Morgunblaðið - 01.12.1994, Qupperneq 10
.10 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Fasteignaeigendur í Reykjavík greiða 0,15% holræsagjald í fyrsta sinn á næsta ári
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að holræsagjald-
ið, sem í fyrsta sinn verður lagt á
eigendur fasteigna í Reykjavík á
næsta ári, fari óskipt til holræsa-
framkvæmda á vegum borgarinnar,
en á næstu tíu árum er áætlaður
kostnaður við slíkar framkvæmdir
að meðaltali um 700 milljónir króna
á ári.
Borgarstjóri segir að gjaldið skili
borgarsjóði um 550 milljónum
króna á ári, en það verður 0,15%
af fasteignamati og leggst það
bæði á íbúðarhúsnæði og atvinnu-
húsnæði. Sem dæmi má nefna að
fyrir íbúð sem metin er á sjö milljón-
ir króna verður gjaldið tíu þúsund
krónur. Árni Sigfússon, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
kallar holræsagjaldið klósettskatt,
og segir hann samanburð á milli
sveitarfélaga sýna að engin þörf sé
á þessum aðgerðum nema til þess
eins að íjármagna loforðalista R-
listans.
Mishátt gjald
Holræsagjald er nú lagt á í 26
af 31 kaupstað á landinu, en auk
Reykjavíkur er það ekki lagt á í
Neskaupstað, Dalvík, Vestmanna-
eyjum og á Seltjarnarnesi. Hvað
önnur sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu varðar eru álagningarregl-
ur þær fyrir árið 1994 að í Kópa-
vogi er lagt á 0,13%/holræsagjald,
í Garðabæ 0,07%, í Hafnarfirði 0,1%
og í Mosfellsbæ 0,1%. Árið 1993
var álagningin í Kópavogi 0,13%, í
Hafnarfirði 0,1% í Mosfellsbæ
0,15% og í Garðabæ 0,15%, en þar
var lagt á sérstakt holræsagjald frá
1987 til sjö ára til að standa undir
framkvæmdum við holræsagerð.
Kostnaður vegna framkvæmda
við holræsagerð á vegum Reykja-
víkurborgar hefur undanfarin ár að
mestu leyti verið ijármagnaður með
lántökum, og nú í árslok nemur
kostnaðurinn tæplega _____________
1.900 milljónum króna.
Áætluð heildarfjárfesting
Reykjavíkurborgar í hol-
ræsamálum á næstu 12
árum er hins vegar áætl-
uð tæplega 8,5 milljarðar króna,
og er þá meðtalinn vaxtakostnaður
og afborganir af þeim lánum sem
sérstaklega hafa verið tekin vegna
þessa verkefnis.
Gjaldið er innheimt
í 26 af 31 kaupstað
Mætti ná 6%
sparnaði með
hagræðingu
Holræsagjald er inn-
heimt í flestum kaup-
stöðum. Borgarstjóri
segir það ganga óskert
til holræsamála.
Oddviti sjálfstæðis-
manna segir það
fjármagna
kosningaloforð
R-listans.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði
í samtali við Morgunblaðið að hún
liti svo á að þó um fasteignaskatt
sé að ræða sé holræsagjaldið ekki
skattur í þeirri merkingu að nota
megi hann til hvers sem er, heldur
eigi einungis að nota gjaldið til að
greiða kostnað vegna holræsagerð-
ar. „Ef við hefðum hins vegar farið
eins að og Kópavogur ætlar að
gera og hækkað útsvarsprósentuna
úr 8,4% í 9,2% þá hefði það skilað
okkur um 750 milljónum, en við
tókum hins vegar þá ákvörðun að
hækka útsvarið ekki,“ sagði hún.
Aðspurð um hvert holræsagjaldið
væri reiknað á hvern íbúa í höfuð-
borginni sagði hún að slíkir útreikn-
_________ ingar lægju ekki fyrir.
Aðspurð hvort borgar-
stjórnarmeirihlutinn væri
að afla fjármagns með
holræsagjaldinu til þess
að greiða niður skuldir
borgarinnar sagði Ingibjörg Sólrún
svo ekki vera, því meira og minna
allt það fé sem innheimtist með
þessum hætti færi til holræsafram-
kvæmda.
„Við erum á næsta ári með slík-
ar framkvæmdir upp á 400 milljón-
ir króna og árið 1996 sjáum við
fram á að kostnaðurinn verði allt
að milljarður vegna þess að þá kem-
ur dælu- og hreinsistöð á Mýrar-
götu inn af fullum þunga. Áfallinn
kostnaður vegna holræsamála er í
árslok um 1.850 milljónir, en mest
af því er fyrir lánsfé. Á næstu árum
verðum við að greiða í vexti og
afborganir vegna þessara lána sem
tekin hafa verið 1.620 milljónir. Það
er partur af þessum vanda sem við
erum að takast á við,“ sagði hún.
Aðspurð um hvort fyrirhugaðar
væru einhveijar fleiri álögur á borg-
arbúa eða gjaldahækkanir sagði
Ingibjörg Sólrún að svo væri ekki.
„En auðvitað skoðum við sjálf-
sagt eins og öll sveitarfélög á land-
inu eru að skoða allar sínar gjald-
skrár og ýmislegt slíkt, en öll eigum
við við verulegan fjárhagsvanda að
etja og ekki síst við hér í Reykjavík
þar sem reksturinn er farinn að
taka nánast allar tekjumar. Við
erum semsagt að skoða alla mögu-
leika og sumt hlýtur svo náð fyrir
augum okkar og annað ekki. Það
kemur bara í ljós. En það er ástæða
til að hafa það í huga að það eru
nánast öll sveitarfélög í landinu sem
leggja á holræsagjald."
Holræsagjald
kom aldrei til álita
Ámi Sigfússon sagði í-samtali
við Morgunblaðið að á meðan Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði __________
verið í meirihluta í borg-
arstjóm hefði aldrei kom-
ið til álita að leggja á
holræsagjald til að standa
undir kostnaði við fram- “““““
kvæmdir í þeim málaflokki. Litið
hafi verið á slíkar aðgerðir sem
skattahækkanir og sjálfstæðismenn
hefðu lagt áherslu á að Reykvíking-
ar nytu lægstu skatta. Hann sagði
1.620 milljón-
ir í afborganir
og vexti lána
að það væri mikill misskilningur
sem fram hefði komið að þessi að-
gerð R-listans væri til þess að
greiða upp skuldir borgarinnar,
heldur væri hún til þess að fjár-
magna nokkur af kosningaloforðum
R-listans.
„Það er búið að blása fjármál
borgarinnar úr öllu samhengi við
það sem er að gerast hjá öðrum
sveitarfélögum. Það mætti halda
að hér sé staðan langverst og þess
vegna þurfi að bregðast við með
svona harkalegum hætti að skatt-
leggja borgarbúa. Samkvæmt nýút-
kominni Árbók Sambands íslenskra
sveitarfélaga skuldar Reykjavík
árið 1993 94.800 kr. á hvern íbúa,
en aðrir kaupstaðir skulda að með-
altali 115.700 kr. Samt eru skatt-
tekjur okkar undir landsmeðaltali.
Líka kemur fram að greiðslubyrði
lána á íbúa er 23% af landsmeðal-
tali í Reykjavík en 168% hjá öðrum
kaupstöðum. Auðvitað hafa þessi
hlutföll versnað í Reykjavík rétt
eins og hjá öðrum kaupstöðum frá
1993. En að halda því fram að
Reykjavík sé í einhverjum sérstök-
um vandræðum og að fárast yfir
fortíðarvanda er léleg afsökun sem
enginn sveitarstjórnarmaður getur
tekið mark á,“ sagði Ámi.
Hann sagði að með aukinni hag-
ræðingu í rekstri borgarinnar mætti
ná um 6% sparnaði, eða um 600
milljónum króna. Hann vildi hins
vegar ekki nefna nein ákveðin dæmi
um hvar mögulegt væri að ná fram
þeirri hagræðingu þar sem hann
vildi ekki leggja hugmyndir sjálf-
stæðismanna á borðið fyrir R-list-
ann. Aðspurður hvort það væri ekki
borgarbúum í hag að slíkt kæmi
fram sagði Árni að það ætti eftir
að koma í ljós í tengslum við fjár-
hagsáætlun borgarinnar hvernig
minnihlutinn í borgarstjórn vildi
taka á þessum málum.
„Þessi ákvörðun um að skatt-
leggja með þessum
hætti, þ.e. að taka skatt
af íbúðareign fólks, er
mjög vafasöm. Það er
ekki verið að miða við
tekjurfólksheldureignir,
og þetta kemur verst niður á öldruð-
um og barnmörgum fjölskyldum
sem eru eðlilega í stærra húsnæði.
Þetta er klósettskattur sem er ofan
á allt illa hugsaður,“ sagði Árni.
Einbýlishús til sölu
Þessi fallegu vel fyrir-
komnu einbýlishús við
Starengi nr. 108,110 og
112 (næsta gata við
golfvöllinn á Korpúlfs-
stöðum) eru til sölu.
Fullfrágengin að utan, en
tilbúin að innan undir
gólfefni.
Stærð:
130 fm + bílskúr 35 fm.
Þetta eru timburhús, lóð
er jöfnuð og hiti í
gangstíg og bílastæðum.
Nr. 108, sem er
endahús, verður komið
með hitalögn þann
31.12.1994.
Til afh. 1. mars 1995.
Verð aðeins kr. 13 millj.
Sótt hefur verið um hús-
bréf og beðið eftir þeim.
Allar frekari upplýsingar að Smíðsbúð, Garðabæ,
sími 656300, Sigurður Pálsson.
Skagaströnd
Stúlkur og bam björg- ;
uðust úr sökkvandi bíl
TVÆR systur, Bjamey Gunnarsdótt-
ir, 14 ára, og íris Gunnarsdóttir, 17
ára, og 7 mánaða sonur írisar, Garð-
ar, björguðust í land á Skagaströnd
á sunnudag eftir að hafa lent út í
sjó á bíl föður systranna.
Beint fram af
grjótgarðinum
Bjarney segir að þær systur hafi
verið að keyra eftir götu sem liggur
í beygju við sjóinn. „Garðar var
orðinn órólegur í bílnum og við fórum
að leita að snuðinu hans. Þá sáum
við allt í einu að við vorum á leiðinni
út úr beygjunni og út í sjó, nokkurn
veginn beint fram af gijótgarðinum.
Ég fór strax og leysti strákinn, íris
tók hann meðan ég opnaði dyrnar
mín megin, hún rétti mér hann og
ég synti með hann í land.
íris ætlaði að koma á eftir mér
en dyrnar lokuðust á hana og hún
þurfti að hamast á hurðinni sin meg-
in til að komast út. Ég náði að halda
Garðari upp úr þannig að hann fór
aldrei alveg ofan í vatnið. Ég hljóp (
inn í einhvern bíl og reyndi að hlýja
stráknum. Svo kom vinkona írisar
og keyrði okkur heim og svo kom I
íris rétt á eftir. Ég fann eiginlega
ekkert fyrir kuldanum fyrr en ég fór
að klæða mig úr,“ segir Bjarney.
Bíllinn í kaf
Bjamey segir að engin vitni hafi
orðið að óhappinu. Bíllinn fór að lok-
um að mestu leyti á kaf í vatn, að-
eins sást í toppinn. Hann var dreginn ,
upp úr sjónum og er rafmagnskerfið
í honum ónýtt en bílinn óskemmdur '
að mestu að öðru leyti. |
Miðvangur 8 - Hafnarfirði
Nýkomin í einkasölu falleg 3ja herb. íbúð á efstu hæð
(3. hæð) á eftirsóttum útsýnisstað í Norðurbænum.
Sérþvottahús. Gufubað og frystiklefi. Suðursvalir.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.