Morgunblaðið - 22.11.1994, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 7
FRÉTTIR
Sýslumannskonfekt á
boðstólum í Svalbarða
„ÉG ER að fá lúðuharðfiskinn
aftur eftir árs hlé. Hann kemur
vestan af fjörðum og vissir við-
skiptavinir gleypa við honum.
Sjálfur tala ég um sýslumanns-
konfekt," segir Björgvin Magn-
ússon, kaupmaður í Versluninni
Svalbarða á Framnesvegi, um
lúðuharðfisk í versluninni.
Björgvin segist vera að fá
smálúðuna aftur eftir árs hlé.
Erfitt hafi verið að fá smálúð-
una því afli stóru bátanna hafi
verið seldur til Frakklands. Sú
smálúða hafi líka verið dýr og
hefði hvert kUó af harðfiski
þurft að kosta 15.-16.000 krón-
ur. Lúðuharðfiskurinn í versl-
uninni nú væri úr smábátum,
verkaður vestur á fjörðum, og
kostaði 5.000 kr. kílóið. Kílóið
af ýsuharðfiski kostar 3.050 kr,
og af steinbít 2.700 kr.
A myndinni er Björgvin
kaupmaður í Svalbarða, með
lúðuharðfiskinn. Meðeigandi
hans Hallur Stefánsson var
fjarverandi vegna veikinda.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hreppur-
inn fékk
Sigurvon
SAMNINGAR tókust síðdegis í gær
um kaup Suðureyrarhrepps á Sigur-
von ÍS, síðasta skipi Fiskiðjunnar
Freyju hf., og er kaupverðið 120
milljónir króna. Sigurvon fylgir 300
tonna kvóti, og að sögn Halldórs
Karls Hermanssonar sveitarstjóra
verður væntanlega stofnað nýtt
hlutafélag um útgerðina.
Halldór Karl sagði að kaupin á
Sigurvon ásamt kvóta yrðu væntan-
lega notuð sem upphafið að því að
reyna að tryggja byggðarlaginu
meira hráefni til vinnslu í framtíð-
inni. Ef kvótinn hefði farið hefði
ekki verið eftir nema 80 tonna kvóti.
„Það er augljóst hvað það hefði
þýtt í byggðarlagi, þar sem áður
voru unnin yfir 10 þúsund tonn þeg-
ar mest var, að þurfa allt í einu að
treysta á krókaleyfisbáta sem eru í
banni hátt í 200 daga á ári,“ sagði
hann.
Níu tilboð
Fiskiðjan Freyja hf. auglýsti Sig-
urvon til sölu fyrr í haust og bárust
níu tilboð. Viðræður voru hafnar við
Þorbjörn hf. í Grindavík þegar
hreppurinn skarst í leikinn og hafði
Þorbjörn hf. stofnað dótturfélagið
Hásteina hf. á Suðureyri til að kaupa
skipið.
Halldór Karl sagði að fyrst og
fremst væri um yfirtöku á skuldum
Freyju að ræða, og því yrði um sam-
bærilega lækkun á skuldum fyrir-
tækisins að ræða. Virði Sigurvonar
væri rétt rúmlega úreldingarverðið
auk kvótaverðsins þar sem keppt
hafi verið við aðra aðila um kaupin.
♦ ♦ ♦-----
Laumufar-
þegar fóru
með flugi
TVEIR Rúmenar, sem laumuðu sér
um borð í Bakkafoss, skip Eimskipa-
félagsins, í Árósum og komu til
landsins á miðvikudag í síðustu viku,
voru á föstudag sendir aftur til Dan-
merkur með flugi.
Fólkið, tæplega þrítugur maður
og rúmlega tvítug kona, hélt að það
væri á leið til Kanada en Bakkafoss
er skráður í St. John’s á eyjunni
Antigua í Karíbahafi.
Fólkið var á ábyrgð Eimskipafé-
lagsins og hefði samkvæmt venju
átt að fara til baka með skipinu en
vegna aðstöðuleysis um borð var í
samráði við Utlendingaeftirlitið og
dönsk yfirvöld ákveðið að fólkið
færi utan með flugi.
Laumufarþegarnir höfðust við í
skipinu meðan það var í höfn en
gistu aðfaranótt föstudags á gisti-
heimili í Reykjavík á kostnað Eim-
skipafélagsins.
Fallegu Merrild kaffidósirnar eru sérhannaðar fyrir Merriid kaffipakkana. Þú tryggir að
styrkleiki og ilmur kaffisins haldast enn lengur með því að khppa ofan af kaffipakkanum og
✓
geyma hann í kaffidósinni. Avallt skal forðast að hella kaffinu úr umbúðunum í annað ílát.
Fáðu þér fallega kaffidós og njóttu þess að drekka gott Merrild kaffi.
Nú fæst Merrild kaffidós á tilboði í öllum verslunum
setur brag á sérhvern dag!