framboðslista fyrir kom-
andi alþingiskosningar á fundi sínum
á sunnudag. ~
Eftirfarandi skipa listann: Þor-
steinn Pálsson, sjávarútvegsráð-
herra, Háteigsvegi 46, Reykjavík,
1. sæti; Árni Johnsen, alþingismað-
ur, Heimagötu 28, Vestmannaeyj-
um, 2. sæti; Drífa Hjartardóttir,
bóndi, Keldum, Rangárvallarhreppi,
3. sæti, Arnar Sigurmundsson,
framkvæmdastjóri, Bröttugötu 30,
Vestmannaeyjum, 4. sæti, Einar
Sigurðsson, skipstjóri, Skálholts-
braut 5, Þorlákshöfn, 5. sæti; Ólafur
Björnsson, lögfræðingur, Starengi
1, Selfossi, 6. sæti; Jóhannes Kristj-
ánsson, bóndi Höfðabrekku, Mýr-
dalshreppi, 7. sæti, Kjartan Björns-
son, hárskeri, Austurvegi 32, Sel-
fossi, 8. sæti, Aldís Hafsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri, Heiðmörk 57,
Hveragerði, 9. sæti; Elvar Eyvinds-
son, bóndi, Skíðabakka 11, Austur-
Landeyjum, 10 sæti; Katrín Harðai'-
dóttir, nemi, Kirkjuvegi 80, Vest-
mannaeyjum, 11. sæti og Sveinn
Skúlason, bóndi, Bræðratungu,
Biskupstungum, 12. sæti.