Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 41
AUGLYSINGAR
a ru
Ljósamenn
Hótel ísland, Arnól hf., auglýsir eftir Ijósa-
mönnum.
Um er að ræða fullt starf og hlutastörf.
Umsóknareyðublöð fást á Hótel íslandi milli
kl. 13 og 17 alla virka daga.
UOTEL
Armúla 9.
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Administration of occupational safety and health
Bíldshöfða 16 ■ Pósthólf 12220 ■ 132 Reykjavík
Deildarstjóri þrýstihylkjadeildar
Laust er til umsóknar starf deildarstjóra
þrýstihylkjadeildar í Reykjavík.
Deildarstjórinn hefur umsjón með eftirliti
stofnunarinnar með þrýstihylkjum (gufukötl-
um, geymum og hylkjum fyrir gas undir þrýst-
ingi, frysti- og kælikerfum og efnageymum)
á öllu landinu en annast úttektir á nýjum
búnaði og samskipti við þá, sem framleiða
og selja slíkan búnað.
Leitað er að vélaverkfræðingi eða véltækni-
fræðingi til starfsins, konu eða karli.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf
á reyklausum vinnustað.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Garðar
Halldórsson, deildarstjóri tæknideildar,
í síma 672500.
Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal skila til Vinnueftirlits ríkis-
ins, Bíldshöfða 16, fyrir 5. febrúar 1995.
Frá menntamálaráðuneytinu
Styrkir úr íþróttasjóði
Samkvæmt lögum um breytingu á verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga nr. 78/1989,
veitir Alþingi árlega fé í íþróttasjóð.
Framlög úr íþróttasjóði skal veita til sér-
stakra verkefna á vegum íþróttafélaga eða
íþróttasamtaka í því skyni að bæta aðstöðu
til íþróttaiðkana, sbr. Reglugerð um íþrótta-
sjóð nr. 609/1989.
Tekið skal fram, að ekkert liggur fyrir um fjár-
veitingar til sjóðsins 1996, en þær eru
ákveðnar í fjárlögum hverju sinni til eins árs
í senn. Felur árleg fjárveiting þannig ekki í
sér skuldbindingar um frekari styrkveitingar.
Umsókn um stuðning úr íþróttasjóði vegna
styrkveitinga ársins 1996 þurfa að berast
fyrir 1. maí nk. íþróttanefnd ríkisins, mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum
ásamt greinargerð um fyrirhuguð verkefni.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Félagsfundur um kjaramál
Boðað ertil morgunverðarfundar með félags-
mönnum Samtaka iðnaðarins í Átthagasal
Hótels Sögu á morgun, 19. janúar, kl. 8.00.
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, gerir grein fyrir stöðu kjaraviðræðna.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
<2)
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
eisuÉLítf! Þorrablot
wSSj borgara Felags eldri borgara
f Reykjavík og nágrenni
verður nk. laugardag í Risinu, Hverfisgötu 105.
Gunnar Eyjólfsson, skátahöfðingi, verður
veislustjóri. Hátíðarræðuna flytur Davíð
Oddsson, forsætisráðherra. Skemmtiatriði
og dans. Húsið verður opnað kl. 18.30.
Miðar afhentir á skrifstofu félagsins til
hádegis á föstudag.
Nánari upplýsingar í síma 28812.
FERÐAMÁLASAMTÖK
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
Aðalfundur
Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins
verður haldinn fimmtudaginn 19. janúar nk.
kl. 20.00 í salnum Litlu Brekku á veitinga-
staðnum Lækjarbrekkku í Reykjavík.
Dagskrá:
Fundarsetning.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla og ársreikningar.
Lagabreytingar.
Kosning stjórnar og endurskoðenda.
Önnur mál.
Áhugaaðilar eru velkomnir á fundinn.
Stjórn FSH.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Námskeið í slátrun
Námskeið í slátrun verður haldið við Iðnskól-
ann í Reykjavík, ef næg þátttaka fæst.
Námskeiðið er ætlað þeim, sem eru með
alhliða reynslu af slátrun og skiptist í 3 lotur.
Lota 1 er áætluð 7.-16. febrúar við Iðnskól-
ann í Reykjavík.
Lota 2 er áætluð 13.-24. mars við Slátrara-
skólann í Hróarskeldu.
Lota 3 er áætluð að hausti 1995 við Iðnskól-
ann í Reykjavík og í sláturhúsi.
Námskeiðsgjald er kr. 50.000.
Skriflegar umsóknir, ásamt staðfestum
vinnuferli, sendist Iðnskólanum í Reykjavík
fyrir 26. janúar 1995, merktar:
Iðnskólinn í Reykjavík, slátrararnám,
c/o Sigurður Örn Kristjánsson,
Skólavörðuholti, 101 Reykjavík, sem jafn-
framt veitir allar upplýsingar í síma 26240.
QjÚTBOÐ
Utboð
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings
er óskað eftir tilboðum í viðhald raflagna
í nokkrum grunnskólum Reykjavíkur.
Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000 á skrif-
stofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað mið-
vikudaginn 8. febrúar 1995 kl. 14.00.
bgd 13/5
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 • Sími 2 58 00 • Fax 62 26 16
V
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Fundarboð
frá landbúnaðarnefnd
Sjálfstæðisflokksins
Opinn fundur fyrir allt áhugafólk Sjálfstæðisflokksins fimmtudaginn
19. janúar kl. 20.30 í kjallara Valhallar, Háaleitisbraut 1.
Málefni fundarins:
Áhersluatriði Sjálfstæðisflokksins í landbúnaðarmálum fyrir alþingis-
kosningarnar 1995.
Vonumst eftir góðri mætingu á fundinn.
Stjórnin.
Fundarboð
frá viðskipta- og neytendanefnd
Sjálfstæðisflokksins
Opinn fundur fyrir allt áhugafólk Sjálfstæðisflokksins fimmtudaginn
19. janúar kl. 12.00 í Valhöll, 1. hæð, Háaleitisbraut 1.
Málefni fundarins:
Áhersluatriði Sjálfstæðisflokksins í viðskipta- og neytendamálum
fyrir alþingiskosningarnar 1995.
Vonumst eftir góðri mætingu á fundinn.
Stjórnin.
Fundarboð
frá umhverfis- og skipulagsnefnd
Sjálfstæðisflokksins
Opinn fundur fyrir allt áhugafólk Sjálfstæðisflokksins fimmtudaginn
19. janúar kl. 17.15 í Valhöll, 1. hæð, Háaleitisbraut 1.
Málefni fundarins:
Áhersluatriði Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsmálum
fyrir alþingiskosningarnar 1995.
Vonumst eftir góðri mætingu á fundinn.
Stjórnin.
Fundarboð
frá skóla- og fræðslunefnd
Sjálfstæðisflokksins
Föstudaginn 20. janúar kl. 16.00 í kjallarasal Valhallar, Háaleitisbraut 1.
Fundarefni:
1. Stefna í skólamálum. Framsaga: Sigríður A. Þórðardóttir,
alþingismaður.
2. Frumvörp til laga um grunnskóla og framhaldsskóla.
Framsaga: Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra.
3. Umræða um áhersluatriði Sjálfstæðisflokksins í skóla- og
fræðslumálum fyrir alþingiskosningarnar 1995.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um þessi mál,
Stjórnin.
angar
FERÐAFÉLAG
® ÍSIANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Fimmtudagskvöldið
19.janúar kl. 20.30:
Myndakvöld
Fyrsta myndakvöld nýja ársins
er á fimmtudagskvöld í Breiðfirð-
ingabúð (Faxafeni 14, næsta
nágrenni við Mörkina). Fyrir hlé
verða sýndar myndir úr sumar-
leyfisferðum síðastliðið sumar.
1. Miðhálendisferðin t ágúst.
Þór Halldórsson sýnir myndir af
náttúruperlum norðan Vatnajök-
uls. Næsta sumar verður ný at-
hyglisverð hálendisferð á dag-
skrá í samvinnu við Náttúru-
fræðifélagið.
2. Gönguleiðin frá Hreðavatni
um Langavatnsdal f Hnappadal
í júlí. Þessi fjölbreytta en fáfarna
leið var farin í fyrsta sinn í fyrra
og sýnir Árni Tryggvason mynd-.
ir úr þeirri ferð. Hún verður einn-
ig á dagskrá í sumar.
Eftir hlé sýnir Jóhannes I. Jóns-
son, margreyndur fararstjóri i
Ferðafélagsferðum, myndir úr
ferðum sínum, m.a. vetrarferð-
um.
Góðar kaffiveitingar í hléi.
Verð 500 kr. (kaffi og meðlæti
innifalið).
Fjölmennið, eflið félagsstarfið.
Myndakvöldið er öllum opið,
félögum sem öðrum.
Fræðsluritið nýja, Saga fjall-
vega félagsins, mun liggja
frammi til sýnis og sölu.
Verð 1.000 kr. til félaga F.í.
Ferðafélag (slands.
I.O.O.F. 9 = 1761188V2 =9.0.
I.O.O.F. 7 = 1761188'/2 =9.0
OGLITNIR 5995011819 III 1
Hörgshlíð 12
Bænastund i kvöld kl. 20.00.
REGLA MllSTtRJSKIDDARA
Hekla
5.10. - SUR 20
18.1. - VS - FL
SAMBANO (SLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20.30 í
Kristnibossalnum við Háaleitis-
braut 58-60. Ræðumaður sr.
Frank M. Halldórsson.
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Skrefið kl. 18.00 fyrir 10 til 12
ára krakka. Biblíulestur kl. 20.30.
Námskeiðið Kristið líf og vitnis-
burður. Kennari Mike Fitzgerald.
Allir hjartanlega velkomnir.