Morgunblaðið - 01.12.1994, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
CftLoRE
Mótmæla fj árlögum
BRESKIR ellilífeyrisþegar, annar klæddur í jólasveinaskrúða,
mótmæltu fjárlagafrumvarpi sljórnar Johns Majors forsætisráð-
herra, fyrir framan þinghúsið í London. Af spjöldunum sem
þeir bera má ráða að þeir séu ekki ánægðir með fjármála-
stefnu stjórnarinnar.
Berlusconi leiðist
London. The Daily Telegraph.
SILVIO Berlusconi forsætisráðherra
Ítalíu á í vök að veijast en mun þó
ugglaust berjast fyrir pólitísku lífi
sínu. Af samtali sem birtist við hann
í janúarhefti bandaríska tímaritsins
Vanity Fair má þó ætla að endalok-
in á pólitíska ferlinum séu í nánd
því forsætisráðherrann sýnir þar
mörg merki þess að hann sé að fara
á taugum.
í viðtalinu er hot'fið hið annálaða
sjálfstraust Berlusconis. í staðinn
er hann sokkinn á bólakaf í sjálfsvor-
kunn. Hann segir að ekki sé hægt
að lýsa því hversu óbærilegt það sé
að vera forsætisráðherra.
Hann rifjar upp að þegar menn
þekktu hann einungis sem auðkýfing
og sjónvarpsjöfur var hann „vinsæl-
asti maður Italíu." En „um leið og
ég ákvað að hella mér út í stjórn-
mál byijaði að halla undan fæti og
menn snerust gegn mér.“
„Ég breytti til hins verra,“ segir
hann. „Ástandið er ótrúlegt. Allir
veitast að mér, dómararnir, blöðin
og atvinnurekendur."
Þverrandi virðing
Margir halda því fram að ástæðan
fyrir því að Berlusconi sóttist eftir
starfi forsætisráðherra hafi verið að
hann vildi bjarga eigin fjölmiðlaveldi
frá þeirri ógn sem því stafaði af
vinstri stjórn. Sjálfur segist hann
hafa ákveðið að færa fórnir til þess
að bjarga þjóð sinni.
Berlusconi naut ómældrar virðing-
ar sem forsvarsmaður risasamsteypu
og virðist ekki botna í því hvernig
komið er fyrir honum nú. Það er eins
og hann sé búinn að gleyma því að
hann á flestar einkareknar sjónvarps-
stöðvar Ítalíu og ræður yfir ríkis-
ijölmiðlunum. Þetta á einnig við er
hann veður elginn og veitist með gíf-
uryrðum að íjölmiðlum.
„Sjáið hvernig komið er fyrir
mér,“ segir hann í viðtalinu. „Meira
en helmingur þess sem sagt er um
herra Berlusconi er þvaður. Lygar
og aftur lygar, linnulausar lygar.“
Hann segist hafa unnið kosningarn-
ar þrátt fyrir blöð og sjónvarp.
Berlusconi átti þægilega daga
áður en hann varð forsætisráðherra.
ítrekað segist hann ekki njóta nýja
starfsins. Hann þurfi nú að leika
rullur sem honum leiðist, svo sem
að flytja ræður á þingi, taka á móti
útlendum fyrirmennum og standa
frammi fyrir sjónvarpsmyndavélum.
Dómgreindarleysi
Rekja má óvinsældir Berlusconis
að minnsta kosti að hluta til þeirrar
djörfu ákvörðunar hans að draga
úr ríkisútgjöldum, m.a. lífeyris-
greiðslum. Hann hefur hins vegar
sýnt áberandi dómgreindarleysi
með því að reyna að binda hendur
rannsóknardómara sem reynt hafa,
við miklar vinsældir almennings,
að uppræta spillingu og mútustarf-
semi.
Berlusconi komst m.a. til valda
vegna loforða um að ganga til liðs
við rannsóknardómarana í því að
uppræta spillingu. Reyndin hefur
orðið önnur, nú keppist hann við að
veija kaupsýslumenn sem mútað
hafa stjórnmálamönnum eða emb-
ættismönnum.
Þegar Berlusconi ákvað skyndi-
lega að snúa sér að stjórnmálum
reyndi áhrifamikiil vinur hans að fá
hann ofan af þeirri ákvörðun. Svar
auðkýfingins var að hann væri orð-
inn þreyttur á að vera Silvio Berlusc-
oni fjölmiðlajöfur og vildi breyta til.
Nú virðist hann einnig vera orðinn
þreyttur á Berlusconi forsætisráð-
herra.
FRABÆRT
VERÐ
1.041.750
kr. án vsk.
Eigum nokkra bíla á þessu einstaka
verði til afhendingar strax
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
GRRCE
Hyundai Grace er mjög
rúmgóður og aflmikill
sendibíll sem hefur vakið
athygli um allan heim og
fengið góðar viðtökur á
íslandi. Enda ekki furða því
verðið skapar honum algjöra
sérstöðu á markaðinum.
Vél..........2,4 lítra
Hestöfl.........122
Lengd........4,74 m
Hæð.......... 1,97 m
Breidd........ 1,69 m
Flutningsrými ... 5,8 m3
.til framttðar
Franco einráður
fram í andlátið
VITAL Aza, einn úr
hópi rúmlega 20
lækna sem önnuðust
Francisco Franco,
einræðisherra Spán-
veija í meira en 35
ár, hefur nú skýrt frá
einþykkni fasistaleið-
togans er ljóst var að
dagar hans voru tald-
ir. Franco lést 1975,
hann var þá 83 ára
að aldri og hafði verið
meðvitundarlítill síð-
ustu vikurnar vegna
endurtekinna hjarta-
bilana en dauðastríðið
var langt.
Fyrst í stað var
reynt að leyna sannleikanum,
þjóðinni var sagt að Franco væri
með slæmt kvef. Þótt læknarnir
væru sannfærðir um að Franco
væri dauðvona krafðist hann þess
að fá að sitja ríkisstjórnarfund og
hundsaði andmæli þeirra. Lækn-
arnir ráðlögðu þá að hann sæti
a.m.k. í hjólastól en hann lét sig
hvergi og sat í sínum hefðbundna
stól fyrir enda borðsins. Leiðslur,
sem faldar voru undir einkennis-
búningnum, lágu frá stólnum eftir
gólfinu og inn í næsta sal þar sem
læknarnir gátu fylgst með hjart-
slætti leiðtogans á skjám.
Síðar ákváðu læknarnir að ekki
yrði komist hjá að-
gerð. Einræðisherr-
ann harðneitaði að
yfirgefa heimili sitt,
E1 Pardo-höllina
skammt frá Madrid og
var því ekki hægt að
skera hann upp á ný-
tísku sjúkrahúsi.
Ákveðið var að nota
gamalt sjúkraskýli
varðliðs hallarinnar.
Innanstokksmunir
voru harla fornfálegir.
Undirbúningur virðist
einnig hafa verið lé-
legur því að aðeins var
til eitt handklæði, það
var ekki einu sinni
hreint en var samt notað til að
breiða yfir gamla manninn á
skurðborðinu. Áður höfðu menn
orðið að vefja um hann teppi og
klöngrast með sjúklinginn niður
þröngan stiga er lá frá svefnher-
berginu; ekki reyndist unnt að
koma við sjúkrabörum í stiganum.
Ljósin slokknuðu skyndilega í
skýlinu og ræsa varð rafvirkja.
Honum tókst að koma í gang neyð-
arrafstöð. Einn skurðlæknanna
fékk raflost er hann stóð á röku
gólfinu og skrúfaði peru í stæði.
Franco lifði í tvær vikur eftir
uppskurðinn. Fáeinum árum síðar
varð Spánn lýðræðisríki.
Franco
Framftiðin er þvottatölva
sbr. skrifstofutölva.
Miele EIRVÍK
heimilistæki hf.
Suðurlandsbraut 22,108 Reykjavík, sími 91 -880200.