Morgunblaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
Skátarnir og íslenski fáninn
almenningi meðferð fánans. Hann
segir: „Þegar tækifæri gafst fyrir
skátana (Skátafélagið) Væringja
að fá eigin fána, þá langaði mig
að stuðla að því veikum kröftum
að samskonar tilfinning kæmi í
huga ykkar skátafélagar mínir og
að þið yrðuð forystumenn í því að
fá þjóðina til að skilja það hvaða
þýðingu fáninn hefur fyrir hana og
kenna henni að elska hann og virða.
Ég gjörði það sem einfaldast, bjó
út íslenskan fána í samræmi við
konungsúrskurðinn frá 19. júní
ÞEGAR íslendingar fengu fána
sinn 19. júní 1915 var það mikið
fagnaðarefni skáta og fór saman
áhugi á sjálfstæðisbaráttunni og
stolt yfir nýfengnu þjóðarmerki.
Axel V. Tulinius skátahöfðingi seg-
ir í grein um fánann og skátana,
sem hann ritaði árið 1937, að deila
mætti um það hvor væri fegurri
bláhvíti fáninn, eða núverandi fáni
okkar. „Mér fannst fyrir mestu að
við íslendingar eignuðumst okkar
eigin fána, því að mér fannst þjóðin
‘ ekki geta talist fijáls þjóð, ef hún
hefði ekki sinn eigin fána að ganga
undir við öll hátíðleg tækifæri, og
að láta blakta á stöng yfir heimili
sínu á helgum dögum eða tyllidög-
um. Það er ekkert efamál að tilfinn-
ing og ást til þjóðfánans á ekki þær
rætur í þjóðinni hér heima eins og
í öðrum löndum, sem hafa í langan
tíma jafnvel margar aldir átt sitt
þjóðarmerki."
Axel V. Tulinius hafði verið við
nám í Danmörku og kynntist þar
virðingu Dana fyrir fána sínum og
almennri notkun hans. Þegar ís-
lendingar fengu fána sinn vildi
Axel V. Tulinius að skátar gengju
fram fyrir skjöldu og stuðluðu að
virðingu fyrir fánanum og kenndu
*
KOMDU SKATTA-
AFSLÆTTINUM
A KORTIO
Nú býður Skandia hlutabréfá mðgreiöslum til 12 mánaða
Þú þarft ekki lengur að eiga hundruð þús-
unda til að geta keypt hlutabréf og notið
skattaafsláttar í leiðinni. Hjá Skandia
getur þú nú keypt hlutabréf fyrir
125 þúsund krónur - borgað
aðeins 20% út og afganginn
á raðgreiðslum Yisa og Euro
til 12 mánaða. Með slíkum
kaupum færðu 41.840 króna
skattaafslátt sem greiðist í ágúst
á næsta ári.
Þér bjóðast hlutabréf í Almenna hluta-
bréfasjóðnum hf. eða önnur hiutabréf
sem skráð em á Verðbréfaþingi íslands.
Kaup á hlutabréfum em nú góð fjárfesting,
þar sem gengi bréfa er hagstætt og
bjart framundan á hlutabréfá-
markaðnum.
Hafðu samband við Skandia og
kynntu þér þessa nýbreytni í
hlutabréfakaupum.
Rétti tífninn er núna og þú
getur gengið frá kaupunum með
einu símtali.
Nýttu þér skattaafsláttinn og kauptu
hlutabréf á raðgreiðslum.
e k i B
^prSkaiidia
UAUC3AVEGI 170 • SÍMI 61 S7 OO
I
1915, hátíðardegi kvenna á íslandi,
og lét vígja hann eftir útlendum
reglum um fánavígslu og fór sú
athöfn fram sunnudaginn 31. októ-
ber 1915 og bókaði ég hana í dag-
bók Væringja þannig: Sunnudaginn
31. október 1915 fór fram vígsla á
fána Væringja. Fáninn er íslenski
fáninn en fyrir ofan húna stengur-
innar er liljan útskorin af Stefán
Eiríkssyni. Fánaforinginn var Hall-
ur Þorleifsson og merkisberinn
Oddur Tómasson og stóð foringinn
fyrir aftan merkisbera. Séra Bjarni
Jónsson dómkirkjuprestur fór upp
í ræðustólinn og Loftur Guðmunds-
son lék Þú æskuskari á íslands
strönd, en Væringjar sungu. Þá
flutti dómkirkjuprestur afar snjalla
vígsluræðu og skýrði frá því hvaða
þýðingu fáninn hefði og ætíð hefði
haft, brýndi fyrir Væringjum að
bera ást til fánans, vernda hann
og sýna honum heiður. Því næst
blessaði hann fánann. Var fáninn
nú borinn meðfram fylkingunum
og sungið fánalag sem Loftur Guð-
mundsson hafði samið í tilefni þessa
atburðar en Páll V. Guðmundsson
hafði ort ljóðið. Að svo búnu gengu
Væringjar fýlktu liði út á íþrótta-
völl, þar sem Axel V. Tulinius for-
ingi Væringja ávarpaði þá að lok-
um.“ Þessi hvatning Tuliniusar varð
HLAÐ
BORÐ
PIZZAHÚSIÐ
staSur fjölskyldunnar
GRENSÁSVEGI 10, SÍMI 38833
- kjarni málsins!