Morgunblaðið - 01.12.1994, Síða 72
Afl þegar þörf krefur!
RISC System / 6000
M <o> NÝHERJI
Whp% hewlett
mL'tíÍ PACKARD
--------------- UMBOÐIO
HPÁ (SLANDI H F
Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Frá möguleika lil veruleika
MORGUNBLAÐIÐ, KltlNGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SlMBRÉF 691181, rÓSTlIÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Atvinnuleysi 4,7% samkvæmt könnun Hagstofunnar
Atvinnuleysisbætur
2,6 milljarðar í ár
Bótaupphæðin nær þrefaldast frá árunum 1990 og 1991
Landsbankinn
3 milljónir
til Þjóðar-
bókhlöðn
LANDSBANKI íslands hefur
ákveðið að færa Landsbókasafni
íslands - Háskólabókasafni gjöf
að andvirði tveggja milljóna
króna, auk þess að greiða allan
kostnað við söfnunarátak stúd-
enta fyrir Þjóðarbókhlöðu, eða
samtals um 2,8 milljónir króna.
Opnunarhátíð Þjóðarbókhlöðu
er í dag.
Landsbankinn verður með
þessum hætti stærsti einstaki
styrktaraðili átaksins og söfnun-
arinnar. Bankinn hefur að auki
styrkt safnið um talsverðar upp-
hæðir seinustu tíu ár. „Við vilj-
um þessu safni mjög vel. Stúd-
entar átta sig á mikilvægi þess
og er átak þeirra að væða safn-
ið bókum afskaplega lofsvert.
Ég er afskaplega ánægður að
vera í þeirri stöðu að geta lagt
átakinu lið svo um munar,“ seg-
Morgunblaðið/Kristinn
GENGIÐ frá merkingu á
Þjóðarbókhlöðu í gær.
ir Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbanka.
Skúli Helgason, fram-
kvæmdastjóri söfnunarátaksins,
segir forvígismenn þess afar
þakkláta fyrir „rausnarskap
Landsbankans og sérstaklega
vil ég nefna þátt Sverris Her-
mannssonar í þessu átaki, en
hann hefur veittþví allan hugs-
anlegan stuðning“.
■ Þjóðarbókhlaða/Bl-8,
bls. 6, leiðari og Safnahúsið/36.
BÚIÐ er að greiða rúma 2,6 millj-
arða króna í atvinnuleysisbætur
það sem af er þessu ári sem er
svipuð upphæð og greidd var í
atvinnuleysisbætur allt árið í fyrra.
Vegna aukningar atvinnuleysis
hefur bótaupphæðin vaxið ár frá
ári og til að mynda nær þrefaldast
frá árunum 1990 og 1991 er bæt-
urnar voru í kringum einn milljarð-
ur króna hvort ár.
Samkvæmt upplýsingum At-
vinnuleysistryggingasjóðs höfðu
21. nóvember verið greiddir út um
2,5 milljarðar króna til atvinnu-
lausra félagsmanna stéttarfélaga
á almennum vinnumarkaði. Til við-
bótar hafði 61 milljón króna verið
greidd til atvinnulausra opinberra
starfsmanna, 47,5 milljónir til fólks
utan stéttarfélaga og 19,5 milljón-
ir til þeirra sem höfðu verið sjálf-
stætt starfandi, en með lagabreyt-
ingum á síðasta ári öðluðust tveir
síðastnefndu hóparnir rétt til at-
vinnuleysisbóta.
Fullar atvinnuleysisbætur eru
46.388 krónur á mánuði og til við-
bótar greiðast 1.856 krónur á
mánuði með hverju bami sem er
undir 18 ára aldri.
Flestir atvinnulausir
meðal ungs fólks
Samkvæmt vinnumarkaðskönn-
un Hagstofu íslands voru 4,7%
vinnuaflsins án vinnu í nóvember,
en það jafngildir því að um 6.900
manns hafi verið atyinnulausir um
miðjan nóvember. í samsvarandi
könnun í nóvember í fyrra mældist
atvinnuleysið 5%, sem jafngildir
7.300 atvinnulausum, en í könnun
í apríl í vor mældist atvinnuleysið
5,9% eða 8.600 manns. Fækkun
atvinnulausra frá því í nóvember
í fyrra er ekki marktæk.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofunni kemur fram að at-
vinnuleysi er hlutfallslega meira
meðal kvenna en karla og hlutfalls-
lega meira á höfuðborgarsvæðinu
en á landsbyggðinni. Eins og í fyrri
könnunum er atvinnuleysi mest
meðal yngri aldursflokka. Mældist
atvinnuleysið 15% meðal 16-19
ára fólks og 7% meðal fólks á aldr-
inum 20-29 ára.
Könnunin var gerð 12.-21. nóv-
ember og var nettóúrtakið 4.272
manns. Svör bárust frá 3.854, sem
jafngildir 90,2% endanlegri svörun.
ÖL í eðlis-
fræði á ís-
landi 1998
ÍSLENDINGAR hafa skuldbundið sig
til að halda Ólympíuleikana í eðlis-
fræði hér á landi árið 1998. Á leikun-
um keppa nemendur framhaldsskóla.
Búast má við að þátttökuþjóðimar
árið 1998 verði allt að sextíu. Það
þýðir að hingað kæmu um 300 kepp-
endur og 120 fararstjórar.
Ólympíuleikamir í eðlisfræði em
umfangsmiklir og undirbúningur
þeirra ekki síður. Til marks um það
má nefna, að 400 þúsund kínverskir
framhaldsskólanemar tóku þátt í for-
keppni þar í landi fyrir Ólympíuleik-
ana sem haldnir vom í sumar. Hér á
landi tóku 200 nemendur þátt í for-
keppninni.
■ Erfið keppni/59
Seðlabankinn hækkar vexti um 0,2-0,8 prósentustig
Fylgir vaxtahækkun
í öðrum löndum
BANKASTJÓRN Seðlabankans hef-
ur ákveðið hækkanir á vöxtum sem
gilda i viðskiptum hans við innláns-
stofnanir frá og með 1. desember.
Vextir á útlánahlið bankans hækka
um 0,2-0,3 prósentustig en á inn-
lánahlið um 0,4-0,8 prósentustig.
Breytingarnar em í samræmi við
breytingar á ávöxtun í viðskiptum
með rikisvíxla á Verðbréfaþingi. Þá
voru hafðar í huga hækkanir sem
víða hafa orðið á skammtímavöxtum
erlendis. Bendir Seðlabankinn á að
samanburður skammtímavaxta hér
og erlendis sé að verða æ mikilvæg-
ari vegna frelsis til fjármagnshreyf-
inga milli landa frá næstu áramótum.
Yngvi Örn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri peningamálasviðs
Seðlabankans, segir að ávöxtun 90
daga ríkisvi'xla hafi hækkað um
0,7-0,8% á Verðbréfaþingi en um
0,4% á 10 daga ríkisvíxlum. Hækkun
sé mismunandi þar sem ekki séu
horfur á mikilli verðbólgu til skamms
tíma litið. Varðandi samanburð við
vexti erlendis benti Yngvi Örn á að
íslenskir aðilar væru byrjaðir að nýta
sér opnun fjármagnsmarkaðarins í
vaxandi mæli. „Við höfum séð tals-
verða aukningu á framvirkum gjald-
eyrissamningum sem byggjast m.a.
á samanburði á vöxtum milli landa.
Með þessari vaxtahækkun erum við
við að reyna að eyða bili sem hefur
verið að myndast undanfarnar vikur
á milli vaxta hér á landi og erlendis."
Aðspurður um hvort hækkun
vaxta Seðlabankans kynni að þrýsta
upp vöxtum banka og sparisjóða
sagði Yngvi Örn að hækkunin væri
að einhveiju leyti komin fram þar.
Morgunblaðið/Júlíus
Harður
árekstur á
Hólmsárbrú
MJOG harður árekstur varð á
brúnni yfir Hólmsá á Suðurlands-
vegi, rétt ofan við Geitháls, laust
efdr kl. 17 í gær. Jeppi sem kom
úr austurátt snerist um leið og
hann kom inn á brúna og lenti
framan á vöruflutningabíl á aust-
urleið. Mikil hálka var á veginum.
Við áreksturinn rifnaði elds-
neytistankur jeppans og flóði
bensín um slysstaðinn. Tveir voru
í jeppanuin og sluppu þeir ótrú-
lega vel. Bæði ökumaður og far-
þegi voru í bílbeltum, engu að
síður lá annar þeirra utan við
bílinn þegar sjúkraflutningamenn
komu að. Ökumaðurinn jeppans
brotnaði á fæti og gekkst undir
aðgerð í gærkvöldi, en farþeginn
meiddist ekki. Ökumaður vöru-
flutningabílsins var fluttur á
slysadeild til aðhlynningar en var
lítið meiddur. Slökkvilið kom og
úðaði froðu yfir vettvanginn því
mikil eldhætta var af bensíninu
sem flóði um götuna.
Hjúkrunarfræð-
ingar á Landakoti
Uppsögn
ráðningar-
samninga
frestað
Hjukrunarfræðingar á Landa-
kotsspítala óskuðu eftir því við
stjórn sjúkrahússins að uppsögn
ráðningarsamninga hjúkrunar-
fræðinga sem átti að taka gildi í
■dag, 1. desember, yrði frestað
fram til 1. janúar næstkomandi
vegna þess ástands sem skapast
hefur af verkfalli sjúkraliða.
Ganga ekki út í dag
Að sögn Ástu Ólafsdóttur, aðal-
trúnaðarmanns hjúkrunarfræð-
inga, var frestunin samþykkt sam-
hljóða bæði meðal hjúkrunarfræð-
inga og af stjórn spítalans.
Aðspurð hvort komið hefði til
tals að hjúkrunarfræðingar gengju
út sagði Ásta að ekki hefði gefist
tími til að ræða af neinni alvöru
hvernig mætti leysa þetta mál
bæði vegna yfirstandandi sjúkra-
liðaverkfalls og umræðunnar um
sameiningu sjúkrahúsanna. Engar
forsendur hefðu því verið fyrir að
hjúkrunarfræðingar gengju út 1.
desember.
----» ♦ ♦-
Síldarkvóti
aukinn
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að auka síldarkvótann á
þessari vertíð um 10 þúsund lest-
ir. Heildarkvótinn fer því úr 120
þúsund lestum í 130 þúsund lest-
ir. Fiskistofu hefur verið falið að
senda útgerðarmönnum síldveiði-
skipa tilkynningu um þessa aukn-
ingu aflamarks.