Morgunblaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Elskulegur bróðir minn,
KRISTJÁN SÖLVASON,
Skógargötu 8,
Sauðárkróki,
lést í Sjúkrahúsi Skagfirðinga, Sauðárkróki, 29. nóvember.
Kristín Sölvadóttir.
t
Konan mín, móðir, dóttir, systir. og tengdadóttir,
SÓLEY EIRÍKSDÓTTIR,
lést í Borgarspítalanum 29. nóvember.
Jón Axel Björnsson, Brynja Jónsdóttir,
Bryndfs Sigurðardóttir, Eiríkur Smith,
Smári Eiríksson,
Unnur Jónsdóttir, Björn Guðmundsson.
Elin Jónsdóttir, Haraldur J. Hamar.
t
Okkar elskulega
SVANDÍS SIGURÐARDÓTTIR,
Auðarstræti 15,
Reykjavik,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 29. nóv-
ember síðastliðinn.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Ásta Gunnarsdóttir,
Sesselja Eiriksdóttir.
Elskulegur faðir okkar og tengdafaðir,
ÞORBERGUR BJARNASON,
Hraunbæ,
Álftaveri,
verður jarðsunginn frá Þykkvabæjarklausturskirkju laugardaginn
3. desember kl. 14.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Börn og tengdabörn.
t
Móðir okkar,
INGVELDUR EYJÓLFSDÓTTIR
frá Hvoli,
Hátúni 10,
VfkfMýrdal,
verður jarðsungin frá Skeiðflatarkirkju
laugardaginn 3. desember kl. 14.00.
Dætur hinnar látnu.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir, tengdamóðir og amma,
ALMA KAREN FRIÐRIKSDÓTTIR,
sem lést þann 25. nóvember sl., veröur
jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugar-
daginn 3. desember kl. 14.00.
Jón A. Snæland,
Kristín G. Snæland Jónsdóttir,
Friðrik Kristján Jónsson, Anna Margrét Jónsdóttir,
Sigurbjörn Arnar Jónsson,
Kristfn Sigurbjörnsdóttir
og barnabörn.
MARGRÉT G.
MAGNÚSDÓTTIR
+ Margrét Guðrún
Magnúsdóttir
fæddist á Brekku í
Langadal hinn 9.
júní 1932. Hún and-
aðist á Landakoti 22.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Magnús Jensson
bóndi, og kona hans,
Jensína Arnfinnsd-
ótir húsfreyja á
Brekku. Margrét
var í miðri aldursröð
níu barna þeirra
hjóna. Son misstu
þau tveggja ára að
aldri. Af börnum þeirra hjóna
eru sex enn á lífi. Margrét gift-
ist árið 1952 Matthíasi Bjarna-
syni, f. 24. janúar 1926, verzlun-
armanni. Börn þeirra eru: 1)
Jenný, f. 24.' ágúst 1952, BA,
gift Asgeiri Torfasyni flugstjóra
hjá Cargolux. Þau Jenný eiga
saman Veru og Matthias. Fjöl-
skyldan býr í Lúx-
emborg. Frá fyrra
hjónabandi á Asgeir
tvö börn. Einnig átti
Jenný fyrir Onnu
Margréti Birgisdótt-
ur, nema í arkitekt-
úr. 2) Bjarni, f. 8.
október 1953, hús-
gagnasmiður,
ókvæntur. 3) Erna,
f. 27. september
1957, hjúkrunar-
fræðingur, gift
Gunnari Inga Gunn-
arssyni lækni. Þau
eiga soninn Gunnar
Þorbjörn. Aður átti
Gunnar Ingi fimm börn frá fyrri
hjónaböndum. Einnig átti Erna
fyrir Daníel Jónsson. 4) Jónas,
f. 11. desember 1959, rafeinda-
virki. Hann býr í Þýskalandi í
sambúð með Inge Elisabet Möll-
er. Frá fyrra hjónabandi á Jónas
soninn Andra. Útför Margrétar
fer fram frá Bústaðakirkju í dag.
EF MANNI væri gefið aðeins eitt
tækifæri til að hafa bein og óbein
áhrif á veraldargæfu sína fyrir eig-
in getnað, kæmist ekkert nálægt
því að vera jafn mikilvægt og það
að velja sér fæðingarveginn inn
þetta líf - og þar með móður sína.
Hin fyrirfram valda móðir sæi auð-
vitað um að velja manni skikkanleg-
an pabba. Slíkur valkostur yrði lífs-
ins stærsti.
Hún Margrét Guðrún Magnús-
dóttir tengdamóðir mín, sem ég
kveð í dag, var einmitt þannig kost-
um gædd, að ég hefði hiklaust get-
að hugsað mér að velja hana fyrir-
fram sem móður mína. Á því þurfti
ég hins vegar ekki að halda, því
ég kom annan veg og var ámóta
heppinn.
Margrét, eða Magga, eins og hún
var eðlilega kölluð, fæddist að
Brekku í Langadal innaf botni ísa-
ijarðardjúps, þann 9. júní 1932. Á
þeim bæ, sem nú er í eyði, átti hún
langar fjölskyldurætur. Þeim Jens-
ínu og Magnúsi foreldrum Möggu
varð 9 barna auðið. Eitt þeirra,
drengurinn Jens, dó aðeins tveggja
ára gamall. Af systkinum eru 6 enn
á meðal okkar. Það hefur verið líf-'
legt á sínum tíma að Brekku með
barnaskarann og allan gestagang-
inn við þjóðbrautina, sem lá eftir
dalnum af heiðum ofan.
Árið 1945 fluttist fjölskyldan frá
Brekku að Hamri í Nauteyrar-
hreppi, nokkrum kílómetrum norð-
ar. Þar var þá nýlátinn föðurfóstri
Möggu, en Magnús hafði einmitt
notið umsjár fósturforeldra að
Hamri frá 6 ára aldri. Þannig flutt-
ist Magnús eiginlega aftur heim á
æskustöðvar með fjölskyldu sína.
Sagt hefur verið að Magnús hafi
alist upp í barnaskara að Hamri á
sínum æskuárum, enda er talið að
hinir barnlausu fósturforeldrar
hans hafi tekið að sér alls 25 til
30 börn í lengra eða skemmra fóst-
ur. Ekki er þvi að undra, að Magga
og hennar systkini hafi fundið hjá
foreldrum sínum næman skilning á
grundvallarþörfum barna í mótun
og uppvexti. Magnús hefur einnig
lært hjá fóstra sínum, fyrir utan
allt annað að tryggja fjölskyldunni
örugga veraldlega afkomu - auðvit-
að án alls íburðar. Magnús var oft-
ast aflögufær með hey og ekki
t Okkar elskulegi JÓN EINAR GUÐJÓNSSON blaftamaður, til heimilis á Assiden Terrasse 36c, pnr. 1160, Ósló, lést í Ulleval sjúkrahúsinu fimmtudaginn 24. nóvember sl. Jarðarförin fer fram frá Nord Strand kirkju í Ósló þriðjudaginn 6. desember. Ingvild Svendsen, Sindri J. Einarsson, Freyr J. Einarsson, Kolbeinn Helgason, Sigríður Jónsdóttir, Ríkharð Jónsson, AnjaJónsson, Þorvaldur Jónsson, Rósa M. Sigurðardóttir.
t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGURDÍS SÆMUNDSDÓTTIR, Sunnuflöt 30, Garðabæ, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. desember kl. 15.00. Jóel Sigurðsson, Dóra Jóelsdóttir, Snorri Jóelsson, Jóel Jóelsson, Gerður Jóelsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn.
ERFIDRYKKJUR ^ Bjóðum uppá qlœsileqt MOyODCDP Itaffiklaðtopð á 750 L pp. mann ÍIHNHBhltb Glœsilequp veislusalup á qóðum stað Lágmúla 4, slmi 886040
skorti mat. Við slík ytri skilyrði
voru börnin umvafin ástúð og um-
hyggju ásamt hæfilegum aga. Er
hægt að auka mannleg lífsgæði eitt-
hvað umfram þetta - í nýbyggðu
húsi að Hamri, þar sem hægt er
að sitja við eldhúsgluggann og
skoða eitthvert fegursta sjónarspil
móður náttúru, þegar sólin lendir
mjúklega í allri sinni dýrð á hafflet-
inum við mynni Djúpsins? Eru til
betri uppeldisstöðvar fyrir ungviði
í mótun, en hér hefur verið lýst?
Að aldri til var Magga einhvers
staðar í miðjum systkinahópnum.
Hún varð hins vegar gerandinn og
stóð því framar sem því nam. Hún
varð snemma snyrtileg og naut
þess að klæða sig skarti. Hún ól
með sér sjálfsvirðingu og góðan
aga.
Magga sótti barnaskóla að
Reykjanesi og lauk gagnfræða-
skólanámi á ísafirði árið 1948.
Stuttu síðar tilkynnti Jensína
mamma hennar og Kristínu systur
hennar, að búið væri að ráða þær
systur í vist í Reykjavík. Málið var
engum sent til umsagnar. Þannig
stjórnaði Jensína. Svona ákvörðun
átti ekkert skylt með forræðis-
hyggju. Þetta var sjálfsagt fram-
hald af heimafengnu uppeldi „djúp-
sálarfræðinnar". Það var kominn
tími til að ýta systrunum úr höfn.
í Reykjavík kynntist Magga eft-
irlifandi eiginmanni sínum, Matthí-
asi Bjarnasyni, verzlunarmanni.
Þau gengu í hjónaband í desember
1952. Eins og áður sagði var Möggu
alveg treystandi til að finna sér
heppilegan maka. Sjálf falleg, ung
kona með velmótaða sjálfsvirðingu
og þroskaðan fegurðarsmekk úr
myndaseríu náttúrufegurðar allra
árstíma úr Djúpinu, þannig hlaut
hún að velja sér myndarlegan og
traustan lífsförunaut. Og það varð
Matthías Bjarnason.
Með aðdáunarverðum dugnaði,
samheldni og eljusemi hafa þau
hjónin komið til manns 4 börnum,
fyrst til heimilis á Vesturgötu 65a,
en síðar byggðu þau sér glæsilegt
heímili í Búlandi 29.
Hin persónulega arfleifð Möggu
úr foreldrahúsum kom vel fram í
umhyggju hennar og alúð í garð
afkomendanna. Hún skildi vel þarf-
ir þeirra og sinnti þeim vel. Hún
bauð þeim uppá þá auðlegð, sem
felst í öruggum og viðvarandi að-
gangi að skynsamri og hjartahlýrri
móður. Magga skiidi vel' gildi
menntunar og tryggði börnum sín-
um þann þáttinn. Hún var nútíma-
leg í hugsun og raunsæ. Hún var
móðirin og amman, sem reyndist
öllum vel, enda gædd þeim kostum
sem gerir slíkar konur dýrmæta
uppalendur.
Ekki hafði ég þekkt Möggu í
mörg ár, þegar hún greindist með
það illkynja mein, sem hefur nú
borið hennar annars hrausta líkama
ofurliði. Þó kynntist ég Möggu nógu
vel til þess að læra að meta hennar
eiginleika og kosti. Magga var
hörkudugleg kona. Hún var fagur-
keri mikill og snyrtimenni. Hún var
smekkleg og kurteis, en stóð fyrir
sínu og gerði tilkall til hins sama
hjá öðrum. Það var afar erfitt fyrir
ástvinina að fylgjast með hrörnandi
heilsu þessarar stoltu konu mánuð-
um saman. M.a. vegna lömunar í
barka, átti hún í mestu erfiðleikum
með öndun svo til allan tímann.
Hún bar sjúkdóm sinn því í æðru-
leysi, þrátt fyrir allt, og gaf sig
ekki fyrr en í fulla hnefana. Að
lokum var hún leyst úr prísund sinni
að kvöldi dags, þann 22. nóvember
SJÁ BLS. 52
Minniiigarsióður
Skjóls
Sími 688500