Morgunblaðið - 01.12.1994, Page 62

Morgunblaðið - 01.12.1994, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ 62 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 NÆRFÖT - NÁTTFÖT Aðeins það besta fyrir börnin! Söluaðilar: Hjartað Kringlunni • Rut Glæsibæ Rut Hamraborg • H búðin Garðabæ • Embla Hafnarfirði Perla Akranesi • Amaro Akureyri Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson & Co. hf. sími 91- 24333 »hummel^f í Viðeyjarstofu bjóðum við nú danskt jólahlaðborð að hætti matreiðslumeistara Hótels Óðinsvéa fyrir minni og stærri hópa. Ekkert hús á íslandi er betur til þess fallið að skapa andrúms- loft friðar og hátíðleika en Viðeyjarstofa. Sigling með Maríusúð út í Viðey tekur aðeins 5 mín. Verð: í hádegi 1.890 kr. og á kvöldin 2.590 kr. Lifandi og lystaukandi tónlist. VIÐEYJARSTOFA Upplýsingar og boroapantamr hjá Hótel Oðinsvéum í síma 28470 <)f og 25090 Danskt jólahlaðborð út í eyju I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Erfitt að lifa af bótunum HVERNIG stendur á því að fólk sem dvelur lengur en þrjá mánuði á geðdeild skuli missa örorkubætum- ar og hafa síðan eingöngu tíu þúsund krónur á mán- uði til þess að lifa af? Oft er fólkið svo sent í vinnu sem það engan veg- inn ræður við vegna óþægilegra hugsana, van- líðunar og andlegrar þreytu. Hvernig stendur á því að fólk er útskrifað af geð- deild án þess að eiga í nokkurt hús að venda? Það er skammarblettur fyrir okkar velferðarþjóð- félag að fólk sé á götunni. Ég hvet stjómmála- menn okkar og fólkið í landinu til þess að breyta þessu. Gígja Thoroddsson Gæludýr Kettlingur óskast SEX til átta vikna fress- kettlingur óskast. Upplýs- ingar í síma 92-46638. Kettlingur ÁTTA vikna svört og hvít læða óskar eftir góðu heimili. Upplýsingar í síma 653672. Tapað/fundið Barnahúfa tapaðist HANDPRJÓNUÐ bleik og blá bamahúfa með hvítum útprjónuðum böngsum tapaðist á Stór-Reykjavík- ursvæðinu í byijun sept- ember. Húfan er eigandan- um mjög kær og ef ein- hver kannast við að hafa fundið hana er hann vin- samlega beðinn að hringja í síma 652272. Frakkar víxluðust í Njarðvík SVARTUR kvenfrakki var tekinn í misgripum í safn- aðarheimili Innri-Njarð- víkurkirkju föstudaginn 25. nóvember sl. Svartur herrafrakki var skilinn eft- ir í staðinn. Sá sem tók frakkann vinsamlega hringi í síma 658823, Val- borg, eða í síma 92-16074, Gauja. Lyklakippa tapaðist LYKLAKIPPA með krist- alskúlu, stafnum H og ein- um lykli tapaðist líklega fyrir utan Bónus í Kópa- vogi eða IKEA í Holta- görðum fyrir u.þ.b. ijórum vikum. Finnandi vinsam- lega hringi í síma 93-81221. Kvengleraugu töpuðust KVENGLERAUGU í bládoppóttri umgjörð töp- uðust á Hótel Sögu sl. helgi eða í leigubíl. Finnandi vinsamlega hringi í síma 21026. Farsi átti leik, en B. Shovunov var með svart. 29. Dxd6+! og svartur gafst upp, því eftir 29. — Hxd6, 30. Hxb8+ þá blasir mátið við. Ólympíuskákmótið í Moskvu hefst í dag. íslenska sveitin kom til Moskvu seint á þriðjudagskvöld. Hún er í fyrsta sinn ein- göngu skipuð stórmeisturum. Um helgina: Desember- hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur fer fram á sunnudag- inn kl. 20 í félags- heimili TR, Faxa- feni 12. Sveitakeppni grunnskóla á Akureyri og ná- grenni fer fram laugardaginn 3. Elista í haust. Marat Mak- desember og sunnudaginn arov (2.525) hafði hvítt og 4. desember. SKAK U íii s j 6 n M a r g c i r Pctursson ÞESSI staða kom upp á rússneska meistaramótinu í Víkveiji skrifar... AÐ HEFUR átt sér stað grund- vallarbreyting hjá einstak- lingum hér á landi hvað umhverfis- mál varðar á örfáum árum. Þetta lýsir sér meðal annars í því að sí- fellt færist í vöxt að fólk komi sér upp safnhaugum í görðum sínum þar sem öllu lífrænu sorpi er komið fyrir, rafhlöðum er skilað og rusl flokkað eftir því sem hægt er. En þrátt fyrir þessa viðhorfs- breytingu erum við enn langt á eft- ir flestum nágrannaþjóðum okkar í þessum efnum. Þó að þeim hafi fjölgað verulega sem flokka sorp er alls ekki hægt að segja að það sé viðtekin venja ennþá. Eflaust eru margar ástæður fyrir því. Islend- ingar eru fámenn þjóð í stóru landi og þrátt fyrir hlutfallslega mikla neyslu verður sorpvandinn því ekki eins sýnilegur og hjá stærri þjóðum. Hann er samt sem áður til staðar og á honum verður að taka. XXX ARGT hefur batnað með til- komu Sorpu og gámastöðv- anna sem það fyrirtæki rekur á nokkrum stöðum á höfuðborgar- svæðinu. Þær dugar hins vegar ekki til. Ef það á að verða sjálfsagð- ur hlutur að fjölskyldur flokki frá til dæmis pappír og gler verður að vera auðvelt fyrir fólk að losna við ruslið. í Þýskalandi, þar sem Víkveiji bjó um nokkura ára skeið, var i öllum íbúðahverfum að finna sér- staka gáma þar sem hægt var að henda dagblöðum og glerflöskum. Nær undantekningarlaust var þessa gáma að finna á stöðum þar sem fólk átti hvort eð er leið um nær daglega, t.d. við verslanir. Ef þeir sem með þessi mál fara ætlast í raun til þess að fólk flokki sorp verður að koma á svipuðu fyrir- komulagi hér. Fyrr er ekki hægt að búast við árangri. Víkveiji vill ekki trúa öðru en því að íslendingar beri það mikla virðingu fyrir umhverfi sínu að þeir muni smám saman átta sig á mikil- vægi umhverfismála (líkt og svo margir eru þegar farnir að gera) og taki til hendinni í þeim efnum. Hann vill ekki trúa því að við séum í eðli okkar sóðar. Það kemur þó fyrir að efasemdirnar sækja að Vík- veija. Það er til dæmis sorglegt að sjá af hve miklu virðingarleysi mörg okkar ganga um náttúruna. Öfga- kenndasta dæmið er samt hvernig gengið er um miðbæ Reykjavíkur um helgar. Virðingarleysið fyrir umhverfinu (og eigum annarra) er ekkert þegar ungir (og aldnir) ís- lendingar fara niður í bæ til að „skemmta sér“. Víkverji á bágt með að trúa því að fólk sem á það til að ganga svona um umhverfi sitt geti nokkurn tím- ann borið raunverulega virðingu fyrir því. Það er til nokkuð sem heitir hömlur og þær eiga að vera til staðar hvort sem fólk er að „skemmta sér“ eða ekki. XXX JÓNUSTA á íslenskum veit- ingastöðum er almennt mikið betri en hún var fyrir einungis nokkrum árum og viðmót þjónustu- fólks er oft mun vinalegra en á mörgum erlendum veitingastöðum. Einn ósið mætti þó íslenskt þjón- ustufólk leggja af og það er skoð- analeysið. Það er alltof algengt að þegar gestir spyija nánar um ein- hver atriði á matar- eða vínlista sé svarið að „þetta sé voðalega gott/fínt“. Sama hvað um er spurt. Allt er svo gott. Þetta pirrar Vík- veija þar sem þetta virðist fyrst og fremst lýsa þekkingarleysi á því sem verið er að selja. Auðvitað eru ekki allir réttir eða vín jafngóð eða jafnfín. Það er hlutverk þjónsins að ráðleggja fólki en til að það sé hægt verður hann að hafa skoðan- ir. Víkverja finnst ekkert að því að þjónar segi fólki sannleikann til dæmis að einhver réttur eða eitt- hvert vín sé í sjálfu sér ekki mjög merkilegt en kosti á móti ekki mik- ið og standi því vel undir verði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.