Morgunblaðið - 18.01.1995, Page 2

Morgunblaðið - 18.01.1995, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SNJÓFLÓÐIÐ í SÚÐAVÍK #\ Björgunarfólkið starfaði saman sem einn maður við erfiðar aðstæður á Súðavík Snerting meira en 1000 orð Mikið álag og* stuttar hvíldir BJÖRGUNARSVEITARFÓLK, hjúkrunarfólk og heima- menn stóðu sem einn maður að hjálparstarfinu í Súðavík þegar ástandið var hvað verst á mánudag. Björgunarsveit- armenn voru staðsettir á neðri hæð frystihússins Frosta. Þeir sinntu störfum sínum í smáum hópum og ávallt var eitt boðtæki í hverjum hóp. Eftir þriggja til fjögurra stunda útiveru var skipt um hópa og við tók fjögurra tíma hvíld. Hjúkrunarfólkið var að störfum á efri hæð Frosta. Álagið var mikið og hvíldir stuttar. Á hvíldartíma fleygði mann- skapurinn sér yfirleitt niður og var fljótur að festa svefn vegna líkamlegrar þreytu. ^ Morgunblaðið/RAX Félagar í Björgunarsveit skáta á Isafirði sem jafnframt eru félagar í Björgunarhundasveit íslands tóku þátt í leitinni í Súðavík. Frá vinstri: Arnar Þór Stefánsson með Hnotu, Kristján Bjarni Guð- mundsson með Erlu, Hermann Þorsteinsson með Mikka og Trópí og Auður Björnsdóttir með Tuma. Landssöfnun vegna náttúruhamfara í Súðavík Samhugur í verki Eftir að yfir 90 Súðvíkingar höfðu verið fluttir til Ísafjarðar minnkaði spennan í frystihúsinu og hjálpar- fólkið reyndi að ýta umhugsuninni um harmleikinn frá sér með því að slá á léttari strengi. Hver hug- hreysti annan í orði og snerting gat sagt meira en þúsund orð að sögn eins úr hópnum. Ekki veitti heldur af því að skipa fólki til hvíldar því annars var haldið áfram og ekki hægt að skipta út liði þegar á þurfti að halda. Því var heldur ekki að leyna að eftir því sem leið á nóttina minnkaði vonin um að fleiri fyndust á lífí. Því var eins og vítamíns- sprauta þegar 10 ára drengur fannst í rústunum snemma á þriðjudags- morgun. Björgunarmennimir gengu út tvíefldir. Þeir höfðu fengið full- vissu um að enn var von. Heimamenn þykja hafa staðið sig frábærlega í hjálparstarfinu og margir borið harm í hljóði. Konumar gengu snöfurmannlega til verks inn- an húss og hópur karla tók þátt í björgunarstarfínu utan dyra. Oft var leitað að ættingja eða vini. Fatnaður og matföng voru í húsinu. Matartil- búningur stóð yfír allan sólarhring- inn og gripið var til þvottavélar og þurrkara þegar á þurfti að halda. Þannig starfaði björgunar- og hjúkr- unarfólk við gífurlegt andlegt- og líkamlegt álag. Margir voru við störf með litlum hvíldum í meira en sólar- hring. Þeir eru enn örþreyttir og ljóst að margir þurfa andlega hjálp. ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til söfnunar meðal allra lands- manna til hjálpar og stuðnings íbúum í Súðavík. Söfnuninni hefur verið valið nafnið Sam- hugur í verki. Þeir sem standa að söfnun- inni eru Stöð 2 og Bylgjan, Rík- isútvarpið (Rás 1 og Rás 2) og Ríkissjónvarpið, FM 957, Aðal- stöðin, X-ið, Brosið, Alþýðublað- ið, Dagur, DV, Morgunblaðið, Morgunpósturinn og Tíminn ásamt Pósti og síma í samvinnu við Rauða kross íslands og Hjálparstofnun kirkjunnar. Hefst annað kvöld Landssöfnunin hefst annað kvöld, 19. janúar, kl. 19.55 með ávarpi forseta íslands, frú Vig- dísar Finnbogadóttur, samtímis á báðum sjónvarpsrásum og öll- um útvarpsrásum landsins. Síð- an verður tekið á móti framlög- um í símamiðstöð söfnunarinn- ar til sunnudagskvölds 22. jan- úar. Landssöfnunin verður með því sniði að fólk getur annars vegar hringt í símanúmer lands- söfnunarinnar og tilgreint fjár- hæð sem er sett á greiðslukort eða heimsendan giróseðil. Hins vegar er hægt að leggja beint inn á sérstakan bankareikning söfnunarinnar hjá öllum bönk- um og sparisjóðum. Safnað til 3. febrúar Símanúmer söfnunarinnar er 800 5050 (grænt númer). Banka- reikningur söfnunarinnar er 1117-26-800 í Sparisjóðnum í Súðavík. Tekið verður á móti framlög- um í símamiðstöð söfnunarinn- ar-kl. 20-22 fimmtudaginn 19. janúar, kl. 9-22 föstudaginn 20. janúar, kl. 10-22 laugardaginn 21. janúar og kl. 10-22 sunnu- daginn 22. janúar. Tekið verður á móti framlögum inn á banka- reikning landssöfnunarinnar frá föstudeginum 20. janúar til föstudagsins 3. febrúar. Sjóðsstjórn Sjóðsljórn landssöfnunarinn- ar er skipuð fulltrúum Rauða kross íslands, Hjálparstofnunar kirkjunnar, stjórnvalda, sóknar- prestinum í Súðavík og fulltrúa Rauða kross deildar ísafjarðar- sýslu. Fjárgæsluaðili söfnunar- innar er sparisjóðirnir á íslandi. Sýnum samhug í verki Þeir sem standa að landssöfn- un vegna náttúruhamfara í Súðavík hvetja alla íslendinga til að sýna samhug í verki og láta sitt af hendi rakna svo að milda megi áhrif hinna válegu atburða á Iíf og afkomu fjöl- skyldna og einstaklinga í Súða- vík. Hundarnir skiptu sköp- um við leitina Morgunblaðið, Súðavík. „ÉG HELD að óhætt sé að full- yrða að þessir hundar hafi skipt sköpum við Ieitina," sagði Krist- ján Bjarni Guðmundsson félagi í Björgunarsveit skáta á ísafirði. Kristján sagði að vinnulagið við leitina hafi verið þannig að hund- arnir hafi farið yfir svæðið og gefið vísbendingar um hvar ætti að leita. Björgunarmenn hefðu í kjölfarið grafið niður og hund- arnir síðan komið aftur og leið- beint leitarmönnum við gröftinn. Sagði hann að í lang flestum til- fellum hefðu vísbendingar hund- anna reynst réttar. „Ég held að miðað við aðstæður sé álls ekki hægt að segja að bet- ur hefði verið hægt að standa að Ieitinni. Allir sem að þessu komu unnu sitt verk betur heldur en raunverulega var hægt að ætlast til. Kristján Bjarni sagði að and- legt álag björgunarsveitarmanna og heimamanna hefði verið gríð- arlegt. Afleiðingar álagsins ættu eftir að koma fram þegar lengra liði frá þessum hryllilegu atburð- um. Átta böm meðal látinna FJÓRTÁN létust í snjóflóðinu í Súðavík, þar af átta börn, tólf komust lífs af og af þeim liggja níu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Isafirði. Þeir sem létust eru: Aðalsteinn Rafn Hafsteinsson 2 ára, fæddur 29. september 1992, Kristján Númi Hafsteinsson 4 ára, fæddur 7. októ- ber 1990, og Hrefna Björg Hafsteinsdótt- ir, 7 ára, fædd 10. ágúst 1987. Þau eru systkini, börn hjónanna Hafsteins Núma- sonar sjómanns og Berglindar M. Kristjáns- dóttur til heimilis á Túngötu 5. Berglind komst lífs af úr snjóflóðinu og liggur slösuð á Fjórðungssjúkrahúsinu á Isafírði. Hafsteinn Björnsson, 40 ára, fæddur 9. júlí 1954, og fósturdóttir hans, Júlíanna Bergsteinsdóttir, 12 ára, fædd 21. mars 1982. Þau voru til heimilis á Túngötu 6. Móðir Júlíönnu og sambýliskona Hafsteins er Björk Þórðardóttir. Faðir Júlíönnu er Bergsteinn R. Sörensen. Júlíanna á systur, Maríönnu Bergsteinsdóttur, og hálfbróður, Bimi Smára Hauksson. Bella Aðalheiður Vestfjörð 39 ára, fædd 15. mars 1955, og dóttir hennar, Petrea Vestfjörð Valsdóttir. 12 ára, fædd 21. mars 1982. Þær bjuggu á Túngötu 7. Faðir Petreu er Valur Hauksson. Hjördís Björnsdóttir, 37 ára, fædd 15. október 1957, og dætur hennar, Birna Dís Jónasdóttir, 14 ára, fædd 23. ágúst 1980, og Helga Björk Jónasdóttir, 10 ára, fædd 17. maí 1984. Þær áttu heima á Túngötu 8. Eftir lifa eiginmaður Hjördísar og faðir telpnanna, Jónas Sævar Hrólfsson sem slapp úr flóðinu og Iiggur á sjúkrahúsi, og elsta dóttir þeirra og systir, Sigurrós Jónas- dóttir, 15 ára. Sigurborg Árný Guðmundsdóttir, 66 ára, fædd 14. ágist 1928, Njarðarbraut 10. Hún lætur eftir sig þrjú uppkomin börn, Barða, Maríu og Guðrúnu Ingibjartsbörn. Sveinn Gunnar Salómonsson, 48 ára, fæddur 29. október 1946, og eiginkona hans, Hrafnhildur Kristín Þorsteinsdótt- ir, 49 ára, fædd 2. júlí 1945, til heimilis á Nesvegi 7. Hrafnhildur lætur eftir sig fjög- ur uppkomin börn, Þorstein Örn, Kristínu Ósk og Maríu Gestsböm og írisi Björk Jóns- dóttur. Sveinn lætur eftir sig uppkomna dóttur, Andreu. Þrettán ára uppeldissonur þeirra, Daníel Sveinsson, og Bjarni Guð- bjartsson, maður Kristínar Oskar, komust lífs af. Hrafnhildur Kristín Þorsteinsdóttir, 1 árs, fædd 8. September 1993, Aðalgötu 2. Foreldrar hennar eru Þorsteinn Örn Gests- son og Sigríður Rannveig Jónsdóttir og hálfsýstur Linda Rut Ásgeirsdóttir og Tanja Björk Þorsteinsdóttir. Þau Þorsteinn, Sig- ríður og Linda björguðust úr flóðinu og liggja slösuð á sjúkrahúsi. Hrafnhildur Kristín er sonardóttir Hrafnhildar Kristínar eldri. Þeir sem lifðu af og liggja enn á sjúkra- húsi, auk þeirra sem að framan greinir, eru hjónin Frosti Gunnarsson og Björg Valdís Hansdóttir og fjórtán ára dóttir þeirra, Elma Dögg Frostadóttir, til heimilis á Tún- götu 8, og Tómasz Lupiski, 10 ára, á Tún- götu 7. Morgunblaðinu er ekki kunnugt um nafn eins þeirra sem bjargaðist úr snjóflóð- inu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.