Morgunblaðið - 18.01.1995, Side 1

Morgunblaðið - 18.01.1995, Side 1
72 SÍÐUR BC/D 14. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS ÞAU SEM LETUSTISNJOFLOÐINUISUÐAVIK Aðalsteinn Rafn Haf- Kristján Númi Haf- Hrefna Björg Hafsteins- Hafsteinn Björnsson, Júlíanna Bergsteins- Bella Aðalheiður Vest- Petrea Vestfjörð Vals- steinsson, tveggja ára, steinsson, fjögurra ára, dóttir, sjö ára, 40 ára, dóttir, tólf ára, fjörð, 39 ára, dóttir, tólf ára, Túngötu 5. Túngötu 5. Túngötu 5. Túngötu 6. Túngötu 6. Túngötu 7. Túngötu 7. Hjördís Björnsdóttir, Birna Dís Jónasdóttir, Helga Björk Jónasdótt- Sigurborg Guðmunds- Sveinn G. Salómonsson, Hrafnhildur Þorsteins- Hrafnhildur Þorsteins- 37 ára, 14 ára, ir, 10 ára, dóttir, 66 ára, 48 ára, dóttir, eins árs, dóttir, 49 ára, Túngötu 8. Túngötu 8. Túngötu 8. Njarðarbraut 10. Nesvegi 7. Aðaígötu 2. Nesvegi 7. Fjórtán fórust í Súðavík • Mannskæðasta snjóflóð á Islandi frá 1919 • Leit lokið og björgnnarmenn á för- um • Tólf komust af úr hamförunum • Tíu ára piltur fannst lifandi nærri sólarhring eftir snjóflóðið „Hvar er ég?“ spurði dreng- urinn björgunarmanninn FJÓRTÁN manns, þar af átta börn, fórust í snjóflóðinu sem féll á Súðavík á mánu- dagsmorgun. Snjóflóðið í Súðávík er það mannskæðasta á landinu frá því árið 1919, er átján manns fórust í snjóflóðum í Siglu- firði. Leit að fórnarlömbum lauk um átta- leytið í gærkvöldi er sá síðasti fannst í flóð- inu. Snemma í gærmorgun fannst tólf ára piltur lifandi í fönninni, rúmlega 23 klukku- stundum eftir að snjóflóðið féll. Leitarhundar skiptu sköpum Þar sem enn er talin mikil snjóflóða- hætta í Súðavík var hafizt handa um að flytja björgunarmenn burt sjóleiðina strax og ailir höfðu fundizt. Áfram er ófært land- veginn til Súðavíkur, enda versta veður. Skipin, sem tekið hafa ríkan þátt í björgun- arstarfínu, hafa sum orðið fyrir áföllum á leið sinni til og frá bænum. Tuttugu og sex manns voru í húsunum sem snjóflóðið féll á. Fjórir fundust strax eftir að flóðið hafði sópað húsunum á und- an sér og aðrir ellefu næstú klukkustund- irnar. Þar skiptu sköpum sérþjálfaðir leitar- hundar, sem komu með björgunarsveitar- mönnum frá ísafirði og er talið að þeir hafi bjargað nokkrum mannslífum. Fjórir til viðbótar fundust á bilinu kl. 19-22 á mánudagskvöld. Fjórtán ára stúlka fannst á lífi en þrír voru látnir. í fyrrinótt fannst einn látinn til viðbótar. Fannst vafinn í sængina Laust fyrir klukkan sex í gærmorgun fannst sá síðasti á lífi í flóðinu, tíu ára pólskur drengur, Tomasz Lupinski. Tomasz var vafinn innan í sængina í rúmi sínu, en milliveggur og annað brak hafði lagzt ofan á rúmið. Flóðið hafði borið drenginn út í garð í rúminu. Þegar menn höfðu grafið frá honum spurði hann björgunarmanninn sem kom að honum: „Hvar er ég?“ og vissi ekki hvað hafði gerzt. Hann var illa marinn í andliti og kaldur á fótum, en virtist ann- ars heitur, að sögn björgunarmanna. í gærdag fundust þeir fimm, sem enn var saknað, allir látnir. Síðasta líkið fannst á áttunda tímanum í gærkvöldi. Áfallið að koma fram Tólf manns sluppu lifandi úr flóðinu. Þar af lágu níu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Isafirði í gær. Enginn þeirra er í bráðri lífs- hættu, en fram kom á blaðamannafundi í gær að fólkið á við mikla andlega vanlíðan að stríða og treystir sér ekki til að ræða reynslu sína opinberlega. Fólkið er undir eftirliti og aðhlynningu áfallahóps presta, lækna og hjúkrunarfræðinga. „Súðvíkingar eru flestir nátengdir inn- byrðis og það tekur hvert áfallið við af öðru. Ekki aðeins hefur fólkið lent í þessum miklu raunum heldur er það nú að fá fréttir af afdrifum hvers annars og áfallið er smátt og smátt að koma fram hjá hveijum og einum,“ sagði Rúdolf Adolfsson, geðhjúkr- unarfræðingur, í samtali við Morgunblaðið. Áfallahjálp fyrir björgunarmenn Tómas Zoega geðlæknir sagði að sumir hefðu ekki einvörðungu misst sína nánustu, heldur allar eigur sínar og hefðu ekki að miklu að hverfa. Flestir yrðu útskrifaðir af sjúkrahúsi fljótlega eftir að hafa fengið nauðsynlega byijunaraðstoð við að vinna úr áfallinu. Áfallahjálp hefur einnig staðið björgun- armönnum tii boða, en hrikaleg aðkoman og hinar erfiðu aðstæður hafa tekið mjög á marga þeirra. ■ Snjóflóð og illvlðri 2/4/6/10-11/28-29/56

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.