Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 43
MORGIJNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 43
FRÉTTIR
Fundur um
samstarf
við Alþýðu-
bandalagið
STUÐNINGSMENN hugmyndar
um samstarf óháðra, óflokksbund-
inna kjósenda við Alþýðubandalagið
halda opinn fund á Hótel Borg
sunnudaginn 22. janúar kl. 15.
Fundurinn átti að vera í dag, mið-
vikudag, en var frestað vegna hör-
munganna í Súðavík.
í fréttatilkynningu segir að gerð
verði grein fyrir því hvers vegna
óháðir vilja ganga til samstarfs við
Alþýðubandalagið í komandi al-
þingiskosningum.
■ ZEN HUGLEIÐSLA verður
fimmtudaginn 19. janúar kl. 18 í
húsi Guðspekifélagsins, Ingólfs-
stræti 22, á vegum íslenska Zen
hópsins. Kennd verða undirstöðuat-
riði zen iðkunar með það í huga
að þátttakendur geti nýtt sér leið-
beiningar Jakusho Kwong-roshi
kennara íslenska Zen hópsins, en
hann kemur til íslands í apríl nk.
Fá réttindi á hálfsjálf-
virkt hjartastuðtæki
FJÖRUTÍU og þremur sjúkra-
flutningamönnum í Slökkviliði
Reykjavíkur hefur verið afhent
staðfesting þess efnis að þeir
hafði öðlast réttindi til notkunar
á hálfsjálfvirku hjartastuðtæki.
Neyðarbíllinn hefur verið rek-
inn sameiginlega af Slökkviliði
Reykjavíkur, Borgarspítala og
Rauða krossinum síðan 1982. í
honum eru tæki til notkunar við
sérhæfða endurlífgun og er
læknir ávallt á vakt á bilnum.
Með tilkomu hálfsjálfvirka hjart-
astuðtækisins er enn aukin neyð-
arþjónusta á svæði Slökkviliðs
Reylqavíkur, segir í fréttatil-
kynningu.
Morgunblaðið/Þorkell
HJARTASTUÐTÆKIÐ var til sýnis við afhendingu staðfestinganna.
HÁRGREIÐSLUMEISTARARNIR Ingunn Hávarðardóttir
og Vilborg Ósk Ársælsdóttir.
Hársnyrtistofan
Babúska opnuð
HÁRGREIÐSLUMEISTARARNIR
Vilborg Ósk Ársælsdóttir og Ingunn
Hávarðardóttir opnuðu um áramót-
in Hársnyrtislofuna Babúsku á
Njálsgötu 1 í Reykjavík (á horni
Njálsgötu og Klapparstígs).
Vilborg starfaði áður á Saloon
Ritz en Ingunn hjá Sólveigu Leifs
og Hárhorninu. Báðar hafa rekið
stofu í Bolungarvík.
Boðið er upp á alla almenna þjón-
ustu. Veittur er 10% staðgreiðsluaf-
sláttur og til 15. febrúar nk. að
auki 10% opnunarafsláttur af allri
þjónustu.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Reykjavíkurmótið í
sveitakeppni 1995
NÚ ER lokið undankeppni Reykja-
víkurmótsins í sveitakeppni og verða
fjórðungsúrslit spiluð í kvöld, mið-
vikudaginn 18. janúar. Þessar sveit-
ir eigast þá við í 40 spila leik:
S. Armann Magnússon - Tryggingamiðst.
Roche - Jón Stefánsson
VÍB - Hjólbarðahöllin
Landsbréf - Kátir piltar
Spilað er í nýju húsnæði BSÍ í
Þönglabakka 1, 3. hæð, og hefst
spilamennskan kl. 19. Góð aðstaða
er fyrir áhorfendur og eru þeir vel-
komnir.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Fimmtudaginn 12. janúar 1995
mættu tuttugu pör og spilað var í
A- B-riðli.
A-riðill
Ingibjörg Stefánsdóttir - Fróði B. Pálsson 127
Baldur Helgason - HaukurGuðmundsson 127
Eyjólfur Halldórss. - Þórólfur Meyvantsson 122
Karl Adólfsson - Eggert Einarsson 114
B-riðill
Bergljót Rafnar - Soffía Theodórsdóttir 14 2
Sigurleifur Guðjónss. - Eysteinn Einarsson 136
Ragnar Halldórss. - Vilhjálmur Guðmundss. 112
Þórhildur Magnúsdóttir - Sveinn Sveinsson 109
Meðalskor í báðum riðlum 108
Sunnudaginn 15. janúar 1995
komu nítján pör og spilað var í 2
riðlum.
A-riðill, 10 pör
Eyjólfur Halldórss. - Þórólfur Meyvantsson 125
Hannes Ingibegrsson - Rapar Þorsteinsson 121
Ingibjörg Stefánsdóttir - Fróði B. Pálsson 120
Lárus Amórsson - Ásthildur Sigurgísladóttir
119
B-riðill, 9 pör yfirseta
Bergsveinn Breiðfjörð - Baldur Ásgeirsson 132
Ragnar Halldórss. - Vilhjálmur Guðmundss. 125
Kristinn Gíslason - Margrét Jakobsdóttir 121
Eggert Einarsson - Anton Sigurðsson 109
Meðalskor í báðum riðlum 108
Bridsfélag Kópavogs
Síðastiðið fimmtudagskvöld var
spilaður eins kvöld Mitchell-tví-
menningur hjá Bridsfélagi Kópa-
vogs.
Skor kvöldsins í N/S var:
GísliTryggvason-LeifurKristjánsson 245
MagnúsAspelund-SteingrímurJónasson 233
HeimirTryggvason-ÁmiMárBjömsson 232
Skor kvöldsins í A/V var:
ÞórðurBjömsson-MuratSerdar 245
Sigrún Pétursdóttir — Alda Hansen 243
Sigurður Thorarensen - Steindór Guðmss. 243
Næsta fímmtudagskvöld, 19. jan-
úar, byijar aðalsveitarkeppni félags-
ins. Skráning er þegar hafin hjá
Hermanni Lárussyni í síma 41507.
Aðstoðað er við myndun sveita.
Spilastaður er Þinghóll, Hamraborg
11, Kópavogi. Spilamennska hefst
kl. 19.45 stundvíslega.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Fimmtudaginn 12. janúar var
fyrsta spilakvöld félagsins á árinu.
Spilaður var eins kvölds Mitchell
með þátttöku 16 para. Spilaðar voru
7 umferðir með 4 spilum á milli
para. Meðalskor var 168 og bestum
árangri náðu:
NS
Einar Guðmundsson - Óskar Þráinsson 207
Halldór Þórólfsson - Andrés Þórarinsson 192
Mapús Halldórsson - Magnús Oddsson 185
AV
Helgi M. Gunnarsson - ívar M. Jónsson 196
Ragnar Bjömsson - Skarphéðinn. Lýðsson 194
Sigriður Pálsdóttir - Eyvindur Valdimarsson 189
Fimmtudaginn 19. janúar verður
spilaður eins kvölds tölvureiknaður
Mitchell tvímenningur og byijar
spilamennska kl. 19.30. Spilað er í
húsnæði Bridssambandsins í Þöngla-
bakka 1 og eru allir spilarar vel-
komnir.
Vetrar Mitchell BSÍ
Föstudaginn 13. janúar var spilað-
ur eins kvölds tölvureiknaður Mitc-
hell með þátttöku 30 para. Spilaðar
voru 14 umferðir með 2 spilum á
milli para. Meðalskor var 364 og
efstu pör voru:
NS
SigurðurÁmundason-JónÞórKarlsson 434
Karl Olgeir Garðarss. -'Kjartan Ásmundsson425
FriðrikJónsson-SævarJónsson 414
AV
Hafþór Kristjánsson - Rafn Thorarensen 412
Guðlaugur Sveinsson - Mapús Sverrisson 407
Sigurður Þorgeirsson - Árni Guðbjömsson 395
Vetrar Mitchell BSÍ er spilaður
öll föstudagskvöld og byijar spila-
mennska kl. 19.00. Alltaf er spilaður
eins kvölds tölvureiknaður Mitchell
tvímenningur með forgefnum spil-
um. Allir spilarar velkomnir.
Fyrsta Þorrablót
Bolvíkingafélagsins
FYRSTA þorrablót Bolvíkingafé-
lagsins verður haldið föstudaginn
20. janúar í veitingahúsinu
Glæsibæ og hefst það kl. 20.30.
Miðar verða seldir í Ölveri
þriðjudaginn 17. janúar, miðviku-
daginn 18. og fimmtudaginn 19.
janúar frá kl. 12-22. Miðaverð er
2.800 kr. með mat og eftir kl. 23
1.200 kr.
Stjórn félagsins ákvað að koma
á þorrablótsskemmtun og gera til-
raun til að vekja upp þann anda
sem er alltaf í kringum blótin í
Bolungarvík, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Veislustjóri verður Soffía
Vagnsdóttir. Danssveitin sér um
tónlistina. Húsið verður opnað kl.
19.30.
Blab allra landsmanna!
P!OV07tmþIabiíi
- kjarni málsins!
SUZI KI SWIFT GLSi
Sjálfskiptur kr.
Aflmikill, sparneytinn, lipur
Það eru góð kaup í Suzuki.
Verð:
Beinskiptur kr. 939.000.
1.029.000.
SUZUKI BÍLAR HF SKEIFUNNI 17 - SÍMI 568 5100
FjARFESTING í TÖLVUNÁMI VEITIR ÞÉR FORSKOT Á
VINNUMARKAÐINUM!
82 klst. starfsmenntunarnámskeið með áherslu á
undirbúning fyrir störf á nútíma skrifstofum.
Verð aðeins
58.600.-
kr. stgr.
Afb.verð kr. 61.700.- eða 3.943 kr. á mánuði!
Skuldabréf í 19 mánuði, allt innifalið.
KENNSLUGREINAR: . ...
- Almenn tölvufræði .’ SfM Mar^*nca$k;öi
- MS-DOS og Windows ""•••■ . ;
- Ritvinnsla
- Töflureiknir og áætlanagerð
- Glærugerð og auglýsingar
- Tölvufjarskipti
- Umbrotstækni
Innritun er hafín. Hringdu og fáðu sendan bækling
eða kíktu til okkar í kaffi.
Tölvuskóli Reykjavíkur
BORGARTÚNI 22. 105 REYKJAOÍK. sími 616699. fax 616696
I