Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 15 FRÉTTIR m * * Keppinautar Urvals-Utsýnar um forskot á útgáfu sumarbæklings Ferðamenn munu bíða og kynna sér öll ferðatilboð FORSVARSMENN nokkurra ferðaskrifstofa telja að forskot á útgáfu ferðabæklingsins hjá Úrval-Útsýn, sem kynntur var um síðustu helgi, muni ekki hafa veruleg áhrif á sölu ferða hjá þeim. Þeir sem hafi hugsað sér til hreyf- ings í sumar muni bíða og sjá hvað aðrar ferða- skrifstofur hafa uppá að bjóða, Helgi Jóhannsson framkvæmdastjóri Sam- vinnuferða-Landsýnar, sagði að sumarbækl- ingurinn kæmi út í byrjun febrúar. „Fólk er enn að jafna sig eftir jólin og útgjöldin sem þeim fýlgja,“ sagði hann. „Að fenginni sjö ára reynslu finnst okkur að viðbrögðin í byijun febrúar hafi jafnvel verið hæg og sígandi. Því hefur þá verið borið við að menn hafi viljað kynna sér alla bæklingana og bera saman verð. Staðreyndin er sú að íslendingar láta ekki segja sér að eitt sé betra en annað. Þeir vilja kanna það sjálfir." Ekki veruleg áhrif Laufey Jóhannesdóttir hjá Ferðaskrifstof- unni Alís sagði, að þeirra bæklingur kæmi út fýrstu helgina í febrúar að venju og stæði ekki til að breyta því. Hún sagðist ekki geta gert sér grein fyrir hvort forskot hjá Úrvali- Útsýn kæmi til með að hafa einhver áhrif á söluna. „Þetta hefur eflaust einhver áhrif á sólarlandaferðir en við erum lítið með þær,“ sagði hún. „Ég skal viðurkenna að þetta eru viss klókindi að sýna þetta fumkvæði en ég_ á ekki von á að þetta hafi veruleg áhrif. Ég held að íslendingar hafi enn smá skynsemi og bíði með ákvarðanir þar til þeir hafa séð hvað er í boði.“ Kostar það sem sett er upp Helgi Daníelsson markaðsstjóri hjá Ferða- skrifstofu Reykjavíkur sagðist ekki sjá, að for- skot Úrvals-Útsýnar hefði mikil áhrif. „Varan sem við erum að selja kostar það sem við setj- um upp og ef þeir eru dýrari eða ódýrari þá er það væntanlega vegna þess að þeirra vara kostar meira eða minna,“ sagði hann. „Það sem er skondið hjá þeim er að veittur er sérstakur afsláttur ef bókað er fyrir 12. febrúar en það er dagurinn sem aðrar ferðaskrifstofur koma með sína bæklinga. Ég held að þeir sem hyggja á ferðalög bíði og kynni sér bæklingana hjá hinum. Nema ef þeir eru ákveðnir í að ferðast með Úrvali-Útsýn á ákveðinn stað og ekki skipti máli hvað ferðin kostar. Þá gengur þetta kannski upp.“ Rafiðnaðarsambandið hefur ekki fengið viðræðufund með samninganefnd ríkisins Verið að ögra til verkfalls Morgunblaðið/Rúnar Þór Bílar skemmdust í árekstrum RAFIÐNAÐARSAMBAND ís- lands hefur skrifað samninga- nefnd fjármálaráðuneytisins bréf þar sem kemur fram að samband- ið hafí ítrekað reynt að fá viðræðu- fund um nýjan kjarasamning án árangurs og verði viðbrögðin ekki túlkuð öðruvísi en það sé verið að ögra því til verkfallsaðgerða. Um þriðjungur félagsmanna Rafiðnaðarsambandsins starfar hjá ríki og ýmsum opinberum stofnunum. „Við höfum verið á annan mánuð að biðja fjármála- ráðuneytið um fund til að fá að kynna kröfur okkar. Þeir hafa ekki einu sinni sýnt okkur þá kurt- eisi að svara okkur,“ sagði Guð- mundur Gunnarsson, formaður RSÍ, í samtali við Morgunblaðið. Þolinmæðin á þrotum í bréfi RSÍ, sem Guðmundur undirritar, segir að sambandið hafí á undanfömum mánuðum gert ítrekaðar tilraunir til að fá viðræður um endurnýjun kjara- samnings síns við fjármálaráðu- neytið án árangurs, en samningur- inn hafí runnið út um áramótin. „I haust var unnin tölverð vinna af starfsmönnum RSÍ og trúnaðar- mönnum rafiðnaðarmanna á vinnustöðum, við undirbúning væntanlegra viðræðna. Þessari vinnu var lokið um mánaðamótin nóvember/desember 1994. Þá var farið fram á viðræður við samn- inganefnd fjármálaráðuneytis. Sú ósk hefur verið ítrekuð nær viku- lega síðan. Okkur hefur ekki einu sinni verið sýnd sú lágmarkskurt- eisi að óskum okkar sé svarað. Viðbrögð samninganefndar fjár- málaráðuneytis verða ekki túlkuð á annan veg en að verið sé að ögra okkur til þess að boða til verkfalls. Þolinmæði okkar er þrotin,“ segir í bréfínu meðal ann- ars. TVEIR nokkuð harðir árekstr- ar urðu á Akureyri í gær, eng- in slys urðu á fólki en bílar skenundust töluvert. Fólksbíll ogjeppi rákust saman á um- ferðarljósum við gatnamót Þór- unnarstrætis og Þingvalla- strætis um hádegisbil. Báðir bílarnir skemmdust mikið og var annar fluttur brott með kranabU. Þá rakst jeppi utan í hjólaskóflu á Glerárgötu í gær- dag, en hún lenti síðan utan í ijósastaur og skemmdi hann. Jeppinn var dregin burt með kranabíl. Mótmæla tilvísun- arskyldu FÉLÖG augnlækna, sérfræðinga í gigtsjúkdómum og Hjartasjúk- dómafélag íslenzkra lækna vara við og mótmæla harðlega fyrir- hugaðri reglugerð um tilvísunar- skyldu. í fréttatilkynningu augnlækna er m.a. bent á, að þótt augnlækn- ar séu undanþegnir í núverandi reglugerðardrögum heilbrigðis- ráðuneytisins muni reglugerðin valda sjúklingum þeirra miklu óhagræði. Margir sjújcdómar eru þess eðlis að fleiri en einn læknir kemur að máli hvers sjúklings. Allar tafír og hindrun á samstarfí lækna, sem tilvísunarkerfíð veldur, er sjúkl- ingum til tjóns. Myndi trufla samskipti lækna og sjúklinga í fréttatilkynningu gigtarsér- fræðinga segir m.a.: „Gigtarsjúk- lingar eru margir hveijir með ill- víga langvinna sjúkdóma sem krefjast kröftugrar ónæmisbæ- landi meðferðar og því sérhæfðs eftirlits. Greining þessara sjúk- dóma er oft vandasöm og mikil- vægt að koma í veg fyrir tafir við greiningu þeirra. Tilvísunarkerfið mun trufla eðlileg samskipti lækna og sjúklinga, svo og samskipti heimilislækna og sérfræðinga og einungis valda þessum sjúklingum kostnaðarauka og erfiðleikum." Segja upp samningum við try ggingastof nun í fréttatilkynningu hjartasjúk- dómafélags lækna segir m.a.: „Ekki hefur verið sýnt fram á að nokkur sparnaður felist í væntan- legu tilvísunarkerfí heldur þvert á móti virðist það geta aukið kostn- að, auk þess að valda sjúklingum verulegu óhagræði. Þar að auki getur það tafíð fyrir því að sjúk- lingar fái nauðsynlega greiningu eða meðferð og getur þannig skap- að áhættu." „Drög að reglugerð um tilvísanir eru meingölluð og við teljum ekki veijandi að standa að slíkum málatilbúnaði og vænt- anlega neyðumst við til að segja upp samningi við Tryggingastofn- un ríkisins komi þessi reglugerð til framkvæmda." immdu! Fra og meö l.januar 1995 breyttist val til útlanda. f c tsifí Qí) ínmim' fíf) '4Ef ■ ______________________________________________ PÓSTUROGSÉM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.