Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 21 Reuter VEGABRÚ sem hrundi í japönsku hafnarborginni Kobe, sem varð verst úti í landskjálftanum sem reið yfir vesturhluta Japans í fyrrakvöld að íslenskum tíma. Þrír 100 metra kaflar af brúnni hrundu. Líkur á vaxandi ^kjálftavirkni í Japan á næstunni „Getur ekki gerst hér“ Tókýó. Reuter. JARÐSKJÁLFTINN í Kobe í Japan aðfaranótt þriðjudagsins, 7,2 á Ric- hter-kvarða, er sá mesti, sem riðið hefur yfir japanska stórborg í 70 ár en á þessum slóðum varð þó öflugri skjálfti árið 1946. Styrkleiki hans var 8 og nærri 1.500 manns týndu lífi en hans gætti á mjög stóru svæði og manntjónið og skemmdir á mannvirkjum voru ekki jafn stað- bundnar og nú. Fyrir nákvæmlega einu ári upp á dag reið stóri skjálftinn yfir Los Angeles í Bandaríkjunum og þegar Japanir sáu sjónvarpsmyndir af af- leiðingum hans sögðu margir við sjálfa sig, að þetta gæti ekki gerst í Japan. Þar væru byggingar og mannvirki miklu traustari en í Bandaríkjunum og sérstaklega gerð til að standast jarðskjálfta. „Þetta er Ameríka" „í Japan sá fólk myndir áf eyði- leggingunni í Los Angeles og hugs- aði með sjálfu sér: „Þetta er Amer- íka, þetta getur ekki gerst hér,““ sagði Suminao Murakami, prófessor við háskólann í Yokohama. „Það sama gerðist þó hér, vegabrýr hrundu og byggingar eru í rúst.“ Japan er eitt mesta jarðskjálfta- svæði í heimi og á síðasta ári urðu Jarðskjálftinn í Kobe talinn fyrir- boði annars meiri og kominn er tími á stóran skjálfta á Tókýósvæðinu þar nokkrir öflugri skjálftar en í Kobe í fyrradag. Þeir urðu hins veg- ar á fremur dreifbýlum svæðum í norðurhluta landsins. Jarðskjálftinn í fyrradag varð í Vestur-Japan, þar á meðal í hafnar- borginni Kobe, sem varð verst úti, í iðnaðarborginni Osaka og hinni fornu höfuðborg Kyoto. Er þetta svæði næstþéttbýlast á eftir Tókýó- Yokohama-svæðinu. 140.000 týndu lífi Mesti jarðskjálfti, sem riðið hefur yfir stórborgarsvæði í Japan, var Kanto-skjálftinn mikli í Tókýó og Yokohama 1923. Hann var 7,9 á Richter. í eldunum, sem hann olli, týndu 140.000 manns lífi og 560.000 hús eyðilögðust. Síðan hafa Japanir sett allt sitt traust á nýja tækni, sem á að tryggja, að 50 hæða byggingar þoli öflugustu skjálfta. í stað timbur- húsanna, sem hrundu svo auðveld- lega eða urðu eldum að bráð, eru víðast hvar komin sérstaklega styrkt, steinsteypt hús. Það þykir mikil mildi, að jarð- skjálftinn skyldi verða að næturlagi og talið er víst, að hefði hann orðið að degi til þegar fólk er við vinnu og borgarysinn sem mestur, hefði manntjónið og ringulreiðin orðið miklu meiri. Nýtt óróatimabil Á þeim 40 árum, sem liðin eru frá stóra skjálftanum í Vestur-Jap- an, hefur spennan í jarðlögunum verið að aukast og jarðvísindamenn höfðu spáð því, að brátt leystist hún úr læðingi. Það hefur nú ræst og líklegt er, að áframhaldandi órói verði á svæðinu í einhvern tíma. Á þessum slóðum eru flekamót í jarðskorpunni og gengur annar flek- inn undir hinn. Er gert ráð fyrir ein- um mjög stórum jarðskjálfta á mót- unum á hverjum 100 árum og skjálftinn í fyrradag er aðeins talinn fyrirboði annars meiri hvenær sem hann verður. Jarðvísindamenn telja einnig, að stór sjálfti geti orðið í Tókýó hvenær sem er. ERLEIMT Vopnahlé í Tsjetsjníju? Moskvu, Grosní, Washington. Reuter. RÚSSNESKIR og tsjetsjenskir embættismenn náðu í gær samkomulagi um vopnahlé sem taka á gildi i kvöld, að sögn rússnesku fréttastofunnar Interfax sem hafði þetta eftir tveim ráðherrum úr stjórn Dzhokars Dúdajevs Tsjetsjníjuforseta. I yfirlýsingu Rússlandsstjórnar um viðræður við ráðherr- ana var hins vegar ekkert minnst á vopnahlé. í yfirlýsingunni sagði að Viktor Tsjernomyrdín, forsætisráðherra Rússlands, hefði tjáð sendimönnun- um að Tsjetsjenar fengju eitt tæki- færi enn til að leggja niður vopn. Sendimennirnir áttu í gær fund í Moskvu með forsætisráðherranum sem lagði til á mánudag að þegar yrðu hafnar viðræður um frið. Interfax hafði eftir heimildar- mönnum í Mozdok-flugbækistöð- inni, þar sem innrásinni í Tsjetsjníju er stjórnað, að 1.160 Rússar hefðu fallið í átökunum sem hófust í des- ember. Jeltsín traustur í sessi? Starfandi yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, William Stude- man, sagðist í gær telja að Tsjetsjníjustríðið myndi hafa í för með sér mannaskipti á æðstu stöð- um í Moskvu. Einkum væru þeir Pavel Gratsjov varnarmálaráðherra og Viktor Jerin innanríkisráðherra valtir í sessi. Hins vegar virtist ekkert benda til þess að Jeltsín for- seti væri að missa tökin, hann virt- ist traustur í sessi. Kannanir í Rússlandi hafa sýnt miklar og vaxandi óvinsældir Jelts- íns en aðallega vegna efnahags- ástandsins, fáir nefndu Tsjetsjníju sem ástæðu fyrir óánægju sinni. Á þingi eru andstæðingar forsetans sundraðir og óttast margir þeirra að hann muni leysa upp þingið ef það reyni að bregða fyrir hann fæti. Ný stjórn mynduð á Italíu LAMBERTO Dini tilkynnti Oscar Luigi Scalfaro, for- seta Ítalíu, í gær, að honum hefði tekist að mynda nýja stjórn og lagði fyrir hann ráð- herralistann. Neitaði hann því jafnframt, að Scalfaro hefði haft óeðlileg afskipti af ráðherravalinu. Átti hann þá augljóslega við fullyrðing- ar sumra flokksbræðra Silvios Berlusconis, fráfarandi forsætis- ráðherra, þess efnis, að Scalfaro hefði neitað, að einhver úr flokki þeirra yrði ráðherra. Páf i á Papúa Nýju Gíneu JÓHANNES Páll II. páfi söng messu í Port Moresby, höfuðborg Papúa Nýju Gíneu í gær að við- stöddum miklum mannfjölda. Fertugur Filippseyingur, er bar hlaðna skammbyssu, var hand- tekinn er hann reyndi að komast inn á leikvanginn þar sem messan fór fram. Lögregla á Filippseyjum segir að maður sem þeir leita í tengslum við meint morðsamsæri gegn páfa í heimsókn hams þar í Asíuferðinni, hafi átt aðild að sprengjutilræðinu í World Trade Center í New York. 1.385 létust í flugslysum Á SÍÐASTA ári létust 1.385 manns í flugslysum um allan heim og voru slysin aðallega rakin til mannlegra mistaka og slæms veð- urs. Kemur það fram í skýrslu, sem tímaritið Flight International birti í gær. Dini Parker-Bowles hjónin gagnrýna Sun Myndir teknar í heimildarleysi Reuter. CAMILLA Parker-Bowles, hjá- kona Karls Bretaprins, og eigin- maður hennar Andrew saka breska dagblaðið Sun um að birta í heimildarleysi myndir úr einka- safni þeirra. Vissu þau ekki til þess að myndirnar hefðu borist í hendur blaðamanna fyrr en þau sáu þær í blaðinu. í frétt í blaðinu Daily Mail er greint frá því að Karl hafi hringt í Camillu og hvatt hana til að hafa uppi á því, hver hafi stolið myndunum. Um helgina birti Sun myndir af rúmi Parker-Bowles- hjónanna og fullyrti að þar hefðu Karl og Camilla notið ásta allt að fjórum sinnum á viku. Þá voru birtar myndir af Karli og Cam- illu saman í garði Camillu og á baðströnd. Blaðið Daily Express sagði í gær að Camilla hefði greint lög- fræðingum sínum frá því að hún hygðist ekki giftast Karli eftir að skilnaður hennar og eigin- mannsins væri genginn í gildi. Þjónn leystur frá störfum Um helgina birti News ofthe World frásögn Kens Stronachs, sem verið hefur einkaþjónn Karls undanfarin fimmtán ár, af ástarfundum prinsins og Cam- illu. Herma heimildir að þjónninn hafi þegið stórfé fyrir. Hefur hann verið leystur frá störfum sínum á meðan opinber rannsókn fer fram á málinu. Allan Percival, talsmaður prinsins, sagði í gær að Stronach hefði verið ráðlagt að útvega sér lögmann vegna rannsóknarinnar en að Karl hefði boðist til að aðstoða hann fjárhagslega ef á þyrfti að halda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.