Morgunblaðið - 18.01.1995, Side 11

Morgunblaðið - 18.01.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 11 FRÉTTIR IQi ggy Snjóflóð hafa fallið víða og hættuástand er á mörgum stöðum Um 800 manns á Vestfjörðum hafa yfirgefið heimili sín HÆTTUÁSTAND var í gær áfram á þeim stöðum á Vestfjörðum þar sem því var lýst yfir á mánudag og er talið að um 800 manns hafi ekki getað verið á heimilum sínum vegna snjóflóðahættu, flestir á Patreksfirði eða tæplega 300 manns. Margir yfirgáfu hús sín að eigin frumkvæði en létu almannavarnayfírvöld og björgunar- sveitir vita til að hægt væri að hafa yfirsýn yfir það hvaða hús stæðu mannlaus. Veðurspá var í gær þannig að síst var talin ástæða til að draga úr viðbúnaði, að sögn Jóhannesar Reykdal, upplýsingafulltrúa hjá Almannavörnum ríkisins. Mjög vont veður var alls staðar á Vestfjörðum og víðar um land. FANNFERGI á Patreksfirði veturinn 1983. Þar hafa nú um 300 manns flutt að heiman og dvelja margir þeirra í félagsheimilinu á staðnum. Örn Gíslason hjá stjórnstöð al- mannavarna á Bíldudal sagði að 31 íbúð hefði verið rýmd á staðnum. Milli 80 og 90 manns hafa komið sér fyrir hjá vinum og ættingjum og í auðum íbúðum, gistihúsi og prests- bústaðnum. Örn sagði að einhver lítil snjóflóð hefðu fallið milli Bíldu- dals og Auða Hrísdals og eitthvað hefði fallið á veginn út í Ketildali. Hann sagði að tveir bílar hefðu kom- ist til Bíldudals í gær með aðstoð veghefils frá Patreksfirði með mjólk og olíu. Fyrir mikið harðfylgi þeirra manna sem þar voru á ferð hefði ferðin tekist vel og komust þeir heilu og höldnu til Patreksfjarðar aftur. Ekkert vit að sigla Á Bolungarvík var ástand óbreytt frá því á mánudag. Jónas Guð- mundsson, formaður almannavarna- nefndar í Bolungarvík, sagðist vita að einhveijar smásnjóspýjur hefðu fallið á veginn um Óshlíð en björgun- arsveitarmenn, sem ætluðu sér til Súðavíkur, hefðu farið með aðstoð vinnuvélar til Hnífsdals. Þar urðu þeir hins vegar frá að hverfa og komust ekki til ísafjarðar vegna snjóflóðs á Eyrarhlíð. Jónas sagði að höfnin í Bolungar- vík hefði ekki verið formlega lokuð en hins vegar væri mikið brim og ekkert vit fyrir nokkurt skip að reyna að sigla þar inn. Jónas sagði að almannavarnanefnd hefði farið fram á að fólk rýmdi um 30 hús í bænum en sagðist vita til að um 20 til viðbótar hefðu verið yfírgefin. Ætla má að um 120 manns hafi fengið húsaskjól annars staðar. Sumarhús eyðilagðist Snjóflóð, um 120-130 metra breitt, féll á Steiniðjuna, sem stend- ur í landi Grænagarðs við Skutuls- íjarðarbraut um klukkan ellefu í gærmorgun. Flóðið gjöreyðilagði sumarhús sem stóð á lóð fyrirtækis- ins og gekk niður í malargryfjur við Steiniðjuna. í fyrrakvöld féll 100-150 metra breitt snjóflóð á Skutulsfjarðarbraut við Kalsá. Það flóð olli engu tjóni, svo vitað sé. Engin umferð hefur verið leyfð um veginn á milii Hnífsdals og Isafjarð- ar nema í neyð. Eitt flóð féll á veg- inn þar og olli það engu tjóni. íbúi á Hnífsdal sagði að ekki væri brauðbita eða mjólkurdropa að hafa á staðnum og fólk sæti við kertaljós og hlustaði á útvarp með rafhlöðum og borðaði kex og drykki kók. Enn snjóflóðahætta Jónas Sigurðsson, aðalvarðstjóri á Patreksfirði, sagði að ákveðið hefði verið að halda því ástandi sem ákveðið var á mánudag. „Við teljum að hér sé enn snjóflóðahætta og í ljósi mjög slæmrar veðurspár þá höldum við því ástandi áfram.“ Hon- um var ekki kunnugt um að nein snjóflóð hefðu fallið í nágrenni Pat- reksfjarðar. Engin snjóflóðahætta er í Sanda- fellinu fyrir ofan Þingeyri og því hefur ekki þurft að grípa til neinna ráðstafana, að sögn Jónasar Ólafs- sonar sveitarstjóra. „Þó hafa stund- um komið krapaflóð í miklum leys- ingum á vetrum og vorin en ekki gert neinn verulegan usla í kauptún- inu,“ sagði Jónas. Áð öðru leyti hefur allt gengið vel í Dýrafirði í óveðrinu, þó er farið að bera á vöruskorti í kaupfélaginu. Mjólk og brauð er uppurið en vonast er eftir Mælifellinu með birgðir fljót- lega. Ekki í mikilli hættu Guðmundur Magnússon, oddviti á Drangsnesi, sagði að smáskrið hefði fallið á hús í þorpinu um hádegisbil á mánudag. Þá hefði verið mælst til þess við fólk að það flytti úr þeim húsum sem eru innan hættusvæðis, 16 manns. Á mánudagskvöld fóru tvær smáskriður að húsi undir hjalla fyrir ofan þorpið en þær skemmdu ekkert. Guðmundur sagði að snjóflóð hefði fallið yfir veginn í Bitrufirði og tekið í sundur rafmagnslínur. „Við höfum ekki metið það svo að við værum í rrrikilli hættu og aðstæð- ur hér eru ekkert líkar því sem þær eru hér fyrir vestan, þar sem fólk er undir háum fjallshlíðum," sagði Guðmundur. 100 manns flutt út Kristján Jóhannsson, sveitarstjóri á Flateyri, sagði að búið væri að rýma 34 hús og úr nokkrum þeirra hefði fólk farið að eigin frumkvæði en í samráði við almannavarna- nefnd. Alls væru þetta tæplega 100 manns. Á mánudag höfðu um 60 manns flutt úr 20 íbúðum. í gær- morgun féll snjóflóð innan við Flat- eyri og sleit í sundur rafmagnslínu þannig að keyra hefur þurft dísilvél. Kristján sagði að flóðið hefði verið gengið fram í sjó og hefði verið það mikið að það hefði gengið inn í höfn- ina og hnekkt til skipum og bátum sem þar lágu við bryggju. Hann sagði að næg olía væri til á staðnum til að keyra dísilrafstöð en hins veg- ar væri orðið mjólkurlaust. Tvö snjóflóð í Djúpadal Tvö snjóflóð hafa fallið í Djúpa- dal í Reykhólahreppi, hvort sínu megin við íbúarhús og peningshús. Við hornið á fjárhúsum stóð gámur fullur af kjarnfóðri sem snjóflóðið færði úr stað. Ekki hefur verið kannað hve skemmdir urðu miklar. Víða á svæðinu er rafmagnslaust, aðallega í Gufudalssveit. Um hádeg- isbilið í gær féll snjóflóð á gamla vatnstankinn á Reykhólum og velti honum um koll en hann er stein- steyptur. Álmannavarnanefnd í Reykhóla- sveit er í viðbragðsstöðu. Bjarni P. Magnússon sveitarstjóri sagði að nefndin hefði beðið fólkið í Djúpadal að færa sig í sumarbústað sem er á öruggu svæði og fólkið í Fremri- Gufudal að rýma íbúðarhús sitt. Almannavarnanefnd réð fólki ein- dregið frá því að reyna að fara um Gilsfjörð í gær en hann er á þekktu snjóflóðasvæði. Hjálparsveit illa búin Samúel Zakaríasson, bóndi í Djúpadal, sagði að menn kæmust ekki til hjálpar þangað þótt eitthvað bjátaði á vegna óveðurs og ófærðar. Að sögn fréttaritara Morgun- blaðsins á Reykhólum er hjálpar- sveitin þar afar illa búin tækjum og segja megi að byggðin sé hjálp- arvana á landi og lofti. „Ef svo illa vildi til að bráðan sjúkdóm bæri að þá væri helst að fara sjóleiðina frá Stykkishólmi, en það er vandrötuð leið í stórhríð.“ íbúðarhúsið á Núpi hrundi í snjóflóði í fyrrinótt Eins og hafi verið stigið á húsið ÍBÚÐARHÚSIÐ á Núpi í Dýra- firði hrundi í snjóflóði í fyrrinótt. Húsið var mannlaust. í fyrstu var talið að snörp vindsprenging upp undir þakið hefði svipt því af og veggirnir síðan lagst saman. Ekki var unnt að kanna verksummerki sökum veðurs og snjóflóðahættu í gær. Að sögn Ásvaldar Guðmunds- sonar, staðarhaldara á Núpi, í gærkvöldi var þá orðið talið að snjóflóð hefði lagt húsið saman. „Þetta er ekki talið þykkt flóð en hefur verið nokkuð kröftugt. Tæp- lega helmingur þaksins sviptist af húsinu og lagðist á hvolf á veginn fyrir framan húsið.“ Lagðist gjörsamlega saman Núpshúsið, sem var tveggja hæða steinhlaðið hús, byggt árið 1936, lagðist gjörsamlega saman. „Það er eins og stigið hefði verið ofan á það og það kramið sam- an,“ sagði Ásvaldur. Það eru hjónin Valdimar Krist- insson og Áslaug Jensdóttir sem áttu Núpshúsið sem og jörðina Núp. Þau hafa undanfarna fimm vetur dvalið í Reykjavík en komið vestur eins og farfuglarnir á vorin og dvalið fram á haust. Eru heimiiisiaus „Við erum svona rétt að átta okkur á þessum atburði,“ sagði Áslaug Jensdóttir í samtáli við fréttaritara. „Þetta er heimili okk- ar og þarna eigum við lögheimili. Það má því segja að við séum núna heimilislaus en við búum í leiguíbúð í Reykjavík á veturna.“ Töluvert var af húsmunum í húsinu og er það allt talið ónýtt. Þá var mikið bókasafn í húsinu, gömul bréf og fleira, sem hafði miklar sögulegar minjar fyrir fjöl- skylduna sem og Núpsstað. Ekki talið á snjóflóðasvæði Núpshúsið var ekki talið á snjó- flóðasvæði en þó féll snjóflóð þar fyrir tveimur árum en stöðvaðist við steingirðingu nokkrum metr- um fyrir ofan húsið. Þá féll mikið snjóflóð í fyrra en það kom niður nokkuð innan við íbúðarhúsið á Núpi. I norðaustanáttinni, sem hefur verið ríkjandi, getur gert feykileg veður á Núpi og þess má geta að kirkjan á Núpi fauk í heilu lagi árið 1891. ÍBÚÐARHÚSIÐ á Núpi í Dýrafirði lagðist saman í snjóflóði í fyrrinótt. Húsið, sem var mannlaust, gjöreyðilagðist og allt sem í því var. Húsið er lengst til hægri á myndinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.