Morgunblaðið - 22.11.1994, Page 10
P&Ó hf.
10 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Innritun er hafin í fagtengdan hluta
meistaranáms sem starfræktur verður í
Rafiðnaðarskólanum á vorönn 1995.
Kennt verður samkvæmt nýrri námskrá sem
fagfélög í rafiðnaði hafa samþykkt.
Fagtengdur hluti meistaranáms verður
aðeins kenndur á einum stað á landinu,
í Rafiðnaðárskólanum.
Til að jafna búsetuaðstöðu nemenda verða
greiddir ferðastyrkir, samkvæmt núverandi
reglu skólanefndar Rafiðnaðarskólans.
Meistaraskóli rafiðnaðarmanna verður í lotu-
og námskeiðaformi á vorönn 1995.
KYNNINGARFUNDUR UM
MEISTARASKÓLA
RAFEINDAVIRKJA VERÐUR
HALDINN HJÁ RAFIÐNAÐAR-
SAMBANDI ÍSLANDS,
HÁALEITISBRAUT 68,
ÞRIÐJUDAGINN,
22. NÓVEMBER KL. 18:00.
Kynningarfundur um Meistaraskóla rafvirkja
og rafvélavirkja verður auglýstur síðar.
INNRITUN OG UPPLÝSINGAR UM
MEISTARASKÓLA RAFIÐNAÐARMANNA í
SÍMA: 91-685010.
Ifii
RAFIBMABARSKÓLINM
Skeifunni 11B, 108 Rcykjavík
► Sími:91*68501 0, fax:91-812420
FRÉTTIR
Utanríkisráðherra vill að sótt verði um ESB-aðild fljótlega
Rangt að telja sjávar-
útvegsstefnu fyrirstöðu
Morgunblaðið/Sverrir
MEÐAL ræðumanna á fundinum voru Sighvatur Bjarnason, Ari
Skúlason, Jón Baldvin Hannibalsson og Haukur Halldórsson.
JÓN Baldvin Hannibalsson, utanrík-
isráðherra og formaður Alþýðu-
flokksins, segir enga áhættu í því
fólgna að sækja um aðild að Evrópu-
sambandinu fljótlega. Ekki sé rétt
að gefa sér fyrirfram að íslendingar
muni ekki geta séð sjávarútvegs-
hagsmunum sínum borgið í aðildar-
viðræðum.
Þetta kom fram í máli Jóns Bald-
vins á fundi Alþýðuflokksins á
sunnudag, en þar voru skýrslur
nokkurra stofnana Háskólans um lík-
leg áhrif hugsanlegrar ESB-aðildar
kynntaf. Jón Baldvin sagðist vona
að skýrslumar yrðu þekkingarlegur
grundvöllur skynsamlegrar og
hleypidómalausrar umræðu.
Jón Baldvin sagði að enginn hefði
tekið fyrirfram afstöðu til ESB-aðild-
ar og það gæti enginn gert fyrr en
samningsniðurstöður lægju fyrir.
„Það, sem menn greinir á um, er þá
þetta: Eiga íslendingar að Ijúka sinni
heimavinnu, skilgreina samnings-
markmið sín, sækja um með fyrra
fallinu, semja og taka svo afstöðu
til þess hvort okkur hafi tekizt í
samningum að sjá okkar brýnustu
þjóðarhagsmunum borgið. Áhættan
af þessu er að sjálfsögðu engin,
vegna þess að það er ekkert gert
fyrirfram og þjóðin hefur seinasta
orðið,“ sagði Jón Baldvin.
Forræði yfir fiskimiðum
aðalsamningsmarkmið
Jón Baldvin sagði að öllum bæri
saman um að eitt aðalsamnings-
markmiðið yrði áframhaldandi for-
ræði íslendinga yfír fískveiðiauðlind-
inni. Hvað sjávarútvegssamning
Norðmanna varðaði, hefðu þeir náð
betri árangri en fyrirfram var talið.
Samningurinn hentaði norskum hags-
munum, þar sem sjávarútvegurinn
væri aukabúgrein, en aðstaða Islend-
inga og Norðmanna væri gersamlega
ólík í sjávarútvegsmálum og þar af
leiðandi samningsstaðan einnig.
Hann benti á að sjávarútvegurinn
væri uppistöðuatvinnugrein á ís-
landi. Norðmenn hefðu gert samn-
inga við ESB umveiðiheimildir innan
fískveiðilögsögu sinnar, en ESB hefði
enga veiðireynslu, samkvæmt eigin
skilgreiningu, í íslenzkri fískveiðilög-
sögu. í EES-samningunum hefði
ESB fallið frá kröfu um einhliða
veiðiheimildir í íslenzkri lögsögu.
Sjávarútvegsstefna ESB útilokaði
ekki fyrirfram möguleika á samning-
um um aðild, vegna þess að ESB
hefði engar kröfur að byggja á í
þessu efni.
Jón Baldvin minnti einnig á ,jafn-
vægisreglu" ESB, þ.e. að veiðar skuli
ekki raskast hlutfallslega milli ríkja.
„Land, sem er háð nýtingu á þessari
auðlind um afkomu sína, er auðvitað
í algerri sérstöðu. Það er ekkert ann-
að Evrópuland, sem þannig er ástatt
um,“ sagði Jón Baldvin. Hann benti
einnig að íslenzka fiskveiðilögsagan
væri algerlega aðskilin frá lögsögu
ESB. Engir fiskistofnar væru sam-
eiginlegir með íslandi og ESB, nema
hugsanlega kolmunni sém væri ekki
nýttur. Fordæmi væru fyrir því að
hafsvæði hefðu staðið utan sameigin-
legrar fiskveiðistefnu sambandsins,
til dæmis Miðjarðarhafið frá 1981
til 1994.
Fordæmi fyrir undanþágum
Loks sagði Jón Baldvin að menn
yrðu að líta á fordæmi fyrir hugsan-
legum undanþágum íslendinga frá
sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB.
Belgíski forsætisráðherrann, Deha-
ene, hefði bent á að vegna þess að
sérstaða íslands á sjávarútvegssvið-
inu væri alger, mætti vísa til samn-
inga hinna Norðurlandaríkjanna um
landbúnað á heimskautasvæðum.
Sameiginlegu landbúnaðarstefnunni
hefði verið breytt í þessu efni.
Utanríkisráðherra sagði að sam-
eiginlega sjávarútvegsstefnan hefði
legið undir gagnrýni, og hún yrði
tekin til rækilegrar endurskoðunar
2002. „Værum við betur stödd innan
en utan, að því tilskildu að við hefð-
um náð samningum sem tryggðu
sérstöðu okkar fram að þeim tíma,
við að hafa áhrif á breytingarnar?"
spurði Jón Baldvin.
„Við megum ekki fyrirfram gefa
okkur að það sé ógjörningur að selnja
þannig að við sjáum sjávarútvegs-
hagsmunum okkar borgið. Það er
ekki nóg að segja til dæmis eins og
Morgunblaðið hefur sagt, að segja
að svo lengi sem þetta sé gefíð, sé
málið ekki á dagskrá. Það er for-
senda, sem menn eiga ekki að gefa
sér fyrirfram og geta ekki gefið sér,“
sagði Jón Baldvin.
-----♦—*—♦-----
Framkvæmda-
stjóri ASÍ
Illa staðið
við EES á
vinnu-
markaði
ARI Skúlason, framkvæmdastjóri Al-
þýðusambands íslands, segir að ekki
hafí verið staðið við samninginn um
Evrópskt efnahagssvæði sem skyldi
hér á landi. Þetta kom fram í máli
Ara á fundi.Alþýðuflokksins um Evr-
ópumál síðastliðinn sunnudag.
„Vinnumarkaðshluti samningsins
er ekki rekinn almennilega. Við get-
um tekið dæmi af mjög mikilvægum
málaflokki eins og öryggis- og að-
búnaðarmálum, þar sem við fengum
reyndar frest til aðlögunar umfram
aðra. Þau mál eru öll í kaldakoli. Það
gengur ekkert að koma þeim sameig-
inlegu reglum inn, sem við tókum
að okkur að koma í framkvæmd
vegna aðildar að Evrópska efnahags-
svæðinu. Það gengur ekki neitt
vegna þess að Vinnuveitendasam-
bandið er á móti þeim,“ sagði Ari.
Stjórnvöld og
atvinnurekendur á móti
Hann sagði að sömu sögu væri
að segja um tilskipun, sem íslending-
ar hefðu átt að koma í framkvæmd
varðandi skipulag vinnutíma. „Það
hefur ekkert gengið. íslenzk stjórn-
völd og atvinnurekendur vilja þetta
ekki,“ sagði hann.
Ari gerði einnig að umtalsefni að
evrópska atvinnumiðlunin Eures,
sem sett var á stofn í síðustu viku,
nýttist íslenzkum launþegum ekki
enn sem komið væri. „Þetta var ein
gulrótin — að fólk ætti að geta leitað
sér að vinnu hvar sem væri. Þessi
sameiginlega vinnumiðlun gildir nú
i' öllum aðíldarríkjum EES nema á
íslandi,“ sagði hann.
Einstaklega ódýr fyrirtæki
Blómabúö
Af sérstökum ástæðum bjóðum við þekkta
blómabúð í íbúðahverfi til sölu á aðeins kr. 600
þús. + vörulager samkv. talningu. Eigandinn er
að flytja til útlanda og þarf að selja strax.
Kaup ársins.
Handverksfyrirtæki
Til sölu lítið iðnaðarfyrirtæki sem hægt er að
hafa í heimahúsi. Engin sérkunnátta. Upplagt
fyrir vaktavinnumenn, sem hafa langan frítíma
og vilja auka tekjurnar. Verð aðeins kr. 700 þús.
Tískuvöruverslun
Mjög þekkt tískuvöruverslun með kvenfatnað til
sölu ásamt mikið af viðskiptasamböndum. Eigin
innflutningur. Fæst á ótrúlega góðu verði ef
samið er strax. Þú getur eignast búðina bara
með desembersölunni.
Kaffistofa
Bjóðum mjög ódýra kaffistofu sem einnig selur
skyndibitamat. Upplagt fyrirtæki fyrir tvær sam-
hentar manneskjur. Vegna veikinda eiganda
þarf að selja strax og því fæst það mjög ódýrt.
Laust strax.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
mrfTinrjiTrmviTTi
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
I
í
»
»
t
i
»
»
I
L
»
I
I
»
Í
»
»
I
»
.