Morgunblaðið - 01.12.1994, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ_________ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 61
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Hringtorg
á gatnamót-
um Hlíðar-
bergs og
Hamrabergs
Frá Krístni Ó. Magnússyni:
í TILEFNI lesendabréfs í Morgun-
blaðinu föstudaginn 25. nóvember
vil ég benda á eftirfarandi:
Gangstétt sú, sem börnin nota
á leið í skóla, var steypt hinn 7.
október, að undanskildum nokkr-
um metrum, sem ekki tókst að
ljúka vegna annarra framkvæmda.
Kveikt var á götulýsingu í lok
október. Lýsing er á vegum Raf-
veitu Hafnarfjarðar.
Unnið er að gerð nýrrar bið-
stöðvar strætisvagna við Hlíða-
berg, vestan við hringtorgið og er
malbikun og kantsteypu lokið.
Verið er að undirbúa steypu gang-
stéttar. Þegar því er lokið verða
gangbrautir yfir Hamraberg og
Hlíðaberg merktar en fyrr eru eng-
ar fosendur fýrir slíku.
Hafi fólki þótt verkið sækjast
seint er hluta af skýringunni að
leita í því að verktakinn, sem vann
við gerð hringtorgsins, varð gjald-
þrota áður en verkinu lauk. Einnig
var ákveðið að breyta torginu eftir
að kantsteypu var lokið og var þar
komið á móts við óskir frá strætis-
vögnum.
Um þann vilja bréfritara að
tengja framkvæmdir á þessum stað
stjórnmálum er það að segja, að
það sem þarna hefur farið úrskeið-
is af mannavöldum er að mestu á
ábyrgð starfsmanna Hafnar-
fjarðarbæjar en hvorki bæjarstjóra
né nýs meirihluta.
Fyrirsögn lesendabréfsins, „Á
að drepa börnin?“, er kapítuli út
af fyrir sig. Því miður er mjög al-
gengt að fólk ræði umferðarörygg-
ismál í þessum stíl. Það þarf að
mínu viti að vera afskaplega
brengluð manneskja, sem slíkar
ýfirlýsingar hafa jákvæð áhrif á.
Ég þori að fullyrða að slíkt fólk
vinnur ekki að þessum málum hjá
Hafnarfjarðarbæ. Við erum auk
þess boðin og búin að ræða við
bæjarbúa og taka ábendingum um
það sem betur má fara.
Að lokum við ég benda Morgun-
blaðinu á að bréfritari kveðst vera
Guðrún Gísladóttir, Hlíðarbergi 47,
Hafnarfirði. Hlíðarberg er safn-
gata og við hana standa engin
íbúðarhús. í Setbergshverfinu er
enginn með þessu nafni skráður í
(Iju 3,skrá
KRISTINN Ó. MAGNÚSSON,
aðstoðarbæj arverkfræðingur.
-kjarni málsins!
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabið
fæst á Kastrupflugvclli
og Rábhústorginu
Hjartsláttur tímans
Frá Filippíu Kristjánsdóttur:
„DÖGUN við Dagmúla“, ný skáld-
saga eftir Arinbjörn Árnason. Hér
er komin út falleg bók og stórkost-
legt afreksverk, er flytur mér er-
indi sem er hug-
næmt að hugsa
um og leyfa
huganum að
dvelja við, enda
er höfundurinn
enginn nýgræð-
ingur á ritvellin-
um, því eftir
hann hefur oft
birst í blöðum
og tímaritum
margskonar efni
og óbundnu máli
hliðar mannlegs
Arinbjörn
Arnason
bæði í bundnu
um hinar ýmsu
lífs, því fagna ég þessari bók.
Ég staldra við lesturinn og
hlusta á tifið í gömlu klukkunni
minni, ættargripnum, sem er víst
orðin 200 ára gömul. Allt í einu
verður þetta tif klukkunnar að
þægilegum nið mikillar uppgötvun-
ar, ég er með brotasilfur lífsham-
ingjunnar í höndunum, þar hjart-
sláttur tímans er skráður á blöð
þeirrar bókar er ég held á.
Ég legg frá mér bókina, sem
vakið hefur hjá mér þau hughrif
að mér finnst ég skoða í opinberun
svið mikilla atburða horfinna kyn-
slóða. Milli liandanna hef ég lær-
dómsríka sagnfræði, sem auk þess
að vera vel samið skáldverk, er
málið gott og stíllinn spennandi svo
erfitt er að hætta lestri. Þetta er
saga fortíðarinnar, dálítið dularfull
á köflum, sem mér finnst þó gefa
henni slíkt gildi að hún hvetur les-
andann til löngunar að skyggnast
á bak við sviðið.
Undirfyrirsögn bókarinnar er
„Örlagaþræðir á skapbrún“ og
sannarlega er það réttnefni því
þetta er baráttusaga milli tveggja
áhrifasvæða hins mannlega lífs,
milli þess góða og hins illa.
Höfundúrinn er ekki að prédika,
heldur dregur fram sigur lífsins
yfir valdi dauðans. í raun finnst
mér það vera hápunktur sögunnar,
þegar Þorbjörn stórbóndinn í
Hvammi bjargar lífi þess manns,
sem mest böl hafði honum valdið
í lífínu og meira segja rænt hann
með skjalli og flærð æskuunnustu
sinni.
Þessi dularfulla atburðarás er
svo stórbrotin og knýr á hugann
að hugsa um hversu margslungin
lífkeðjan er og tilveran rík af
möguleikum, sem manninum er
gefin til að vinna úr sinn silfurþráð
er hann ber í hendi sér eins og
höf. kemst svo vel að orði í bók
sinni.
Ég tala þó ekki um þá hugljúfu
persónu sem Silla selráðskona er
í sögunni og auðgar alla sem hún
umgengst með þeim auði er hún
ber í sál sinni, og síðar uppsker
sem svo sannarlega var sáð til.
Allar eru persónur sögunnar
sjálfstæðar, hver með sín sérkenni
og bera með sér sín eðlisáhrif og
mannlegar tilfinningar, sem lýsa
þeim bæði í stolti þeirra og smæð.
Þetta er sannarlega góð bók,
sem sómir sér vel í öllu jólabóka-
flóðinu, og eftirsótt lesning til að
leyfa huganum að dvelja við í jól-
afríinu. Eg óska höfundi sannar-
lega til hamingju með góða bók.
FILIPPÍA KRISTJÁNSDÓTTIR.
- ftVCÍKÍ ócttv ctvcliót
ATHLETIC
VERSLUN LAUGAVEGI 5’ S. 1771
OG ENDURBÆTT
BftEVTT
V^SiUfu
HREYSTI
tí K A M S » Æ KT AH V Ó RH R
SKEiFUNNÍ 19 - S; 6B 1/17- FAX: 81 30 íy
*RUSSELL ATHLFTIC
Á ÍSLANDIERÁ
SAMA EÐA LÆGRA
VERÐIOGÍSTÓRA
BRETLANDI, ÞARSEM
VERÐLAG ER MEÐ ÞVÍ
LÆGSTA í EVRÓPU.
SIAÐGRtlÐSLUAf SLATTUR
AÐRIR UTSOLUADILAR
SPORTVER - AKUREYRI STUDIO DAN ISAHRÐI
K SPORT KtFIAVIK
SPORTLÍF SELFOSSI
NINA AKRANtSI
VIÐIAKINN - NESKAUPST.
TÁP OG FJÖR - EGILSST.
SIGLÓ SPORT SIGIUF.
AXL10 VISIMANNAÍI.
KAUPF. BORGF. BORGARN.
SYN SAUÐÁRKRÓK
ORKUVER HÖFN
HLIMAHORNIÐ STYKKISH
Í-SPORT ÍSAHRÐI
FJ01SP0RT HAFNARFIROI