Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.01.1995, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 MIIMNIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ l STEFAN JÓNSSON + Stefán Jónsson fæddist í Beru- firði í Reykhóia- hreppi 13. mars 1904. Hann lést 10. janúar1995 á Land- spítalanum. For- eldrar hans voru Jón Hjaltalín Brandsson, bóndi að Kambi í Reyk- hólahreppi, og Sesselja Stefáns- dóttir. Stefán var næstelstur ellefu systkina. Þau voru: Elín Gróa, f. 24.11. 1902, d. 1982, Guðbjörg Sig- þrúður, f. 31.9. 1905, Olafur stórkaupmaður, f. 3.3. 1908, d. 1978, Guðmundur, f. 23.9. 1909, d. 1919. Sigmundur, fjár- málastjóri, f. 11.10. 1911, Kristján Hans, verslunarmað- ur, f. 31.7.1915, d. 1983, Magn- ús, vélstjóri, f. 27.11. 1918, Guðmundur, vélsljóri, f. 4.5. 1922, d. 1988, Bjarni, vélsljóri, f. 4.5. 1922, og Lilja Guðrún, f. 24.5. 1926. Stefán kvæntist — 1.0. ágúst 1932 Salome Pálma- dóttur hjúkrunarkonu, f. 9.1. 1902. Hún lifir mann sinn. Bjuggu þau fyrstu árin á Há- vallagötu 5 í Reykjavík þar til þau fluttu 1949 að Melhaga 1 í Rvík sem hann byggði ásamt Ólafi bróður sínum. Stefán og Salome eiga eina dóttur, Erlu Stefánsdóttur, píanókennara, Far vel í friði til frænda þinna leyfður og ljóðstöfum; far, öðlingur, og alda lýstu bifröst vorra bestu manna. Segir Matthías Jochumsson, okk- ar kæra þjóðskáld og vil ég fá að nota þau orð er ég kveð minn ást- kæra vin og föður, Stefán Jónsson frá Kambi, en búsettan lengst af á Melhaga 1. Kambssystkinin voru tíu og mörg þeirra hafa kvatt þetta jarðlíf. Afi og amma bjuggu mest- allan sinn búskap á Kambi í Reyk- hólasveit. En þó þau ættu tíu börn tóku þau litla frænku að sér sem fósturdóttur í hópinn sinn. í þá áaga voru hvorki ríkisrekin barna- heimili né elliheimili. Þá bjó fólk saman gamalt og ungt. Þá var ekki algengt að fjölskyldur flosnuðu upp vegna hjónaskilnaða, börnin færu í vistun og gamla fólkið á stofnanir. Því var á Kambi eins og á mörgum bæjum okkar lands margt manna, margir aldnir sem ungir og hefur það örugglega reynst góður skóli fyrir ungviðið. Afa mínum kynntist ég lítillega sem barn, Jóni Hjaltalín Brandssyni. Var hann fæddur í Geiradal og giftist heimasætunni í Berufírði, Sesselju Stefánsdóttur. Þegar þau brugðu búi fluttust þau suður á malbikið. Hann lifði stutt eftir það, hann sem hafði verið svo fijáls í fallegri sveit og á góðri jörð. Er ég viss um að hann hafí byggt sér bú í öðrum heimi, meðan hann beið eftir konunni sinni. Ömmu kynntist ég enn betur, því að hún fór ekki í ferðina miklu fyrr en eft- ir níutíu ára afmæli sitt. Hún gaf bömum, barnabörnum og barna- barnabörnum ýmislegt gott í vega- nesti fyrir lífíð. Nú er hennar elsti sonur kominn til hennar og afa og veit ég að bæði systkinin og vinirn- ir sem undan gengu taka vel á móti honum. Lifíð minnir okkur á þessa eilífu hringrás að heilsast og kveðjast. Orðtæki segir: „Maður kemur í manns stað“, en ég tel það ekki rétt, því hver mannvera skilur eftir sig sín sérstöku spor og auðlegð sérstakra minninga. Pabbi minn var heiisteyptur, raunsær, kraftmikill og tryggur. Hann var góður vinur vina sinna, þó ekki allra, hafði f. 6.9. 1935, og þijú barnabörn sem öll eru búsett erlendis. Þau eru: 1) Salome Ásta, læknir, f. 6.6. 1961, gift Guð- mundi Pálssyni lækni og eiga þau þijár dætur. 2) Sig- þrúður Erla Arnar- dóttir, í sálfræð- inámi, f. 16.5. 1965, gift Tómasi Gísla- syni verkfræðingi. Þau eiga þrjú börn. 3) Stefán Örn Arn- arson sellóleikari f. 2.4. 1969, kvæntur Sarah O’Neill. Stefán var menntaður frá Núpsskóla og Samvinnu- skólanum með prófi 1929. Árið 1930 fluttist hann til Reykjavík- ur og var gjaldkeri og aðalbók- ari ríkisspítalanna 1930-37, skrifstofustjóri gjaldeyris-, við- skiptanefndar og innflutnings- skrifstofu 1937-60, fram- kvæmdastjóri Prentsmiðjunnar Eddu frá 1960 til starfsloka. Formaður sóknarnefndar Nes- sóknar var hann í 20 ár frá 1951 og sat í Verðlagsnefnd í tíu ár frá 1960. Hann var virk- ur meðlimur í Framsóknar- flokknum og samvinnuhreyf- ingunni alla sína tíð. Síðasta árið dvaldi hann á elliheimilinu Grund. Utför Stefáns Jónssonar fer fram frá Neskirkju í dag. stundum þykka skel. Og enn vitna ég í þjóðskáldið; „harða, blíða, heita, sterka sál, hjarta þitt er eld- ur, gull og stál“. Faðir minn kynntist móður minni á Kleppi, hann sem gjaldkeri Ríkis- spítalanna og hún þá hjúkrunar- kona þar, nýkomin úr námi frá Danmörku. Giftu þau sig árið 1932 og ég kom til þeirra 1936. Betri foreldra get ég ekki hugsað mér, þau kenndu mér, leiðbeindu og mótuðu eins og sannir foreldrar og það veganesti hefur gert mér gott. Nú dvelur móðir mín, Salome G. Pálmadóttir, í Hafnarbúðum á ní- tugasta og fjórða aldursári og bíður eftir því að hitta vininn sinn á ný. Aðaláhugamál föður míns var sumarbústaðurinn „Grundarbær", þar vann hann í öllum sínum frí- stundum. Þar gróf hann með skóflu fyrir húsinu, hún teiknaði og hann byggði, hún ræktaði blómin og hann trén. Seinast var hann að vinna þar sumarið ’93, sitjandi á stól við að hreinsa, skrapa og mála. Þar er hans lífsstarf, þó hann hafí verið í mörgum störfum og nefndum, sem gjaldkeri, skrifstofustjóri og prent- smiðjustjóri. Lífíð er alltaf jafn und- arlegt að skilja hvort sem við kveðj- um ung eða gömul. Mín trú er að árdagsröðull sem afturelding í lífi hvers manns sé sem andardráttur Guðs. Eg ógka þér, vinurinn minn allrar blessunar helgra vætta inn í land eilífðarinnar. Ég ber kveðju frá nafna þínum, dóttursyni og vini Stefáni Erni Am- arsyni í Ann Arbor í vesturvegi, sem þakkar hlýju, gæsku og ráðlegging- ar fyrir Iífsgönguna. Hann kveður þig með orðum Kahil Gibran um þjáninguna: Þjáningin er fæðingarhrið skilningsins. Eins og kjami verður að sprengja utan af sér skelina, til þess að blóm hans vaxi upp í ljósið, eins hljótið þið að kynnast þjáning- unni. Og ef þið sæjuð hin Jaglegu kraftaverk lífs- ins, yrði þjáningin ykkur undursamleg engu síður en gleðin. Og árstíðaskipti sálarinnar yrðu ykkur eðli- leg eins og sáning og uppskera og þolgóð munduð þið þreyja vetur þjáninganna. Guð blessi þig, vinur minn og afí, fyrir hönd Stebba þíns. Þín, Erla. SVEINBJORN GISLI S VEINBJÖRNSSON Eisku afi minn Stefán Jónsson er dáinn 90 ára gamall. Hvernig er mögulega hægt að segja frá eða lýsa honum sem er svo stór hluti af bernsku minni og mótun allri? Hér sit ég í heimilinu sem amma og afi byggðu saman. Líf þeirra og heimili er smátt og smátt að hverfa. Afi er dáinn og amma sjúklingur. En minningin um afa og áhrif hans á okkur sem uxum up í nærveru hans lifir áfram. Afi var fæddur 1904 og hafði því lifað langa ævi þegar ég, fyrsta barnabarnið, kom til sögunnar. Minningarnar eru ótal margar, stutt brot frá bernsku minni og lengri og skýrari eftir því sem ég eldist. Hvernig hann sneri við sokkunum þegar hann klæddi mig í þá. Súkk- ulaðið sem alltaf var til í hanska- hólfinu á stóra Chevrolettinum hans. Neftóbaksdósin. Hvernig hann kendi mér mannganginn þó ég væri í raun of lítil til að tefla. Skrifstofan hans stór og snyrtileg, full af bókum og lyktin létt vindla- og neftóbakslykt. Gleði hans yfir barninu sem kom og vildi skoða hvað hann var að sýsla. Koss á hijúfa kinn. Stór stafli af spenn- andi, grípandi barnabókum í jóla- gjöf. Bókastafli sem hélt mér fang- inni mörg kvöld og nætur og eftir- væntingin eftir samskonar stafla næstu jól. Grundarbærinn, sumar- bústaðurinn. Vettvangur enda- lausra starfa. Slá gras, smíða, gera við, mála glugga, þak, girðingin sem alltaf gefur sig á veturna, steypuvinnan á árbakkanum, ról- urnar, Höll sumarlandsins smíðuð frá grunni fyrir mig. Umhyggja hans fyrir börnunum hélt áfram í barnabarnabörnunum. Gamall og hrumur fylgdi hann Erlu minni litlu í skólann og sótti á hveij- um degi í heilan vetur. Leiddi yfir götu þriðju kynslóðina af skoppandi börnum. Minningarnar eru eins og perluband gegnum alla mína ævi. Fyrir mér stendur hann sem merkismaður, verðug fyrirmynd og ímynd skynsamrar manneskju. Skilaboðin til barnsins og ungu konunnar urðu: Hamingjan og gleðin eru fólgnar í starfanum og vinnunni og vegna þess að tíminn flýgur er starfinn í raun allur helgaður þér sem fulltrúa komandi kynslóða. Skynsemin og raunsæin eru okkar vopn í hvers kyns verkefnum og erfiðleikum. Eilífðin er fólgin í ávöxtum starfs manns. Ég á eftir að sakna afa og þó eiga hann með mér alla mína ævi. Salome Ásta Arnardóttir. + Sveinbjörn Gísli Svein- björnsson fæddist á Efstu- Grund í Vestur-Eyjafjöllum 11. september 1912. Hann lést í Reykjavík 8. janúar síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 17. janúar. ÉG VILDI fyrir hönd okkar Dags- brúnarmanna kveðja góðan félags- mann með örfáum orðum. Foreldr- ar hans voru Sveinbjörn Guð- mundsson og Rannveig Bjarnadótt- ir. Föður sínum kynntist Sveinbjörn aldrei þar sem á þeim tíma sem móðir hans gekk með hann varð faðir hans úti ásamt Gísla bróður sínum, en þeir voru á leið til vers. Sveinbjörn var skírður í höfuðið á föður sínum og föðurbróður. Hann ólst upp ásamt eldri bróður sínum Aðalsteini hjá föðurbróður sínum á Efstu-Grund er hann bjó þar ásamt eiginkonu sinni. Sveinbjörn stundaði ungur al- menn sveitastörf og reri margar vertíðir frá Vestmannaeyjum. Síð- an stundaði hann störf á togurum, en árið 1948 flytur hann formlega til Reykjavíkur og stundaði áfram störf á togurum þaðan. Sveinbjörn kvæntist árið 1949 Sigríði Pálsdóttur frá Snotru í Vestur-Landeyjum. Þau eignuðust tvö börn; Rúnar, fæddan 19150, og Rannveigu, fædda 1952. Barna- börnin eru orðin Ijögur. Um 1952 hefur Sveinbjörn störf hjá Togaraafgreiðslunni og vann þar allt til ársins 1965. Vinna hjá Togaraafgreiðslunni var mjög erf- ið, var helst uppskipun á físki, þar unnu að staðaldri 30-40 menn og voru þessir menn annálaðir harð- snúnir dugnaðarmenn og var Sveinbjörn þar ekki sístur. Sveinbjörn var meira en meðal- maður á hæð, veðurbarinn og bar merki sjósóknar - það var festa og kjarkur í svip hans. Hann var fljótlega valinn trúnaðarmaður af verkamönnum hjá Togaraafgreiðsl- unni og gegndi því starfi með festu og dugnaði. Hann var kosinn í stjórn Dagsbrúnar um 1960 og sat þar í fjögur til fimm ár. Það var gott að starfa með Sveinbirni. Hann var róttækur og harður verkalýðssinni og ákaflega góður félagshyggjumaður. Ég minnist þess að einhveiju sinni kom ég á heimili Sveinbjam- ar, en þau hjón bjuggu í snoturri tveggja herbergja kjallaraíbúð við Skúlagötu, til að biðja hann að taka einhver störf að sér fyrir Dagsbrún eins og títt var við hann. Hann var þá nýkominn úr vinnu, rétt nýlokið að borða, svipmikill og ákveðinn. Hann bað mig að hinkra örlitla stund og ég settist við eld- húsborðið. Allt í einu mildaðist svip- urinn á Sveinbirni og augun ljóm- uðu: „Eigum við ekki að gefa þeim þetta núna?“ sagði haryi við konu sína,. Hún opnaði ísskápinn og tók fram íspinna handa börnunum og þau ljómuðu af gleði. Mér virtist Sveinbjörn vera glaðastur. Síðan settumst við inn í stofu. Þá var aftur kominn þessi festusvipur á þennan dugmikla verkamann. Hann tók erindi mínu vel og heim- sókn mín var stutt - líklega var það ísinn og svipbrigði Sveinbjarn- ar sem gerir mér þessa heimsókn svo minnisstæða. Félagi hans í Dagsbrún, sem orðið hafði fyrir alvarlegu heilsu- farslegu áfalli átti heima í sama húsi. Alltaf var Sveinbjörn við hlið hans, kom með hann á fundi, og alltaf sátu þeir hlið við hlið. Þetta var mikill styrkur fyrir hinn veik- ari, því hann hafði unun af að mæta á fundum - þetta heitir bræðralag. Sveinbjörn var ómetanlegur fé- lagi í Dagsbrún, ég hef áður sagt að hann hafi verið róttækur og harður - en ég veit að lífssýn hans hafi mátt kenna við milda líf- og mannhyggju, gagnstætt harðri og kaldri peninga- og tæknihyggju. Sveinbjörn missti konu sína 1969, en hún hafði átt í erfiðri veikinda- baráttu síðustu æviár sín. Sveinbjörn hætti störfum hjá Togaraafgreiðslunni 1965-1966 og fór að vinna í Sútunarverk- smiðju Framtíðarinnar við Frakka- stíg þar til hann lét þar af störfum fyrir aldurssakir. Dagsbrúnarmenn kveðja hann með þakklæti fyrir allt sitt frábæra starf í þágu Dagsbrúnar. Við kveðj- um atorku- ög dugnaðarmann, sem hafði djúpa og einlæga verkalýðs- hyggju sem aðalsmerki. Guðm. J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar. i GUÐMUNDUR ÓLAFSSON + Guðmundur Ólafsson fædd- ist á Flateyri við Önundar- fjörð 7. nóvember 1921. Hann varð bráðkvaddur 2. janúar síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði 17. janúar. FALLINN er í valinn traustur og góður félagi okkar Hafnarfjarðar- krata um langt árabil. Guðmundur Ólafsson fyrrverandi skipstjóri og síðar gjaldheimtustjóri í Hafnarfirði varð bráðkvaddur 2. janúar síðast- liðinn. Ég kynntist mannkostum Guð- mundar Ólafssonar vel, þegar við störfuðum saman hjá Hafnarfjarð- arbæ. Hann sem gjaldheimtustjóri og ég sem bæjarstjóri. Ennfremur lágu leiðir okkar saman í hafnar- stjórn bæjarins, en þar sat hann sem fulltrúi Alþýðuflokksins. Guð- mundur var maður sem vissi hvað hann vildi. Var fastur fyrir og gaf ekki sinn hlut í orðaræðum. Það var augljóst á fasi hans og yfir- bragði að hann hafði haft manna- forráð, var og enda skipstjóri um árabil. Hann vildi láta hlutina ganga rösklega fram en ekki eyða tíman- um í einskis vert snakk. Samskipti okkar gengu vel fyrir sig. Vissulega vorum við ekki alltaf sammála um hlutina og stundum hvessti. En báðir vildum við hafa þann háttinn á að segja hlutina umbúðalaust og tala út um þá, fremur en láta álitaefni liggja órædd. Það var alltaf hressandi að eiga orðaræður við Guðmund, hvort sem málið snerist um innheimtumál hjá gjaldkera bæjarins, eða um hafnarmálin. Það kom enginn að tómum kof- anum, þegar Hafnarfjarðarhöfn bar á góma í samtali við Guðmund Ól- afsson. Þar var hann öllum hnútum kunnugur. Þekkti alla kallana, vissi hvar þjónustunni var ábótavant og hvað þurfti að laga, hafði framtíðar- sýn þegar möguleikar hafnarinnar til lengri tíma voru til umræðu; var einfaldlega með yfirburðaþekkingu á þessum vettvangi. í starfi eins og gjaldheimtustjóri reynir á umburðarlyndi og mann- þekkingu. Þótt Guðmundur Ólafs- son hafi haft ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og verið ákveðinn í fasti, þá minnist ég þess hversu mjög hann hafði skilning á valdamálum fólks sem til hans leit- aði og átti erfitt með að standa í skilum. Og margir áttu honum margt að þakka í þeim efnum. En það breytti ekki hinu að nákvæmni og öryggi í þessum veigamiklu störfum var í öndvegi og hann skil- aði starfi sínu með miklum ágætum. Guðmundur Ólafsson var virkur í flokksstarfi alþýðuflokksmanna í Firðinum um langt árabil. Dóttir hans, Valgerður, hefur verið bæjar- fulltrúi flokksins í rúmlega átta ár. Ég hef verið samstarfsmaður henn- ar þessi ár. Gegnum þessi sam- skipti við þau feðgin og góð kynni af fjölskyldunni allri, veit ég að fjöl- skyldan öll er einkar samhent og dugmikil. Sorg eiginkonu Guðmundar, Arnfríðar, barna hans og bama- barna, sem og annarra ættingja og vina er mikil við fráfall hans. Ég bið góðan Guð að gefa þeim styrk og von. Kærar minningar munu lifa. Innilegustu samúðarkveðjur frá okkur Jónu Dóru. Guð gefi dánum ró og þeim líkn sem lifa. Guðmundur Árni Stefánsson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. +
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.