Morgunblaðið - 01.12.1994, Side 59

Morgunblaðið - 01.12.1994, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 59 25. ÓLYMPÍULEIKARNIR í EÐLISFRÆÐI Erfið keppni afburðaungmenna frá 46 löndum ÞAÐ var árið 1984 sem íslending- um var fyrst boðið að senda lið á Ólympíuleikana í eðlisfræði sem voru það ár haldnir í Sigtuna í Svíþjóð. Síðan þá hafa íslenskir framhaldsskólanemar átt þess kost að keppa árlega í eðlisfræði við jafnaldra sína víðs vegar úr heim- inum. Ekki eru allir á einu máli um ágæti keppni á borð við þessa en því verður ekki á móti mælt að þátttakan í Ólympíuleikunum hefur orðið mikil lyftistöng fyrir eðlisfræði á íslandi. Margir ólymp- íufaranna hafa seinna farið í há- skólanám í eðlisfræði eða skyldum greinum og landskeppnin þar sem um 200 nemendur taka þátt hefur vakið athygli og kveikt áhuga margra nemenda á skemmtilegum viðfangsefnum greinarinnar. Við ramman reip að draga Vissulega er við ramman reip að draga fyrir íslensku nemana þegar þess er gætt að kennsla í raungreinum er mun minni í grunnskólum hér á landi en í flest- um öðrum löndum. í framhalds- skólum er sérhæfingin einnig mun meiri víðast hvar erlendis þannig að stærðfræði- og eðlisfræðinám hér er oft aðeins brot af því sem telst hæfilegt hjá öðrum þjóðum. Reynt hefur verið að undirbúa keppnisliðið sem best með sum- arnámskeiði fyrir keppnina þar sem það er fullt starf frá morgni til kvölds í sex vikur að læra eðlis- fræði, leysa dæmi og gera tilraun- ir. Eðlisfræðingar frá Háskóla ís- lands og Orkustofnun hafa lagt fram mikið og óeigingjarnt starf við þessa þjálfun. Það hefur komið í ljós að erfiðið skilar árangri þótt það geti að sjálfsögðu ekki komið í stað margra ára náms. Fimm íslenskir nemendur fóru til Beijing í Kína nú í sumar til að keppa á Ólympíuleikunum. Það voru þeir Arnar Már Hrafnkelsson, Burkni Pálsson, Gunnlaugur Þór Briem og Stefán Bjarni Sigurðs- son, allir úr MR, og Jóhann Sig- urðsson úr MH. Fararstjórar voru þau Þorsteinn Vilhjálmsson pró- fessor við eðlisfræðiskor Háskóla íslands og Ingibjörg Haraldsdóttir eðlisfræðikennari í MK. Ströng fyrirgjöf Keppnin var frekar erfið að þessu sinni, einkum var fyrirgjöfin ströng og var árangurinn því ekki mjög góður í fræðilega hluta keppninnar. Sú afstaða kínversku dómnefndarinnar að heimta allt eða ekkert og gefa helst ekkert fyrir verkefnin nema þau væru bæði rétt leyst og með þeirri einu aðferð sem þeir sem sömdu dæmin GULLVERÐLAUNAHAFARNIR. höfðu hugsað sér reyndist ekki færa íslensku keppendunum ýkja mörg stig. Þannig töldu kínversku dómararnir að keppandi sem gerði villu í byijun verkefnis ætti ekki að fá nein stig þó útreikningar og röksemdafærsla sem á eftir kæmi væri rétt. Vakti ósveigjanleiki þeirra litla hrifningu hjá fararstjór- unum sem margir hveijir töldu að ekki fengist rétt mynd af árangri keppenda og að með því að setja svo strangar skorður í fyrirgjöf væri auk þess hætta á að ekki yrði umbunað fyrir frumlegar lausnir en það er jú mjög nauðsyn- legt að eðlisfræðingar geti sett fram nýjar frumlegar lausnir á þeim vandamálum sem glímt er við. Kínveijar voru ótvíræðir sigur- vegarar keppninnar. Stigahæsti keppandinn var Kínveijinn Liang Yang en hann fékk 44,3 stig af 50 mögulegum. Hann var lang- hæstur í fræðilega hlutanum og í öðru sæti í þeim verklega á eftir öðrum Kínveija, Jingxiang Rao. Fimm gullverðlaun Vegna þess hve fyrirgjöfin var ströng að þessu sinni fengu færri verðlaun en oft áður. Fimm fengu gullverðlaun, en þau eru veitt fyrir yfir 90% af bestu lausn. í þeim hópi voru auk Liangs tveir aðrir kínverskir nemendur, einn breskur og einn þýskur. Aðeins sex nem- endur fengu silfurverðlaun í keppninni og tuttugu og tveir brons. Kínveijar voru líka lang- hæstir að stigatölu og var meðal- stigatala keppenda kínverska liðs- ins 40,6 stig af 50 mögulegum en þýska liðið var í öðru sæti með 31,4 stig að meðaltali. Eins og nefnt var hér að framan var árang- ur íslensku piltanna í fræðilega hlutanum ekki til að hrópa húrra fyrir. Árangur þeirra var mun betri í verklega hlutanum og náði einn þeirra, Arnar Már Hrafnkelsson, frábærum árangri. Arnar fékk sér- staka viðurkenningu en hann var í 16. sæti af 229 keppendum í verklega hlutanum en þar átti að ákvarða endurkast ljóss frá gagnsæju yfirborði rafsvara og finna óþekkta íhluti í „svörtum kassa“ með raffræðilegum aðferð- um. Gífurlega yfirburði kínversku nemendanna í keppninni má að nokkru leyti skýra með stærð landsins því við setningarathöfnina kom fram að 400 þúsund kínversk- ir nemendur tóku þátt í forkeppn- inni fyrir þessa Ólympíuleika. Til samanburðar má nefna að tæplega 200 íslenskir nemar kepptu í lands- keppninni hér í byijun árs 1994. Keppnin á íslandi 1998 Islendingar hafa nú skuldbundið sig til að halda Ólympíuleikana í eðlisfræði hér á landi sumarið 1998. Það er ljóst að slík fram- kvæmd krefst mikils undirbúnings og gífurlegrar vinnu og er hún raunar þegar hafin. Búast má við að þátttökuþjóðirnar verði allt að 60 en það þýðir að hingað kæmu væntanlega um 300 keppendur og a.m.k. 120 farastjórar. íslendingar eru fámennasta þjóðin sem tekið hefur að sér að halda leikana en ljóst er að hún getur orðið mikil lyftistöng fyrir eðlisfræði í landinu. Það hefur komið fram m.a. í máli háskóla- rektors nýlega að aðsókn að verk- fræði- og raunvísindadeild Háskóla íslands hefur farið dvínandi á und- anförnum árum. Þetta má að nokkru skrifast á reikning þess að raungreinakennslu hefur ekki verið nægilega vel sinnt í íslenskum skólum. Einnig hefur hvatning til nemenda til að velja þessar greinar ekki verið næg. Virk þátttaka okk- ar í keppni á borð við Ólympíuleik- ana er ein þeirra leiða sem hægt er að fara til að glæða áhuga ís- lenskra ungmenna á raunvísindum og tryggja að hér verði ætíð nóg af menntuðu fólki til að halda uppi tæknivæddu nútímasamfélagi. Á Torgi hins himneska friðar Á TORGI hins himneska friðar þar seni engin merki sjást lengur um uppreisn stúdentanna sem var barin niður árið 1989. „Það er þó augljóst ef kínverskir túlkar og fararstjórar eru inntir eftir þeim atburðum að þeir vilja helst ekkert um þá ræða. Kínveijar virðast átta sig á fordæmingu heimsins á þeim ofbeldisverkum sem þarna voru framin og fara því und- an í flæmingi þegar þessa atburði ber á góma“, segir íslenzki fararstjórinn á ólympíuleikunum í eðlisfræði. \ Ekki bara strákagrein i I PORTÚGALSKA liðið sem nú tekur þátt í keppninni í fyrsta sinn. „Andinn í liðinu er góður og strákarnir eru bara ágætir," sögðu Teresa og Claudia. ÞAÐ hefur einkennt ólympíuleikana í eðlisfræði að meginþorri keppenda á þeim eru drengir. í fyrra voru t.d. aðeins fimm stúlkur af um tvöhundr- uð þátttakendum. Hlutfallið var að- eins skárra í ár eða fjórtán stúlkur frá tíu löndum. Tvær stúlknanna fengu viðurkenningu fyrir árangur sinn í keppninni og var íranska stúlk- an Yasaman Farsan í 43. sæti með 24,3 stig sem er mjög góður árangur. Þótt stúlkurnar séu fáar er greini- legt að þær njóta þess engu síður en drengirnir að hafa fengið tæki- færi til að taka þátt í því ævintýri sem Ólympíuleikarnir óneitanlega eru. Keppendur hafa mjög oft lokið prófum frá menntaskóla í heimalandi sínu og framundan bíður háskólanám í eðlisfræði eða skyldum greinum auk þess sem margir hyggja á tónlist- arnám. Það fylgir því alltaf nokkur spenna að velja sér braut í lífinu. Þannig er um Metku Demsar, 18 ára stúlku frá Slóveníu, sem verður nú að velja á milli raunvísindanna og þess að ná frekari árangri á fiðluna sína. „Ég verð að velja því það er vonlaust að ætla að ná toppárangri á báðum sviðum, en valið er vissu- lega erfitt.“ Portúgalar með fyrsta sinni í portúgalska liðinu sem tekur nú þátt í ólympíuleikunum í fyrsta sinn eru tvær stúlkur. Fréttaritari Morg- unblaðsins tók þær Teresu Maríu Freitas og Claudiu Patriciu Cruz tali og spurði þær fyrst hvernig þær hefðu verið valdar til keppninnar. Þær sögðust hafa verið í hópi fimm bestu í landskeppninni enda væru stærðfræði og eðlisfræði þeirra uppá- haldsfög í skóla. Þær stefna báðar á háskólanám í verkfræði næsta vetur. Aðspurðar um það hvers vegna þær teldu að svo fár stúlkur væru með í keppninni sögðust þær telja að þar réðu mestu fordómar fólks um að eðlisfræði væri bara strákagrein. í Portúgal er hlutfall stúlkna í eðlis- fræðideildum menntaskólanna þó mun hærra en í ýmsum öðrum lönd- úm, t.d. hér á íslandi, og sögðu þær að margar vinkonur þeirra hefðu gaman af eðlisfræði. Hins vegar krefðist það gífurlegrar vinnu að ná svo langt að vera valinn í ólympiulið- ið og þær hefðu þurft að leggja tals- vert hart að sér til að ná þeim árangri. Helsta muninn milli kynja varðandi eðlisfræðina töldu þær vera þann að strákarnir væru áhugasam- ari um allt sem tengdist tækninni og þeim tækjum sem notuð væru við eðlisfræðitilraunir á meðan áhugi stúlknanna væri meiri á eðlisfræðinni sem vísindum. Texti og myndir: Ingibjörg Haraldsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.